|
Lífið
um páskana:
 |
|
UPPÁKOMUR um páskana -- Þeir sem vilja vekja athygli á atburðum
um páskana sendið mér línu, í svipuðu formi og sést frá á tenglunum
fyrir ofan Lífið
um páskana: og ég set það inn á vefinn (kostar
ekkert) |
|
Laugardagur 8. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Laugardagur 8. apríl 2006
Frá dagur.net - ÚtEy fær styrk úr Þróunarsjóði leikskólanna ---
Félags- og skólaþjónustan ÚtEy í samstarfi við leikskóla í
Dalvíkurbyggð, Ólafsfirði og Siglufirði fengu úthlutað 250.000 kr
styrk frá Menntamálaráðuneytinu úr Þróunarsjóði leikskólanna út á
væntanlegt samstarfverkefni sem ber heitið ,, Stærðfræðin í leik og
starfi leikskólans”. Umsjónarmaður verkefnisins er Þóra Rósa
Geirsdóttir, kennsluráðgjafi. Úthlutun úr þróunarsjóði er mikil
viðurkenning á því starfi sem ætlað er að vinna.
meira..... |
|
Laugardagur
8. apríl 2006 Ein gömul: Þessi mynd hefur áður verið
birt á vef mínum, einhversstaðar í "Ljósmyndasafni" En myndina er vel
hægt að skoða oftar og á svolítið öðrum vettvangi. En svona var
ferðamátinn á 6. áratuginum síðastliðnum þegar hluti starfsfólks SR fór
í hádegismat |
Laugardagur
8. apríl 2006
Ásgeir Sölvason
er 46 ára í dag
Hann fær afmæliskveðjur frá konu og börnum |
Laugardagur
8. apríl 2006
Guðni Margeir Sölvason
er 46 ára í dag |
|
|
Föstudagur 7. apríl 2006
Aðsent: Við vitum ekki hvort það hefur komið fram hjá þér
áður að annar keppandinn í Idol keppninni í úrslitunum í kvöld á
Stöð2, hann Snorri Snorrason á ættir að rekja til Siglufjarðar.
Hann er sonur Snorra Þorlákssonar bróðir Inga Láka ofl. -
Siglfirðingar geta verið stoltir af honum. --
Bestu kveðjur heim, Stína og Baddi
http://www.stod2.is/?PageID=1180
|
|
Föstudagur 7. apríl 2006
Frystiskipið Icestar var hér í morgun/dag að losa hér frosna
rækju til Þormóðs Ramma Sæbergs hf. --- En nokkuð reglulega hafa skip
komið með frosna rækju hingað til Þ.R.S., og eru nánast einu
flutningaskipin sem hingað koma eftir að "óskabarn þjóðarinnar" hætti að
láta skip sín koma á landsbyggðina. Að vísu koma olíuskip hingað einnig
nokkrum sinnum á ári, annað en áður var. |
|
_small.jpg) Föstudagur 7. apríl 2006
Talsvert snjóaði í nótt, meira en fyrrinótt og áttu
snjómoksturstækin litla hvíld frá því snemma í morgun við að hreinsa
götur og bílastæði. Þá þurftu margir húseigendur einnig að grípa til
skóflunnar og gera hreint fyrir sínum dyrum. Þara er Gunnar Guðmundsson
að moka frá sínum dyrum við Suðurgötu í morgun. |
|
Föstudagur 7. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Föstudagur
7. apríl 2006 Menningarsjóður
Sparisjóðs Siglufjarðar
Afhenti styrki úr sjóðnum, með athöfn á Bíó Café í
gærkveldi.
Nánar HÉR
og myndir frá athöfninni >>>

Þessi mynd hér sýnir fulltrúa styrkþega og stjórn sjóðsins: Ólaf Jónsson
- Guðrúnu Árnadóttur og Hermann Jónasson. |
|
Föstudagur
7. apríl 2006 Aðsent:
Ég hef nú lengi ætlað að senda þér linu svona bara til að þakka þér
fyrir þina frábæru síðu "sksiglo.is" og geri það hér með. En það sem rak
mig til að koma þessu í verk er að í gærkveldi er ég leit á síðuna þína
eftir nokkurra daga fjarveru erlendis sá ég umfjöllun um loftsteina. Ég
man vel eftir þessum atburði þegar Jón Þorsteinsson kom
"loftsteininn" fræga til karls föður míns. Ég man mjög vel eftir
þessum hlut og fékk meira að segja að snerta hann. En svo var það,
líklega fyrir svo sem tólf til fjórtán árum, eða stuttu eftir að ég
flutti suður að ljós sást á lofti á suður- og suðausturlandi að mig
minnir, og umræða var um hvort hugsanlegt þar hefði verið loftsteinn a
ferð og þá hvort hann hefði hugsanlega lent á landinu. Í þessu sambandi
var viðtal við Þorstein Sæmundsson stjarneðlisfræðing og taldi hann það
varla hugsanlegt og væri ekki vitað til þess að loftsteinn hefði lent
hér á landi. Þessi ummæli Þorsteins urðu til þess að ég talaði við karl
föður minn um loftsteini fræga á Sigló. Stuttu seinna sendi svo pabbi
mér ljósrit af þeim skrifum sem hann hafði safnað saman um atburðinn á
Sigló svona til gamans. Ég fór svo með þessi "gögn" til Þorsteins að
gamni mínu. Hann var ekki heima þá, svo ég stakk þessu inn um lúguna hjá
honum með nokkrum línum. All nokkru seinna hringdi svo Þorsteinn i mig
og sagðist hafa verið í útlöndum þegar ég hafi komið. Við spjölluðum
svolítið um þennan atburð á Sigló og sagði hann mér þá að sig muni
sterklega að niðurstöður rannsókna hefðu leitt í ljós að umræddur
loftsteinn hafi reynst leifar af mannanna verkum en ekki eiginlegur
loftsteinn. Ennfremur tjáði hann mér að hann vissi ekki hvað hefði orðið
um "steininn" eða hver hefði hugsanlega fengið hann til varðveislu. Bara
svona til gamans. Kær kveðja Magnús Guðbrandsson |
|
Föstudagur
7. apríl 2006 Í fyrra dag birtist
hér á síðunni
mynd af brennandi nótabátum. Þannig hurfu þeir í tugatali gömlu
nótabátarnir á áramótabrennum Siglfirðinga um langt skeið. -- Það
sama gerðist á öðrum helstu útgerðarstöðum landsins, Vestmannaeyjum,
Keflavík, Akranesi, Ísafirði o.s.frv. -- Sennilega hafa íslensku
nótabátarnir skipt hundruðum á árum síldarævintýrisins. Kannski þúsund?
Og flestir brunnu þeir svo á áramótabrennum landsmanna eftir að
kraftblökkin o.fl. leysti þá af hólmi.
Vitað er um þrjá gamla báta, óbrunna en nær ónýta af fúa. -- En
þrír aðrir eru varðveittir í allgóðu standi og sýndir í Bátahúsi
Síldarminjasafnsins. Þar er sá yngsti þeirra, hringnótabáturinn (frá
1955?) í viðgerð. Sveinn Þorsteinsson og Sigurður Benediktsson eru hér á
mynd að endursmíða hluta af eikargrind í stafni bátsins. Í vor verður
hann orðinn fær í flestan sjó með nótinni um borð og öðrum tilheyrandi
búnaði. Góður styrkur til þessa verkefnis fékkst frá fjárlaganefnd
Alþingis nú í vetur. ÖK -- Fleiri myndir
>>>>>
|
Föstudagur
7. apríl 2006 Ein gömul: Lúðrasveit Siglufjarðar --
Sennilega 1966-1965 |
Föstudagur
7. apríl 2006
Haukur Kristjánsson
er 71 árs í dag
Til hamingju, gamall vinnufélagi. |
Föstudagur 7. apríl 2006
Hún mamma (Þórleif Alexandersdóttir) á afmæli í
dag, 7. apríl, og eru kertin á kökunni hennar orðin 66 talsins
frá og með deginum í dag.
afmæliskveðju frá Spariunganum |
|
|
Fimmtudagur
6. apríl 2006 Menningarsjóður
Sparisjóðs Siglufjarðar
úthlutar styrkjum úr sjóðnum í kvöld klukkan 20:30 í kvöld
í Bíó Salnum
Allir eru hjartanlega velkomnir. |
 Fimmtudagur
6. apríl 2006 Páskafjör í Allanum -Allt frá Óperu
Idols endurtekið um páskana
Myndin af er tekin þegar fjörkálfarnir voru við æfingar. |
|
Fimmtudagur
6. apríl 2006 Sparisjóður Siglufjarðar er kominn með
nýja uppfærslu og útlit á heimasíðu sinni slóðin er
www.sps.is/ |
|
Fimmtudagur
6. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
_small.jpg) Fimmtudagur
6. apríl 2006 Höfðingleg gjöf
Eins og getið var um hér á vefnum í lok
mars ákvað Systrafélag
Siglufjarðarkirkju að gefa kirkjunni mikla gjöf, í tilefni stórafmælis
hennar á næsta ári, þegar hún fagnar 75 ára afmæli sínu. Á fundi
sóknarnefndar Siglufjarðarkirkju seinni partinn í gær............
Lesa meira og
skoða myndir |
|
Fimmtudagur
6. apríl 2006 Himininn var kristaltær og sólin skein björt
og hrein á Staðarhólshnjúkinn í gær klukkan 19:00 og ekki var að sjá
neinar blikur í lofti á þeim tíma, en þó var farið að snjóa í
"lognmollunni" (4 m/s) um klukkan 20:30 sem síðar færðist í aukana
eftir því sem leið á kvöldið (10-14 m/s) |
|
Fimmtudagur
6. apríl 2006 Hrönn Einars fór á
vorskemmtun skólana og tók þar nokkrar myndir og sendi mér
>>>>>
 |
|
Fimmtudagur
6. apríl 2006 Varðandi frásögn og hugrenningar varðandi
X-2006 þættina hjá Stöð2 & NFS
hér fyrir neðan þá þurfa væntanlegir
frambjóðendur í sveitarstjórnarkosningum í vor og ætla að keppa um hilli
kjósanda á norðausturhorni Tröllaskaga (SiglÓ) ekki að kvíða því
að lenda í "klóm" þáttargerðamanna, þar sem svæðið er ekki á lista hjá
þeim yfir væntanlega þáttakendur í þáttunum, því miður. |
|
Fimmtudagur
6. apríl 2006 Halldór Már Stefánsson er gítarleikari sem
er að gera góða hluti í Barcelona. Hann er klassískur gítarleikari en
einnig er hann trúbador og er að taka þátt í hljómsveitarkeppni. -
Vildi bara benda ykkur á þennan Íslending, og það geta allir tekið þátt
í að kjósa hann. Hann er í 8.sæti í "augnablikinu" en með ykkar hjálp
gæti hann komist framar
http://www.battleofthemyspacebands.com
--- Þetta er sonur Guðnýjar Páls. kennara á Sigló.
Bein tenging á "hann sjálfan" er hér:
http://www.myspace.com/halldormar -- Þar geturðu
hlustað á hann. |
Fimmtudagur
6. apríl 2006 Fyrir 60 árum: (Morgunblaðið)
Smelltu á myndina og skoðaðu.
<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<< |
|
Fimmtudagur 6. apríl 2006 Ein gömul:
Það er að vísu langt í næstu áramót, en þessi sýnir hver eldsmaturinn
var um áramót og þrettándann hér áður fyrr. Að minnsta kosti 2-3
snupunótabátar voru brenndir hverju sinni.
Þessi er frá áramótunum 1963-1964 |
Fimmtudagur 6. apríl 2006
Kolbrún Inga Gunnarsdóttir
er 41 árs í dag.
Hún Kolla „okkar“ á afmæli í dag.
Við sendum henni kærar kveðjur,
3. bekkur og Mundý. |
|
|
|
Miðvikudagur 5. apríl 2006
Síðbúin leiðrétting vegna
APRÍLGABBS Flestir - ekki þó allir
áttuðu sig á því að seinni hluti frásagnarinnar af væntanlegu nýju
andliti á síðu minni, það er samvinna "GOGGLE" og "Lífið á Sigló"
væri aprílgabb, en það staðfestist hér með að að sú frásögn var
aprílgabb, hins vegar er fyrri hlutinn; "andlitsupplyftingin" á rökum
reist. |
|
Miðvikudagur 5. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Miðvikudagur
5. apríl 2006 Eitt það besta sem fram hefur komið á
vegum Íslenskra ljósvakamiðla er að mínu mati þáttur Stöðvar 2 &
N.F.S., það er kosningasjónvarp þeirra X-2006, sem má segja
að hafist hafi í gærkveldi með heimsókn þeirra til Akranes. Mjög ýtarleg
og áhugaverð umræða auk fróðleiks sem þar kom fram hjá hinum frábæru
fréttamönnum sem greinilega höfðu lesið heima og vissu hvað þeir voru að
gera. Það verður tilhlakk þegar þeir koma til Siglufjarðar og
Ólafsfjarðar. Vonandi verða þeir pólitísku flokkar og menn á svæðinu sem
ætla sér að koma saman "lista" fyrir næstu sveitastjórnakosningar, búnir
að koma sér saman um hvað þeir ætla að gera og vera tilbúnir hinum
hvössu spurningum fréttamannanna, svo við íbúarnir verðum einhverju nær
um hvað við ættum að kjósa.
Voandi verða þeir hinu nýja sveitarfélagi til sóma. |
|
Miðvikudagur 5. apríl 2006
Gripið af
www.dagur.net í gær ---
Ólafsfjörður / Siglufjörður ---
97 tillögur bárust um nafn á sveitarfélagið. Á morgun verða
kynntar 97 tillögur sem bárust um nafn á hið nýja sameiginlega
sveitarfélag á Ólafsfirði og Siglufirði. Frestur til að skila inn
tillögum rann út þann 24. mars. sl . Eitthvað var um það að sama nafnið
kæmi fram í fleiri en einni tillögu þannig að alls eru nöfnin 71 sem
nafnanefnd þarf að taka afstöðu til. Nafnanefnd mun funda á morgun
miðvikudaginn 5. apríl um tillögurnar og verða nöfnin gefin upp að þeim
fundi loknum. \ Ekki höfum við á Degi fregnað hvaða nöfn hafa verið
nefnd en þó mun tillaga Sverris Páls Erlendssonar menntaskólakennara frá
Siglufirði haf þótt athyglisverð. Hann lagði til að nöfnum gömlu
sveitarfélaganna yrði hreinlega skeytt saman þannig að fyrri
nafnliðurinn yrði tekinn úr nafni Siglufjarðar en sá seinni úr nafni
Ólafsfjarðar. Þá yrði útkoman; Siglu–fjörður. -----
(SiglÓ væri betra: SK) |
|
Miðvikudagur
5. apríl 2006 Siglufjarðarkirkja er vissulega tilkomumikið
mannvirki og til sóma þeim sem að byggingu hennar komu. Myndin hér af
kirkjunni er komin til vegna vangavelta minna um það við hvaða
götu kirkjan stendur, en það er vegna eins af viðfangsefna tengdum
vefnum Lífið á Sigló að setja eina húsmynd á vefinn daglega og númer
viðkomandi húsa, sem raunar oft vill vefjast fyrir mér þar sem allt og
margir húseigendur hafa ekki áhuga á að merkja hús sín. En það er önnur
saga. Ég hefi flett nokkrum bókum þar sem Siglufjarðarkirkju er getið,
en hvergi fundið vísbendingu um annað en að hún hafi verið byggð upp í
brekkunni norður af Búðarhólnum og eða beint upp af Aðalgötunni. Á
vegskiltinu sem ber við tröppur kirkjunnar stendur Lindargata, húsið til
hægri, Sambýlið er Lindargara 2 Lindargata 4 er "Barðahúsið." Þá er það
Kirkjustígur, og þar sem hús númer 1 og 3 við Kirkjustíg eru tilgreind í
þjóskrá sem íbúðarhús og ekkert hús (annað en kirkjan) norðan við, má
draga af því ályktun að kirkjan sé hús númer 2 við Kirkjustíg. Sennilega
er það svarið ? (myndin var tekin í gær fhd.)
Þetta er orðin einskonar langloka hjá mér "út af engu" ! En mér bara
datt þetta í hug ! |
|
Miðvikudagur
5. apríl 2006 Ein gömul: Þessi mynd
þarfnast varla skýringa, en fyrir þá af yngri kynslóðinni: Þarna var oft
mikið fjör á svæði Sérleyfisstöðvar Siglufjarðar þeirra
Sleitustaðarbræðra Búdda og Nonna, framan við Eyrargötu 14. |
Miðvikudagur
5. apríl 2006
Bróður minn hann
Haraldur Þór Agnarsson.
á afmæli í dag. Kveðja frá fjölskyldunni..
Konný Agnarsdóttir |
Miðvikudagur 5. apríl 2006
Bragi Guðnason (Guðna Sigtryggs)
er 19 ára í dag.
Innilegar hamingjuóskir frá fjölskyldunni |
|
|
Þriðjudagur 4. apríl 2006
Rjúpan er að vísu friðuð eins og segir í fréttum og reglugerðum,
en Sveinn Þorsteins sem var á leiðinni heim í mat nú í hádeginu, lét það
ekki á sig fá og gaf skít allar reglugerðir og skaut "föstu skoti" á
þessa rjúpu þar sem hún var að spóka sig í góða veðrinu við
Hlíðarveginn. Þessi rjúpa verður þó ekki tilreidd, hvorki á matarborði
páska né jóla, því Sveinn var með myndavél sína að vopni. |
|
Þriðjudagur 4. apríl 2006
Snjórinn á götum bæjarins er farinn að minnka og sést víða orðið
í malbilkið eftir snjóana að undanförnu, en hitinn hefur farið nokkrum
sinnum vel yfir núllið í gær og í dag.
Talsvert var um snjó á götunum í bænum, dæmi má sjá á snjóruðninginum
vestan við Hvanneyrarbrautina á þessari mynd. |
|
_small1.jpg) Þriðjudagur 4. apríl 2006
Ég leit inn hjá "Siglufjarðarseigur" til að gá hvernig gengi með
smíði plast bátsins sem smíði á
hófst 4. mars síðastliðinn. Þar
hitti ég fyrir þá Sverrir Júlíusson og Stefán Jóhannsson, en þeir voru í
"handavinnu" eins og Sverrir Sagði og glotti. En þeir voru að vinna
viðundirbúning við innréttingar í bátinn ofl. |
|
Þriðjudagur 4. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
Þriðjudagur
4. apríl 2006 Snjóbarinn toppur Strákafjalls í gærdag.
Sól og skafrenningur |
|
Þriðjudagur
4. apríl 2006 Ein gömul: Það hafa orðið miklar
breytingar á þessu umhverfi frá 6. áratug fyrri aldar sem þessi mynd
sýnir, og því umhverfi sem blasir við í dag árið 2006 |
Þriðjudagur
4. apríl 2006
Kolbrún Inga Gunnarsdóttir
er 41 árs í dag
Neðri röð fyrst til hægri; hún er með systrum sínum á myndinni
Miklar kveðjur frá Fjölskyldu hennar . Halli Matti Katrín Álfhildur og
Oddný
|
Þriðjudagur
4. apríl 2006
María Lilly Ragnarsdóttir
er 56 ára í dag |
Þriðjudagur 4. apríl 2006
Leonardo Passaro
er 56 ára í dag.
Við óskum honum innilega til hamingju með daginn.
Kveðja frá fjölskyldunni |
|
|
Mánudagur 3. apríl 2006
Vefmyndavél er komin á Skíðasvæðið í Skarðsdal smellið
HÉR og veljið annað hvort
ActiveX eða Java Mode |
|
Mánudagur 3. apríl 2006
Nægur snjór, eins og raunar hefur verið í allan vetur á
Skíðasvæðinu í Skarðsdal. Það á raunar við um láglendið núna einnig sem
gefur skíðaáhugafólki góð tækifæri jafnt á gönguskíðum, brekkuskíðum og
snjóbrettum.-
Komið og heimsækið Skíðasvæði Siglfirðinga um páskana, sem og aðra daga.
Þar er ekta snjór, hvorki gervi né aðfluttur - Besta skíðasvæði
landsins |
|
Mánudagur 3. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Mánudagur
3. apríl 2006 Það er af fleirum farartækjum en bílunum,
sem hreinsa þarf af framrúðunni, nú síðustu daga. En þessi er þó ekki á
ferðinni daglega, svo nóg er að líta eftir honum annað slegið.
Þetta er Anna SI 6 við Togarabryggjuna á Sigló í gær |
|
_small.jpg) Mánudagur
3. apríl 2006 Þarna eru tvær dúfur að fá sér að
drekka úr ferskri tjörninni við Síldarminjasafnið, önnur hættir sér út á
veikan klakann, en notar fjöruborðið, en matar síns njóta nokkrir tugir
dúfna daglega frá nokkrum dúfuvinum. Þessi á fluginu var á sveimi í
nágrenninu |
Mánudagur
3. apríl 2006 Ein gömul: Sjómannadurgur 196? |
Mánudagur
3. apríl 2006
Jóhannes Friðriksson
er 64 ára í dag |
Mánudagur
3. apríl 2006
Jónas Björnsson
er 57 ára í dag
|
|
|
Sunnudagur 2. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
_small.jpg) Sunnudagur
2. apríl 2006 Hrognkelsaveiði hefur gengið bærilega að
undanförnu þá þegar gefið hefur á sjó, en tíð hefur verið rysjótt.
Myndin er frá komu / löndun bátsins Ingeborg SI 60 6677 seinni partinn í
gær. |
|
Sunnudagur
2. apríl 2006 Ein gömul: Líf á Torginu --
Framkvæmdir við byggingu ráðhússins hófust í ágúst 1961 og húsnæði
Bókasafnsins var tekið í notkun í nóvember 1964. Myndin gæti því verið
tekin 1962-1964, líklega þó 1963. |
Sunnudagur
2. apríl 2006
Mundína Bjarnadóttir
er 41 árs í dag
Hún fær afmæliskveðjur frá karlmönnunum á heimilinu,
Mark og Bjarna Mark.
P.s Tinna Mark sendir líka kveðju |
Sunnudagur 2. apríl 2006 |
|
|
Laugardagur
1. apríl 2006 "Nýjar fréttir" af loftsteininum sem
sagt er frá hér aðeins neðar:
1961 – FYRSTI LOFTSTEINNINN SEM FANNST
Guðbrandur Magnússon segir frá því í tímaritinu Veðrinu að 6. september
hafi Jón Þorsteinsson bílstjóri á Siglufirði komið auga á blys á
suðvesturloftinu "og fylgt því með augunum þar til hann hélt það mundi
lenda á bíl hans, en það hafnaði á járngjörð á síldartunnu sem var rétt
hjá honum." Þetta var lítill loftsteinn sem var sendur Veðurstofunni.
Páll Bergþórsson segir í sama riti að Jón hafi verið heppinn að "verða
sjónarvottur að svo sjaldgæfum viðburði sem þessum og síðan finnandi að
fyrsta loftsteininum sem menn vita til að hér hafi náðst." Úr
bókinni Siglfirskur annáll eftir Þ. Ragnar Jónasson. |
|
Laugardagur
1. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Laugardagur
1. apríl 2006 Skútudalur, frumniðurstöður mælinga á
snjóflóðiðnu frá 19. febrúar --- Frumniðurstöður á mælingunum
tveggja jarðfræðinga frá snjóflóðadeild Veðurstofunnar gefa til kynna að
flóðið hafi verið u.þ.b. 1,2 milljón rúmmetrar. Til samanburðar var
"Flateyrarflóðið" mikla 1995 um 430 þúsund rúmmetrar. Flatarmál
snjóflóðatungunnar er hógværlega áætlað um 1,4 milljón fermetra. Þykkt
flóðtungunnar var mæld á 338 stöðum. ---- Þegar búið er að
einfalda útlínu flóðtungunnar (taka frá alla smásveiga, flöktið í GPS
mælingunum og setja tunguna í tvívíðan flöt) þá var mæld útlína 12,8 km
og vantar þá nyrsta hluta flóðtungunnar, um 750 metra, sem ekki var
GPS-mældur.
Ekki er búið að merkja brotlínuna inn á kort en í fljótu bragði virðist
brotlína meginflóðsins, eftir fjallaeggjum frá Hestaskarðshnjúk og inn
fyrir Dísuna, vera um 4,5 km löng. ÖK -- Myndin sýnir
hluta snjóflóðasvæðisins |
|
Laugardagur
1. apríl 2006 Loftseinar falla á jörðina annað slagið,
oftast þó agnalitlir. Einn slíkur féll á "Siglufirði" þan 6. september
árið 1961 - Vitni voru að þessu tilviki, þar á meðal Jón
Þorsteinsson bifreiðastjóri. En í Þjóðviljanum
er vitnað er í forvitnilegt viðtal Hannesar Baldvinssonar við Jón um
fyrirbærið. Þar sem ég hefi aðeins ljósrit af nefndri grein, þá kemur
hún ekki hér með, en Jón lýsir þessu sem mislitri ljósrák á leið sinni
til jarðar, þar sem "loftsteinninn" lenti á tunnugjörð rétt við bíl hans
og splundraðist, en eftir varð klessa á stærð við 25eyring (um 12 mm) -
Fór Jón með þetta til lögreglunnar, sem síðar ásamt Guðbrandi Magnússyni
sendi í pósti til Páls Bergþórssonar veðurfræðings. Ekki er að efa að
Hannes Bald man eftir þessu atviki, en nú, mörgum árum seinna vaknaði
hjá mér spurning við lestur greinarinnar. --- Hvað varð um þennan
loftstein? Hver varð niðurstaða veðurfræðingsins Páls Bergþórssonar ? -
Ég spyr þar sem eiginkona Jóns heitins veit ekki til að nokkru sinni
hafi verið haft samband við Jón til að lofa honum að fylgjast með
málavöxtum, hvað þá að fá "steininn" góða til baka. Fróðlegt væri ef
einhver vissi eitthvað um niðurstöður þessarar rannsóknar hjá Páli
Bergþórs og léti "Lífið á Sigló" að vita. |
|
Laugardagur
1. apríl 2006 Nýtt
andlit á Fréttavefinn
Lífið á Sigló er væntanlegt áður en langt um líður,
þar verður um hreina byltingu að ræða hvað aðgengi og útlit snertir.
Margar nýungar munu bregða fyrir augu þeirra sem skoða. Þar á meðal ein
alveg sérstök, sem á sér margra mánaða aðdraganda og undirbúning, og
verður ekki aðgengilegt á öðrum vefum en "Lífið á Sigló".
Eins og þeir vita sem fylgst hafa með síðu minni, þá kom ég upp bæði
fullkominni veðurstöð og einnig vefmyndavélinni góðu á síðasta ári með
aðstoð margra góðra manna, Baldvins Einarssonar, Róberts Guðinnssonar og
margra fleiri,
og þá ekki hvað síst dyggri verklegri aðstoð
SR-Vélaverkstæðis
við smíði og uppsetningu búnaða. Þessu samstarfi er ekki lokið,
því þegar nýi vefurinn Lífið á Sigló kemur í gagnið á næstunni, þá mun
jafnhliða tekin í notkun beintenging við gervihnött á vegum
GOOGLE,
lifandi myndskeið (mjög skýr mynd) yfir Tröllaskaga, þar sem greinilega
má sjá móta fyrir húsum og götum bæði á Siglufirði og í Ólafsfirði, það
er þegar skýjafar hindrar ekki útsýn. Að þessu samkomulagi við GOOGLE
hafa unnið í sameiningu, þeir Róbert sem er með annan fótinn að jafnaði
í Bandaríkjunum og Baldvin hjá Beco - Þá hefur Sigurður Kristinsson
kerfisfræðingur hjá SR-Vélaverkstæði séð um uppsetningu á hinum
háþróaða tækni og móttökubúnaði sem komið hefur verið fyrir neðan við
húsið mitt við Hvanneyrarbraut 80 á Siglufirði. - Það er heimili mitt. -
Síðar með viðbótarbúnaði verður hægt að skoða einstök svæði, svo sem
Torgið á Siglufirði, jafnvel þekkja fólk á götu. |
|
Laugardagur
1. apríl 2006 Aftur risapottur í getraunum!! -
Þar sem engin tippari var með 13 rétta síðast þá er risapottur í
Íslenskum getraunum um helgina og er reiknað með að 1. vinningur verði
55 milljónir. Tipparar ætla að sjálfsögðu að gera tilraun til þess að ná
í þessar millur og við tökum sameiginlegan seðil á laugardag......meira
HÉR |
|
Laugardagur
1. apríl 2006 Ein gömul: Þessi er úr
Æskulýðsheimilinu við Vetrarbraut, sennilega árið 1965 |
Laugardagur
1. apríl 2006
Helga Hermannsdóttir
er 30 ára í dag
Til hamingju með daginn, Guðný |
Laugardagur 1. apríl 2006 |
|