|
Undanfarið 1 ½ ár hefur Siglfirðingurinn Þóra Kristín Steinarsdóttir,
dóttir Siggu Línu og Steinars Inga rekið skóverslunina Skór.is í
Smáralind ásamt manninum sínum, Daða Agnarsyni.
Í Mars á þessu ári keyptu þau svo skóverslunina Skór.is í
Kringlunni og eru þar af leiðandi með tvær skóverslanir undir nafninu “Skór.is”.
Að sögn Þóru Kristínar að þá hefur reksturinn gengið vonum framar og
gott gengi í Smáralind hafi ýtt undir það að kaupa Skór.is í Kringlunni.
“Skóverslanirnar hafa verið í eigu fjölskyldu mannsins míns undanfarin
ár og gengið afar vel. Ég hóf störf hjá fyrirtækinu fyrir um 9 árum
síðan og hef starfað þar allar götur síðan. Samvinnan innan
fjölskyldunnar hefur verið eins og best verður á kosið og má segja að
allir séu í skónum en tengdaforeldrarnir eiga skóverslunina Valmiki í
Kringlunni”.
Þóra segir að Skór.is sérhæfi sig í að bjóða upp á vandaðan
tískuskófatnað og fylgihluti fyrir flesta aldurshópa. Vörumerki eins og
Blend footwear, Vagabond, Reebok, Skechers, Phildon, Sixty Seven,
Mustang, Bog & W, Pony, Wrangler og Belluggi séu þau allra vinsælustu um
þessar mundir.
“Verslun snýst um að sinna viðskiptavininum og að uppfylla hans þarfir”.
Það er nákvæmlega það sem við og okkar starfsmenn leggja metnað sinn í.
Hjá Skór.is er starfrækt
heimasíða þar sem viðskiptavinir geta farið inn á og skoðað
það nýjasta í skótískunni. Svo er líka ekkert mál að hringja í
verslanirnar og panta eftir myndunum að sögn Þóru.
Þóra og hennar fjölskylda bjóða alla Siglfirðinga hjartanlega
velkomna í verslanir Skór.is.
Skór.is,
Kringlan, s:
568-9345
Smáralind, s: 544-5515
Netfang:
skor@skor.is
Heimasíða:
www.skor.is
Þóra
Kristín Steinarsdóttir
 |