|
Laugardagur
19. mars 2005 Héðinsfjarðargöng: Það hefur ekki farið
framhjá neinum yfirlýsing sem samgönguráðherrann Sturla Böðvarsson
gaf í Bátahúsinu þennan dag 19. mars síðastliðinn. um Héðinsfjarðargöng.
Ég sá í sjónvarpinu að mikið var klappað og glaðst yfir yfirlýsingunum
um það flýta örlítið útboði um jarðgöngin. Meir að segja einn harðasti
andstæðingurinn Pétur Blöndal virtist þokkalega sáttur, miðað við það
sem hann sagði í ríkissjónvarpinu (20.3) þó svo að hann hafi laumað
undir rós að þetta hafi verið gert af illri nauðsyn, til að standa við
skrifleg fyrirheit. Ég var fjarri góðu gamni eins og lesendur mínir
vita og skrifa þetta raunar í dag 21.3. Ég hefði vissulega tekið
þátt í lófaklappinu þegar Karlakór Siglufjarðar söng (ekki Vísir eins og
RÚV sagði) en ég ætla að geyma lófaklappið vegna Héðinsfjarðargangna,
þar til fyrstu sprengingarnar við göngin heyrast. Vinkona mín
Hrönn Einarsdóttir var á staðnum og tók þar nokkrar myndir. Ef þú
smellir á
sérðu hvernig henni tókst til. |
Laugardagur
19. mars 2005
Heiðar Freyr Úlfarsson
er 19 ára í dag |
|
|
Laugardagur
19. mars 2005 Unglingameistaramót Íslands var haldið um
síðustu helgi, keppt var bæði í alpagreinum og göngu. Nánar um mótið er
að finna
HÉR
Ljósmynd: Hrönn Einarsdóttir, tekið að morgni laugardags. |
_small.JPG) |
Laugardagur 19. mars
2005
Veðrið í hádeginu
Hitastig 1 °C
Andvari
Úrkomulaust
Ljósmynd: H.E |
 |
|
_small.JPG) |
Föstudagur 18. mars 2005
Veðrið klukkan 19:35
Hitastig 1 °C
Austan gola
Slydda -- ljósmyndir; H.E. |
_small.JPG) |
|
|
Föstudagur
18.. mars 2005
Vinsamlega, athugið, : Áttunda barnabarn mitt Silja Sif
Kristinsdóttir, verður fermd nú um helgina. Hún á heima í Reykjavík,
þar verð ég viðstaddur og á
meðan verður síða mín ekki uppfærð, frá föstudegi 18.
klukkan 07:00 til mánudags seinnipartinn ? þann 21.
Veðurmyndir hvers dags verða teknar fyrir mig á meðan- og verða þær
allar settar inn væntanlega á mánudagskvöld, sem og annað efni og myndir
sem væntanlega kemur til mín í tölvupósti á meðan ég er
fjarverandi. |
|
Föstudagur
18.. mars 2005 Ein gömul:
Snjó mokað af mjölhúsþaki S.R.P. í aprílmánuði árið 1976
Á myndinni eru: Jón Sigurðsson frá Skarðdal, Jón Kristjánsson og Njáll
Jónasson |
Föstudagur
18.. mars 2005
Helga Guðmundsdóttir
er 68 ára í dag |
Föstudagur
18.. mars 2005
Ásdís Gunnlaugsdóttir
er 66 ára í dag |
|
 Fimmtudagur 17. mars 2005
Katrín Dröfn Haraldsdóttir hefur verið valin ásamt Eyrúnu Ýr
Pálsdóttur, frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra til þátttöku á
stórmóti framhaldsskólanema sem haldið verður í reiðhöllinni í Víðdal í
Reykjavík 18.-20 mars. Árangur Katrínar verður að teljast mjög góður þar
sem aðeins tveir nemendur úr þessum fjölmenn skóla komust áfram úr
forkeppninni.
Katrín keppir í fjórgangi á hestinum Ofsa frá Engimýri. Katrín verður í
6. hópi inn á völlinn, þrír keppendur eru inní á vellinum í einu. Þessa
frétt er að finna á: http://www.847.is/
Framhaldsskólamótið 2005 ----
Hið árlega Framhaldsskólamót í hestum verður haldið í Reiðhöllinni í
Víðidal 18. - 20 mars næstkomandi. Keppt verður í fjórgang, fimmgang,
tölti og fljúgandi skeiði. Vinningar í ár eru með þeim glæsilegustu sem
gefin hafa verið á þessu móti og ýmis aukaverðlaun eru einnig í boði. --
Framhaldsskólamótið er eitt af stærri innanhúsmótum ársins og hvetjum
við alla til að koma og sjá spennandi og skemmtilega keppni.
Fjölbreyttar veitingar verða seldar á staðnum og kynningarbásar t.d. frá
Hólum verða starfræktir á meðan mótinu stendur. Meira um mótið, reglur,
dómara og ráslista má finna á
www.blog.central.is/frhskolanefndin |
_small.JPG) |
Fimmtudagur 17. mars 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -0 °C
Austan gola
Úrkomulaust |
10:30 |
|
|
Fimmtudagur
17. mars 2005 Allinn-Sportbar: Ég leit inn á æfingu
í gærkvöld hjá hópnum "Frá Óperu til Idol" sem ætla að koma á
framfæri "Meiriháttar - Stórkostlegum - frábærum" söng og
skemmtiatriðum í Allanum- Sportbar, næstkomandi laugardagskvöld
26. mars. Miðað við góða skapið og stemminguna, sem ríkti þegar ég mætti
til að hlusta á þau, þá lofar framhaldið góðu. Myndin sýnir meirihluta
skemmtikraftanna sem voru á æfingu. |
|
Fimmtudagur 17. mars 2005
Samgönguráðherra boðar til opins fundar um samgöngumál 19.
mars í Bátahúsinu klukkan 14:00 - Með honum kemur Jón
Rögnvaldsson vegamálastjóri og Hreinn Haraldsson framkvæmdastjóri
Vegagerðarinnar. Þar verða til umræðu jarðgangamál og fleira. |
Fimmtudagur 17. mars 2005
Skíðaunnendur það er nægur snjór á skíðasvæðinu við
Skarðsdal á Siglufirði. Skoðið
Myndir |
|
Fimmtudagur
17. mars 2005 Það gefur á bátinn. Þessi mynd var tekin
í gær, þegar báturinn Kristinn Friðrik SI 5 102 sigldi út fjörðinn um
12:30
Ekki veit ég hvert ferðinni var heiti, til fiskjar eða annað. |
Fimmtudagur
17. mars 2005
Hreinn Júlíusson, yngri
er 20 ára í dag |
|
|
Fimmtudagur
17. mars 2005
Nýfæddur Siglfirðingur: Drengur
fæddur á fæðingardeild Landspítalans Háskólasjúkrahúss, þriðjudaginn 15.
mars.
Foreldrar eru Steindór Birgisson og Guðrún Karlsdóttir
|
|
Fimmtudagur
17. mars 2005 Ein gömul: Texti með mynd: Leó R Ólafsson:
Eld-gamla Apótekið. Húsið stóð á sömu lóð og
Bakaríið stendur á í dag. Þetta var upphaflega Aðalgata 28 sem Aage
Schiöth keypti og hóf lyfsölu í, en hann lét síðan flytja húsið á baklóð
líklega 1929 og taldist það eftir það vera no. 28b. Hann stækkaði það
til norðurs að lóðarmörkum og byggði svo hús það sem nú stendur á lóð no
28 sem upphaflega hýsti apótekið, þá rafmagnsverkstæði Ingólfs, svo
Diddabúð og síðast bakaríið, en ég keypti húsið árið 1981. Einhverju
síðar var svo skúrinn byggður milli húsanna og tengdi þau saman og í
honum og gamla húsinu á myndinni var gosverkssmiðjan góða sem við
Siglfirðingar munum sumir eftir. Áður en hann hóf að byggja nýja húsið
hafði hann makaskipti á lóðum við Lárus Blöndal þannig að hann fékk ræmu
af Aðalbúðarlóðinni við Aðalgötu og lét í staðinn mun stærri lóð við
Grundargötu og þar er nú meðal annars bílastæði sem tilheyrir
Aðalbúðinni. Þetta gerði honum kleift að byggja mun stærra og reisulegra
hús sem setur mikinn svip á götumyndina enn þann dag í dag. Ég reif
milliskúrinn 1982 og síðan gamla húsið 1983 en þá voru báðir þessir
hlutar með öllu orðnir ónýtir og reyndar ekkert annað en stór
slysagildra. Myndin frá því um 1929 eða fyrr. Heimildarmenn mínir voru
aðalega Ingólfur í Höfn og Birgir Schiöth og hafi eitthvað skolast til í
áranna rás og þú telur þig geta leiðrétt mig, þætti mér hið besta mál að
það yrði gert. -
Mínar bestu kveðjur – Leó. -- Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson. © Steingrímur |
|
Miðvikudagur 16. mars 2005 Strák
og stelpu vantar far frá Reykjavík til Siglufjarðar á föstudaginn
næstkomandi þau eru að fara í páskafrí. Það gengur erfiðlega að finna
far fyrir þau. Það væri frábært ef einhver veit af slíku fari á lausu,
og hafi samband í síma 849-8426 - (Ragna Ragnarsdóttir)
Gunnar Ragnarsson |
_small.JPG) |
Miðvikudagur 16. mars 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -4 °C
Norðaustan 6-8 m/s
Úrkomulaust |
10:00 |
|
|
Miðvikudagur
16. mars 2005 Aðsent:
Frétt úr Bæjarins Besta, Vestfjörðum:
bb.is | 16.3.2005
08:55:00
Kosningum um sameiningu
sveitarfélaga frestað til 8. október
Kosningar um
tillögur sameiningarnefndar sveitarfélaga sem fram áttu að fara
þann 23. apríl munu frestast til 8. október ef stjórnarfrumvarp
sem félagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi verður
samþykkt. Sem kunnugt er lagði nefndin fram tillögu um viðamikla
sameiningu sveitarfélaga á Vestfjörðum sem hefur ekki hlotið
mikinn stuðning meðal sveitarstjórnarmanna.
Í greinargerð með frumvarpinu segir að ástæða seinkunarinnar sé
tvíþætt. Annars vegar hafi tekið lengri tíma en gert var ráð
fyrir að ná samkomulagi í tekjustofnanefnd um breytingar á
tekjustofnum sveitarfélaga og því hafi dregist að
sameiningarnefnd kynnti endanlegar tillögur sínar. „Er því nú
ljóst að ekki er nægur tími til stefnu til að tillögurnar geti
fengið nægilega kynningu og umfjöllun í viðkomandi
sveitarfélögum fyrir kjördag. Hins vegar er ástæðan sú að
undirbúningur atkvæðagreiðslu um tillögur sameiningarnefndar er
kominn misjafnlega vel á veg á einstökum svæðum" eins og segir
orðrétt í greinargerðinni. Þá segir að allmargar sveitarstjórnir
hafi lýst yfir þeim áhyggjum sínum að frestur til að kynna kosti
og galla sameiningartillagna og undirbúa atkvæðagreiðslu sé ekki
nægur ef kjósa þarf 23. apríl 2005.
|
|
Miðvikudagur
16. mars 2005 Aðsent: Hrönn Einarsdóttir sendi mér þessa
mynd seint í gærkveldi. Hún hefur greinilega gott auga fyrir myndefninu.
Hún notar þarna sólarbirtuna og skugga til að gera mynd sína
áhrifameiri. |
|
Miðvikudagur
16. mars 2005 Menningarsjóður Sparisjóðs Siglufjarðar
úthlutaði í gærkvöld á Kaffi Torg, úr menningarsjóðnum samtals 1.850.000
krónum. Upphafsorð Ólafs Jónssonar; útskýringar ásamt lista yfir
styrkþegana er HÉR
Og slatti af myndum hér:
 |
|
Miðvikudagur
16. mars 2005 Ein gömul:
Til samanburðar við myndirnar hér fyrir neðan af hópum
Síldarvinnslunnar og SR-Mjöl, er hér mynd af starfsmönnum
Síldarverksmiðja Ríkisins um 1930 - "Sami" vinnustaður undir þrem
nöfnum. Ljósmyndari ókunnur. |
Miðvikudagur
16. mars 2005
Jón Dýrfjörð
er 74 ára í dag |
Miðvikudagur 16. mars 2005
Elísabet Alla Rúnarsdóttir
er 2ja ára í dag (dóttir Rúnars og Siggu ) |
|
_small.JPG) Þriðjudagur 15. mars 2005
Sviðaveisla hjá Síldarvinnslunni Siglufirði. Mér hlotnaðist sá
heiður að vera boðin í veglega sviðaveislu með fyrrverandi vinnufélögum
mínum í dag. Þar var hraustlega tekið á veitingunum enda af
nógu að taka. Ég tók auðvitað myndavélina með og smellti á nokkrum
myndum. Myndin hér lengra til vinstri er af öllum hópnum, starfsmönnum
S.V. í dag, sem er talsvert minni hópur heldur en árið 2003 þegar
myndin hægra megin var tekin. Eitt ber að varast við skoðun myndarinnar
sem var tekin í dag, það er að hausinn sem Friðrik heldur á, er EKKI
einn af sviðahausunum sem á borðum var. Vinurinn var fjarverandi, en til
að sýna hve myndarlegur maðurinn er þá ákvað Friðrik að gera af honum
afsteypu. Smelltu á:
 |
|
Þriðjudagur 15. mars 2005
Unglingameistaramótið á skíðum fer fram hér 18-20 mars. Unglingar
sem keppa eru 13-16 ára. Dagskráin
HÉR
Og hérna
einnig á síðu Skíðafélagsins |
|
Þriðjudagur 15. mars 2005
Þessi mynd var tekin í morgun og sýnir hafíshrafl í
Hvanneyrarkrók. Smelltu ef þú villt skoða myndina stærri. Einnig geturðu
smellt HÉR þá
sækirðu myndina enn stærri í Pixaround.exe formi.
Öruggt skjal. |
_small.JPG) |
Þriðjudagur 15. mars 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -5 °C
Sunnan andvari
Sólskin |
10:50 |
|
|
Þriðjudagur 15. mars 2005
Úthlutun úr menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar fer fram á
Kaffi Torg í kvöld þriðjudaginn 15. mars kl. 20,30. Allir hjartanlega velkomnir,
kaffiveitingar í boði Sparisjóðsins.
Stjórn menningarsjóða Sparisjóðs Siglufjarðar |
|
Þriðjudagur 15. mars 2005
Lestu "nýtt" um borgarísjaka hér
|
|
Þriðjudagur
15. mars 2005 Ef þér leiðist, og þig vantar eitthvað spennandi
til að skoða, þá skaltu skella þér á
þessa síðu. Þessi síða er
erlend, og er með aragrúa tegunda mynda, þrauta, skrítnar myndir og
helling af tenglum til svipaðra myndefna. Byrjaðu á því að skoða
meðfylgjandi mynd og vittu hvort þú getur ekki lesið eitthvað út úr
henni, sem ekki sést í fljótu bragði, Þú getur stækkað myndina með því
að smella á hana. |
|
Þriðjudagur
15. mars 2005 Ein gömul:
Svo eru menn að kvarta yfir smá éljum í dag, og nokkurra sentímetra
snjólagi. Svona var venjulega umhorfs á veturna hér áður fyrr, en þessi
mynd er tekin 15. mars árið 1967- Það er fyrir 38 árum, á
Hvanneyrarbrautinni.
Séð til norðurs |
Þriðjudagur
15. mars 2005
Jón Ómar Möller
er 61 árs í dag |
|
|
Mánudagur 14. mars 2005
Aðsend mynd: Alvöru hafísjaki Þessi mynd er
víða til á netinu, og þetta er alvöruljósmynd, tekin í einstaklega tærum
sjó og góðri birtu. Hún sýnir glöggt hvernig borgarísjaki lítur út, ofansjávar og
neðansjávar, þar sem 9/10 hlutar jakans er neðansjávar.
(sent: G.G.S.) Nýjar aðsendar upplýsingar um myndina: Myndin er
tekin af kafara sem starfar hjá borpallafyrirtækinu Global Marine
Drilling á borpalli sem staðsettur er í St,Johns, Nýfundnalandi. Þeir
sjá um að breyta stefnu borgarísjaka, þannig að þeir rekist ekki á
olíuborpallana á svæðinu, eða sprengja þá í tætlur stafi hætta af þeim.
Við þetta einstaka tækifæri var hafið lygnt og kristaltært og sólin
skein beint ofan á ísjakann. Talið er að þessi borgarísjaki sé í kringum
300 miljón tonn að þyngd.
Hér eru einnig svipaðar upplýsingar í "PowerPoint" formi.
+ stór mynd.
Þú getur ráðið hvort þú opnar skjalið beint eða vistar á tölvu þinni.
Þetta er öruggt skjal. |
|
Mánudagur 14. mars 2005
Hafíshröngl inni á Siglufirði. Varla er hægt að kalla þetta annað
en smáíshröngl, þó innan um séu einstaka í meðaltali stórir jakar sem
hættulegir eru sjófarendum. Ég tók nokkrar myndir í morgun svo þeir sem
fjarri eru geti áttað sig á ástandinu.
 |
|
_small.JPG) Mánudagur 14. mars 2005
Kaupmannafélag Siglufjarðar tilnefnir Mann mánaðarins Þórarinn
Vilbergsson og fyrirtæki mánaðarins DB Fisk ehf
 |
_small.JPG) |
Mánudagur 14. mars 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -6 °C
Norðan gola
Smáél |
11:30 |
|
|
Mánudagur 14. mars 2005
Ekkert ísrek er inn á Siglufjörð, það enginn ís virðist vera
norðarlega á Ströndinni. Ísinn sem var að koma inn fjörðinn í gærkveldi
virðist fljótt á litið séð frá svölum mínu, allur vera kominn inn í
Hvanneyrarkrók og meðfram ströndinni syðst. Þessi mynd var tekin frá
svölum mínum klukkan 08:15 í morgun. Þetta eru ekki mjög stórir jakar,
samanburðinn má sjá á kollunni sem er þarna rétt fyrir framan. |
|
Mánudagur 14. mars 2005
"Í kartöflugörðunum heima" Var það ekki einhvern tíma þannig sem
Árni Jonssen raulaði forðum daga. Nágranni minn Eiður, sendi mér
tölvupóst rétt fyrir klukkan 23:00 í gærkveldi og sagði mér að
hafísjakar væru að banka á dyrnar hjá okkur. Við eigum heima í tveim
norðustu húsunum í bænum, rétt við sjóinn. Viti menn, það var kominn
"óslitin" ræma alveg inn í Hvanneyrarkrók að Öldubrjót og út með allri
fjöru svo langt sem maður sá fyrir snjókomunni (él). Þegar ég opnaði
svaladyrnar heyrðist hávaðinn í jökunum, vegna hreyfingar sjávar, sem
bendir til þess að ekki sé þessi hafís mjög þéttur þar sem talsvert brim
er. Ég tók að vísu mynd frá svölunum mínum, en áttaði mig á um leið og
ég smellt, að slíkt er tilgangslaust þar sem leifturljósið lýsir upp
hríðina og myndar "gardínu" sem ekkert sést í gegn um. Það koma myndir
þegar birtir.
Klukkan er 23:30 13.mars, þegar þetta
er skrifað, en síðan fer/fór út fyrir miðnættið. |
|
Mánudagur
14. mars 2005 Félag eldri borgara á Siglufirði og í Fljótum,
hélt kynningarfund fyrir 60 ára borgara og eldri, með rausnarlegum
kaffiveitingum, tertum og góðgæti í boði Kvenfélagsins Von.
Ýmislegt var til skemmtunar, einsöngur, danssýning og fleira, auk
almennra fundarstarfa.
Kona mín var þar mætt með myndavélina, smelltu á
 |
|
Mánudagur
14. mars 2005 Ein gömul:
Jólaskrauti komið fyrir um borð í Haferninum, jólin 1967 -
Einhverstaðar undan ströndum Frakklands.(?) Guðmundur Björnsson háseti
og Snorri Jónsson rafvirki. |
Mánudagur
14. mars 2005
Skarphéðin sonur Sigga Sverris og Berglindar er 5 ára í dag.
Anita systir hans er með honum á myndinni
|
|
Mánudagur
14. mars 2005
Jóhann Sv Jónsson
er 71 árs í dag |
Mánudagur
14. mars 2005
Gunnar Guðmundsson
er62ja ára í dag |
_small.JPG) |
Sunnudagur 13. mars 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -7 °C
Norðan 8 - 10 m/s
Snjókoma |
11:05 |
|
|
Sunnudagur
13. mars 2005 Ein gömul:
Skíðalandsmótið á Siglufirði
-
Óveður setti svip á mótið ásamt unga fólkinu. Frábær undirbúningur og
framkvæmd Siglfirðinga. HIÐ unga skíðafólk sem mestan svip setti á
landsmótið á Siglufirði um páskahelgina fékk sannarlega eldskírn
veðurguðanna. Mestan hluta keppnistímans var stórhríð og stormur og
vægast sagt mjög erfiðar aðstæður.
Svona hófst frétt í Morgunblaðinu 29. mars árið 1967- Ef þú villt lesa
frekar, þá smelltu hér
hér og
lestu um mótið á tveim síðum + myndaseríur. |
Sunnudagur
13. mars 2005
Karlotta Evertsdóttir
er 53ja ára í dag |
Sunnudagur 13. mars 2005
|
Sunnudagur
13. mars 2005
Hafdís K Ólafsson
er 63ja ára í dag |
Sunnudagur
13. mars 2005
Sigurjón Pálsson
er 34. ára í dag |