|
Rauða kross
deildir á Norðurlandi hefja vinadeildasamstarf við Mósambík
Það er skrýtin tilfinning að vera að leita í gegn um
skápana að sumarfötum, nú þegar við Íslendingar erum nýbúin að renna
niður síðustu bitunum af þorramatnum. Tilefnið er ferð Rauða kross
félaga til Maputo í Mósambik þar sem verið er að hefja
vinadeildasamstarf milli deildanna hér á Norðurlandi og deildarinnar í
Maputo.
Ferðin hefst á föstudaginn (11. mars), þegar Lára
Ellingsen og Hafsteinn Jakobsson frá Akureyrardeild, Katrín María
Andrésdóttir frá Skagafjarðardeild og Guðný Björnsdóttir og Gestur
Hrólfsson frá Aðalskrifstofu Rauða kross Íslands leggja af stað til
Mósambik
|
 |
|
Hér
má sjá handverksfólk að störfum en afraksturinn er seldur til
fjáröflunar fyrir heimili fyrir munaðarlaus börn og ungmenni í
Maputo. |
Rauða kross
deildirnar á Norðurlandi ætla að leggja heimamönnum lið með því að
aðstoða við rekstur heimilis fyrir munaðarlaus börn og ungmenni.
Tilgangur heimsóknarinnar er að byggja upp samstarf milli Rauða kross
deilda í þessum ólíku heimshornum og meta hvort og með hvaða hætti
íslensku deildirnar geti komið að fleiri verkefnum. Verkefni af þessum
toga eru undantekningalaust mjög áhugaverð og lærdómsrík og auðga starf
Rauða kross deildanna á Norðurlandi enda byggir samstarfið á því að
miðla þekkingu og reynslu milli svæða. Aðalskrifstofa Rauða kross
Íslands hefur starfað um nokkurt skeið með Landsfélaginu í
Mósambik
|
 |
Börnin taka lagið
|
Óhætt er að segja að full þörf sé fyrir aðstoð Rauða krossins í
Mósambik. Meira en helmingur þjóðarinnar lifir undir fátæktarmörkum,
ungbarnadauði er með því mesta sem gerist og um fjórðungur barna undir
fimm ára aldri er vannærður. Nokkur batamerki má þó sjá á efnahag
landsins þar sem stjórnvöld hafa sett metnaðarfulla stefnu í uppbyggingu
samfélagsins eftir borgarstyrjöld og náttúruhamfarir síðustu áratuga.
Verðbólga í Mosambik var 54% árið 1995 en var 12,9% árið 2004. Mikið
verk er enn óunnið við uppbyggingu í landinu. Af tæplega 19 milljónum
íbúa Mósambik voru um 13% skráðir smitaðir af HIV veirunni árið 2003 og
slæmt aðgengi að heilsugæslu gefur tilefni til að álykta að sú tala
kunni að vera enn hærri í raun. Þegar 17 ára borgarastyrjöld lauk árið
1992 höfðu verulegar skemmdir orðið á samgöngukerfi landsins og enn
leynast jarðsprengjur sem torvelda mjög jarðyrkju og aðra nýtingu lands.
Sjávarútvegur er nokkur í þessari fyrrum portúgölsku nýlendu enda
standlengja landsins um 2500 km löng.
Sem fyrr sagði vinna heimamenn nú að uppbyggingu samfélagsins við
erfiðar aðstæður. Það er ánægjulegt verkefni fyrir Rauða kross félaga á
Íslandi að fá að taka þátt í þeirri uppbyggingu. Á myndinni hér að neðan
má sjá börn að syngja við móttöku Rauða kross fólks. |