JÓLAKVEÐJUR | Reglur um | Lúðrasveit | Jólastund

>>>>>>>>>>> Reglur um

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Úthlutunarreglur byggðakvóta – viðbrögð vegna yfirlýsingar
Þormóðs ramma – Sæbergs
.

            Á heimasíðu Þormóðs ramma – Sæbergs má sjá yfirlýsingu vegna reglna um úthlutun byggðakvóta á Siglufirði fiskveiðiárið 2005-2006.  Bæjaryfirvöld harma niðurstöðu þeirrar yfirlýsingar þar sem beinlínis er gefið í skyn að Siglufjarðarkaupstaður sé með reglum sínum að senda fyrirtækinu ÞRS skýr skilaboð um að bæjaryfirvöld hafi ekki áhuga á að taka þátt í að leysa þann vanda sem blasir við rækjuvinnslu hér í bæ.

            Ugglaust má ávallt gagnrýna úthlutun byggðakvóta og sitt sýnist að sjálfsögðu hverjum hvað það varðar en úthlutunarreglur eru nú gerðar af bestu vitund og með hagsmuni heildarinnar í huga.  Byggðakvóti er fyrst og fremst hugsaður til þess að styrkja vinnslu og veiðar í viðkomandi byggðarlagi.    Gríðarlegur vöxtur hefur verið í útgerð smábáta á Siglufirði á árinu sem er að líða og má nefna að landaður afli smábáta á árinu 2005 er nú um 4700 tonn á móti um 1500 tonnum allt árið 2004.  Reglur um úthlutun byggðakvóta ákvarðast því fyrst og fremst á því að bæjaryfirvöld telja mikilvægt að styðja við þá þróttmiklu smábátaútgerð sem hér hefur verið að vaxa.  Jafnframt má nefna að á síðasta ári var hér settur á fót fiskmarkaður m.a. með þátttöku Þormóðs ramma – Sæbergs og telja bæjaryfirvöld afar mikilvægt að við slíka starfsemi, nýja starfsemi í atvinnuflóru Siglufjarðar, sé reynt að styðja með tiltækum ráðum. 

            Það eru því fyrst og síðast þau sjónarmið að verið sé að skjóta styrkari stoðum undir vaxtarbrodda í atvinnulífi Siglufjarðar sem ráða för þegar reglur um úthlutun byggðakvóta eru samþykktar í bæjarstjórn Siglufjarðar.

            Bæjaryfirvöld á Siglufirði hafa fullan skilning á þeim vanda sem sjávarútvegur og þá helst rækjuvinnsla á við að glíma um þessar mundir og eru að sjálfsögðu tilbúin til viðræðna við fyrirtæki ÞRS um lausnir á þeim vanda. 

Stjórnendum og starfsmönnum Þormóðs ramma – Sæbergs óska bæjaryfirvöld góðs gengis og gleðilegrar hátíðar sem og bæjarbúum öllum og vonast eftir áframhaldandi góðu samstarfi.

 

 Sent af Þóri Hákonarsyni, skrifstofustjóra Siglufjarðarkaupstaðar.

Ath: frá SK -- þetta er birt hér í heild sinni, en ekki vísað til heimasíðu Siglufjarðarkaupstaðar www.siglo.is-
En síðan liggur niðri núna vegna bilunar  20. desember 2005