|
Mig vantar "bílskúr" til
kaups á Siglufirði, helst á láglendi, en "skúrinn" verður
væntanlega notaður undir lítinn vélknúinn plastbát ásamt viðkomandi
kerru -- Upplýsingar: Steingrímur í síma 892-1569 |
Laugardagur
10. desember 2005
SR-Byggingavörur eiga 2ja ára afmæli í dag.
Þar var ös í morgun þegar ég kom þar við til að fá mér afmæliskaffi. |
Laugardagur
10. desember 2005 Jólatréð og Ráðhúsið
í morgun |
|
Laugardagur
10. desember 2005 Guðmundur Ólafur
ÓF 91 2329 hefur látið reka inni á Siglufirði - að líkindum hafa
skipverjar verið að frysta þessi 200 tonn sem þeir vor með í lestum á
gær þegar þeir losuðu um 150 tonn af frystri loðnu til geymslu í landi
Þessi mynd var tekin í morgun |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 4,2 °C *
NV 1,3 m/s
|
_small.jpg) |
Laugardagur
10. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö Hlíðarvegur 1c |
|
Jólakveðjur til ættingja
og vina
Allir Siglfirðingar og firðinum okkar tengdir, sem þess óska geta
fengið pláss á Lífinu á Sigló til að senda vinum og ættingjum sem eru
fjarri, jólakveðju. Opnuð verður sérstök SÍÐA þann 20. desember
næstkomandi, þar sem fyrir verður komið kveðjum sem berast mér til
birtingar, fram að þeim tíma og til áramóta. Viðkomandi sendir mér
mynd að eigin vali ásamt texta, fjölskyldumynd eða annarskonar
mynd sem birt verður með kveðjunni. Þetta á einnig við fyrirtæki sem
vilja nota þetta tækifæri til að senda viðskiptavinum sínum og
starfsfólki jóla og áramórakveðju. ---
ÞETTA KOSTAR EKKERT.
|
|
_small.jpg) _small.jpg) Laugardagur
10. desember 2005
Það er ekki á hverjum degi sem svona
stórlúða fæst á línu út af Siglufirði. En Reynir Karlsson sem rær á
henni Júlíu sinni SI 62 á daginn en sefur hjá Júlíu konu sinni á
næturnar, fékk þessa fallegu lúðu á línu í gær, en myndirnar sýna
lúðunni landað á bryggju, - Reynir ásamt háseta sínum "Radek" Pólverja
sem flutti hingað til Siglufjarðar frá Tálknafirði með konu og tvö
börn, gagngert vegna auglýsingar frá Reyni um að hann vantaði háseta. Á
þriðju myndinni stendur Reynir við hlið lúðunnar, en "hæð" hennar
reyndist vera 180 sentimetrar - um þyngdina veit eg ekki. Alls var afli
dagsins tæp 3 tonn. |
|
Laugardagur
10. desember 2005
Brunamálaáætlun. Undirrituð var seinnipartinn
í gær í BíóSalnum, Brunamálaáætlun
Siglufjarðarkaupstaðar en að undirskriftinni stóðu af hálfu
Brunamálastofnar dr. Björn Karlsson brunamálastjóri og bæjarstjórinn
okkar Runólfur Birgisson. -- Og Slökkviliðsstjórinn Ámundi Gunnarsson að
sjálfsögðu, nokkrir slökkviliðsmenn og makar til að vera vitni að þessum
viðburði.
Boðið var upp á léttar veitingar -
Og Lífið á Sigló staðfesti samkomuna með ljósmyndum sem hér eru á
tenglinum >
 |
|
Laugardagur
10. desember 2005
Jóladagar í Íslandsbanka á Siglufirði. Í gær föstudag var
uppákoma í Íslandsbanka, þar sem nemendur í Tónskóla Siglufjarðar
spiluðu fyrir viðskiptavini og þá aðra sem leið áttu um andyrið. En
slíkar uppákomur munu verða næstu föstudaga fram að jólum.
Vorboðarnir, kór eldri borgar mæta á næsta föstudag. Smelltu >>
 |
|
Laugardagur
10. desember 2005 Ein gömul:
Ekki veit ég hver maðurinn er, en bærinn á bak við hann mun vera Skúta
sem var austan við Siglugjörð ("á" Ásnum). Ókunnur
ljósmyndari.
Ef einhver á betri mynd af
"Skútu" þá þætti mér vænt um að fá að taka eftir henni |
Laugardagur
10. desember 2005
Jóhanna Steinunn Þorsteinsdóttir
er 64 ára í dag |
|
Laugardagur
10. desember 2005
Unnur Helga Möller
er 86 ára í dag |
Laugardagur
10. desember 2005
Guðrún Hauksdóttir
er 33ja ára í dag.
Kveðja frá Stefán Hauk |
Laugardagur
10. desember 2005
Agnar Þór Sveinsson
er 29 ára í dag |
Laugardagur
10. desember 2005
Óskar Berg Elefsen
er 49 ára í dag |
|
Föstudagur
9. desember 2005 Fjölveiðiskipið
Guðmundur Ólafur ÓF 91 2329 kom hér í morgun til að losa um 150 tonn af
frosinni loðnu til geymslu hjá Þormóði Ramma Sæberg. En um borð voru
einnig um 200 tonn af nýrri loðnu sem skipverjar áttu eftir að frysta um
borð, en skipið hefur verið við loðnuleit hér fyrir norðan land. Frekar
lítið hefur fundist af loðnu til þessa. "Einstaka pollur" eins og einn
komst að orði. |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 4,6 °C *
S 5,4 m/s
|
_small.jpg) |
Föstudagur 9. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö Hlíðarvegur 4 |
|
Föstudagur
9. desember 2005 Aðsent:
Það eru að koma jól, segir
almannakið og allt jólaskrautið
Jólakaktusinn hennar Bertu, konu Sveins Þorsteins. |
|
Föstudagur
9. desember 2005 Það er BANNAÐ.
Athygliverður listi yfir fáránleg lög á bloggsíðunni hans
Leós
- Þess virði að skoða- og gleðjast yfir því að vera laus við svona lög
hér heima á fróni -- Þó svo að í Lögreglusamþykkt Siglufjarðar séu enn
til frá fornu fari, reglur sem enga stoð eiga í raunveruleikanum, hvað
þá að eftir þeim sé farið, hvorki af yfirvöldum né einstaklingum (sem í
raun er alls ekki óeðlilegt) |
|
Föstudagur
9. desember 2005
Aðsent: Hér eru nokkrar síðbúnar myndir
frá jólahlaðborðinu á Bíóinu sem haldið var síðastliðinn Laugardag 3.
desember.
Kveðja Kristján L. Möller
>>>
 |
|
Föstudagur
9. desember 2005 Ný heimasíða:
Gauti í Versló, hann losnar að líkindum seint við það nafn sem á
heima og er væntanlega komið í gælunafnaskrá
Bjarna Kristjáns - Hann Guðmundur Gauti
Sveinsson er búinn að kaupa sér myndavél og hefur sett upp heimasíðu
www123.is/ggs
Hann er byrjaður að setja inn myndir, en lesendur eru
beðnir að fylgjast vel með drengnum, og skamma hann ef hann stendur sig
ekki vel við að setja inn myndi á nýju síðuna sína.Hann er góður á
ritvellinum (þegar hann má vera að því að setjast við tölvuna) og ætti
að hafa hæfileika sem myndasmiður einnig.
>>> Áfram GGS <<< |
|
Föstudagur
9. desember 2005 Ein gömul,
aðsend: Sæll Steingrímur... Datt í hug að senda þér þessa mynd
sem ég held að gæti alveg átt heima í “horfin hús.” -
Ég er ekki alveg viss um hvaða strákar það eru sem horfa yfir brekkuna,
en mér er samt næst að halda að það gætu verið Óli Kára og Úlfar Gull
(bróðir Erlu Gull.) Allar nánari upplýsingar um það eru annars vel
þegnar. Það hefur mikið breyst á brekkunni frá því að þessi mynd var
tekin sem gæti hafa verið 1967. Hávegur 11 fyrir neðan hús Kára Jóns,
þar sem bjuggu Páll og Gyða (foreldrar Stínu Páls) er horfið fyrir
nokkrum áratugum. Fyrir neðan það er hús Óskars Garðars (áður Garðars
faðir hans) ásamt bílskúrnum á lóðinni sem urðu að víkja fyrir tengingu
Hverfisgötu og Hávegs, en hús Óskars var flutt yfir á Saurbæjarás. Við
Hverfisgötu 10 stendur Aðventistakirkjan sem var breytt í bílageymslu á
sjöunda áratugnum. Hús Heiðu Jónu og Ella Ísfjörð var númer 12 við
Hverfisgötu og stóð lengi fjárhús og hlaða uppi í lóðinni. Þessi tvö
síðast nefndu eru bæði horfin fyrir einhverjum áratugum síðan. -
Kveðja – Leó R. Ólason. |
|
_small.jpg) Föstudagur
9. desember 2005 Aðsent og...
Myndina hér til hægri fékk ég senda frá Jón Gunnari Jónssyni, (maðurinn
hennar Fríðu Birnu, dóttir Kidda G.) En þetta hús er á Stokkseyri. Hann
leitaði upplýsinga um uppruna hússins sem hann vissi að hefði verið á
Siglufirði og ávalt kallað "Amsterdam" Ég þekkti lítilsháttar til fyrri
staðsetningar; myndin til vinstri sennilega um 1940 ljósmynd:
Kristfinnur Guðjónsson. En þar sem ég vissi að Örlygur safnvörður vissi
betur, þá leitaði ég til hans og hér kemur hans frásögn í stuttu máli:
Amsterdam, Tjarnargata 11, stóð norðan við Henriksen húsið (sem er
neðst við Aðalgötu) og skáhallt á móti Þormóðsbúð,
björgunarsveitarhúsinu. - Það var eitt af mörgum húsum sem norski
útgerðarmaðurinn Thormod Bakkevig byggði hér á Siglufirði frá 1904-1919.
Meðal húsa Bakkevigs þarna á svæðinu voru fyrsta fiskimjölsverksmiðjan á
Íslandi og fyrsta tunnuverksmiðjan.--- Ástæða fyrir þessari nafngift,
Amsterdam, er ekki vitað en annað hús Bakkevigs sem stóð frammi á
bryggju hét Rotterdam. -- Síðast átti Þórður Þórðarson í Hrímni
húsið og um 1980 bauð hann það nokkrum mönnum að gjöf. Sá sem þáði það
var Þórður Vigfússon, þáverandi framkvæmdastjóri Þormóðs ramma. Með
hjálp nokkurra Siglfirðinga tók hann húsið niður (en það er stokkbyggt)
og setti það saman aftur á Stokkseyri á nýjum kjallara.
Og þar sómir það sér vel þetta gamla Norsk-Siglfirska hús. |
Föstudagur
9. desember 2005
Margrét Ósk Harðardóttir
er 44 ára í dag |
Föstudagur 9. desember 2005
Ólafur Baldur Ingvarsson
er 6 ára í dag
Bestu kveðjur frá Odense |
|
Fimmtudagur
8. desember 2005 Úr
dagur.net
Siglfirðingurinn Aðalheiðar S
Eysteinsdóttur: - Laugardaginn 10. des.kl. 15-17
verður sýning á fatnaði sem Aðalheiður S. Eysteinsdóttir hefur hannað og
saumað úr notuðu og nýju, í Populus Tremula ( í kjallara Listasafns
Akureyrar ). Sýningin ber yfirskriftina " endurhönnun / redesign " og er
áhersla lögð á.............. lesa meira
HÉR |
|
_small.jpg) Fimmtudagur
8. desember 2005 Maður
desembermánaðar
fékk viðurkenningu Kaupmannafélagsins í morgun. Fyrir valinu að
þessu sinni var Valur Johansen, sem lamaðist fyrir nokkrum árum en hefur
sýnt eindæma elju og dugnað við að bjarga sér, og fer nú allra sinna
ferða án mikillar aðstoðar- og ferðast um utandyra á reiðskjótta sínum.
Á myndinni til hægri er kona hans Sigurlína Gísladóttir með honum |
|
Fimmtudagur
8. desember 2005 Fyrirtæki
desembermánaðar fékk viðurkenningu Kaupmannafélagsins í morgun. Við
viðurkenningunni tóku fyrir hönd Fiskmarkaðar Siglufjarðar, Pétur
Bjarnason aðstoðar framkvæmdastjóri og Steingrímur Óli Hákonarson
framkvæmdastjóri |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 7,9 °C *
SV 4,0 m/s
|
_small.jpg) |
Fimmtudagur 8. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö Hlíðarvegur 3 |
|
Fimmtudagur
8. desember 2005 "Eins og skrattinn úr
sauðarleggnum" - kom auglýsing í Tunnunni í gær, frá
Kjörstjórn Siglufjarðar flatt upp á mig, þar sem það hefur alveg farið
framhjá mér sú ákvörðun, væntanlega beggja kaupstaðanna Ólafsfjarðar og
Siglufjarðar, að kjósa skuli um sameiningu bæjanna í janúar næstkomandi.
Ég hafði heyrt á það minnst og raunar lesið um að þessir aðilar hefðu
verið að ræða hlutina, en hvergi séð eða heyrt á það minnst að þessi
kosning hafi verið ákveðin, hvað þá frekar um kynningu, td. borgarfund.
Ég fór á
www.siglo.is til að vita hvort eitthvað væri þar
auglýst, svo var ekki og ekki fann ég heldur auglýsingu á
Ólafsfjarðarvefnum. Ég fór meir að segja á
www.dagur.net
en fann ekkert. En það hlýtur að vera eitthvað til í þessu þar sem
Kjörstjórn Siglufjarðar hefur auglýst utankjörfundar atkvæðagreiðslu
vegna kosninga um sameiningu 28. janúar 2006 -- Þær virðist vera
fljótari upplýsingamiðlanir nú á tímum Internetsins að koma svona
upplýsingum í fjölmiðil sem kemur út einu sinni í viku, frekar en að
nota einnig "hraðvirkari" miðla, eins og tildæmis
www.siglo.is |
|
Fimmtudagur
8. desember 2005
Systrafélag Siglufjarðarkirkju bauð eldra
fólkinu að Öldrunardeild og Sjúkradeild Sjúkrahússins til árlegs
kaffisamsætis ásamt uppákomum. En meðal skemmtiatriðanna sáu nemendur
Tónskóla Siglufjarðar og kennarar um. --
Kella mín er ein af systrunum og mætti þar og tók auðvitað slatta af
myndum sem eru hérna á tenglinum >>
 |
Fimmtudagur
8. desember 2005 Ein gömul:
Hlíðarvegur 1 og..... sennilega 1976 |
Fimmtudagur
8. desember 2005
Katrín Þórný Jensdóttir
er 77 ára í dag |
Fimmtudagur
8. desember 2005
Guðrún Ásgerður Sölvadóttir
er 50 ára í dag |
|
Miðvikudagur
7. desember 2005 Þessi mynd
var tekin frá Vefmyndavélinni í dag klukkan 13:30 -- sett hér til
uppfyllingar. -- En auðvelt er að "taka mynd" frá vélinni í þessari
upplausn. Ekki fullkomin mynd, en dugar ! |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Heiðskírt *
-1,0 °C *
0,0 m/s
|
_small.jpg) |
Miðvikudagur 7. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö Hlíðarvegur 1 |
|
Miðvikudagur
7. desember 2005 Nýlega
leitaði
Adolf H. Berndsen
svara á alþingi hjá sjáfarútvegsráðherra,
um afla og landanir smábáta umhverfis landið. Það sem vekur athygli í
svarinu, er hvað Siglufjörð varðar, er aukning afla og löndunar á milli
ára í hlutfalli við aðrar hafnir. Skoðið svarið & skýrslu
HÉR |
|
   Miðvikudagur
7. desember 2005 Fjórir merkir
Siglfirðingar fallnir í valinn.
- Nú á síðustu dögum og vikum, hafa fjórir
þekktir Siglfirðingar frá gamalli tíð fallið frá, allir á háum aldri, en
það eru Sigurbjörn Frímannsson bifreiðastjóri, sem búið hefur hér í
áratugi. Bjarni Bjarnason (Boddi Gunnars) sem allir eldri muna eftir, en
hefur búið í Hafnarfirði síðustu árin. Þá Óli J Blöndal sem flestir
þekkja, þar sem hann hann heimsótti fjörðinn sinn reglulega, en hann
flutti suður fyrir nokkrum árum. Og svo annar Bjarni Bjarnason (Bjarni
Finnu) sem lést í gærmorgun í Vestmannaeyjum 83ja ára gamall. Þessir
menn falla ekki úr minni þeirra sem áttu með þeim samleið hér á árum
fyrr. Við munum minnast þeirra. |
|
Miðvikudagur
7. desember 2005 Ein gömul:
Aðsendar upplýsingar: Þessa krakka þekki ég, að framan eru ég og
Fríða Birna systir mín, til hliðar Siggi (Óla Blöndal), sitjandi að
ofan, frá vinstri Öddi (Halla Alberts vörubílstjóra) Bjössi ( Jóns og
Ingeborgar), og Kjartan skólabróðir minn sonur Óla löggu.. >
Inga Sjöfn Kristinsdóttir ----
Ljósmyndari: ??? |
Miðvikudagur
7. desember 2005
Ólafur Bjarnason
er 58 ára í dag |
Miðvikudagur 7. desember 2005 |
|
Þriðjudagur 6. desember 2005
Frystiskipið Belbek kom í morgun til að
lesta hér frosna síld, sem er í geymslum Þormóðs Ramma Sæberg. |
|
Þriðjudagur 6. desember 2005
Fjölveiðiskipið Svanur RE 45 2530 var hér í
morgun að taka um borð flottroll fyrir kolmunaveiðar |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Heiðskírt *
-0,4 °C *
0,0 m/s
|
_small.jpg) |
Þriðjudagur
6. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö Hafnargata 6 |
Þriðjudagur
6. desember 2005 Ein gömul:
Húsið Vetrarbraut 10 rifið af Lions mönnum.
Ljósmynd ??? |
Þriðjudagur
6. desember 2005
Sigurður Jón Gunnarsson
er 34 ára í dag. |
|
Þriðjudagur
6. desember 2005
Ingeborg Svensson
er 71 árs í dag |
Þriðjudagur
6. desember 2005
Oddur Jónsson
er 75 ára í dag |
|
Mánudagur 5. desember 2005
SR-Vélaverkstæði. Þeir hafa staðið í
ströngu drengirnir á SR-Vélaverkstæði við að smíða og útbúa jólaskraut,
sem ýmis fyrirtæki um land allt hafa verið að panta hjá þeim nú fyrir
jólin eins og fyrir síðustu jól. Þeir smíða nánast hvaða "prófíla" sem
viðskiptavinurinn óskar. Hér við hliðina er eitt tilbúið til
pökkunar í dag og verður sent á Blönduós |
|
Mánudagur 5. desember 2005
Það hefur víða verið mikið haft fyrir- og
oft með miklum kostnaði að koma fyrir jólaskreytingum. Barnheimilið
Leikskálar er engin undantekning, en það er aumt til þess að vita að
starfsfólkið þurfi á nær hverjum morgni að hreinsa upp glerbrot eftir
brotnar ljósaperur og fleira skraut áður en börnunum er hleypt inn á
leiksvæðið. Einhverjir pörupiltar virðast hafa ánægju af því að hafa
skrautið fyrir skotmark á kvöldin. Foreldrar, talið við eldri börnin
ykkar og gerið þeim grein fyrir hversu alvarlegt þetta athæfi er, ekki
hugsa sem svo "þetta geta ekki verið mín börn" - þetta verður að teljast
óvitaskapur en ekki illgirni- og komið að málinu á þann hátt, og vona að
orð ykkar flytjist á milli krakkanna og veki jákvæða umræðu þeirra. Eitt
lítið glerbrot gæti ratað á litlar hendur á barni, með slæmum
afleiðingum.
Aðsend viðbót:
Frá Leikskálum, smelltu
HÉR |
|
Mánudagur 5. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö Hafnargata 8 |
|
Mánudagur 5. desember 2005
Forseti Íslands afhenti styrki úr
Menningar- og viðurkenningasjóði KEA - Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, afhendir Hafdísi K Ólafsson á Siglufirði styrk
að upphæð 150 þúsund krónur, en hún var einn af 26 styrkþegum í dag. --
Hafdís K Ólafsson til að koma upp úra- og gullsmíðasafni á Siglufirði.
---
Knattspyrnufélag Siglufjarðar, fékk 100 þúsund krónur vegna
Pæjumótsins sem haldið er ár hvert á staðnum -- Frétt af vef
KEA
Til hamingju, - SK |
|
Mánudagur
5. desember 2005 Ein gömul:
Þær eru að líkindum komnar af léttasta skeiðinu þessar.
Þóra Steinunn Gísladóttir - Guðbjörg Ólafsdóttir (Stúlla) - Rut
Sigurðardóttir - Gunnhildur Sigurðardóttir 1941
árgangur.
Eftirtaka; ókunnur ljósmyndari. |
Mánudagur
5. desember 2005
Anton Vilhelm Guðbjartsson
er 6 ára í dag --
Á myndinni er hann í snjóhúsi hjá Möggu ömmu og Ómari afa |
Mánudagur
5. desember 2005
Gunnjóna Jónsdóttir
er 60 ára í dag |
Mánudagur 5. desember 2005
Sigurjón Kjartansson
er 56 ára í dag |
|
Sunnudagur
4. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö Hafnargata 10 |
|
Sunnudagur
4. desember 2005 Kveikt var á
jólatrénu á Torginu með hátíðlegri athöfn sem
hófst á klukkan 17:00 í gær. Talsverður fjöldi var þar samankominn,
foreldra með börnum sínum og fleiri. Egill Rögnvaldsson setti hátíðina,
séra Sigurður Ægisson flutti smá ritningu, Blásarasveit undir stjórn
Elíasar Þorvaldssonar spilaði og svo komu auðvitað sjálfir
jólasveinarnir með stæl, og tóku síðan lagið. Lítil stúlka Agnes Ósk
Iansdóttir kveikti svo ljósin á jólatrénu.>>>
 |
|
_small.jpg) Sunnudagur
4. desember 2005 Kaupmannafélagið,
Sturlaugur Kristjánsson og Kristján Dúi Benediktsson sáu um, og sungu
jólalög og fleiri, á torginu frá klukkan 15:00 í gær ---
Frekar fámennt var þó í bænum (á Torginu)- ekki þó vegna tónlistarinnar
sem var hin ágætasta og kom þeim sem leið áttu um miðbæinn í
jólastemmingu eins og til var ætlast. En ég hafði fregnir af því að ekki
hefði verið hægt að þverfóta fyrir Siglfirðingum í verslunum á Akureyri
fyrripart dagsins í gær. |
|
Sunnudagur
4. desember 2005
Norðurlandsmót í knattspyrnu 5. flokks
drengja var haldið í gær í Íþróttahúsinu á Siglufirði.
Ég leit þar inn og tók nokkrar
myndir >>>
 |
Sunnudagur
4. desember 2005 SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ
- smellið á myndina |
Sunnudagur
4. desember 2005 Ein gömul:
Gamlir KS-ingar |
Sunnudagur
4. desember 2005
Sveinn Sveinsson
er 69 ára í dag |
Sunnudagur 4. desember 2005 |
|
Laugardagur
3. desember 2005
Nýfallinn snjór á gömlu trillurnar sem bíða eftir að komast í
húsaskjól hjá Síldarminjasafninu, - áður en þær fúna og verða engum til
augnayndis og varðveislu. (myndin var tekin í morgun) |
|
Laugardagur
3. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö Hafnargata 14 |
|
Laugardagur
3. desember 2005
Þið sem búið í nánd við Kópavog:
Munið eftir tónleikum þeirra Antoníu Hevesi
og Hlöðvers Sigurðssonar
Þau verða í
Salnum í Kópavogi
á morgun
sunnudag 4. desember.
<<<<< Smelltu á myndina |
|
_small.jpg) Laugardagur
3. desember 2005
"Það var hamagangur í öskjunni" þegar hinn árlegi Jólabasar
Kvenfélagsins Von opnaði í húsnæði Leikfélagsins í gær, þar sem á
boðstólum voru meðal annars laufabrauð, og fleira góðgæti, ásamt ýmsum
handunnum vörum ofl.
Kona mín Guðný, var þar mætt og tók þessar myndir. |
|
Laugardagur
3. desember 2005 Aðsent
og.... Hérna færðu nokkrar myndir til
að birta með þeim sem þú tókst í gær. - Þessar myndir eru frá ferð minni
og Jóa (Réttingaverkstæði Jóa) til Hollands á leik AZ-Alkmaar á móti
Middlesbrough í Evrópukeppni félagsliða, að sjálfsögðu var
Siglfirðingurinn Grétar Rafn Steinsson í liði AZ .
Í leikslok er það hefð í svona stórleikjum að menn skiptast á treyjum,
en okkar maður var ekki með hugann við það heldur passaði hann uppá að
við færum með hans treyju heim og færðum Mumma hans fyrsta þjálfara, sem
og hefur komið að þjálfun flestra barna og unglinga sem hafa stundað
fótbolta á Siglufirði síðustu árin. -- Það var ekki að því að
spyrja að Grétar var með betri mönnum í góðu liði AZ og var það að heyra
á öllum sem við töluðum við að það eru miklar væntingar bundnar við
þennan geðuga Siglfirðing. --- Ég ætla að nota tækifærið og þakka
Grétari og Eyrúnu þar sem ég veit að þau fylgjast vel með Lífinu á
Sigló, kærlega fyrir frábærar mótökur- og það er næsta víst að það er
ekkert voða langt í að jólasveinarnir í KS úlpunum mæti aftur á leik.
Hörður >>>
 |
|
Laugardagur
3. desember 2005 Ein gömul:
Þessi mynd er tekin árið 1930(31)
Verið er að byggja Siglufjarðarkirkju, sem sést í bakgrunni, en Hótel
Siglufjörður stóð neðan við Lindargötu, rétt norðan við þar sem
kirkjutröppurnar eru nú í dag 2005
Ókunnur ljósmyndari. |
|
Laugardagur 3. desember 2005 |
Laugardagur 3. desember 2005 |
|
Föstudagur 2. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö Hafnargata 16 |
|
Föstudagur
2. desember 2005 Ný og glæsileg
hesthúseining var vígð á hesthúsasvæðinu um síðustu helgi.
Innréttingarnar eru að mestu úr ryðfríu stáli og hinar glæsilegustu, en
smíði og uppsetning var í höndum SR-Vélaverkstæði á Siglufirði, en þeir
taka að sér smíðar hönnun og uppsetningu á slíkum innréttingum.
Hesthúsið er að auki með sjálfvirka brynningu og úrgangshreinsun vegna
hestanna og fleiri þægindi. |
|
Föstudagur
2. desember 2005 Fyrir nokkrum árum
barst það í tal hjá Sjálfsbjörg á Siglufirði,
að félagar ættu að stefna að því að kaupa lyftubúnað fyrir
æfingarlaugina hjá Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar. Leitað var eftir
tilboðum í slíkan grip, sem reyndist allt of stór biti fyrir jafn litla
félagsheild. Þá datt þeim í hug að leita ráða hjá Jóni Dýrfjörð, sem þá
var hættur störfum og hafði selt verkstæði sitt og "lagst í helgan
stein" eins og það er kallað þegar menn eru komnir á háan aldur. Jón á
fatlaða dóttur og þekkti því vel þörfina fyrir slíkan búnað og
.............. Lestu meira og skoðaðu myndir: >
 |
|
Föstudagur
2. desember 2005 Tunnan færir út
kvíarnar. Opnuð var í gær ný verslun í syðri hluta húseignarinnar
þar sem Prentþjónusta Tunnunnar og Hellan er til húsa.
Í versluninni eru til sölu flest, ef ekki allt sem tilheyrir tölvum og
vinnslu, ýmsu vegna föndur vinnu, og margt fleira er þar á boðstólnum.
Þá er hjá Tunnunni til staðar öll almenn þjónusta vegna töfluviðgerða og
uppfærslu. Á myndinni er Albert Guðmundsson framkvæmdastjóri Tunnunnar
og Friðfinna Símonardóttir verslunarstjóri. |
|
Föstudagur
2. desember 2005
Iðja Dagvist opnaði í gær myndlistar og handverkasýningu í
Ráðhúsin. --- Myndin hér við hliðina sýnir eitt verkið.
Ég mætti þar og tók nokkra myndir sem eru hér á tenglinum >
 |
Föstudagur
2. desember 2005 Ein gömul:
Vigfús Þór Árnason prédikar 17. júní 1987 á "Skólabala" |
Föstudagur
2. desember 2005
Arna Rut Gunnlaugsdóttir (Gulla Sínu)
er 23 ára í dag.
Á myndinni með henni er dóttir hennar Þóra Sóley Ingvarsdóttir Sem var 4
ára 29 nóv. sl. |
Föstudagur
2. desember 2005
Valþór Stefánsson læknir
er 48 ára í dag
|
Föstudagur 2. desember 2005
Sigurjóna Lúthersdóttir
er 67 ára í dag |
|
Fimmtudagur 1. desember 2005
Nóvemberblað Hellunnar er komin út. Meðal
annars efni: Viðtal við Elías Þorvaldsson - Viðtal við Hannes
Baldvinsson - Frásögn af ferð kennara til Póllands - Lokahóf Boccia
fólksins - Grunnskólinn og ýmsar fréttir úr bænum |
|
Fimmtudagur 1. desember 2005
Síldarminjasafnið: Nú er safnstjórinn Örlygur Kristfinnsson
með aðstoð Sveins Þorsteinssonar að vinna við undirbúning að dreifingu
yfir 3000 jólakorta til áskrifanda sem eru um 100 talsins, og á þann
hátt að styrkja Síldarminjasafnið með kaupum á kortapakka. Myndin á
kortinu er "vatnslitamynd" eftir Örlyg af Bakkastöðinni Siglufirði árið
1938. Útgefandi er FÁUM |
|
Fimmtudagur 1. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö Hafnargata 18 |
|
Fimmtudagur 1. desember 2005
Aðsent: Sælt veri fólkið. Við prestshús í
dag: 7 skógarþrestir, 3 gráþrestir, 3 svartþrestir (2 kvk, 1 kk), 2
silkitoppur og sönglævirkinn. Tókst að ná eilítið skárri mynd af
honum en síðast; toppurinn liggur aftur.
Kveðja - SÆ |
|
Fimmtudagur 1. desember 2005
Dagur
net: Viðtal við Stefaníu Traustadóttur,
bæjarstjóra í Ólafsfirði --- Stefanía hefur verið bæjarstjóri í
Ólafsfirði þetta kjörtímabil. Hún hefur staðið í ströngu með sinni
bæjarstjórn og í liðinni viku voru fréttir á
dagur.net
um sölu á Hitaveitu Ólafsfjarðar, samþykkt um kosningu um sameiningu
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar og nú síðast um endurskoðun
fjárhagsáætlunar Ólafsfjarðar. --
En hver er Stefanía? Um það færðu að vita
Hér
Viðbót frá Sigló: Til gamans, þá var langafi okkar Stefaníu, Jón
Kristinn Jónsson bóndi í Leyningi. Ef einhver hefur ekki áttað sig á því
hverra manna hún er. Kveðja, Magna Sigbjörnsdóttir |
|
Fimmtudagur 1. desember 2005
Stafrænar ljósmyndir og ljósmyndun
-- Nú hafa stafrænu myndavélarnar fallið mjög í verði, bæði sökum stærri
markaðar og meiri tækni í framleiðslu. Enda eru þessir gripir fyrir
löngu búnir að yfirtaka gamla filmuvélamarkaðinn og eru stafrænar
myndavélar að verða til á öðru hverju heimili í dag. Þá er einnig að
færast í vöxt að gömlu filmurnar séu skannaðar til stafræns forms,
prentaðar í albúm eða sett á geisladisk til að senda vinum og
vandamönnum. Allt er þetta hið besta mál, en með ADSL Internetvæðingunni
sem einnig er komin inn á annað hvert heimili hefur skapast sá möguleiki
að senda ljósmyndir á milli staða með netpósti og enn aðrir, sem eru þó
færri, hafa gert sínar eigin heimasíður. Það mál er fyrir flesta
byrjendur flókið mál. Sumir hafa kosið að blanda myndum sínum á hinar
svokölluðu Bloggsíður sem er í raun einfat mál og hægt að fá víða
ókeypis, en þær síður eru yfirfullar af leiðinlegu auglýsingaskrumi. En
nú fyrir nokkru kom til Íslenskur aðili sem gerir málið svo einfalt að
allir sem kunna á annað borð að lesa, geta án vandræða gert sína eigin
heimasíðu, og komið sínum myndum á sinn einkavef, vef sem viðkomandi
getur haft að öllu eða að hluta til lokaðan almenningi með lykilorði.
Möguleikar þar til viðbótar eru nær óendanlegir - og einfaldleikinn í
fyrirrúmi. Þetta er þjónustuvefurinn
www.123.is Venjulegur
áhugaljósmyndari á varla til svo mikið af myndum að ekki sé pláss á
svæði sem 123.is selur þér fyrir aðeins 2.990 krónur í 12 mánuði.
Ég veit um þrjá Siglfirðinga sem þarna hafa komið fyrir myndum, en það
eru svæðin
www.123.is/hippi Hrönn Einars -
www.123.is/svennisiglo Sveinn Þorsteins og ég sjálfur á
www.123.is/sksiglo - þar til viðbótar eru nokkrir að
velta málinu fyrir sér Skoðið málið, þetta er einfaldara en þú heldur,
smelltu þér á
www.123.is |
|
Fimmtudagur 1. desember 2005
Gömul myndasyrpa :
Árshátíð og 50 ára afmæli SR í boði Síldarverksmiðja ríkisins í janúar árið 1963
 |
Fimmtudagur 1. desember 2005
Andrés Kristján Stefánsson
er 50 ára í dag |
Fimmtudagur 1. desember 2005
Ólína Þórey Guðjónsdóttir
er 46 ára í dag
|
Fimmtudagur 1. desember 2005
Ólafur Þór Haraldsson
er 67 ára í dag |
Fimmtudagur 1. desember 2005
Sigurður Benediktsson
er 44ja ára í dag |
Fimmtudagur 1. desember 2005
Guðmundur Árni Andrésson
er 5 ára í dag
|
Fimmtudagur 1. desember 2005
Telma Dögg Björnsdóttir
er 9 ára í dag. -- Foreldrar eru Brynhildur Þöll ( Stjána
Elíasar og Systu Eiðs ) og Björn ( Dodda Björns og Signý
Jóhannesdóttir)
Hamingjuóskir frá fjölskyldumeðlimum ! |