|
Höfðingleg
gjöf
Eins og getið var um hér á vefnum í lok mars ákvað Systrafélag
Siglufjarðarkirkju að gefa kirkjunni mikla gjöf, í tilefni stórafmælis
hennar á næsta ári, þegar hún fagnar 75 ára afmæli sínu. Á fundi
sóknarnefndar Siglufjarðarkirkju seinni partinn í gær var umrædd gjöf
afhent formlega. Brynja Stefánsdóttir formaður las þá m.a. upp
eftirfarandi bréf:
Siglufirði 5. apríl 2006.
Sóknarnefnd Siglufjarðarkirkju.
Á aðalfundi Systrafélags kirkjunnar 29. mars s.l. var samþykkt að gefa
eina milljón – 1.000.000 kr. - til kirkjunnar með ósk um að gjöfin
nýtist til að létta undir nauðsynlegar framkvæmdir. Einnig að okkur
takist að fegra og bæta ástand þessa gamla og merka húss, sem kirkjan
okkar er.
Vonum við að ástand hennar verði okkur öllum til sóma á 75 ára afmæli
hennar á næsta ári.
Með bestu óskum,
f.h. Systrafélags Siglufjarðarkirkju,
Brynja Stefánsdóttir, formaður.
Guðný Pálsdóttir formaður sóknarnefndar veitti gjöfinni viðtöku
og þakkaði Systrafélagskonum þennan höfðingsskap. Jafnframt afhenti hún
stjórn Systrafélagsins plagg, þar sem á var letrað:
Með þessu skjali langar okkur að þakka afar rausnarlegt framlag
Systrafélags Siglufjarðarkirkju til viðhalds og lagfæringa á Guðshúsi
okkar Siglfirðinga, eina milljón króna, sem afhent var formlega í dag,
5. apríl 2006, og góðan hug til Siglufjarðarkirkju fyrr og síðar. Guð
blessi óeigingjarnt starf ykkar.
Undir þetta rituðu Sigurður Ægisson, sóknarprestur, og Guðný
Pálsdóttir, formaður sóknarnefndar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Systrafélagskonur styrkja kirkjuna, því
þær hafa verið duglegar við það í gengum árin, og hlaupið til þar að
auki, ef eitthvað hefur bjátað á, aðstoð vantað vegna gestakomu o.þ.u.l.
Og ég veit að þær eru ekki hættar; það tilkynntu þær að lokinni
afhendingu þessarar frábæru gjafar. -- Þær eru til
fyrirmyndar. -- Sigurður Ægisson |