|
Sendi þér hér nokkrar myndir sem teknar voru
á sjávarútvegssýningunni í dag. Óli Kára sendir þér svo fleiri
myndir í kvöld vonandi. -- Básinn okkar vakti mikla
athygli og var mjög fjölsóttur og mikið smakkað af síld og
reyktum laxi frá Egilssíld. Nokkrir útlendingar sögðu að þeir
hefðu aldrei áður smakkað svona góðan reyktan lax, þessi væri sá
besti í heiminum, svo vitnað sé í þá. Á þessum myndum sem ég tók
sjást nokkrir Siglfirðingar sem allir eru lykilmenn í þeim
fyrirtækjum sem þeir vinna hjá. Þeir eru gott dæmi um hvað við
Siglfirðingar erum víða. -- Vafalaust hafa þarna verið fleiri
Siglfirðingar að störfum, en þetta eru þeir sem við sáum svona í
fyrstu ferð um sýninguna.
Þetta eru nöfn þeirra og númer myndanna.
6316 Þorsteinn Pétursson - Steini Villi starfsmaður
Skeljungs.
6318 Ágúst Hilmarsson sölustjóri Tandurs frá Hvammstanga
til Hornafjarðar t.v.
6320 Lengst til vinstri Kristinn Steingrímsson Marel og
Gunnar Aðalbjörnsson hjá Samherja á Dalvík, báðir Siglfirðingar
( með á myndinni tveir Dalvíkingar, sem við þekkjum ekki nöfn á
)
6321 Tómas I Jónsson sonur Jóns Kjartanssonar fyrrv.
bæjarstjóra starfsmaður Iceland Seafood í Hamborg.
6322 Jóhann Sigurjónsson -Jói Budda býr og starfar í
Ameríku og víðar.
6323 Björn Ásgrímsson starfsmaður Plastprents - Bjössi
Guggu.
6324 Árni Sverrisson fyrrv. skipstjóri á R/S bjarna
Sæmundssyni - nú starsmaður Scanmar.
6326 Sigurður R Stefánsson - Siggi Rikki deildarstjórir
hjá VÍS
Kær kveðja
Kristján L Möller |