|
Undirbúningsvinna vegna vaxtarsamnings
Norðurlands
vestra í fullum gangi
Á haustmánuðum 2005
skipaði Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tólf
manna verkefnisstjórn til að hafa umsjón með undirbúningi fyrir gerð
Vaxtarsamnings Norðurlands vestra. Hlutverk verkefnisstjórnar er að
undirbúa tillögur að stefnumörkun í atvinnu- og byggðamálum á
Norðurlandi vestra og kanna hvaða kostir koma helst til greina til að
efla vöxt og samkeppnishæfni svæðisins.
Fyrsti fundur
verkefnisstjórnar var haldinn 6. desember sl. en alls hafa fundirnir
verið þrír til þessa. Verkefnisstjórnin hefur frá fyrsta fundi unnið að
mótun og skilgreiningu tillagna auk nauðsynlegrar undirbúningsvinnu við
frekari vinnslu þeirra. Ennfremur mun verkefnisstjórn fjalla um nýjar
tillögur sem berast og gera áætlun um framkvæmd þeirra.
 |
|
Fundur
verkefnisstjórnar í húsakynnum Háskólans að Hólum á Sauðárkróki,
þar sem unnið er mikið uppbyggingarstarf – og sjá má vísi að
Vísindagörðum.
|
Í næstu skrefum er gert
er ráð fyrir að opnir kynningarfundir verði haldnir víða um Norðurland
vestra á næstu vikum og gefst fólki þá kostur á að fræðast um
undirbúning starfsins og ræða við fulltrúa verkefnisstjórnar um
framvindu verkefnisins, tillögugerð og önnur atriði sem snúa að
undirbúningi og framkvæmd vaxtarsamnings Norðurlands vestra. Ennfremur
gefst fólki kostur á að koma tillögum á framfæri við verkefnisstjórn ef
áhugi er. Með þeim tillögum sem fram koma er mikilvægt að aðgerðaáætlun
fylgi og að fram komi markmið þeirra, forsendur, ábyrgð á framkvæmd
ásamt tíma- og kostnaðaráætlun.
Íbúar á Norðurlandi
Vestra eru hvattir til að sækja þá kynningarfundi sem fyrirhugaðir eru
og auglýstir verða og kynna sér þá vinnu sem framundan er til eflingar
atvinnulífs og búsetuskilyrða á svæðinu. Í starfi verkefnisstjórnar
verður lögð mikil áhersla á samvinnu einstaklinga, atvinnulífs,
sveitarfélaga og opinberra aðila og leitast verður við að nýta
styrkleika og tækifæri svæðisins í hefðbundnum atvinnugreinum sem nýjum.
Horft verður einnig sérstaklega til þess að efla vísinda- og
háskólastarf og efla tengingu og samstarf þess við atvinnulífið samhliða
auknu samstarfi almennt í atvinnulífi. Nánari upplýsingar um störf
nefndarinnar má fá hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. |