|
Mánudagur 28. febrúar 2005
Aðsent: Myndir frá Goðamótinu á
Akureyri sem lauk í gær á Akureyri. En við sendum A,B og C lið í 5.
flokki. Stelpurnar í 5. flokki stóðu sig vel og yngsta liðið gerði sér
lítið fyrir og náði 2. sæti í mótinu sem er frábær árangur sérstaklega
þegar litið er til þess að þær voru að spila gegn mun eldri stelpum.
Nöfnin á stelpunum ef við byrjum á efstu röð frá vinstri: Margrét
Baldursdóttir (Baldurs Ben.), Kristín Júlía Ásgeirsdóttir (Ásgeirs og
Huldu), Rebekka Rut (Rósu Daggar), Katrín Ásgeirsdóttir (Ásgeirs Sölva
og Erlu), Daníela (Önnu Hermínu og Jóa), Róbert Haraldsson þjálfari. -- Neðri röð frá vinstri:
Jóhanna Jóhannsdóttir (Jóa Mara), Margrét Thelma. (Vals Bjarna), Ástrós
Jóhannesdóttir, (Bjarka og Esterar), Helga Eir (Huldu og Sidda) og
framan þær er Selma Dóra markvörður liðsins (Óla og Dóru Sallýjar).
Á myndina vantar 3 stelpur sem að voru líka að keppa Það voru
þær Kristín Margrét, Sabrína og Hrafnhildur.
Með kveðju, Hulda. |
|
_small.JPG) |
Mánudagur 28. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -2 °C
Norðan gola
Sólskin |
10:00 |
|
|
Mánudagur
28. febrúar 2005 "Villimannahverfið" - var þetta svæði sem
sést á myndinni kallað á unglingsárum mínum 8 -15 ára. Þarna á þessu
svæði bjuggu annálaðir prakkarar, sem voru "heimsfrægir" í augum
"kjaftakerlinganna og karlana" sem áttu í eilífu stríði við
"pörupiltana" sem þarna réðu ríkjum, með þann sem fæddist og átti heima
í, nú gulu húsi fyrir miðri myndinni, í forustu um árabil. Flest
húsin sem prakkararnir áttu heima í eru horfin, en minningin lifir enn í
hugum margra. Þar á meðal mín sem fæddist í húsinu númer 1 við
Mjóstræti. Myndin var tekin klukkan 14:00 í gær. |
|
Mánudagur
28. febrúar 2005 Ein gömul: Sama svæðið, og hér
fyrir ofan, tekið frá öðru sjónarhorni árið 1943
Ljósmynd: Hinrik Andrjesson |
Mánudagur
28. febrúar 2005
Ragnar Óli Ragnarsson
er 2ja ára í dag |
Mánudagur
28. febrúar 2005
Telma Björk Birkisdóttir
er 27 ára í dag.
|
Mánudagur
28. febrúar 2005
Ásdís Baldvinsdóttir
er 54 ára í dag |
Mánudagur
28. febrúar 2005
Páll Gunnlaugsson
er 69 ára í dag |
|
Sunnudagur
27. febrúar 2005 Pálshús - Mjóstræti 2- Þessa mynd ætlaði
ég að nota sem "auka-veður-mynd" eins og hér fyrir neðan. En við nánari
athugun, þá ákvað ég að taka aðra til þeirrar nota. En það sem vakir
fyrir mér, er að þessi gata Mjóstræti, sem aðeins tvö hús eru kennd
við, númer 1 og 2, er að ég held megi fullyrða; eina gatan á
Siglufirði sem ekki er hægt að keyra enda á milli, vegna þessa litla
snjóruðnings sem þarna er eftir. Þeir sem eiga Pálshús, eru þar fæddir
og uppaldir, þó svo þeir starfi á Suðurlandinu, en þeim gæti dottið í
hug að skreppa "heim", sem þeir gera mjög oft á ári, þá væri gott að
þessi ruðningur væri farinn, ein skóflustunga, með tæki. |
_small.JPG) |
Sunnudagur 27. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 4 °C
Sunnan gola
Úrkomulaust |
10:36 |
|
|
_small.JPG) _small.JPG) Sunnudagur
27. febrúar 2005
Aðsent:
Myndir frá einsöngs- tónleikum nemenda á 6. stigi við Tónlistarskóla
Siglufjarðar.
Tónleikarnir sem voru vel heppnaðir, voru haldnir í Siglufjarðarkirkju
þann 16. febrúar síðastliðnum.
Þessir nemendur eru tenórarnir Björn S. Sveinsson og Þorsteinn B.
Bjarnason. Kennari þeirra og undirleikari er Renáta Ilona Iván. Kv EÞ. |
Sunnudagur
27. febrúar 2005
Joachim Birgir Andersen
er 3ja ára í dag |
|
Sunnudagur
27. febrúar 2005 Aðsent: Hefur lagning
vegslóða á Hafnarfjalli farið í umhverfismat? Ef ekki er ekki þörf á
því, eða fellur slík veglagning undir framkvæmdir sem þegar eru í gangi
í fjallinu? Hér er þó um annað "svæði" að ræða, án þess að ég reyni að
skilgreina það. Ég held að Siglfirðingar verði að hugsa svolítið betur
um umhverfi sitt því staðurinn hefur í dag helst aðdráttarafl í gegnum
upplifun á ýmsum hlutum, og þá tala ég um ferðamennsku (söfn, útilíf,
menning). Staðurinn verður ekki ómerkilegri við það að skreyta hann vegi
en upplifunin verður skert. Þetta er svæði sem ég heimsæki alltaf er ég
kem heim og þekki ég vel til þarna uppi. Það eru fáir orðnir staðirnir á
Íslandi sem við mennirnir höfum ekki merkt okkur og nokkrir eru í og við
Siglufjörð. Er ekki óþarft að bæta gráu ofan á svart?
Kveðja, Ásbjörn Thór Á. Blöndal, Noregi. ---------------
Þetta erindi er sýnist mér beint til okkar
Siglfirðinga "sem heima" sitjum, og ef einhver vill eitthvað til málanna
leggja til viðbótar, þá skal ég koma því hér fyrir á síðu minni.
En ég vil leggja orð í belg. Mig langar til
að lýsa ánægju minni yfir því að einhverjum hefur dottið í hug að
gera göngustíga um fjöllin okkar, sem er raunin. Ég var eins og
fluga upp um öll fjöll þegar ég var ungur, en er vart til þess fær nú,
en ef til vill gæti ég og fleiri sem komnir eru af léttasta skeiði
upplifað þá ánægju aftur, þegar göngustígarnir koma, að ganga á fjöll.
Og að lokum; mér finnst að þessir svokölluðu náttúrusinnar ættu að gera sér
grein fyrir, að þó þeir séu margir hverjir hávaðasamir, þá hefi ég
þá trú að þeir eigi ekki eins marga samherja og þeir láta í veðri vaka. Og
svokallað umhverfismat einhverra pólitískt ráðinna manna með misjafnar
skoðanir, og oft á tíðum enga þekkingu á viðkomandi tilefni, er ekkert annað bull
í mínum huga hvað göngustígana varðar,- að minnsta kosti.. |
|
Sunnudagur
27. febrúar 2005 Ein gömul:
Bílvelta á Hvanneyrarbraut, fyrir 40 árum. Engin slys urðu, en
bílstjórinn, tók ekki (mundi ekki) eftir vegagerðarframkvæmdunum, er
hann kom heim til sín í myrkri um hánótt. |
|
Sunnudagur
27. febrúar 2005 Nýfæddur Siglfirðingur
Þann 23. Febrúar síðastliðinn, fæddist á sjúkrahúsi Siglufjarðar
þessi ungi herramaður.
Foreldrar hans eru Óli Andrés Agnarsson og Elín Björg Jónsdóttir. |
|
Laugardagur 26. febrúar 2005
Skíðasvæðið í Skarðsdal. Nægur snjór er þar ennþá þrátt fyrir að
víða sé snjórinn horfinn úr byggð og hlíðum. Aðeins á einstaka stað á
braut lyftanna hefur þurft að flytja snjó aðeins til en allstaðar uppi í
dalsbotni er nægur snjór. Fólk kemst með lyftunum óhindrað á dásamlegt
skíðasvæði, eins og einn Reykvíkingurinn sem ég mætti á ferð minni þar
uppi í dag eftir hádegið, sagði við mig.
 |
_small.JPG) |
Laugardagur 26. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -2 °C
Logn
Sólskin |
11:15 |
|
|
Laugardagur
26. febrúar 2005
Ein gömul:
Sunna "brennur" í júní 1963.
Eins og sjá má í dag,- þá tókst slökkviliðinu, fljótt og vel að
ráða niðurlögum eldsins, sem flestir bjuggust við í fyrstu að mundi ekki
takast þar sem eldsmaturinn var mikill. |
|
Föstudagur
25. febrúar 2005 Frá Sunnudagaskólanum: Á sunnudaginn fáum
við í heimsókn, Þorstein Bjarnarson hjúkrunarfræðing, og ætlar hann að
fræða okkur um hollan mat og heilbrigðara líferni. Sunnudagaskólinn
kl.11:15 alla sunnudaga á kirkjuloftinu. Kveðja Steini, Þórunn og
Elísa. |
|
Föstudagur
25. febrúar 2005 Aðsent: Hér er Styrbjarnardys sagði
Steini verkfræðingur, er hann gekk um Dalaskarð fyrir skemmstu við annan
mann.
Styrbjörn stal mat úr hjalli nágranna síns til forna, var eltur uppi á
leið yfir Skarðið, drepinn eins og hver annar ótíndur glæpamaður og
heygður á staðnum. Misjöfnum sögum fer af því hvort hann bjó á Hóli eða
var húskarl á Dalabæ eða í Höfn. -- Þarna er ráðgert að leggja
vegarslóða næsta sumar úr Skarðdal og norður að Hafnarhyrnu vegna
stoðvirkjanna sem setja á upp ofan Fífladala. Í baksýn er Snókur og enn
fjær er Hólsskarð og Almenningshnakki. ÖK |
_small.JPG) |
Föstudagur
25. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 3 °C
Sunnan andvari
Þoka til fjalla |
10:15 |
|
|
Föstudagur
25. febrúar 2005 Aðsent: -- 24. Febrúar 2005 -
Fyrirlestur í efra skólahúsi Grunnskóla Siglufjarðar- Ólafur
sparisjóðsstjóri og Sigurður skrifstofustjóri skelltu sér í skólann í
dag og héldu fyrirlestur fyrir nemendur í 9. og 10. bekk. Fræddu þeir
nemendurna meðal annars um starfsemi Sparisjóðsins, styrki sem
Sparisjóðurinn veitir, sparnað, lántöku og hvað það þýðir að gerast
ábyrgðarmaður. Í lok fyrirlestrar tilkynntu Ólafur og Sigurður að
Sparisjóðurinn mun bjóða nemendum fría rútuferð á Samfés dansleik sem
farið er á, á vegum Æskulýðsheimilisins. Myndir sem teknar voru við
þetta tækifæri geturðu skoðað með því að smella
hér á vef Sparisjóðsins. DP |
|
Föstudagur
25. febrúar 2005 Aðsent: Ég
var á göngu niðrá bryggju og varð mjög hissa þegar ég tók eftir þessu,
enda svolítið mjög áberandi. Frekar mikill sóðaskapur í fólki, allgjör
óðþarfi að henda þessu bara beint í höfnina og akkúrat á svona áberandi
stað, þetta var þarna vítt og dreift um þetta svæði þar sem hann er á.
GH
ES: mér sýnist þetta vera inni í bátadokkinni, en bryggja og stefni
báts speglast þarna í annars tærum sjónum. SK |
|
Föstudagur
25. febrúar 2005 Nýfæddur Siglfirðingur. Þessi litli
drengur fæddist þann 23.febrúar síðastliðinn. Hann hefur ekki enn hlotið
nafn en foreldrar hans eru; Arnar Heimir Jónsson og Auður María
Þórhallsdóttir.
|
|
Föstudagur
25. febrúar 2005
Ein gömul:
Á Hvanneyrarbrautinni 1965. Jarðýta þarna komin til að bjarga
vélskóflunni frá veltu, sem tókst með miklum tilþrifum og víraflækju. |
Föstudagur
25. febrúar 2005
Guðrún Jónasdóttir
er 57 ár í dag |
Föstudagur 25. febrúar 2005 |
|
Fimmtudagur 24. febrúar 2005
Þessir krakkar, voru bæði að selja, kaupa og forvitnast. Þau
stilltu sér upp fyrir mig, en allur ágóðinn af þessari Torgsölu
krakkanna rennur til Rauðakrossins, ágóðinn sem raunar er 100% þar sem
allur söluvarningurinn eru hlutir sem þau hafa fengið gefins með hús úr
húsi söfnun, í tilefni af þessu jákvæða málefni.
Þau eru þarna við anddyri Íslandsbanka og Siglufjarðarapóteks.
Efst á síðu |
|
Fimmtudagur 24. febrúar 2005
Leikskólakarakkarnir, einn aldurshópurinn var í göngutúr um
norðurbæinn í morgun ásamt fóstrum sínum. Ég mætti þeim og bað um að fá
að taka ljósmynd af hópnum, sem mér var veitt fagnandi.
Efst á síðu |
_small.JPG) |
Fimmtudagur
24. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 3 °C
Sunnan gola
Þoka til fjalla |
10:28 |
|
Fimmtudagur
24. febrúar 2005
Ein gömul:
Kristján Ásgrímsson síldarsaltandi og kona hans Guðrún
Sigurðardóttir
1964 -1965 (?) |
Kristín
Júlía
er 9 ára í dag
Móðir hennar er
Hulda Ósk Ómarsdóttir |
Efst á síðu |
Fimmtudagur
24. febrúar 2005
Ragna Ragnarsdóttir
er 36 ára í dag |
Fimmtudagur
24. febrúar 2005
Hulda Guðveig Magnúsdóttir
er 43ja ára í dag
Efst á síðu |
|
Miðvikudagur 23. febrúar 2005
MENNINGARSJÓÐUR SPARISJÓÐS SIGLUFJARÐAR
Sjóðurinn auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki vegna menningar- og
líknarmála. -- Með umsókn þarf að fylgja til hvers
styrkurinn er ætlaður. Frestur til að skila inn umsókn er til
mánudagsins 7. mars nk Sjóðurinn mun styrkja á árinu 2005 samtals kr
1.850.000. Umsóknir óskast sendar til: Menningarsjóðs Sparisjóðs
Siglufjarðar, Túngötu 3 Siglufirði
Nánari upplýsingar veita stjórnarmenn, Ólafur Jónsson, Guðrún Árnadóttir
og Hermann Jónasson |
|
_small.JPG) _small.JPG) Miðvikudagur
Efst á síðu
23. febrúar 2005
Þessi steinn sem þarna sést á brúninni rétt vestan við
munna Strákagangna og Hreinn Júlíusson stendur við, kom ofan úr fjallinu
einhvern tíma í nótt. Hann lenti á vegarkantinum fjallmegin, síðan á
vegriðinu, yfir það og stöðvaðist á brúninni. Gott að enginn var á
ferðinni þarna á þessu augnabliki. |
_small.JPG) |
Miðvikudagur 23. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 2 °C
Logn
Sólskin |
11:00 |
|
|
Miðvikudagur 23. febrúar 2005
Kveðja frá Kanada
Komdu sæll og blessaður
vinnur, Hvernig hefurðu það? Héðan er allt gott að frétta. Veðrið er
heitt og dásamlegt og það er alltaf nóg að gera.
Ég lofaði að senda þér nokkrar ljósmyndir af brúðkaupi okkar Kym og vona
að þú getir birt þær á Lífið á Sigló.

Efst á síðu |
|
Miðvikudagur
23. febrúar 2005 Þessi tvö fley, komu inn fjörðinn í gær
um klukkan 14:00. Olíuskipið Keilir og netabáturinn Kristinn Friðrik SI
5 102
Efst á síðu |
|
Miðvikudagur
23. febrúar 2005
Ein gömul:
Stödd ásamt Haferninum í Rotterdam: Guðný Ósk Friðriksdóttir, Halla
Jóhannsdóttir, Bergsteinn Gíslason og Birna Björnsdóttir. Þau standa
við ísbíl og gæða sér á ís, þó svo að hitastigið hafi ekki verið í hærri
kantinum á þessum tíma í Rotterdam, að vori.
Efst á síðu |
Miðvikudagur
23. febrúar 2005
Anna Marie Jónsdóttir
er 48 ára í dag |
Miðvikudagur
23. febrúar 2005
Margrét Kristinsdóttir
er 29 ára í dag
Efst á síðu |
|
 Þriðjudagur 22. febrúar 2005
Aðsent: Þá er talstöðin í Björgunarskýlið í Héðinsfirði komin á
sinn stað og þökkum við Beco og Radíóþjónustu Sigga Harðar fyrir
gjöfina. Ég fór kl. 9.30 í morgun til Héðinsfjarðar og setti
stöðina upp og prófaði og virkar hún vel.
kv Ómar Geirsson / Björgunarsveitin.Strákar
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur 22. febrúar 2005
Fyrstu pensilför Mark Duffield málarameistara úti við í ár, voru
framkvæmd í morgun í birtingunni, þessi mynd af var tekin klukkan 11 í
morgun er hann var að mála hús Efnalaugarinnar við Aðalgötu. Fyrstu
pensilför hans úti við á síðasta ári voru 20 apríl, er hann hóf málningu
á húsinu Aðalgata 2-
Eru þetta "gróðurhúsáhrif" eða bara eðlilegt náttúrufyrirbrigði þetta
tíðarfar? En í gær um klukkan 16:00 komst hitinn í 15 °C og nær allur
snjór farinn, -- nema í Skarðsdal. |
_small.JPG) |
Þriðjudagur 22. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 9 °C
Logn
Sólskin
|
10:00 |
|
|
Þriðjudagur 22. febrúar 2005
HJÓL
M/HJÁLPARMÓTOR
- VALUR JOHANSEN -
Söfnunin hefur gengið framar öllum vonum!
Að sjálfsögðu vissum við öll að fólk hér í bæ, og víðar
kom svo í ljós, myndi taka sig saman þegar eitthvað svona á í hlut,
ennnnnnnn....... Vinsamlega lesið þakkarbréf frá okkur
hér
Og hér hófst
söfnunin: Föstudaginn
11. febrúar 2005
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur 22. febrúar 2005
Febrúarblað Hellunnar er komið út: Meðal efnis er opnuviðtal við
skíðakappann Birgi Guðlaugsson, umfjöllun um útnefningar Kaupmannafélags
Siglufjarðar um „Siglfirðinga mánaðarins“, opna með efni frá Grunnskóla
Siglufjarðar, fréttir úr bæjarlífinu, myndir frá öskudeginum og fastir
þættir í blaðinu, eins og sjávarsíðan og vísnahornið. |
|
Þriðjudagur 22. febrúar 2005
Ein gömul: "Verðlaunamynd" ? Spurningin er: Er þetta
verðalaunamyndin, eða sú sem fyrrverandi verkstjóri minn og vinur,
Jóhann G Möller er að taka og Hólmfríður Magnúsdóttir fylgist svo
náið með? - Raunar var Hólmfríður að forðast það að verða fyrir
myndasmiðnum, en mér tókst að ná þessu augnabliki. Jóhanni var skemmt er
hann sá myndina En Jóhann var þarna að taka myndir fyrir Alþýðublaðið er
ný verslun K.F.S. var tekin í notkun ári 1966
Efst á síðu |
Þriðjudagur 22. febrúar 2005
Guðrún Pála Hannesdóttir
er 66 ára í dag |
|
Þriðjudagur 22. febrúar 2005
Baldur Jörgen Daníelsson
er 40 ára í dag |
Þriðjudagur 22. febrúar 2005
Guðfinna Ingimarsdóttir
er 56 ára í dag
Efst á síðu |
_small.JPG) |
Mánudagur 21. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 10 °C
Sunnan Gola
Sólskin |
10:00 |
|
|
_small.JPG) Mánudagur 21. febrúar 2005
Þau eru nokkuð mörg áhugamálin sem Siglfirðingar stunda, sumir láta sér
nægja fingurbjargir og jafnvel minna, aðrir kjósa að hafa það
tröllaukið, eins og þessir bílar á þessum myndum. Þessir bílar hafa
verið breyttir til torfæru og jöklaaksturs. Eigendur þeirra eru Gunnar
Júlíusson útgerðarmaður (b.tv.) og Guðni Sveinsson lögregluþjónn
m.fleiru (b.th. ) Þeir hafa unnið að þessum breytingum í frítímum sínum
og notið til þess aðstoðar vina og kunningja, auk Jóns Aðalsteins
Hinrikssonar sjómanns með fleiru, sem er þarna á myndunum, en hann hefur
dvalið þarna á "verkstæðinu" flestum frístundum sínum við bílana. Nú
seinni partinn í dag mun hann vara á þeim sexhjólaða, suður til að láta
steypa úr trefjaplasti, hjólabretti á bílinn.
Efst á síðu |
|
Mánudagur 21. febrúar 2005
Ein gömul: Sörbukten við Jan Mayen. Bjargbáturinn á
myndinni er af Haferninum, en þeir sem á myndinni eru, fengu að skreppa
í land á eynni Jan Mayen. Það var blíðskaparveður og lágdauður sjór
þegar lagt var í hann frá borði Hafarnarins, raunar alveg þar til við
gerðum okkur klára til að taka land, búið var að drepa á vélinni til að
vernda skrúfuna og árarnar teknar fram, þegar skyndilega eins og hendi
væri veifað, komu hver stóraldan á fætur annarri og fleytti bátnum
þversum langt upp á land með tilheyrandi gusugangi, engum varð meint af
nema menn blotnuðu rækilega. Þarna erum við að búa okkur undir að snúa
bátnum með stefnið til sjós. Allt tókst að óskum, því þarna voru
hraustir strákar: Sigurður Jónsson bátsmaður - Bergsteinn Gíslason
loftskeytamaður - Sigurður Ásgrímsson dagmaður í vél - Guðbrandur
Sigþórsson háseti og Guðmundur Björnsson dælumaður - Það sést rétt á
einn okkar á bak við Sigurð Jónsson, sem mig minnir að sé Sigurjón
Kjartansson háseti.- Haförninn flutti síld frá síldarmiðunum.
Timburmaðurinn Steingrímur Kristinsson tók myndina sumarið 1967
Efst á síðu |
Mánudagur 21. febrúar 2005
Halldóra Helga Sindradóttir
er 1 árs í dag. (Dóttir Rutar og Sindra) |
Efst á síðu |
Mánudagur 21. febrúar 2005
Hólm Dýrfjörð
er 91 árs í dag |
Mánudagur 21. febrúar 2005
Karl Ragnar Freysteinsson
er 14 ár í dag |
Mánudagur 21. febrúar 2005
Ingibjörn Jóhannsson
er 56 ára í dag |
Mánudagur 21. febrúar 2005
Steingrímur Kristinsson
er 71 árs í dag
Efst á síðu |
|
Sunnudagur 20. febrúar 2005
Þeir trúa á vorið þessir feðgar Björn Jónsson smiður og sonur
hans Jón Ingi Björnsson, þar sem þeir voru að mála fjölskyldubátinn í
morgun, til að hafa hann ferðbúinn þegar grásleppan kemur.
Þetta er báturinn Ingiborg SI 60
Efst á síðu |
_small.JPG) |
Sunnudagur 20. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 7 °C
Sunnan 8 - 10 m/s
Sólskin |
11:15 |
|
|
_small.JPG) _small.JPG) Sunnudagur
20. febrúar 2005
Það var nóg að gera hjá vinkonunum í Aðalbúðinni við að
afgreiða blóm í tilefni af konudeginum í dag. Greinilegt var að mikill
áhugi er á hjá ungum sem gömlum að gleðja "kellu" sína með blómvendi.
Mikið úrval var hjá þeim, það mikið að erfitt var að velja - sérstaklega
fyrir karla eins og mig sem verð að játa að ég hefi reynt að gleðja konu
mína með öðru en blómum hingað til. Það verður opið hjá þeim í
Aðalbúðinni til klukkan 15:00 Lestu hér fyrir neðan:
Efst á síðu |
Föstudagur 18. febrúar 2005
Karlmenn, munið konudaginn í dag, sunnudag
Að því tilefni sérstaklega, verður opið í Aðalbúðinni
Sunnudaginn 20. febrúar, frá kl 11:00-15:00
EKKI láta konuna/kærustuna þína bíða eftir blómvendinum sem
aldrei kemur. |
|
Sunnudagur
20. febrúar 2005 Þorrablót Allans var í gærkveldi, þangað
skrapp ég og tók nokkrar myndir, áður en blótið sjálft hófst.
 |
Sunnudagur
20. febrúar 2005 Ein gömul:
Áður en göturnar voru breikkaðar og malbikaðar.
Efst á síðu |