|
REGINN
30. ágúst 1941
Frétt.
Litkvikmyndirnar:
"Þú ert móðir vor kær" og "Blómmóðir besta" hafa
verið sýndar í Sjómanna-heimilinu hér í Siglufirði undanfarna daga, að
tilhlutun Skógræktarfélags Íslands.
Fyrri myndin er eign skógræktar ríkisins
og er einkum um skógargróður landsins. Síðari myndin er eign
fræðslumála stjórnarinnar og er upphaf að fræðslumynd í náttúru-fræði, sem
verið er að taka, til að sýna í skólum landsins. Báðar eru myndirnar
dásamlega fagrar.
Þetta mun
hafa verið sýnt á "16 m.m." kvikmyndavél. SK |