Lífið í maí 1-7 2005 | Lífið í maí 8-14 2005 | Lífið í maí 15-31 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í maí 8-14 2005

 

Til forsíðu
Til baka
Skákmót
Grein um skoðanir
Af hverju Héðinsfj..?




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmÁ döfinniTenglarAð gefnu...
Umræðan
Laugardagur 14. maí 2005  Eitt fríið í viðbót - Ég verð á Akureyri nú um helgina, fer í dag og kem seinnipart mánudags. Síða mín verður í hvíld á meðan.
En dóttursonur minn, Konni verður fermdur á Sunnudaginn.

Laugardagur 14. maí 2005
Veðrið klukkan 08:15
Hiti 13 °C
Norðan andvari
Sólskin

08:12
Fossvegur 35

Laugardagur 14. maí 2005  Þetta er ekki hljómsveitin Hjálmar! – þetta eru hjólatöffararnir okkar sem voru á ferð og flugi um allan bæ í vorblíðunni í gær. Og þeir fara eftir lögum og reglum íslenska lýðveldisins eins og lang flestir hér á Sigló. Sjáið þið bara, þeir eru allir með hjálma!
Þeir heita (talið frá vinstri): Bjarni Mark, Arnar Freyr, Magnús, Heimir, Hermann Ingi, Hrafn, Almar Freyr og Patrekur.   --  ÖK

Laugardagur 14. maí 2005 Borgarísjaki. Þessi tignarlegi borgarísjaki hefur síðustu daga verið að færa sig austar og austar, - og seinni partinn í gær var hann framundan Sauðarnesvita í um kílómetra fjarlægð. Vegfarendur giskuðu á að jakinn væri í að minnsta150 metera breiður og um 50 metra hár, það sem upp úr sjónum stendur. Hvað um það, þessi jaki er sjónarspil og hefur hann hægt og hægt verið að breyta um lögun.

Laugardagur 14. maí 2005  Ein gömul: OTTÓ EA 105 frá Hjalteyri, við löndunarbryggju SR-30, einhvern tíma fyrir árið 1940

Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson

Laugardagur 14. maí 2005
Daníela Jóhannsdóttir
er 9 ára í dag 14 maí
Laugardagur 14. maí 2005

Föstudagur 13. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 12 °C
SV 10-15 m/s
Sólskin

09:18
Hvanneyrarbraut 57

Föstudagur 13. maí 2005 Samkvæmt ábendingu, þá fór ég á þennan vettvang og tók meðfylgjandi mynd. Þetta er alls ekkert augnayndi, þar sem þetta blasir við öllum sem leið eiga fram á fjörð, á golfvöll, íþróttasvæðið á hóli, flugvöll og víðar þarna suðurfrá. En þarna er járnarusl, ónýt hitaveiturör og önnur rör, gamlir ljósastaurar, heybaggar og plastrusl á víð og dreif sem breiðir úr sér, að auki þrjár hestakerrur, sem vekur spurningu um réttan geymslustað innan um ruslið nema búið sé að afleggja þeim (?).
En eins og áður segir, þá er þetta varla neitt augnayndi.

Föstudagur 13. maí 2005  Ófriðarástand ? - Nei svo var ekki, en bifreið frá Vörumiðlun átt í vandræðum með að komast til Siglufjarðar frá Sauðárkrók vegna gangtruflana. Nokkuð hvasst var þegar þessi mynd var tekin neðst á Gránugötunni, þannig að reykurinn fauk jöfnum höndum norður í buskan. En hefði logn verið hefði ástandið í næsta umhverfi ekki verið fýsilegt. Sennilega hefur farið hjá honum heddpakkning (?)

Föstudagur 13. maí 2005  Mér hefur verið bent á, bæði í tölvupósti og í símtölum á stutta en gagnorða grein í Morgunblaðinu í dag. Ég hafði samband við höfundinn og bað um leyfi hans til að birta greinina, sem var fúslega veitt. Upphafsorðin:
Af hverju Héðinsfjarðargöng?  -Haukur Ómarsson fjallar um Héðinsfjarðargöng:
"Ég hvet landsmenn til að kynna sér málið nánar og taka upplýsta afstöðu til þessa máls sem og annarra."  Smelltu HÉR til að lesa alla greinina.

Föstudagur 13. maí 2005 Á hvítasunnudag 15. maí næstkomandi verður fermt í Siglufjarðarkirkju. Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar verður með fermingarskeytasölu eins og venjulega. Þeir sem vilja senda fermingarbörnum skeyti og um leið styrkja starfsemi þeirra og eru fjarverandi, hafið samband, í síma: 467-1792 eða 467-1615 
Lesið Aulýsinguna og nafnalistann á myndunum hér til hliðar

Föstudagur 13. maí 2005
Arnar Freyr Þrastarson
er 15 ára í dag.
Föstudagur 13. maí 2005

Föstudagur 13. maí 2005 Ein gömul:   Þarna er verið að vígja nýjan löndunarbúnað hjá Síldarverksmiðjunni Rauðku seinnipart júnímánaðar árið 1940
Nánar má lesa um þetta HÉR
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson

Fimmtudagur 12. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 15 °C
Logn
Sólskin

10:15
Hvanneyrarbraut 55

Fimmtudagur 12. maí 2005 Er RÚV orðið eitthvert áróðursapparat fyrir óvildarmenn Siglufjarðar. Þeir sem voru að hlusta á dægurmálaútvarp rásar 2 um hálf sex leitið í gær þ. 10.05 hafa væntanlega heyrt pistilinn um Héðinsfjarðargöngin. Þar var talað í niðrandi tón um fámennu þorpin sem göngin tengja saman eins og þau væru ekki gerð fyrir annað fólk en það sem býr við það ólán að hafa ekki það bein í nefinu sem þarf til að koma sér suður á malbikið. Og þá ekki þann manndóm sem þarf til að gerast alvöru Íslendingar og í leiðinni verða hluti af stóra hópnum þ.e. meirihluta þjóðarinnar.  ----   Fróðleg og hressandi upprifjun hjá Leó, lestu meira HÉR

Fimmtudagur 12. maí 2005 Undanfarið 1 ½ ár hefur Siglfirðingurinn Þóra Kristín Steinarsdóttir, dóttir Siggu Línu og Steinars Inga rekið skóverslunina Skór.is í Smáralind ásamt manninum sínum, Daða Agnarsyni.
Í Mars
á þessu ári keyptu þau svo skóverslunina Skór.is í Kringlunni og eru þar af leiðandi með tvær skóverslanir undir nafninu “Skór.is”.
Smelltu HÉR til að lesa meira

Fimmtudagur 12. maí 2005  Ein gömul:
Gamla Rauðka og löndunarbryggjur (hábryggjur) 
Báturinn til vinstri er "nafn?" SI 66
Fimmtudagur 12. maí 2005
Hlynur Örn Hlöðversson
er 9 ára í dag
Fimmtudagur 12. maí 2005
Kristófer Þór Jóhanns
er 11 ára í dag

Miðvikudagur 11. maí 2005 Eins og Sigurður Ægis, sagði í gær, þá ætluðu þeir Örlygur of Sveinn að koma fyrir heyi á Langeyrarhólmanum. Það gerðu þeir í morgun. Fullhlaðin jullan undir dyggri skipstjórn Örlygs, sem breyttist í hálfgerðan áburðadreifa þegar á hólminn var komið.

Miðvikudagur 11. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 12 °C
Logn
Sólskin

10:00
Hvanneyrarbraut 53

Miðvikudagur 11. maí 2005   Aðsent J.D.:  Ágæti lesandi!   --- Tilefni þess að ég sest niður og festi eftirfarandi á blað, eru niðurstöður úr skoðanakönnun Fréttablaðsins um Héðinsfjarðargöng og sú umræða sem átt hefur sér stað um gerð  þeirra bæði á hinu háa Alþingi og í samfélaginu almennt. ---  Ég velti því fyrir mér út frá hvaða forsendum fólk mótar afstöðu sína þegar það lætur í ljós álit sitt og kveður upp dóm sinn með eða á móti...........  Lestu meira HÉR.

Miðvikudagur 11. maí 2005  Álftapar er komið í Langeyrarhólmann. Loksins. Von manna er sú, að fuglarnir taki sér þar bólfestu.
Örlygur Kristfinnsson og Sveinn Þorsteinsson hyggjast fara með hey þangað út sem fyrst, til að búa í haginn fyrir parið, sem en álftir vilja gjarnan mikinn hrauk utan um eggin sín. - Þessar myndir voru teknar í gær. klukkan 16:20

Miðvikudagur 11. maí 2005 Aðsent: Í tilefni 10 ára samstarfsafmæli höldum við tónleika í Allanum laugardaginn 14.maí 2005 kl: 22-00--- Á efnisskrá verða lög sem við höfum ýmist samið saman eða með öðrum. Einnig flytjum við einhver lög sem hafa fylgt okkur í gegnum tíðina. -- Að sjálfsögðu bjóðum við á tónleikana og því kostar ekkert inn. ---  Það var um páskana 1995 sem leiðir okkar láu fyrst saman og sömdum við mikið af lögum með þeim Sveini Hjartar og Jóni Svani Sveinssyni en við spiluðum saman í hljómsveit sem kallaði sig PLUNGE. Síðan gengum við í sína hvora áttina ( en héldum þó samstarfinu áfram ) Víðir fór í hljómsveitina DAYSLEEPER og Gotti í hljómsveitina SPEKTRA. Þessar hljómsveitir hafa nú lagt upp laupana og höfum við sett allt fullt á okkar samstarf og verið að spila mikið í borginni. -- Bestu Kveðjur "EKKERT SÉRSTAKT" ---  Gotti / Gosi ( Stjána Elíasar ) og Víðir ( Venna Hafliða )

Miðvikudagur 11. maí 2005 Fréttablað Siglfirðingafélagsins (vorblaðið) er komið út. Hægt er að lesa blaðið HÉR  Varúð, stórt pdf skjal, um 15MB

Miðvikudagur 11. maí 2005 Það er alveg á hreinu og fer ekki á milli mála, að Héðinsfjörður er náttúruperla, ég hefi komið þar nokkrum sinnum og get því staðfest það. Eitt af þeim rökum sem andstæðingar marglofaðra Héðinsfjarðarganga nefna, er að ekki megi spilla þessari fegurð............
Lestu meira á  Gestaspjall 

Miðvikudagur 11. maí 2005 Minkaveiði, það er ekki oft sem gerður er út leiðangur til að bana minkum, hér innan fjarðar á Siglufirði, en það skeði 5. maí síðastliðinn, er Gunnar Júlíusson, Rögnvaldur og síðan Jón Númason frá Þrasastöðum með tvo hunda sem voru nokkuð snöggir að finna dýrið sem Jón skaut og hundarnir sóttu síðan inn í holuna.
Myndirnar sem þú sérð í Mynda-albúm sendi mér Hörður Júlíusson.

Miðvikudagur 11. maí 2005 Ein gömul: Jarlstöðin - núverandi húsakynni Björgunarsveitarinnar Strákar og &
Takið eftir örinni sem máluð er á stafninn á húsinu, og annari á hlið þess, sem vísa á loftvarnarbyrgis, sem staðsett var í "Síberíu" núverandi húsakynnum Primex.  Myndina tók Kristfinnur Guðjónsson, sennilega um 1942

Þriðjudagur 10. maí 2005 JE-Vélaverkstæði er nýbúið að fá þennan plastskorkk, sem þeir munu innrétta og gera kláran á sjóinn, verkefni eins og þeir hafa svo oft unnið að. Jafnhliða er í smíðum hjá þeim aðstaða til að steypa sjálfir slíka báta,

Þriðjudagur 10. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 8 °C
Logn
Úrkomulaust

10:50
Hvanneyrarbraut 51

Þriðjudagur 10. maí 2005  Af 70 manna starfsliði Heilbrigðisstofnunarinnar taka 44 þátt í átakinu sem jafngildir  63% þátttöku.  Ýmsar aðferðir eru notaðar til að koma sér í og úr vinnu. Sumir hjóla, aðrir ganga, hlaupa eða fara á gönguskíðum. Snjókarlinn er ígildi Sigga hjúkku,.....  Lestu meira og skoðaðu myndir í: Mynda-albúm  Hjól og snjór     Es.. Karólína Sigurjónsdóttir er liðstjóri í einu liðinu í keppninni og það var haft samband við hana frá Rás 2 í morgun og tekið við hana viðtal. -- Hún og hennar lið var dregið út og unnu þær til verðlauna frá Húsasmiðjunni. Húsasmiðjan gefur þau verðlaun sem dregin eru út dag hvern á Rás 2 varðandi “Ísland á iði” og Línu lið fékk fékk nokkur stykki blikkljós á hjólin sín. Við vorum voða montin í morgun að hlusta á Línu á Rás 2.  Rúna

Þriðjudagur 10. maí 2005
Aðsent:
Firmakeppni Bridge félags Siglufjarðar fór fram þan 4. maí síðastliðinn. Þar fór  Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar með sigur, alls  381 stig - Annað sæti skipaði Litaríki; Bjarni Þorgeirsson með 380 stig og þriðja H.M Pípulagnir með 373 stig. Á myndunum eru, talið frá vinstri: Anna Lára Hertervig og Konráð Baldvinsson -- Þorsteinn Jóhannesson og Bjarni Þorgeirsson -- Bogi Sigurbjörnsson og Helgi Magnússon.  --
Ljósmyndir: Hreinn Magnússon

Þriðjudagur 10. maí 2005 Ein gömul:
Happafleytan Dagný SI 7 með fullfermi af síld. Einhvern tíma á hinum gömlu góðu síldarárum.

Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson

Þriðjudagur 10. maí 2005
Perla Fanndal
er 28 ára í dag
Þriðjudagur 10. maí 2005
Hreiðar Þór Jóhannsson
er 49 ára í dag
Þriðjudagur 10. maí 2005
Kristín M Eggertsdóttir.
er 60 ára í dag
Þriðjudagur 10. maí 2005
Hermann Ingi Jónsson
er 10 ára í dag
Þriðjudagur 10. maí 2005
Gíslína Anna Salmannsdóttir

er 35 ára í dag
 
Þriðjudagur 10. maí 2005
Margrét Selma Steingrímsdóttir
er 7 ára í dag

Mánudagur 9. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 10 °C
Logn
Úrkomulaust

11:00
Hvanneyrarbraut 49

Mánudagur 9. maí 2005 Platsbáturinn Ásdís Ólöf SI 23 - 2094 sökk í morgun út af Siglufirði. Mannbjörg varð, en um borð voru tveir menn. - Ekki hefi ég örugga vissu um hver orsökin var, en báturinn fylltist af sjó en marraði í kafi. Fljótlega kom Björgunarbáturinn Sigurvin og náði bátsverjum úr gúmmíbát og tók síðan plastsbátinn og dró hann til hafnar þar sem dælt var úr honum og hífaður síðan upp á bryggju, en áður en það var gert, sem gekk vel, var sjó dælt úr bátnum og á fjórða tonn af fiski landað.  Mynda-albúm Sokkinn bátur  --- Myndin til vinstri sýnir er komið var með Ásdís Ólöf til hafnar, en hin sýnir bátinn þegar hann bar nafnið Júlía SI, frá síðasta ári. + löndunin.

Mánudagur 9. maí 2005 Aðsent:  Ásgrímur Friðriksson var að útskrifast úr Listaháskóla Íslands í Fatahönnun. - Ási er sonur Sillu Gunnars og Frigga, barnabarn Guggu Friðriks.
Ási er sá til vinstri - Guðbjörg Friðriksdóttir - Silla Gunnars og Guðbjörg Friðriksdóttir (amman). Hin myndin ar af stúlkum í fötum sem Ási hannaði. --- Kolla

Mánudagur 9. maí 2005 Hestamennska á Siglufirði er sívaxandi áhugamál. Þessar mæðgur (?) spókuðu sig á hestum sínum í góða veðrinu klukkan 14:23 í gærdag, fram á firði.

Mánudagur 9. maí 2005 Hér er að finna  (neðst í málsgrein) smávísbendingu um hvað sumir geta verið innilokaðir í sínum eigin draumi, þekkja vart annað en þrönga klíku, Smáralind og kringluna- En ég bið ykkur að forðast að blanda ykkur í umræðuna, það er alls ekki víst að eigandi blogg-síðunnar hafi þroska til að skilja það sem ykkur liggur á hjarta.  HÉR 

Mánudagur 9. maí 2005 Skákþing Norðlendinga 2005. Mótinu lauk í gær klukkan 17:30 -- í lokin var þátttakendum boðið upp a súpu og síðan fór fram verðlauna afhending. Úrslitin eru HÉR og myndir frá lokadeginum eru í Mynda-albúm Skákmót 2 Myndin hér við hliðina er af þáttakendum, en nokkra mun þó vanta, en einhverjir heimamenn þurftu að fara á annan vettvang.

Þriðjudagur 10. maí 2005
Gíslína Anna Salmannsdóttir

er 35 ára í dag
 
Mánudagur 9. maí 2005

Mánudagur 9. maí 2005 Aðsent: Um síðustu mánaðarmót var ég í Færeyjum á fundi í Strandmenningarverkefninu NORCE sem er samstarfsverkefni landa við norðanvert Atlandshafið og fjallar um strandmenningu á norðurslóðum til eflingar ferðaþjónustu og menningartengsla. --- Eftir stíf fundarhöld fyrsta daginn komu nokkrir Færeyingar og dönsuðu fyrir okkur færeyska dansa og kenndu okkur sporin. Þetta reyndist allt vera fólk frá Eiði, og þar sem þau vissu af íslendingum í hópnum spurðu þau hvort einhverjir Siglfirðingar væru þar á ferð. Jú jú mikið rétt ég gaf mig fram og spjallaði við fólkið sem hafði góðar og skemmtilegar minningar frá ferðalögum sínum til Siglufjarðar og heimsóknum Siglfirðinga til þeirra.--- Þarna voru á ferð Karen (Joansen) sem er bróðurdóttir Hans-Egil, pabbi hennar (held að hann heiti Jacob), Rasmus föðurbróðir hennar og svo elsta systir Hans-Egil ásamt fleirum. Þau ætluðu að koma kveðjunni frá Fríðu og Óla áfram til Hans-Egil. Karen sagðist enn skrifast á við Særúnu Jóhannsdóttur sem býr nú í Noregi. Þau töluðu mikið um hvað þetta hefði verið skemmtilegt og að gaman væri að koma þessum heimsóknum aftur á. Þau báðu mig fyrir góðar kveðjur til Siglfirðinga "frá alla fólki á Eiði", sem ég kem hér með til skila. --- Á meðfylgjandi mynd er: fjórða frá vinstri elsta systir Hans-Egil, þá Karen (fimmta frá vinstri), pabbi hennar (sjötti), og svo Rasmus (áttundi í röðinni frá vinstri). -- Fyrir tilviljun á leiðinni heim, hitti ég Gunnvöru og Bjarka frá Fuglafirði á flugvellinum í Færeyjum. Bjarki er Siglfirðingur, og hefur búið í Færeyjum í 38 ár.--- Bestu kveðjur frá Reykhólum. - Sigurbjörg Daníelsdóttir (Tótu og Danna) www.reykholar.is

Mánudagur 9. maí 2005 Æðarfugl - Þetta er örugglega; bliki og kolla, sem spókuðu sig uppi á steini í fjörunni austast í Hvanneyrarkrók, í gær.

Mánudagur 9. maí 2005 Ein gömul:
Þrír rafvirkjar hjá SR árið 1965;
Viðar Magnússon - Jens Gíslason og Snorri Jónsson

Sunnudagur 8. maí 2005 Við Langeyrartjörn í morgun

Sunnudagur 8. maí 2005 Nægur snjór var að sjá, -og "nýfallinn" var á skíðasvæðinu í Skarðsdal í morgun. Enga hreyfingu var þó að sjá á svæðinu í morgun, nema þá fuglinn fljúgandi.

Sunnudagur 8. maí 2005 Ég verð að játa; ég er ekki viss um hvað þessi fugl heitir (til að vera viss), þar sem fuglar hafa ekki verið á meðal áhugamála minna. En ég smellti á hann í morgun út um bílgluggann minn.

Nafni hefur verið staðfest: Þetta er Lóa - þessi sem kveður burt snjóinn.

Sunnudagur 8. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 10 °C
Logn
Sólskin

10:30
Hlíðarvegur 31

Sunnudagur 8. maí 2005 100 ára afmæli - Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Baldvin Einarsson héldu upp á samanlagt 100 ára afmæli sitt með mikilli veislu þann 5. maí síðastliðinn. Baldin og Inga eru mörgum Siglfirðingum af góðu kunn, meðal annars af endurteknum góðum gjöfum til Björgunarsveitarinnar Strákar á Siglufirði, sem getið hefur verið hér á síðum mínum. Þau keyptu fyrir um tveim árum húsið að Suðurgötu 30, sem þau hafa í frístundum sínum skroppið norður til að "dytta" að, auk þess að hafa verið með smiði héðan í vinnu. En þau hjónin eiga ljósmyndaþjónustuna BECO -- Ég og kona mín urðum þeirrar ánægju aðnjótandi, að mæta í ofannefnda veislu, og læt ég  fylgja hér nokkrar myndir sem ég tók í veislunni. Mynda-albúm  Baldvin og Inga

Sunnudagur 8. maí 2005 Og enn einu sinni er göngugarpurinn Ásdís á fullu: Kennsla í stafgöngu fer fram á Siglufirði föstudaginn 13. maí kl. 20 -- Þeir sem hafa áhuga á að læra þessa skemmtilegu íþrótt hafi samband við Ásdísi Sigurðardóttur í síma 898-3310 

Sunnudagur 8. maí 2005 Aðsent:  --  Kæru Siglfirðingar:  Við börn Bjarka Árnasonar og Margrétar Vernharðsdóttir erum að fara í gegnum vísusafnið pabba og þætti okkur vænt um að ef þið ættuð í fórum ykkar vísur eftir hann, að láta okkur vita eða senda okkur í meðfylgjandi heimilsföng eða tölvupóst. --- Kristín Bjarkadóttir Miðtúni 18 400 Ísafjörður sími: 456-3675 stinabjarka@simnet.is
Sveininna Bjarkadóttir Hólagötu 47 900 Vestmannaeyjar. sími:481-2352 ninnabj@visir.is
Brynhildur Bjarkadóttir Grindur 566 Hofsós sími:453-7451 netfang: bibbabjarka@visir.is
Árni Bjarkason Kirkjugata 3. 565 Hofsós.sími:453-7944 netfang: arnibja@hvippinn.is
Bestu kveðjur til allra Siglfirðinga.

Sunnudagur 8. maí 2005 Skákþing Norðlendinga 2005 hófst á föstudaginn kl. 20.00 í opnum flokki ( fullornir)  --  Mótstjóri er Skarphéðinn Guðmundsson og er mótið haldið í safnaðarheimili kirkjunnar á Siglufirði
Lesið meira HÉR  --    +++
Mynda-albúm Skákmót 1
hronneinars@simnet.is
 

Sunnudagur 8. maí 2005 Ein gömul: Rauðkukranar að vori árið 1961