Ágætu gestir
Í annað sinn er verið að
veita styrki úr Menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar.
Á síðasta ári var veitt úr sjóðnum kr 1.500.000 en nú verða veitt kr
1.850.000.
Framlag Sparisjóðsins var hækkað milli ára úr 1.000.000 í 1.250.000, auk
þessa eru tekjur sjóðsins vaxtatekjur.
Eins og á síðasta ári
voru styrkbeiðnir mun meiri en efni stóðu til, en stjórnin hefur reynt
að meta hvert og eitt verkefni.
Það er von okkar að styrkirnir nýtist sem best til menningarlegra
málefna.
Gallerí Sigló
Hönnun á merkjum KS og SSS
Styrkur kr 30.000
Arnfinna Björnsdóttir
Myndlistasýning
Styrkur kr 30.000
Sigurður Ægisson
Ljósmyndasýning af kirkjum af landsbyggðinni
Styrkur kr 30.000
Vinnustofa Fríðu og
Þórunnar
Styrkur kr 30.000
Kammerkór Norðurlands
Höfundarlaun fyrir nýtt íslenskt kórverk
Styrkur kr 30.000
Kvennakór
Styrkur kr 50.000
Dyfrur
Styrkur kr 50.000
Íris Gunnarsdóttir
Útgáfa geisladisks
Styrkur kr 50.000
Áhugamannafélag um
skráningu örnefna
Styrkur kr 50.000
Miðaldamenn
Útgáfa geisladisks með
lögum Bjarka Árnasonar til að heiðra minningu hans.
Styrkur kr 50.000
ÓB kvartett
Styrkur kr 50.000
Kirkjukór
Söngferð til Ungverjalands
Styrkur kr 50.000
Karlakór
Styrkur kr 50.000 vegna
reksturs
Styrkur kr 100.000
vegna flygilkaupa, sem nýtist öllum öðrum kórum
Félag eldri borgara
Útgáfa geisladisks
Styrkur kr 50.000
Siglfirðingafélagið
Hefur verið mikilvægur hlekkur milli Siglufjarðar og brott fluttra
Siglfirðinga, en félagið var stofnað árið 1961. ---
Félagið stendur fyrir hinum ýmsu uppákomum í Reykjavík auk þess að koma
að ýmsum menningarviðburðum tengdum Siglufirði.
Félagið gefur út fréttablað tvisvar á ári.
Styrkur kr 75.000
Foreldraráð G.S.
Skólatónleikar
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Styrkur kr 75.000
Lions
Lionsmenn eru að vinna að
mjög áhugaverðu verkefni sem er uppgröftur gamla kirkjugarðsins á
Hvanneyri.
Ljóst er að fornminjar eru ekki á sviði menningarmála, en þar sem ýmsar
uppákomur munu koma til í garðinum s.s.
hluti dagskrár 17. júní, þá telur stjórnin að um menningartengt
viðfangsefni sé að ræða og rétt sé að styrkja að þessu sinni.
Styrkur kr 100.000
Herhúsfélagið
Var stofnað með það að
markmiði að koma á gestavinnustofu fyrir listamenn.
Nú er verkinu nánast lokið og vantar einungis húsbúnað til að fullkoma
verkið
Styrkur kr 150.000.
Hlöðver Sigurðsson
Hlöðver er að ljúka námi nú
í vor, við taka mikil ferðalög og kostnaður við að kynna sig í leit að
atvinnutækifærum.
Styrkur kr 200.000
Steingrímur
Kristinsson/Síldarminjasafn
Steingrímur og
Síldarminjasafnið eru að fara í samvinnuverkefni við að skanna gamlar
ljósmyndafilmur úr
Ljósmyndasafni Steingríms yfir á stafrænt form jafnhliða skráningu.
Tilgangurinn er að gera myndasyrpur aðgengilegar gestum
Síldarminjasafnsins til skoðunar á tölvuskjá.
Styrkur kr 250.000
Þjóðlagahátíðin á
Siglufirði
Verður haldin í sjötta sinn í júlí nk, ljóst er að framtakið er
glæsileg í alla staði og fjöldi innlendra og erlendra listamanna koma
við sögu.
Kostnaður við hátíðin er gríðarlegur, enda er í boði mjög vönduð
dagskrá, sem einkennist af metnaðarfullum áhuga þeirra er stýra henni.
Styrkur kr 300.000
|