Lífið í des 1-10 2005 | Lífið í des 11-17 2005 | Lífið í des 18-24 2005 | Lífið í des 25-31 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í des 18-24 2005

 

Til forsíðu
Til baka
JÓLAKVEÐJUR
Reglur um
Lúðrasveit
Jólastund




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s: 467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurTenglasíðaAð gefnu...
Umræðan
123.is/sksigloMyndavél-sagaVeðrið NÚNAVefmyndavélMakka-notendurSAMKOMUR  

Mig vantar "bílskúr" til kaups á Siglufirði, helst á láglendi, en "skúrinn" verður væntanlega notaður undir lítinn vélknúinn plastbát ásamt viðkomandi kerru -- Upplýsingar: Steingrímur í síma 892-1569

 SAMKOMUR & UPPÁKOMUR -  Smelltu HÉR og skoðaðu +Munið jólakveðjurnar

Laugardagur 24. desember 2005 Smá getraun, sem við getum kallað það "jólagetraun"  -- Engin verðlaun eru í boði, en þeir sem finna "falinn" jólasvein með myndavél á síðunni hér fyrir neðan; gaman væri að heyra frá ykkur. En smá vísbending. "jólasveinninn" er ég sjálfur með á einni af myndunum, ég er fyrir aftan myndavélina, en ekki í jólasveinabúning Það var í raun ekki tilgangurinn að koma "mér" á framfæri, "tilviljun" réði því.
Það er aðeins þessi síða, myndir hér fyrir neðan sem um er að ræða.

Laugardagur 24. desember 2005  Enn var traffík í verslunum á síðustu mínútum fyrir hádegið í dag, (11:55) bílum lagt, nánast eins og þeir hefðu dottið niður úr skýjunum, og meiri hlutinn auðvitað ólöglega eins og fyrri daginn.

Laugardagur 24. desember 2005 Hvít jól, mátulega hvít að mínu mati eru nú á Aðfangadagsmorgni. ---  Talsverð hreyfing var á fólki fyrir hádegið sem enn var að versla, auk bílaumferðar. Myndirnar sem teknar vori í morgun, eru af Jólatrénu á Torginu og Ráðhúsinu á Sigló - Og séð niður Aðalgötuna.

Laugardagur 24. desember 2005 Jólasveinarnir (KS) voru á fullri ferð í morgun fyrir hádegið við að keyra út öllum jólagjöfunum. Þeim fylgdi mikill hávaði, hróp, lúðrablástur og trommusláttur, sem eflaust hefur glatt margan krakkann. Þessi hópur, einn af mörgum veifuðu mér um leið og þeir fóru fram hjá.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
* 1,3 °C  *  0,0 m/s
 

Laugardagur 24. desember 2005  õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.              ö  Hlíðarvegur 27  

Laugardagur 24. desember 2005  Lukkuleikur SR-Byggingavörur  -- Dregið var til úrslita í lukkuleik þeirra sem versluðu "stórt" hjá SR-Byggingavörur nú síðustu dagana fyrir jólin.  Það var Sylvía Halldórsdóttir /Dagnýjar Finnsdóttir sem dró út vinninga að þessu sinni.
Úrslit í lukkuleiknum
  1. Verðlaun: 28 tommu UNITED sjónvarp – Sigurjón Pálsson  Siglufirði  

  2. Verðlaun: AEG Ryksuga – Ásgrímur Sigurbjörnsson Sauðárkrókur 

  3. Verðlaun: Málning frá Hörpusjöfn 2x10L  – Guðni Sigtryggsson Siglufirði

  4. Verðlaun: Blandari Exido – Róbert Haraldsson Varmahlíð 

  5. Verðlaun: Jólasveinn útiskraut – Gerður Pálsdóttir  Siglufirði

Gummi og Hemmi þakka öllum þeim sem að tóku þátt í þessum skemmtilega leik og einnig öllum viðskiptavinum okkar óskum við gleðilegra jóla.  

Laugardagur 24. desember 2005  Stúlli og Kaupmannafélagið héldu uppi fjörinu á Torgini í gærkveldi. 
Stúlli naut við þetta tækifæri dyggrar aðstoðar Árna Bjarnasonar, sem er þarna með honum á myndinni sem ég tók í gærkveldi.

Laugardagur 24. desember 2005 Þorláksmessu dagurinn - Það var talsvert líf á götunum, í verslunum og víðar í gær á "Þorlák" - Mikið bar á "brottfluttum" Siglfirðingum mökum þeirra og börnum, yngra fólkinu sem  verið hefur í skóla og einnig var ýmislegt sér til gamans og ánægju gert annað en að kaupa jólagjafir. Sveinn Þorsteins fór í skötuveislu í Allanum og tók þar nokkrar myndir, það var einnig skötuveisla á Bíó Café, en þangað fór ég ekki þar sem ég er frekar fráhverfur skötulykt og bragði  -
Í Sparisjóðnum höfði þau ekki "undan að baka" gómsætar tertur og góðgæti sem skolað var  niður með kaffi og súkkulaði í lítratali og þangað kom ég auðvitað, raunar tvisvar. Ég heimsótti eldra fólkið í Skálarhlíð þegar  Hlöðver og Renata sungu þar og spiluðu. Þá kom ég við hjá Pizza 67 þar sem Tóti var að spila og syngja Jólalög.  Hlöðver og Renata komu einnig við í Tónlistaskólanum, og buðu þar upp á bæði eyrna og súkkulaðikonfekt ásamt kaffi handa gestum og gangandi. Stúlli og Kaupmannafélagið héldu uppi fjörinu á Torginu. Myndasyrpu frá deginum er að finna hér >> Þorláksmessa

Laugardagur 24. desember 2005  Á þessari mynd sést "Ytra húsið" og Póst og símahúsið hinum megin við götuna-  Konan með reiðhjólið er óþekkt, svo og ljósmyndarinn 

Laugardagur 24. desember 2005
Benedikt Stefánsson 
er 26. ára í dag     (Stebba Ben)
 
Laugardagur 24. desember 2005
Sara Lind Þorsteinsdóttir
er 8 ára í dag. hún því jólastelpa. Hún er dóttir Steina og Dóru (Elíasar og Guðnýjar) Kveðja frá fjölskyldunni.
Laugardagur 24. desember 2005
Árni og Guðmundur Skarphéðinssynir
eru 39 ára í dag

Föstudagur 23. desember 2005  Þessi "einmanna" ísjaki lónaði utan við Siglufjörð í morgun, svona 1-2 sjómílur norð norð austur af Sauðarnesi.

Föstudagur 23. desember 2005  Svona í tilefni dagsins

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
* 0,7 °C  *  0,0 m/s
 

Föstudagur 23. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.              ö  Hlíðarvegur 25  

Föstudagur 23. desember 2005 Jólaljóð og Ungmannafélagið Glói. 
Í dag klukkan 16:00-18:00 ætlar Ungmannafélagið Glói að standa fyrir lestri jólaljóða og söng á veitingastaðnum Pizza 67 við Aðalgötu -- Á staðnum verður samskotabaukur þar sem fólk getur látið fé af hendi rakna til Hjálparstarfs þjóðkirkjunnar. -- Væri ekki upplagt að líta þar inn tylla sér í notalegu umhverfi og róa taugarnar í erli jólaundirbúnings?
Eiga þar notarlega stund og styrkja um leið gott málefni
.

Föstudagur 23. desember 2005  Síðasta Bingóið hjá eldri borgurum á árinu var í gærdag -- allir helstu garpar eldri kynslóðar bingólistarinnar voru þar mættir og kella mín þar á meðal. --- Hún tók með sér myndavélina,
Árangurinn kemur í ljós ef þú smellir á >>> Síðasta bingó

Föstudagur 23. desember 2005  Miðbærinn okkar klukkan 14:30 í gær

Föstudagur 23. desember 2005 Ein gömul:   Ekkert veit ég um börnin tvö, - en ansi finnst mér líklegt að húsin sem þarna eru í baksýn séu "Ytra húsið" og þar norður af, gamla Póst og Símstöðvarhúsið sitthvoru megin við Aðalgötu.
Ef einhver er á annarri skoðun þá sendir hann mér vonandi línu.
Ókunnur ljósmyndari  ----   Ný athugasemd: Þetta er EKKI "Yrta hús" né pósthús - mynd því til staðfestingar kemur á morgun.

Föstudagur 23. desember 2005 Föstudagur 23. desember 2005

Fimmtudagur 22. desember 2005  Notaleg Jólastund: söngur - kaffi - konfekt:  Hlöðver og Renata

Smelltu á tengil og skoðaðu
 Notaleg jólastund

Fimmtudagur 22. desember 2005 Slökkviliðið kvatt að Hvanneyrarbraut 31, efri hæð kl 16,10 í dag -- Þeir brugðust fljótt við eins og venjulega, en sem betur fór hafði eldur verið slökktur um þann mund sem slökkviliðið kom, en kviknað hafði út frá logandi kerti. Ekki urðu teljandi skemmdir, nema út frá reyk og sóti, sem er þó nógu slæmt svona rétt fyrir jólin.

Fimmtudagur 22. desember 2005  Íbúar Siglufjarðar voru 1. desember samtals 1.352 samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands. Íbúum bæjarins fækkaði um 34 miðað við 1. desember 2004 en þá voru þeir 1,386.
Sé litið á tölur Ólafsfjaðrar kemur í ljós að íbúum þar hefur sömuleiðis fækkað. 1. desember voru íbúar í Ólafsfirði 946 , en fyrir ári síðan voru íbúar bæjarins 980. Þar fækkaði því um 34 á árinu. ---  Eins og kunnugt er, verður kosið um sameiningu þessara sveitarfélaga í janúar á næsta ári. Verði sameining samþykkt verða íbúar hins nýja sveitarfélags 2,298.  

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
* 1,5 °C  *  0,0 m/s
 

Fimmtudagur 22. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.              ö  Hlíðarvegur 24  

Fimmtudagur 22. desember 2005 Ein gömul:  Svona flóð eins og sést á þessari mynd frá 1934 gæti komið á næsta ári eða einhvern tíma næstu árin ! Það veit raunar enginn. Ljósmyndarinn (ókunnur) stendur á Aðalgötunni, örugglega í bússum, hann horfir norður eftir Lækjargötunni. Sjö hús sem þarna sjást, hafa horfið; brunnið, flutt eða verið rifin og eitt til viðbótar mikið breytt miðað við daginn í dag, það er húsið lengst til vinstri á myndinni, þar sem nú er Siglósport. Það er ljósastaur sem sést í til hægri, þar austur af er Nýja Bíó, (sést ekki) Húsið þar fyrir norðan var flutt að Suðurgötu 32 þar sem það er nú, talsvert breytt.

Aðsend viðbót:
Í miklu óveðri 27. október 1934 varð mikið brim og sjávarflóð meðfram öllu Norðurlandi og olli miklu tjóni. Til dæmis rak flest eða öll skip Ólafsfirðinga upp í fjöru. Mesta tjónið varð á Siglufirði og flæddi nær yfir alla eyrina og fóru menn róandi um bæinn. Á Lækjargötunni varð sjórinn mittisdjúpur, í sumum húsum flutu rúmstæði upp og fólk varð að flýja heimili sín í dauðans ofboði. Sjórótið braut bryggjur og söltunarpalla á austanverðri eyrinni. Einnig varð mikil eyðilegging á Siglunesi þar sem bryggja sópaðist burtu, bátar brotnuðu og verulega gekk á Mjóddina svonefndu. Þegar veður og flóð slotaði gáfu 68 tjónsþolar sig fram. Eftir þessa atburði var brimvarnargarður byggður á norðanverðri eyrinni.  ---   (Úrdráttur (að mestu) úr frásögn í Siglfirskum annál eftir Þ. Ragnar Jónasson þar sem vitnað er í fréttir úr Morgunblaðinu, Einherja og Siglfirðingi).  Fréttaritari fortíðar
 

Fimmtudagur 22. desember 2005
Ólafur Björnsson (Óli Biddýar)
er 24 ára í dag 
kveðja frá fjölskyldunni á Sigló
Fimmtudagur 22. desember 2005
Heiða Jonna Friðfinnsdóttir
er 14 ára í dag
Dóttir Finna Hauks og Sibbu Elíasar
Fimmtudagur 22. desember 2005
Aðalsteinn Oddsson
er 50 ára í dag
Fimmtudagur 22. desember 2005
Elín Birna Bjarnadóttir
er 34 ára í dag
Miðvikudagur 21. desember 2005  "Jólahús"  Hvanneyrarbraut 49

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
* 1,4 °C  *  5,8 m/s
 

Miðvikudagur 21. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.              ö  Hlíðarvegur 23  

Miðvikudagur 21. desember 2005 

HELLAN
er komin út, stútfull af fjölbreyttu efni  (desemberblaðið)

Miðvikudagur 21. desember 2005 Jólaljós -- Það er, sýnist mér talsverð aukning jólaljósa á húsum og í görðum bæjarbúa hér á Siglufirði nú, miðað við síðustu árin . Myndin lengst til vinstri var tekin þegar eigandinn lauk við að tengja hið nýsmíðaða skraut og kveikti á seinni partinn í gær. (smíðað hjá SR-Vélaverkstæði) En þetta er vel við hæfi tónlistarmannsins Elíasar Þorvaldssonar sem á húsið - Hinar 2 voru teknar aðeins síðar og skýra sig sjálfar. -

Miðvikudagur 21. desember 2005  Ein gömul:  Lúðrasveit ?

Ég þekki ekki alla, en bætið við nöfnum og sendið mér.

Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Miðvikudagur 21. desember 2005
Svava Gunnarsdóttir
er 46 ára í dag.
Maður hennar er Stefán Birgisson (sonur Bigga Björns og Rabbý Stefáns) þau búa í Vestmannaeyjum. Kær kveðja frá Sigló kæru vinir. Finni og Sibba
Miðvikudagur 21. desember 2005
Jón Heimir Sigurbjörnsson
er 33 ára í dag.
Kveðja frá fjölskyldunni.
Miðvikudagur 21. desember 2005
Radovan Medic er 13 ára í dag
Kveðja frá mér Milenu, bestu systur í heimi, og auðvitað fjölskyldunni hann er alltaf jafnskrautlegur á öllum myndum

Þriðjudagur 20. desember 2005  Síldarvinnslan hf. hefur gert framvirkan samning um kaup á öllum hlutabréfum í Súlunni ehf.

Öll fréttin HÉR  á síðu Síldarvinnslunnar

Þriðjudagur 20. desember 2005 "Úti að aka" hefur einhver verið sem vonandi hefur vaknað við það að lenda á þessum ljósastur við Langeyrarveg, en svona leit staurinn út þegar ég kom að þessu svæði í morgun

Þriðjudagur 20. desember 2005
Ytra húsið fært í upprunalegt horf.
Ytrahúsið áhugamannafélag, stendur nú fyrir umfangsmikilli lagfæringu á húseign sinni- og er meiningin að koma því sem næst í upprunalegt útlit. Þrír félagar voru að vinna við að endurnýja meðal annars fótstykkið að norðanveru í morgun er mig bar að garði. En það vori  þeir Örlygur Kristfinnsson - Sveinn Þorsteinsson og Páll Helgason --- Formaður og forstjóri félagsins er Hinrik Aðalsteinsson

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
* 3,8 °C  *  1,3 m/s
 

Þriðjudagur 20. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.              ö  Hlíðarvegur 22  

Þriðjudagur 20. desember 2005 Aðsent: Úthlutunarreglur byggðakvóta – viðbrögð vegna yfirlýsingar Þormóðs ramma – Sæbergs. -    Á heimasíðu Þormóðs ramma – Sæbergs má sjá yfirlýsingu vegna reglna um úthlutun byggðakvóta á Siglufirði fiskveiðiárið 2005-2006.  Bæjaryfirvöld harma niðurstöðu þeirrar yfirlýsingar þar sem beinlínis er gefið í skyn að................... lesa meira HÉR

Þriðjudagur 20. desember 2005  JÓLAKVEÐJUSÍÐAN er  HÉR

Þriðjudagur 20. desember 2005  Gamlar myndir: Fleiri hundruð myndir HÉR -- Nýkomnar á síðuna; myndir af gömlu starfsfélögunum hjá SR -- Áður hafa verið settar inn; myndir frá Haferninum og Hvalvík. - Nokkur hundruð myndir frá SR, eiga eftir að koma á aukasíðuna mína www.123.is/sksiglo

Þriðjudagur 20. desember 2005
Líney Bogadóttir
er 83ja ára í dag
Þriðjudagur 20. desember 2005
Rósa Magnúsdóttir
er 81 árs í dag

Mánudagur 19. desember 2005

Úthlutun byggðakvóta á Siglufirði
Frétt/grein um skiptingu byggðakóda og fleira á síðu Þormóðs Ramma Sæberg hf. http://www.rammi.is/

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
* 0,1 °C  *  0,0 m/s
 

Mánudagur 19. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.              ö  Hlíðarvegur 19  

Mánudagur 19. desember 2005  Vorboðakórinn, kór aldraðra söng í gærdag fyrir sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar.

Hrönn Einars var þar og tók þessa mynd og sendi okkur.

Mánudagur 19. desember 2005 Ein gömul:  Hús við Hvanneyrarbraut 63b flutt á brott og gert að sumarbústað í Skagafirði, árið 1977

Mánudagur 19. desember 2005
Sabrína Lind Adolfsdóttir
er 9 ára í dag.
Hún er dóttir Adolfs Árnasonar og Elín Birnu Bjarnardóttur.
 
Mánudagur 19. desember 2005
Birna Björk Heimisdóttir
er 2ja ára í dag. Foreldrar:
Heimir Birgisson og Katrín Freysdóttir
Mánudagur 19. desember 2005
Sigurður Sigurjónsson (Siddi)
er 40 ára í dag
engin mynd kom með

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
* 4,0 °C  *  0,0 m/s
 

Sunnudagur 18. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.              ö  Hlíðarvegur 17  

Sunnudagur 18. desember 2005 Sameiningarmál -- Nú er komin skýring á því hversvegna engin kynning hefur verið eða skýring á utankjörstaða atkvæðagreiðslu sem hefur verið auglýst án frekari upplýsinga vegna sameiningarmála Siglufjarðar og Ólafsfjarðar.
Nánari upplýsingar eru nú komnar á vef Siglufjarðarkaupstaðar:  HÉR

Sunnudagur 18. desember 2005 Þessi mynd var tekin í gær um klukkan 14:00 en þá var frostið tæplega  -3 °C og snjókoman að minnka, en nokkur logndrífa hafði verið frá því snemma um morguninn.
Greinar jólatrésins obbalítið farnar að svigna undan snjónum, sem þó hvarf seinni partinn og um klukkan 18:00, var hitinn orðinn tæplega 8 °C

Sunnudagur 18. desember 2005 Ein gömul:  Í þvottahúsi Sjúkrahússins á Siglufirði:

Ásdís Ásgeirsdóttir - Guðborg Franklínsdóttur - Sigurhelga Stefánsdóttir og Guðný Ósk Friðriksdóttir

 

Sunnudagur 18. desember 2005
Vigfús Ingi Hauksson
er 50 ára í dag.
Sunnudagur 18. desember 2005
Katrín Dröfn Haraldsdóttir
er 17 ára í dag.
Til hamingju með daginn.  ÞJS