Gömul-KS | Skemmdir á .. | Lionsmenn | Fyrirspurn...

>>>>>>>>>>> Skemmdir á ..

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ábending frá Leikskálum

 

Nú nálgast jólin og allt sem þeim fylgir.

Bæjarstarfmenn  búnir að vera á fullu við að setja upp jólaljós hér og þar fyrir okkur öll til að njóta og til að skapa jólastemmingu í bænum í desember. Það finnst okkur frábært því ekki viljum við vera án jólaljósanna.

Þegar leikskólastarfsmenn mættu til vinnu í morgun var ekki ánægjulegt að líta á jólaseríuna sem snýr út á leikskvæði barnanna. Búið var að brjóta 12 perur og glerbrot út um allt. Það er mjög auðvelt að skipta um perur enda gekk það hratt fyrir sig en það var aftur á móti erfiðara að ná upp öllum smáu glerbrotunum í snjónum. Flest ef ekki öll börn á leikskólaaldri borða snjó og því lítum við þetta mjög alvarlegum augum.

Farið var í alla bekki grunnskólans í morgun og óskað eftir aðstoð þeirra við að stöðva svona skemmdarverk og tóku þau vel í samstarfið. En við  hvetjum ykkur foreldra til að ræða um þetta við börnin ykkar og gera þeim grein fyrir alvarleika málsins.

Njótum aðventunnar

kveðja leikskóastóri

Til baka