>>>>>>>>>>> Þakkarbréf

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Frá Katrínu Andersen og Val - 22. febrúar 2005

HJÓL M/HJÁLPARMÓTOR

- VALUR JOHANSEN -

Söfnunin hefur gengið framar öllum vonum!

Að sjálfsögðu vissum við öll að fólk hér í bæ, og víðar kom svo í ljós, myndi taka sig saman þegar eitthvað svona á í hlut, ennnnnnnn....... 

...Að á fyrstu 2 tímunum voru kr 21.500 komnar frá einstaklingum og það var á meðan ég fór í bæinn og dreifði bréfunum!  Sem er allt síðunni Steingríms að þakka.....

 ...Að á fyrsta sólarhring voru kr 300.000 komnar inn frá einstaklingum og fyrirtækjum! 

Þegar þau fyrirtæki og félög hér í bæ voru búin að fá samþykki, tókst okkur að safna fyrir hjólinu og vel það.

Þess vegna pantaði ég aukahluti sem okkur hafði ekki dreymt um að geta gert og það er td. bakkgír, stór karfa aftan á hjólið ofl.

Svo er til afgangur í viðhald og nýtt batterí þegar þar að kemur.

Ég veit ekki alveg hvernig ég á að segja ykkur hvernig þetta skeði en málið er að þegar ég fékk bréfið í hendur frá TR fór ég beint heim og skrifaði þetta annars hálf danska bréf til ykkar og án þess að lesa það yfir eða að ná að hugsa málið mikið lengra var ég farin af stað!!!

Þetta skeði allt saman svo hratt að ég fékk strax tækifæri til að segja Val frá þessu öllu saman.

Ég vildi fyrir það fyrsta, ekki vekja hjá honum falskar vonir um hjól en þegar ég mætti í vinnuna daginn eftir hringdi ég í Val til að segja honum fréttirnar því þá voru komnar kr 200.000. Hann átti ekki til orð yfir að fólk hér í bæ og annarstaðar hugsaði svona og gæfi honum styrk! Hann gat ekki annað en grátið yfir þessum ósköpum og kom ekki neinu orði upp.

ER EKKI GOTT AÐ HJÁLPA ÖÐRUM ! 

Við höfum engin orð yfir hversu STÓRT þetta er sem þið hafið gert.  Við getum ekki þakkað ykkur nóg fyrir allan skilninginn, hjálpina og hvað þá stuðninginn á þessu máli.

En ég get þó sagt ykkur að ég hringdi í Danina sem búa til hjólið og þeir töluðu um að setja það á flutning þann 02. mars.

Valur gat valið á milli 3ja lita og hann valdi að sjálfsögðu “stráka” litinn bláan ;)

Og þegar ég nefni “stráka” er það vegna þess að hann bíður eins og lítill strákur eftir jólunum.

Hann er það spenntur að ég er mest hrædd um að hann sé með Reykjarvíkurferð á prjónunum, að hann stingi svo í samband á Ketilás og svo koll af kolli...... 

ENN OG AFTUR EINS OG MAÐUR SEGIR Á DÖNSKU,

- TUSIND TAK FOR HJÆLPEN -

 KÆR KVEÐJA,

 KATRIN SIF ANDERSEN & VALUR JOHANSEN