Ég mátti til með að senda þér fréttir og myndir af okkur
brottfluttu Siglfirðingunum, en ég fór árlegt jólaball
Siglfirðingafélagsins í dag.
Ballið var haldið í sal KFUM og K við Holtaveg og mættu
fleiri í ár en í fyrra og hefur farið fjölgandi ár frá ári.
Mættu rétt tæplega 200 manns og var mikið líf og fjör, enda
gaman þegar Siglfirðingar koma saman eins og allir vita.
Gunnar K. Sigurjónsson og Þuríður Pálsdóttir sungu og
spiluðu við góðar undirtektir og ekki var verra þegar
Gáttaþefur mætti á svæðið, enda margir stubbar sem biðu komu
jólasveinsins. Veitingarnar voru ekki af verri endanum og
sáu þær Konný Agnars (Agga Þórs), Hulda Sigtryggs (Sigtryggs
og Pálínu Gústa), Jónína Hafdís (Kidda Rögg) og Þórunn Helga
konan hans Eriks Páls um að framleiða vöfflur og aðrar
veitingar að jólaballssið. Sem sagt alveg frábært jólaball
og náði ég ekki að spjalla við eins marga og ég vildi því
ung dóttir mín hélt mér á hlaupum allt ballið, en ég ræði
bara við þá á næsta Siglfirðingaballi eða á Sigló um
verslunarmannahelgina.
kveðja úr Mosfellsbænum, Herdís Sigurjónsdóttir (Budda og
Ásdísar)
Ég þekki ekki alla á þessum myndum og hef sjálfsagt sent
einhverjar tvisvar, en þarna er a.m.k. vöfflunefndin og eins
við mæðgur líka eftir að hún dóttir mín Sædís Erla hafði
fengið nammið...alsæl
kveðja, Herdís
e.s. hann Gunnar Atlason (hennar Konnýar) tók myndirnar því
ég var svo óheppin að gleyma myndavélinni minni heima.