|
Ég er múrari að atvinnu.
Daginn sem slysið átti sér stað var ég að vinna á þaki 3 hæða
nýbyggingar. Eftir að hafa lokið verki mínu á þakinu sá ég að 150 kíló
af múrsteinum gengu af. Frekar en að bera múrsteinana niður 3 hæðir
ákvað ég að láta þá síga niður til jarðar í hjólbörum og til þess ætlaði
ég að nota talíu sem fest var utan á húsið á 3 hæð. Ég gekk niður og
festi reipið sem tengt var í talíuna tryggilega við jörðina, þarnæst fór
ég upp á þak aftur og batt reipið í hjólbörurnar sem ég svo ýtti fram af
brúninni.
Þar næst fyllti ég hjólbörurnar með múrsteinunum. Að þessu loknu fór ég
aftur niður á jörðu, Greip fast í reipið og losaði það.
Eins og sjá má í reit #2 á slysaskýrslu er ég 85 kíló að þyngd.
Vegna undrunar á mjög snöggu flugtaki láðist mér að sleppa reipinu. Það
þarf varla að taka fram að hraði uppferðar minnar var gríðarlegur. Um
miðja 2. hæð mætti ég hjólbörunum sem voru á niðurleið. Þau kynni
útskýra brákaða höfuðkúpu og brotið viðbein.
Áreksturinn hægði aðeins lítið eitt á ferð minni upp á 3 hæð, sem
stöðvaðist þegar hægri hönd mín rakst á kaf inn í talíuna. Sem betur fer
tókst mér að halda meðvitund og takinu á reipinu þrátt fyrir mikil
meiðsl og gríðarlegan sársauka.
Á sama tíma féllu hjólbörurnar á jörðina, og ultu á hliðina sem olli því
að múrsteinarnir féllu úr hjólbörunum. Þyngd hjólböru að þessi tagi er
um 20 kíló. Ég vísa aftur til reitar #2.
Eðli málsins samkvæmt hóf ég hraða niðurleið mína um leið og þetta hafði
gerst. Um miðja 2 hæð rakst ég aftur á hjólbörurnar sem í þetta sinn
voru á uppleið. Sá árekstur skýrir brákaða ökkla og skrámur og skurði á
neðri hluta líkamans.
Við þetta hægðist lítið eitt á niðurleið minni og verður það að teljast
til happs að áverkar við fallið á múrsteinahrúguna hafi ekki orðið
alvarlegri en brotinn sköflungur og 2 fingur brotnuðu.
Mér þykir leitt að tilkynna það að þar sem ég lá á múrsteinshrúgunni,
ófær um að hreyfa mig vegna áverka og sársauka að ég missti meðvitund og
sleppti reipinu. Tómar hjólbörurnar, sem eru þyngri en reipið, komu
aftur niður og lentu á mér þar sem ég lá, og brutu þar báða lærleggi.
Ég vona að þetta útskýri betur hvað gerðist, og skráning mín í
slysaskýrslu "Reyndi að framkvæma verkið einn" varpi ljósi á málið.
Virðingarfyllst.
Múrarinn sem getur ekki
meir.
|