|
Mig vantar "bílskúr" til
kaups á Siglufirði, helst á láglendi, en "skúrinn" verður
væntanlega notaður undir lítinn vélknúinn plastbát ásamt viðkomandi
kerru -- Upplýsingar: Steingrímur í síma 892-1569 |
|
SAMKOMUR
& UPPÁKOMUR - Smelltu
HÉR
og skoðaðu
+Munið
jólakveðjurnar |
|
_small.jpg) _small.jpg) Laugardagur
31. desember 2005 Siglufjarðarkaupstaður og Skíðafélag
Siglufjarðar
undirrituðu í dag gamlársdag verksamning um rekstur skíðasvæðanna. Í
samningum fellst að Skíðafélagið tekur að sér rekstur skíðasvæða í
Skarðsdal og Hólsdal. Samningurinn tekur gildi frá og með 1. janúar n.k.
og gildir til eins árs. Á myndum við undirskrift fyrir hönd
Skíðafélagsins; Magnús Jónasson - og fyrir hönd Siglufjarðarkaupstaðar;
Runólfur Birgisson bæjarstjóri, og vottar af undirskrift voru stjórn
Skíðafélagsins og fulltrúar bæjarins. Myndin lengst til hægri. |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 3,1 °C *
NV 0,4 m/s
|
_small.jpg) |
Laugardagur 31. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 35 |
|
_small.jpg) Laugardagur 31. desember 2005
Blys á brúninni í sextugasta
sinn. Í bókinni "Siglfirskir söguþættir" sem
Þ. Ragnar Jónasson bæjargjaldkeri og fræðimaður (1913-2003) tók saman og
kom út fyrir átta árum er kafli um þann sið að kveikja ljós á brún
Hvanneyrarskálar um áramót. Fyrst var kveikt á blysunum um áramótin
1946-1947 og það er því í sextugasta sinn sem brúnin verður lýst upp
núna um áramótin. Fréttavefurinn "Lífið á Sigló" hefur fengið leyfi
barna Ragnars til að birta þennan kafla. -- Kaflinn er
HÉR |
|
Laugardagur
31. desember 2005 Listrænar
ljósmyndir: Reynir Þorgrímsson, sonur Þorgríms og Ingibjargar
(Túngötu 1 hér forðum) hefur stundað listræna ljósmyndun. Ég fékk hjá
honum nokkrar myndir til að kynna þetta áhugmál hans. -- Hann hefur
haldið þrjár sýningar á þessu ári. Hann stækkar myndirnar upp í 50 x 65
sentímetra og setur þær síðan á striga og með blindramma, þá verða þær
eins og fallegustu málverk.
Myndirnar hafa vakið mikla athygli og hann fyrirhugar að halda nokkrar
sýningar á komandi ári. Sýnishorn af myndum hans er að finna hér >>
 |
Laugardagur
31. desember 2005 Ein gömul:
Kristbjörg Marteindóttir -Júlía Halldórsdóttir - Björn Þórðarson og Elín
Jóhannsdóttir |
|
Laugardagur
31. desember 2005
Óðinn Freyr
Rögnvaldsson
er 37 ára í dag
Kveðja --
Andrés og Guðný
|
|
Laugardagur
31. desember 2005
Kristinn Georgsson
er 72ja ára í dag |
Laugardagur 31. desember 2005
Kristín Álfhildur Bjarnadóttir
er 46 ára í dag -
Hamingjuóskir í tilefni dagsins með kærri kveðju frá Álfhildi, sem er
til hægri með Kristínu á myndinni |
|
Föstudagur 30. desember 2005 Lagfærð
tímasetning --- Skemmtikvöld Karlakórs Siglufjarðar er í
kvöld kl. 21:00 --- Húsið opnar kl. 20:00 -- Karlakórinn mun syngja
hefðbundin karlakóra lög ásamt léttara efni,
og fáum við fullt af gestum sem syngja með okkur-- Góða skemmtun. |
|
Föstudagur
30. desember 2005 Í dag og fram yfir áramótin, verður
vefmyndavélin á "Lífið á Sigló" með þetta
sjónarhorn eins og sést á þessari mynd sem tekin var með vefmyndavélinni
klukkan 11:06 í morgun.
Tilgangurinn með því að sýna aðeins einn ramma, er að sá,
að þá geta þeir sem hafa opið á vélina fylgst með flugeldum sem skotið
er á þessu svæði, meðal annars á gamlárskvöld klukkan 21:00 - en þá
verður flugeldarunu skotið frá Hvanneyrarskálarhlíð, og svo auðvitað
allt kvöldið til miðnættis. Þetta ætti að geta orðið þeim heimamönnum
sem ekki komast út til að sjá- og þeim sem eru víðs fjarri, augnayndi.
-- Ég vona að þetta komi þokkalega út. |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 5,3 °C *
NA 2,2 m/s
|
_small.jpg) |
Föstudagur 30. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 34 |
|
  Föstudagur
30. desember 2005
Þessar myndir eru teknar af KLM í gær uppi í Skarðsdal, tvær
fyrri á meðan bjart var en sú þriðja eftir að myrkur var komið á, en
svæðið er vel upplýst og prýðilegt skíðafæri. |
|
Föstudagur
30. desember 2005 Kveikt var á "blysunum" og
ártalinu 2005 í gær á Hvanneyrarskálarbrún og hlíð, öllum sem á
horfa til ánægju.
Á morgun gamlársdag, verður birt stutt ágrip eftir Þ.R.J., þess skeiðs
sem blysin á Hvanneyrarskálarbrún og hlíð og síðan ljósin fóru að gleðja
Siglfirðinga og gesti bæjarins um áramótin. |
Föstudagur
30. desember 2005 Ein gömul:
Þarna eru Hólm Dýsfjörð - Guðbrandur Sigurbjörnsson - Sigurlaug
Sveinsdóttir - Vilhelm Friðriksson - Jóhann Jóhannsson - Sigurður
Magnússon og Friðrik Márusson |
|
Föstudagur
30. desember 2005 Þann 21.12.2005 fæddist þessi litli
drengur á fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Hann var 3430 gröm og 49 cm.
Hann er sonur Helgu Sigurveigar og Iosifs, (Helga er dóttir Stínu Boga
og Kristjáns.) |
Föstudagur 30. desember 2005
Lilja Ástvaldsdóttir
á afmæli í dag -
engin mynd kom með
|
Föstudagur 30. desember 2005
Óli Siggi (Sigurður Óli)
á afmæli í dag -
engin mynd kom með |
Föstudagur
30. desember 2005
Halldóra Elíasdóttir
er 31 árs í dag.
Kveðja frá fjölskyldunni. |
Föstudagur
30. desember 2005
Guðmundur Óli Sigurðsson
er 25 ára í dag
|
Föstudagur
30. desember 2005
Óðinn Gunnarsson
er 47 ára í dag |
Föstudagur
30. desember 2005
Steingrímur Garðarsson
er 61 árs í dag |
Fimmtudagur 29. desember 2005
Siglfirðingar komnir í áætlunarsamband:
Hópferðamiðstöðin
 |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * -0,7 °C *
N 0,6 m/s
|
_small.jpg) |
Fimmtudagur 29. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 33 |
|
Fimmtudagur
29. desember 2005 Ný Siglfirsk heimasíða
www.123.is/herdis Herdís Sigurjónsdóttir Raunar er
Herdís einnig með aðra eldri heimasíðu þar sem einnig er fullt af myndum
og fleira efni
http://frontpage.simnet.is/herdis/
þannig að greinilegt er að hún er engin viðvaningur. Herdís
er dóttur Sigurjóns og Ásdísar |
|
Fimmtudagur
29. desember 2005 Hin ódrepandi sveit skíðamanna og fleiri
góðra manna, byrjuðu seinni partinn í gær að gera við og lagfæra stærstu
ljósseríu bæjarins, ekki jólaljós, heldur hin hefðbundnu ljós sem lýsa
upp brún Hvanneyrarskálar um og yfir áramótin á hverju ári- og teygja
sig langt upp í hlíðarnar hvoru megin- og ekki má gleyma ártalinu
2005+2006. Það er unnið hörðum höndum að undirbúningnum, ekki aðeins á
þessum vettvangi (vörugeymslu Olís) heldur víðar í bænum við önnur störf
þessu tengt. |
|
Fimmtudagur
29. desember 2005 Flugeldasala Björgunarsveitarinnar
Strákar hófst í gær eins og venjulega á þessum árstíma í húsnæði
sveitarinnar í Þormóðsbúð. |
Fimmtudagur
29. desember 2005
Þór Herbertsson
er 76 ára í dag |
Fimmtudagur
29. desember 2005
Vignir Ólafsson
er 15 ára í dag |
|
Miðvikudagur
28. desember 2005 Í morgun klukkan 11:00 afhenti
Róbert Guðfinnsson og dóttir hans Gunnhildur
Róbertsdóttir, Elliheimilinu að Skálarhlíð að gjöf fullkomna nettengda
tölvu að gjöf frá fjölskyldum þeirra. -- Þar á eftir afhentu þau
föndursheimilinu Iðju, aðra tölvu að gjöf af sömu gerð - Það þarf vart
að taka það fram að þessum rausnarlegu gjöfunum, á báðum stöðum var
tekið með þökkum. Nokkrar myndir frá þessum viðburðum eru hérna
>>>
 |
Miðvikudagur
28. desember 2005 Barnaball
Siglfirðingafélagsins var haldið á
tilsettum tíma í gær. Ég fékk sendar nokkrar myndir frá ballinu sem eru
hérna á tenglinum: >>>

|
|
Miðvikudagur
28. desember 2005 Björgunarbáturinn Sigurvin frá
Siglufirði, kom með þennan bát Guðrún Jakobsdóttir EA 144 1968 í togi
inn til Siglufjarðar laust fyrir 11 í morgun. En báturinn hafði orðið
vélavana út af Siglufirði.
|
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 3,3 °C *
S 5,6 m/s
|
_small.jpg) |
Miðvikudagur 28. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 32 |
|
Miðvikudagur
28. desember 2005 Minningarmót
um Benedikt Sigurjónsson var haldið á Bíó Café í gærkveldi.
Bridgefélag Siglufjarðar hóf á milli jóla og nýárs á síðasta ári
fyrsta mótið til minningar um sinn ötula bridgefélaga sem lést fyrir um
tveim árum. Ætlunin er að gera slíkt ár hvert.
Að venju voru Skagfirðingar fjölmennir, en Benedikt var Skagfirðingur að
uppruna.
Ég tók nokkrar myndir í gærkveldi sem eru hér >>>

|
|
Miðvikudagur
28. desember 2005 Aðsent: Ég fékk ábendingum um
skrif sem á fullt erindi til okkar hér á Siglufirði, ekki aðeins þeim
sem í hlut eiga það er lögbrjótunum sjálfum- og ekki hvað síst til
lögreglunnar: Það er um hraðakstur sem er því miður er stundaður hér í
bæ og sérstaklega á Langeyrarveg um nætur. Slóðin til ofan nefndra
skrifa er að finna hér:
http://www.blog.central.is/ibbirokk
|
Miðvikudagur
28. desember 2005
Birnir Ólason
er 11.ára í dag -- sonur Óla Agnars |
|
Miðvikudagur
28. desember 2005
Elínborg Ágústsdóttir
er 42ja ára í dag |
Miðvikudagur
28. desember 2005
Sigurður Ómar Hauksson
er 55 ára í dag |
|
Þriðjudagur
27. desember 2005 Það var uppljómað Skíðasvæðið í
Skarðsdal í morgun, en ekki sást þó til skíðamanna. |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 8,8 °C *
SV 1,3 m/s
|
_small.jpg) |
Þriðjudagur
27. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 30 |
|
Þriðjudagur
27. desember 2005 Jólatréð á Torginu, klukkan 15:00 í gær
í slyddurigningu, en þó snjóföl frá því um morguninn, en eftir
"hitabylgjuna" tæplega 12 °C hita frá deginum áður en um nóttina kólnaði
(um frostmark) snögglega aftur og snjóaði (slydda) örlítið. Það má heita
að logn hafi verið yfir jóladagana, að undanskyldu smá hviða á tímabili
og frekar úrkomulítið. Það er ekta veður að mínu skapi yfir
vetrartímann. |
Þriðjudagur
27. desember 2005 Barnaball
Kiwanis var í gær, ég leit þar inn og tók smá myndasyrpu af
gleðskapnum.

|
|
_small.JPG) _small.JPG) Þriðjudagur
27. desember 2005
Aðsent: Í fyrrakvöld undirrituðu 5 knattspyrnumenn nýja
samninga við KS. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir sameiginlegt lið
KS Leiftur en allir þessir drengir eru uppaldir KS-ingar og
því frábært að þeir ætli sér að taka þátt í baráttunni við að tryggja KS
Leiftri sæti í 1.deild að nýju. Leikmennirnir eru frá vinstri (myndin
lengst til vinstri): Grétar Örn Sveinsson, Kristinn Baldursson, Ari Már
Arason, Agnar Þór Sveinsson (fyrirliði) og Sigurbjörn Hafþórsson.
Gleðileg jól allir KS-ingar nær og fjær, til sjávar og sveita, í sódómu
eða Akureyri, bara alls staðar! |
|
Þriðjudagur
27. desember 2005 Bjarni Mark, Arsenalmaður með
meiru er 10 ára í dag.
Til hamingju Bjarni okkar. --- Kveðja Tinna Mark, mamma og pabbi.
Hér er svo Bjarni Mark með pabba sínum Mark Duffield. Sá
gamli var valinn knattspyrnumaður ársins hjá fótboltaliðinu Neista
Hofsós. Þess má með gamni geta að þetta var 25. tímabilið hans í
boltanum, enda orðinn 42 ára gamall. Til hamingju með þetta gamli.
Kveðja frá börnum þínum; Tinna Mark og Bjarni Mark. |
Þriðjudagur 27. desember 2005
Rakel Rut Heimisdóttir
er 7 ára í dag Foreldrar Heimir Birgisson og Rut Freysdóttir --
afmælisbarnið ásamt Birnu litlu systir
hennar |
Þriðjudagur 27. desember 2005 |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Rigning/slydda * 0,4 °C *
0,0 m/s
|
_small.jpg) |
Mánudagur 26. desember 2005
õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 31 |
Mánudagur
26. desember 2005 Ein gömul:
Þórður Guðmundsson á SR-Vélaverkstæði, gæti verið um kring um árið 1950
+/-
Ókunnur ljósmyndari. |
|
Mánudagur
26. desember 2005 -
Sigríður
Jóhannesdóttir
(Sirrý) besta mamma í heimi er í dag og viljum við óska
henni til hamingju með daginn.
Kveðja frá Þóru Björgu, Ellen Sif og Míu (kisa) |
Mánudagur
26. desember 2005
Hulda Ósk Ómarsdóttir
skrifstofumær hjá Þormóði Ramma (konan hans Ásgeirs Rúnars)
er 32já ára í dag.
Kveðja frá Þóru Björgu, Ellen Sif og Míu (kisa) |
Mánudagur
26. desember 2005
Aníta Elefsen
er 18 ára í dag
Til hamingju með daginn Anita, pabbi og mamma |
Mánudagur
26. desember 2005
Vilmundur Ægir Eðvarðsson
er 45 ára í dag |
|
Mánudagur
26. desember 2005
Aðalbjörg Þórðardóttir
er 55 ára í dag. Bóndi hennar Ágúst Stefánsson bað mig að lauma þessari sérstöku
viðbótar kveðju með þessum myndum; "Til
hamingju krúttið mitt"
Önnur myndin hér, er tekin á Ítalíu en hin heima á Sigló. En þau eru nú
bæði stödd hjá dóttur sinni í Danmörku, og dvelja þar um jólin. -
Einnig bestu hamingjuóskir frá "Lífið á Sigló" -- og láttu bóndann dekra
við þig. |
|
Sunnudagur 25. desember 2005
Fegnir hvíldinni eru þeir, að minnsta kosti
bílstjórar þessara bíla hjá Norðurfrakt, þó svo að tæknilega gæti verið
gott að gefa tryllitækjunum frí annað slagið ?. - En friðurinn stendur
ekki lengi yfir hjá þeim nú sem oft áður, þeir hafa í nógu að snúast. |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 10,6 °C *
2,2 m/s
|
_small.jpg) |
Sunnudagur 25. desember 2005
õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 26 |
|
Sunnudagur
25. desember 2005 Þarna uppi í fjallshlíðinni fyrir ofan
Siglufjörð, uppi á hitaveitutanka Rarik trónir
vefmyndavélin hjá "Lífinu á Sigló" umlukt jólaljósum sem
starfsmenn Rarik komu fyrir á brún tankans. Sunnan við er kyndistöð
Rarik, ef á þyrfti að halda til að skerpa á vatnshitanum, ef gerði
dymbilkulda, eða ef eitthvað annað færi úrskeiðis. (myndin var
tekin í gær) |
|
Sunnudagur
25. desember 2005 Ein gömul: Ekki er ég alveg
viss, en mér sýnist maðurinn til vinstri vera Jón Jóhannsson skipstjóri
(faðir Jonna tannlæknis) - Sigurlaug Sveinsdóttir (Silla frá
Steinaflötum) - manninn til hægri þekki ég ekki. |
Sunnudagur
25. desember 2005
Þorsteinn Jóhannesson
er 60 ára í dag |
|
Sunnudagur
25. desember 2005
Eiður Hafþórsson
er 34 ára í dag |
Sunnudagur 25. desember 2005
Guðlaugur Helgi Karlsson
er 77 ára í dag
Engin mynd kom með |