Lífið í nóv 1-5 2005 | Lífið í nóv 6-12 2005 | Lífið í nóv 13-19 2005 | Lífið í nóv 20-30 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í nóv 20-30 2005

 

Til forsíðu
Til baka
Nánari skýring




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurÁ döfinniTenglasíðaAð gefnu...
Umræðan
HaförninnMyndavél-sagaVeðrið NÚNAVefmyndavélMakka-notendur  

Mig vantar "bílskúr" til kaups á Siglufirði, helst á láglendi, en "skúrinn" verður væntanlega notaður undir lítinn vélknúinn plastbát ásamt viðkomandi kerru -- Upplýsingar: Steingrímur í síma 892-1569

Miðvikudagur 30. nóvember 2005 Það eru jólasveinar úti um alt á Sigló núna við að setja upp allskonar jólaglingur. Í morgun voru bæjarsveinarnir að koma fyrir hinu hefðbundna jólatré fyrir á Torginu, en tréð er fengið úr Vaglaskógi.

Miðvikudagur 30. nóvember 2005 Bátahöfnin í birtingunni í morgun

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  -2,5   *  NA 0,9 m/s
 

Miðvikudagur 30. nóvember 2005   õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.      --ö  Hafnargata 20

Miðvikudagur 30. nóvember 2005 Aðsent:  Foreldrafélag Leikskála færir leikskólanum rausnarlega gjöf. Stjórnin afhenti leikskólastjóra í gær tvær Canon Power Shot A95 myndavélar með öllu tilheyrandi, stærra minniskorti, töskur og hleðslutæki. Þessi gjöf á eftir að koma leikskólanum, börnum og foreldrum til góða. Það að eiga myndavélar á hverri deild auðveldar okkur að halda út heimasíðunni og gera starfið í leikskólanum sýnilegra. Heimasíða Leikskála er www.leikskolinn.is/leikskalar/   Foreldrafélag leikskólans á þakkir skildar fyrir öflugt starf og góðan stuðning við leikskólastarfið. 
Með kveðju Særún Þorláksdóttir leikskólastjóri.    Leikskálar 29/11

Miðvikudagur 30. nóvember 2005  Samkvæmt frétt úr dagur.net. :  Loðna fundin úti fyrir Norðurlandi
Loðna er farin að veiðast úti fyrir Norðurlandi. Tvö skip fengu loðnu í gær og í nótt. Huginn VE fékk um 200 tonn í gær og á þriðja hundrað tonna í nótt og Björg Jónsdóttir ÞH svipað. Skipin eru austur af Kolbeinseyjarhrygg og veiða í flottroll og frysta um borð. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson fer til loðnuleitar í kvöld. Að sögn Hjálmars Vilhjálmssonar leiðangursstjóra er áætlað að hefja leitina austast á leitarsvæðinu, norður og austur af landinu. meira...

Miðvikudagur 30. nóvember 2005  Sveinn Ástvaldsson byrjaði í gær að reisa einingahús sitt í gærdag.
Þessi mynd var tekin í gær klukkan 14:50

Miðvikudagur 30. nóvember 2005  Ein gömul:  Það muna allir af eldri kynslóðinni eftir því hver sá gamli er; Hjörleifur Magnússon, unga stúlkan er dóttur dóttir hans, Ragnhildur Bergþórsdóttir, dóttir Guðrúnar (Guggú)

Miðvikudagur 30. nóvember 2005
Jósteinn Snorrason
er 36 ára í dag
Miðvikudagur 30. nóvember 2005
Rósa Mary ...
er 26 ára í dag -
hún er með Bríet Stefaníu dóttur sinni á myndinni -- kv. Bryndýs

Þriðjudagur 29. nóvember 2005  Þennan bát Von SK 25 2358 var verið að setja á flot í morgun eftir að hafa verið í gagngeri viðgerð og yfirferð hjá JE-Vélaverkstæði

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Smá úði
*  -2,6   *  NA 4,5 m/s
 

Þriðjudagur 29. nóvember 2005   õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.      --ö  Hafnargata 20

Þriðjudagur 29. nóvember 2005 Aðsent: Sælt veri fólkið. - Torkennilegi fuglinn sem ég náði ekki að mynda um daginn, vegna þess hve styggur hann var, kom að prestshúsi fyrr í gær. Ég náði af honum fjórum myndum úr mikilli fjarlægð, því ennþá er hann jafn styggur og fyrr, og sendi til sérfræðinga. Þeir sögðu þetta vera sönglævirkja, en ekki topplævirkja eins og ég taldi þetta geta verið. Hér kemur mynd af sönglævirkja, vetrarmyndin tekin út um rúðu á Hvanneyri í gær, en hin tekin af Yann Kolbeinssyni að sumri til (veit ekki hvar, en sennilega í Frakklandi eða á Spáni). Ég bið ykkur enn og aftur um að láta mig vita, ef fuglinn ber fyrir augu. Kveðja.

Þriðjudagur 29. nóvember 2005 Ein gömul:  Sjómannadagur 1987 --

Þorlákur Helgi SI 71 - Stapavík SI 5 - Sigluvík SI 2 og Stálvík SI 1
Þriðjudagur 29. nóvember 2005
Vigdís Sævaldsdóttir
er 4 ára í dag Foreldrar hennar eru Hanna Hrefna Gunnarsdóttir og Sævaldur Gunnarsson, þau búa í Norðurtúni 3
Þriðjudagur 29. nóvember 2005
Álfhildur Haraldsdóttir
er 15 ára í dag.
Til hamingju með daginn:
 Bára Dögg

Mánudagur 28. nóvember 2005  Ætli hún kisa litla hafa veiðileyfi, hvort svo var eða ekki tókst henni með snarræði að hremma eina af mörgum rjúpunum sem daglega eru fyrir ofan bæinn, allt heim að tröppum húsa í efri hluta bæjarins. Það var erfitt fyrir ljósmyndarann að nálgast kisu með bráðina, en hún hljóp stað úr stað til að vera örugg um að bráðin verði ekki tekin af henni. En Jón Dýrfjörð er þolinmóður maður og tókst loks eftir mikil hlaup úr einum stað í annan að smella af þessum skemmtilegu myndum að kisu með bráð sína.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Smá úði
*  0,9 °C   *  NA 4,5 m/s
 

Mánudagur 28. nóvember 2005   õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.      --ö  Hafnargata 22

Mánudagur 28. nóvember 2005 Ein gömul:   Forgrunnur: "Shellportið" og bakgrunnur uppbygging íþróttahúss - árið 1987

Mánudagur 28. nóvember 2005
Anton Mark Duffield
er 42ja ára í dag

Mánudagur 28. nóvember 2005
Kristrún Sigurbjörnsdóttir
er 58 ára í dag.   -Þarna er hún á morgungöngu með barnabörnum sínum

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  -2,3 °C  *  SV 1,3 m/s
 

Sunnudagur 27. nóvember 2005   õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.      --ö  Hafnargata 24

Sunnudagur 27. nóvember 2005 Antonía Hevesi píanó og Hlöðver Sigurðsson tenór halda  tónleika í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 4. desember næstkomandi í tilefni útkomu geisladisksins "Malarastúlkan fagra" ---   Ljóðaflokkurinn er fluttur í íslenskri þýðingu Guðmundar Hansen Friðrikssonar -- Tónleikarnir, ljóðaflokkinn “Malarastúlkan fagra” eftir Wilhelm Müller við lög Franz Schubert í íslenska þýðingu Guðmundar Hansen Friðrikssonar, verða flutt af Antoníu og Hlöðver

Sunnudagur 27. nóvember 2005 Tennis og badmintonfélag Siglufjarðar hélt opið unglingamót í badminton í gær. Þangað voru mættir keppendur frá Hafnarfirði, Skagaströnd og Akureyri auk Siglfirðinganna, eða samtals 80 keppendur. ---  Ég leit inn þarna inn upp úr klukkan 14:00 og tók nokkrar myndir sem koma í ljós ef smellt er á Badminton 26-11 Ekki veit ég hvaða krakkar eða hvaðan þau eru sem urðu fyrir skoti frá myndavél minni, en ánægja og keppnisandi skein út hverju andliti.

Sunnudagur 27. nóvember 2005 Þessi mynd; "Rauður sjór" var tekin í seinni partinn gærdag.

Ljósmynd: Sveinn Þorsteinsson

Sunnudagur 27. nóvember 2005 Þessi mynd; "Roðinn í suðri" var tekin í gærdag um klukkan 16:00 -

 Hrönn Einarsdóttir tók myndina og sendi mér.

Sunnudagur 27. nóvember 2005 Ein gömul:  Þessi jarðýta og maðurinn sem í henni situr, eiga ekkert sameiginlegt annað en að vera vel þekktir Siglfirðingar  hér á árum áður, þó svo að sá sem í jarðýtunni situr hafði líkindum ekki barið ýtuna augum fyrr en þann dag sem myndin var tekin. Jarðýtan sú arna þjónaði Siglfirðingum á marga vegu á fimmta og sjötta áratug fyrri aldar, en þarna var Cletrac-ýtan  óstarfhæf og staðsett úti á Siglunesi. En maðurinn er  þekktur listmálari, afburða góður listmálaramálari. Hann flutti ungur maður frá Siglufirði, eftir að hafa lokið hér gagnfræðaprófi, hann er af árgangi 1932 og heitir Sveinbjörn Blöndal, og hefur lengst af búið á Skagaströnd. Ljósmynd: Guðný Ósk Friðriksdóttir

Sunnudagur 27. nóvember 2005
Radmila Medic
er 18 ára í dag

Til hamingju, þín systir Milena
Sunnudagur 27. nóvember 2005
Sunnudagur 27. nóvember 2005
Elín Björg Jónsdóttir leikskólakennari
er 32ja ára í dag

Með henni á myndinni er sonur hennar Jón Einar

Laugardagur 26. nóvember 2005 Síldveiðiskipið Björg Jónsdóttir ÞH 321 kom hingað í morgun með um 500 tonn af frosinni síld til geymslu í frystigeymslu ÞRS --

Óstaðfest frétt varðandi Björgu Jónsdóttur; er að skipið muni fara til loðnuleitar eftir að skipið hefur verið losað

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  0,2 °C  *   0,0 m/s
 

Laugardagur 26. nóvember 2005   õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.      --ö  Hafnargata 26

Laugardagur 26. nóvember 2005 Það er ekki vafi á að félagar í Sjálfsbjörg Siglufirði hafa haft nóg að gera að undanförnu, ef marka má myndaseríuna sem Bigga sendi mér í gærkveldi. En myndirnar eru af hlutum þeim sem Sjálfsbjörg er með sölusýningu á í félagsheimilinu að Vetrarbraut, sem verður opin fram að jólum:  Sjálfsbjörg

Laugardagur 26. nóvember 2005  Aðfaranótt föstudags var hurðin að vestanverðu í Strákagöngunum skemmd talsvert, tveir neðstu flekarnir ónýtir með öllu. Vegagerðarmönnum þykir það  með ólíkindum að þeir sem eiga leið um göngin skuli ekki virða ljósabúnað, eða slár sem eru í loftinu til að aðvara um of mikla hæð á farmi og eða bíða þar til rauða stöðvunarljósið slokknar og hurðir full opnaðar, auk þess að vera það kærulausir eða óheiðarlegir (?) að láta ekki vita af slíku. Viðkomandi bifreið var að koma til Siglufjarðar.  ---  Lögreglunni hefur verið afhent málið, en ákveðnar grunsemdir eru uppi á "götubylgjunni" um hver viðkomandi bifreið var. -- Starfsmenn SR-Vélaverkstæði eru að vinna að viðgerðum, meðal annars að smíða nýja  hurðarfleka í stað þeirra ónýtu.

Laugardagur 26. nóvember 2005  Ein gömul:  Þessi mynd er af bílastæði Þormóðs Ramma hf og fleiru. Þarna er gamla slökkviliðsstöðin enn á sínum stað, Sýslumanns og lögreglustöðin núverandi ekki komin, ekki heldur minningarstyttan um drukknaða sjómenn. Og svo má nefna það sem "vantar" á þessa mynd og væri öðruvísi ef  myndin væri tekin í dag - en þarna eru að engir jeppar á bílastæðinu, frekar en annarsstaðar í bænum á þessum tíma, um miðjan júní árið 1987,- nema þá ef væri einn og einn Willys jeppi á stangli.

Laugardagur 26. nóvember 2005
Sigurður Guðmundsson
er 56 ára í dag

Laugardagur 26. nóvember 2005
Helena Margrét Ingvarsdóttir er 4 ára í dag. Þarna er hún að taka upp kartöflur ásamt Tinnu Elísu og Gísla Marteini.- Kveðja Hanna Ben.
 

Föstudagur 25. nóvember 2005 Séð til norðurs klukkan 10:30 í morgun

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  -0,2 °C  *  NV 0,9 m/s
 

Föstudagur 25. nóvember 2005   õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.      --ö  Hafnargata 28

Föstudagur 25. nóvember 2005 Tvær skammdegismyndir Myndin til vinstri er tekin um klukkan 17:00 í gær, en til hægri um klukkan 22:00 í gærkveldi

Föstudagur 25. nóvember 2005  Ein gömul:  Kvenfélagskonur 19?? --

Sú eina sem ég þekki þarna er Halldóra Jónsdóttir (sem heldur á fánanum)
Viðbót:Það er Valdís Ármannsdóttir sem situr fyrir framan Halldóru.
 
Föstudagur 25. nóvember 2005
Freysteinn Ragnarsson
er 38 ára í dag
Föstudagur 25. nóvember 2005

Fimmtudagur 24. nóvember 2005  Aðsent:  Olís gefur gjafir: Smástrákar ( unglingadeild bj.sv.Stráka ) fengu góðar gjafir í gærkveldi frá Olís ( Jón Andrjes Hinriksson ) 10 stk. áttavita og var strax farið að kenna þeim á þá, umsjónarmennirnir Elín eldri og Elín yngri eru á fullu með unglingana og ætla að gera góða björgunarsveitamenn úr þeim.
 Ó.G. Bj.sv.Strákar  - Fleiri myndir frá tilefninu:> Smástrákar
 Ath: fyrir þá sem ekki þekkja til "Smástráka," þá er nafnið komið til vegna deildar innan Björgunarsveitarinnar STRÁKAR þar sem sveitin er skipuð báðum kynjum.- Og unglingasveitin "Smástrákar" er einnig skipuð  báðum kynjum. En nafnið Strákar er fengið frá fjallinu Strákar og á því ekkert skylt við kynjaskiptingu eða "karlrembu". Þetta er sett hér að gefnu tilefni. SK

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  -0,2 °C  *  N 6,7 m/s
 

Fimmtudagur 24. nóvember 2005  õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.      --ö  Hafnargata 32

Fimmtudagur 24. nóvember 2005  Miðvikudagur 23. nóvember 2005 23:39  af síðu dagur.net    Sameining sveitarfélaga  --  Kosið um sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar 28. janúar--- Eins og kunnugt er var sameiningartillaga samstarfsnefndar um sameiningu Eyjafjarðar einungis samþykkt í tveimur sveitarfélögum, í Ólafsfirði og á Siglufirði. Í framhaldi af því ákváðu sveitarstjórnir þessara sveitarfélaga að kanna möguleika á sameiningu þeirra. Bæjarstjórn Ólafsfjarðar samþykkti einróma á fundi í gær, 22. nóv. tillögu samstarfsnefndar þessara tveggja sveitarfélaga frá 27. október sl., að gengið verði til kosninga um sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar og stefnt verði að kosningu laugardaginn 28. janúar 2006. Bæjarstjórn Siglufjarðar mun taka tillögu þessa efnis fyrir á fundi sínum á morgun.

Fimmtudagur 24. nóvember 2005 Tóti með tónleika. Klukkan 20.30 í kvöld heldur Tóti trúbador tónleika á Bíó-barnum.  Þar mun hann leika eigin lög og texta. Þessir tónleikar verða svolítið sérstakir að því leiti að tónleikagestir munu hafa töluverð áhrif á lagaval kvöldsins, því eftir hlé verða aðeins leikin óskalög gesta.
En fyrir hlé verða á dagskrá jafnt spáný lög sem eldri lagasmíðar. -- Nú er um að gera að drífa sig upp úr sófanum og eig notalega kvöldstund á Bíóinu. Ath. að aðgangseyrir er 500 krónur.(Ath: auglýsing í Tunnunni ekki rétt)

Fimmtudagur 24. nóvember 2005 Fljótt skiptast veður í lofti. Þó svo að hann hafi ekki andað neitt sérlega hlýju lofti sunnanvindurinn (4-5 m/s) og hitastigið sem að mestu hefur verið um og yfir frostmarkinu undanfarið - Þá fann maður greinilega þegar kólnaði skyndilega upp úr hádeginu og skiptist þá á haglél, hríðarflygsur og 1-2ja stiga frosti með viðkomandi vindkælingu. 
Meðfylgjandi mynd af Bátadokkinni var tekin klukkan 15:05 í gær.

Fimmtudagur 24. nóvember 2005  Ein gömul: 
Á myndinni eru Svanhildur Björnsdóttir - Kolbrún Daníelsdóttir - Sigríður Björnsdóttir - Guðný Friðfinnsdóttir (með kaffibollann) og Erla Ó Björnsdóttir.

Ljósmynd: Guðný Ósk Friðriksdóttir  (ártal ókunnugt)

Fimmtudagur 24. nóvember 2005
Ragna Hannesdóttir
er 54 ára í dag.-
afmæliskveðja, þinn sonur BK
Fimmtudagur 24. nóvember 2005
Sara Líf Guðmundsdóttir
er 4 ára í dag (dóttir Helgu Fanneyjar Salmannsdóttur og Guðmundar Loftssonar)
Fimmtudagur 24. nóvember 2005
Eygló Möller
er 29 ára í dag
Engin mynd kom með
Fimmtudagur 24. nóvember 2005
Bogi Sigurbjörnsson
er 68 ára í dag

Miðvikudagur 23. nóvember 2005  Ný heimasíða:  Tónlistarskóli Siglufjarðar hefur fengið nýja heimasíðu. Slóðin er  www.sigloskoli.is/tonskoli

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Rigning
*  2,5 °C  *  SV 7,6 m/s
 

Miðvikudagur 23. nóvember 2005  õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --ö  Hafnargata 34

Miðvikudagur 23. nóvember 2005 Almenningssamgöngur = Hópferðamiðstöðin með öll sérleyfi á Norðurlandi um áramót. Fulltrúar fyrirtækisins hitta sveitarstjórnarmenn. --- Um næstu áramót tekur Hópferðamiðstöðin Vestfjarðaleið við öllum sérleifum í fólksflutningum á Norðurlandi austur að Þórshöfn og Egilsstöðum. Þar með talinn akstur á milli Akureyrar og Reykjavíkur og allt austur til Þórshafnar og Egilsstaða sem Sérleyfisbílar Akureyrar hafa haft á sinni könnu til þessa og einnig hliðarleiðir s.s. Akureyri - Dalvík - Ólafsfjörður sem fyrirtækið Ævar og Bóas á Dalvík hefur haft sérleyfi á og leiðin til Siglufjarðar sem Suðurleiðir á Sauðárkróki hafa haft með höndum. Nánar á dagur.net

Miðvikudagur 23. nóvember 2005  Fréttatilkynning: Frá hagsmunasamtökunum ÁFRAM, Dalvíkurbyggð.--- 
Undanfarið hefur staðið yfir undirskriftarsöfnun til varnar Reykjavíkurflugvelli, þar sem umræðan um framtíð hans hefur síðustu misseri verið að þróast með afar neikvæðum hætti. Allir íbúar á landsbyggðinni eiga hér mikilla hagsmuna að gæta, ekki síst öryggishagsmuna, og þurfa því að taka höndum saman þeim til varnar. Því hafa hagsmunasamtökin ÁFRAM reynt eftir fremsta megni að koma undirskriftarbréfinu á framfæri sem víðast, t.d. með því að senda það öllum bæjar- og sveitarstjórnum á landsbyggðinni, með þeirri ósk að því sé þar komið á framfæri. Það er von okkar að vel hafi verið brugðist við þeirri ósk, þó ekki hafi alls staðar borist fréttir þar um. Víðast hvar, þar sem við höfum spurnir af gangi söfnunarinnar, hafa þessir listar legið frammi í verslunum, bensínstöðvum og vinnustöðum, frekar en að gengið hafi verið í hús, og hafa einstaklingar í flestum tilfellum séð um dreifingu og söfnun þeirra. Undirtektir hafa hvarvetna verið góðar. ---  Hér með skorum við á alla íbúa á landsbyggðinni sem enn eiga það eftir, að bera sig eftir að finna framliggjandi undirskriftarlista og skrá sig þar. Einnig skal ítrekað að bréfið er hægt að nálgast á vefsíðu okkar, www.afram.is , þar sem jafnframt eru upplýsingar um hvert senda skal það/þau að lokinni undirskriftarsöfnun. --  Enn er stefnt að því að söfnun þessari ljúki um næstu mánaðarmót. Við þökkum öllum þeim fjölmörgu sem lagt hafa hönd á plóginn og vonumst til að þessi viðleitni til varnar hagsmunum okkar verði svo þungt lóð á vogarskálarnar að ekki verði hjá því litið.

Miðvikudagur 23. nóvember 2005  Ein gömul:  Ekki þori ég að segja til um hvenær þessi mynd er tekin 198(?) - En fullyrða má að frá þessum sama stað, hefði ekki verið hægt að ná svona mynd af Leyningsfoss síðastliðið sumar.
Trén sem þarna eru á myndinni hafa nú byrgt útsýnið frá þeim stað sem Guðný Ósk stóð er hún tók myndina

Miðvikudagur 23. nóvember 2005
Þórey Líf Jóhannsdóttir
er 7 ára í dag (á myndinni er hún og  skólasystur hennar, frá vinstri Guðný, Þórey Líf og Magnea)

 

Miðvikudagur 23. nóvember 2005
Elvar Ingi Möller
er 17 ára í dag
(sonur KLM og Oddu)

Miðvikudagur 23. nóvember 2005
Viktor Ólason
e
r 12 ára í dag

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Rigning
*  4,6 °C  *  SV 8,5 m/s
 

Þriðjudagur 22. nóvember  õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --ö  Hafnartún 2

Þriðjudagur 22. nóvember 2005 Aðsent: -- Sendi hér nokkrar myndir sem voru teknar föstudaginn 18/11. Fjögur skip Slysavarnafélagsins Landsbjargar höfðu tekið að sér það verkefni að draga gröfuskipið Svavar sem er í eigu Hagtaks hf. frá Skagaströnd til Vopnafjarðar og skiptum við verkinu þannig að Húnabjörg frá Skagaströnd hóf leikinn á Skagaströnd og dró gröfuskipið að stað um það bil 7sm nv. af Sauðanesi og tókum við á Sigurvin þá við og drógum gröfuna á stað u.þ.b. 10 sm. v. af Rauðunúpum þar sem Gunnbjörg frá Raufarhöfn tók við og dró að stað ca.4 sm.út af Skoruvíkurbjargi þar sem Sveinbjörn Sveinsson frá Vopnafirði tók við og fór til Vopnafjarðar. Ferðin hófst á Skagaströnd um kl. 15 fimmtudaginn 17/11 og lauk á Vopnafirði laugardaginn 19/11 kl. 20. Við fórum kl.01.30 til móts við Húnabjörgu og tókum við að draga um kl. 03.00 og vorum að draga gröfuna á 4 til 5 sjómílna ferð og var Sigurvin 13 tíma að draga en 18 og hálfur tími fór í ferðina með öllu.  ÓG   Strákar 18/11

Þriðjudagur 22. nóvember 2005  Aðsent:  Bingó Foreldraráðs SSS sem haldið var síðastliðinn sunnudag, gekk vonum framar. Yfirfullt var og tókst eins vel og á var kosið. Mér voru sendar nokkrar myndir frá bingóinu, ásamt því að skila kæru þakklæti til þeirra sem mættu til styrktar góðu málefni: Það er unglingastarfi Foreldraráðs Skíðafélagsins. GG    Bingó SSS
 

Þriðjudagur 22. nóvember 2005 Stolið frá Húnahorni: --- Lífið getur verið erfitt --  Bréf til tryggingarstofnunar:
Ég er að skrifa hér til að útskýra eftirfarandi: Í reit #3 á slysaskýrslunni setti ég "Reyndi að framkvæma verkið einn" sem ástæðu slyss. Í bréfi ykkar báðuð þið um nánari skýringar á þessu og vona ég að eftirfarandi bréf veiti nánari upplýsingar.   ::Lesa meira 

Þriðjudagur 22. nóvember 2005  Ein gömul:   Þess er vart að vænta að yngri kynslóðin kannist við það umhverfi sem þarna sést, en það er enginn vafi á að þessi "hornklefi" vekur upp margar góðar minningar hjá mörgum. Sennilega hafa allir Siglfirðingar, allt til 1983 staðið þarna í kös - og stundum mikilli kös, að bíða eftir að Thóri, Oddur, Óli og eða Guðrún komi til að selja miða í bíó. En þetta er einmitt miðasölu og sjoppuholan sem var í Nýja Bíó, sem við eldri munum svo vel eftir.

Þriðjudagur 22. nóvember 2005
Hilmar Þór Zophoníasson
er 46 ára í dag.
Með honum á myndinni er litli frændi hans, Alexander.
Innilegar afmæliskveðjur frá fjölskyldunni.
 
Þriðjudagur 22. nóvember 2005
Þorleifur Halldórsson
er 52ja ára í dag
Þriðjudagur 22. nóvember 2005
Daníel Pétur Baldursson
er 17 ára í dag

Kaupmenn!!- Kaupmannafélagið boðar til rabbfundar í BíoCafe mánudaginn 21. nóvember klukkan 18:15

Stjórn KS boðar til opins félagsfundur í kvöld kl. 20.00 á KS skrifstofu. -- Fundarefnið er fyrst og fremst samstarf KS og Leifturs í meistaraflokki karla, samkomulagið verður kynnt og farið verður yfir stöðu mála. Félagsmenn og aðrir sem áhuga hafa eru hvattir til þess að mæta og kynna sér stöðuna.

Mánudagur 21. nóvember 2005 Skynsamir hestaeigendur komu í veg fyrir að bifreið mín var send í brotjárn- og að amk. tveir hestar limlestust við harðan árekstur. Hvernig má það vera spyr einhver? Ég skrapp í morgun með konu mína og mágkonu upp í Varmahlíð, var á um 70-80 km hraða að koma úr beygjunni suður af Máná, þegar skyndilega birtust nokkur fjöldi glitmerkja á miðjum vegi, augnabliki síðar sá ég orsökina. Þarna voru á ferð 4-6 hestar að fara þvert yfir veginn. Hestana hefði ég örugglega ekki séð nægilega fljótt til að stöðva bifreið mína hefðu viðkomandi hestaeigendur ekki tilheyrt skynsamari hluta hestaeiganda, er sett höfðu glitmerki bæði á tagl og fax á viðkomandi hesta. Það ætti að skylda alla hestaeigendur til að gera það sama, raunar h...ítis rollurnar einnig, á haustin amk.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  3,3 °C  *  S 9,4 m/s
 

Mánudagur 21. nóvember 2005  õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --ö  Hafnartún 4

Mánudagur 21. nóvember 2005  Sveinn Þorsteinsson sendi mér þessa í gærkveldi í tilefni af því að jólasveinarnir eru farnir að hengja upp jólaljósin á Siglufirði.

Mánudagur 21. nóvember 2005  Aðsent : Fann þessa mynd hjá mér í gær. - Þessa mynd stækkaði ég stækkað á sínum tíman og skannaði inn en filman er því miður týnd. -- Veit ekki hvort þær eru allar Siglfirðingar en hafa búið þar. Ég man eftir henni Dóru hans Þóroddar er lengst til hægri. En ég veit ekki hverjar hinar eru. Eitthvað rámar mig í Visnes ættina þó. --  Kannski einhver þekki þær og væri fróðlegt að fá upplýsingar þar um. -- Myndin er tekin við gamla héraðsskólann á Laugarvatni 1985 eða þar um bil.
Kv  Guðmundur Albertsson

Mánudagur 21. nóvember 2005  Gömul syrpa: Tónskólinn 1977

            Tónskólinn 1977
Mánudagur 21. nóvember 2005
Bára Dögg Þórisdóttir
 
er 15 ára í dag
 
Mánudagur 21. nóvember 2005
Hlöðver Sigurðsson
er 32ja ára í dag
Mánudagur 21. nóvember 2005
Valey Jónasdóttir
er 74 ára í dag
Mánudagur 21. nóvember 2005
Hreinn Júlíusson
er 64 ára í dag
Mánudagur 21. nóvember 2005
Guðný Pálsdóttir
er 62ja ára í dag

Sunnudagur 20. nóvember 2005  Árshátíð Starfsmannafélags Sjúkrahússins:
Ég ætlaði mér að "plokka" svona 50 - 60 myndir frá hátíðinni í gærkveldi, en það var bara alltof erfitt að velja.
Svo úr varð 150 mynda syrpa. sem kemur í ljós þegar smellt er á > Árshátíð HSS

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  4,4 °C  *  S 7,5 m/s
 

Sunnudagur 20. nóvember 2005  õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --ö  Hafnartún 4

Sunnudagur 20. nóvember 2005 Árshátíð Starfsmannafélags Sjúkrahússins á Siglufirði var haldin á Bíó Café í gærkveldi með pompi og prakt. Ég varð þeirrar ánægju njótandi að fljóta með konu minni sem er fyrrverandi starfsmaður og var boðið ásamt maka. ---  Hátíðin tókst með eindæmum vel, mikið fjör og kæti og greinilegt á öllu að þessi samhenti hópur, starfsmenn Heilbrigðisstofnunarinnar á Siglufirði kann að skemmta sér og öðrum,- enda er félagslífið og starf þeirra allra frábært bæði innan sem utan stofnunarinnar. Ég þakka innilega fyrir góðan mat og góða skemmtun.- Myndasería frá kvöldinu kemur á vefinn einhvern tíma í dag,  en það tekur tíma að velja þær bestu úr, yfir 200 myndum sem ég smellti af á hátíðinni.

Sunnudagur 20. nóvember 2005 Aðsent:  Ágætu Siglfirðingar. -- Í gærmorgun var torkennilegur fugl í garðinum hjá mér, en reyndist styggur og flaug þegar gluggatjöldin hreyfðust og ég ætlaði að reyna að ná af honum mynd. --- Þetta var einhver lævirkjategund, e.t.v. topplævirki, sem ég held að aldrei hafi sést á Íslandi áður. Ég bið ykkur um að láta mig vita ef þið kynnuð að rekast á hann. Hann er oftast á jörðu niðri, ljósbrúnn og toppurinn mjög áberandi; minnir annars helst á þúfutittling, en stendur reistari. Meðfylgjandi mynd sem sýnir fuglinn er sótt á netið. . --- Kveðja.    

Sunnudagur 20. nóvember 2005  Ein gömul:   Unnið að uppsetningu og hönnun á veggskreytingu og tákna við JE-Vélaverkstæði.  Aðsend viðbót:  Þarna er verið að setja upp listaverk á Vélaverkstæði Jóns og Erlings líklegast árið 1984. Jón Dýrfjörð hafði forgöngu um að þetta verk var unnið en höfundur myndarinnar er Valgerður Erlendsdóttir. Henni til aðstoðar eru þarna Örlygur Kristfinnsson og rauðhærður drengur Már Örlygsson. Einnig má greina á myndinni Erling Jónsson.
Myndverkið prýðir enn JE-Vélaverkstæði. --  ÖK

Sunnudagur 20. nóvember 2005  Aðsent:  Siggi Rikki sendi mér þessar myndir, ásamt tilvitnun sem kom í Morgunblaðinu tengdum atburðinum: Miðvikudaginn 14. apríl, 1993 RÆKJUBÁTURINN Ögmundur RE-94 strandaði á Staðarhólsfjöru rétt við Siglufjörð snemma morguns á annan í páskum. Báturinn var á töluverðri ferð er hann tók niðri og segir Kristján Elíasson skipstjóri að miðað við höggið sem kom séu skemmdir á bátnum ótrúlega litlar, aðeins eitt botnstykki skemmt og kjölurinn nuddaður. Kristján segir að báturinn haldi aftur á veiðar í kvöld. ---  Svarta þoka var á þessum slóðum, en logn og blíða, er óhappið varð og Ögmundur á leið til hafnar í Siglufirði með um 22 tonna rækjuafla. Kristján segir að hann hafi verið sofandi er óhappið varð en vaknaði við höggið og skruðninga er því fylgdu. "Við kölluðum strax eftir aðstoð og okkur var tjáð að varðskip væri í um þriggja tíma siglingu frá okkur," segir Kristján. "Varðskipið náði síðan til okkar upp úr klukkan ellefu og varðskipsmenn hófu strax undirbúning að því að koma bátnum á flot." Þegar Ögmundur strandaði skömmu eftir klukkan sjö um morguninn var byrjað að falla frá og því hallaði báturinn meir og meir er leið á morguninn. Segir Kristján að hallinn hafi numið mest um 40 gráðum er byrjaði að falla að aftur. Varðskipsmenn settu taug um borð í Ögmund, kipptu í bátinn og hann rann á flot aftur um klukkan hálf eitt. Síðan fylgdi varðskipið bátnum til hafnar á Siglufirði en strandið var í aðeins hálfrar mílu fjarlægð frá gömlu  hafnarbryggjunum á Siglufirði. Kristján vill koma sérstökum þökkum á framfæri til varðskipsmanna sem björguðu Ögmundi af strandstað svo og til björgunarsveitarinnar Stráka á Siglufirði. Morgunblaðið/Sverrir

Sunnudagur 20. nóvember 2005
Ari Rögnvaldsson
er 73ja ára í dag  --
Ég á enga mynd af kappanum
Sunnudagur 20. nóvember 2005
Rakel Rós Hákonardóttir, dóttir Hákonar Heimis sonar míns og Öldu Pétursdóttur konu hans. á afmæli í dag Sigurður R Stefánsson
 

27. janúar 2011 21:24:23
27. janúar 2011 21:24:23