|
Laugardagur 10. september 2005
Ekki veit ég hvað hún heitir þessi rós, gæti þess vegna heitið
haustrós, en myndin var tekin í morgun í morgundögginni framan við
Sýslumannsskrifstofuna, en rósin tilheyrir trjárunna sem þar er.
Aðsent: Rósin á vefnum þínum í dag heitir Hansarós,
gullfallegur runni hjá þessu húsi og er búinn að vera blómstrandi í allt
sumar. Takk fyrir frábæran vef sem verður vonandi áfram og ég vil
endilega fá þessa vefmyndavél upp. Ég hef tildæmis skoðað svona vef frá
Stykkishólmi sem sýnir myndir af hinum ýmsu stöðum þar og væri
skemmtilegt að geta skoðað Siglufjörð frá mörgum sjónarhornum. Svo bara
aftur kærar þakkir fyrir Lífið á Sigló. Ein sem er ennþá ókunnug í bænum
þrátt fyrir átta ára búsetu hér. BT
--- takk fyrir- |
_small.jpg) |

Í hádeginu:
Þurrt
* Hiti 9,8 °C *
0,4 m/s |
_small.jpg) |
Föstudagur 9.september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Tjarnargata -Olís |
|
Laugardagur
10. september 2005 Aðsent: Útivistarferð
nemenda á unglingastigi var farin síðastliðinn fimmtudag 8. september
---
Nemendur og kennarar í efra húsi Grunnskólans gengu á fjallið Súlur úr
Skarðsdalnum og komu niður með Selánni. Hér eru nokkrar myndir úr þeirri
ferð.
Ljósmynd: Erla Gunnlaugsdóttir |
Laugardagur
10. september 2005 Ein gömul: Mikið breytt umhverfi.
Myndin er tekin 31. ágúst 1973 |
Laugardagur
10. september 2005
Guðrún Helga Kristjánsdóttir
er 50 ára í dag.
(Maki:Tryggvi Björns)
|
Laugardagur
10. september 2005
<<< Sverrir, Kalla, Anna Kalla, og Helga, úti á Krít,
biðjum öll að heilsa heim .Kv Tryggvi |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Sólskin
* Hiti 9,8 °C *
0,4 m/s |
_small.JPG) |
Föstudagur 9.september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Hvanneyrarbraut 46 |
|
Föstudagur
9. september 2005 Vegna umræðunnar um vefmyndavélar
skrapp ég á leitarvélina Google og leitaði uppi síður á Íslensku,
þar sem var að finna marga tugi Íslenskar myndavéla, fæstar
vefmyndavélarnar
eru gæðavélar þó. En ég fann þó nokkra, og sumar þeirra eru
mjög góðar með gott sjónsvið, og gægði annarra í lakri kantinum. En
ýmist eru þessar vélar reknar af Sveitastjórnum, stofnunum eða í
samvinnu við einstaklinga og fyrritæki. Og þessar sýna einmitt
samsvarandi svæðum og ég ætla að gera. Smellu
HÉR
til að skoða Og nokkrar sem krefjast skráningar og lykilorðs. |
|
Föstudagur
9. september 2005 Ein gömul: Það lítur
svolítið öðruvísi út í dag þetta svæði sem þessar byggingar
og mannvirki voru á árið 1972
Svæði síldarverksmiðjunnar Rauðka -- Gamla Grána fyrir og miðju olíu og
lýsistankar sunnan við. |
Föstudagur
9. september 2005
Hrólfdís Hrólfsdóttir
er 60 ára í dag |
Föstudagur 9. september 2005 |
Föstudagur
9. september 2005
Laszló Hevesi
er 46 ára í dag |
Föstudagur
9. september 2005
Gauti Heimir Arnarsson
er 5 ára í dag --
Gauti er sonur Arnars garðyrkjufræðings Siglufjarðar |
|
Fimmtudagur
8. september 2005 Að gefnu tilefni, vegna margra
spurninga sem mér hefur borist - auk allskonar sögusagna, slúðurs og
fleira varðandi ákvörðun mína um að kaupa og setja upp vefmyndavél. Og
að auki sú vitneskja sem kom frá Persónuvernd inn um bréfalúgu mína í
morgun, Þá birti ég hér hluta þess efnis sem nefndur póstur innihélt,
lesendum mínum til fróðleiks. Ef þú hefur áhuga, smelltu
HÉR
|
|
Fimmtudagur
8. september 2005 Myndasyrpa frá útivistarferð
skólabarna - En tveir hópar kennara og
skólabarna fóru í morgun inn í fjörð. Annar hópurinn fór hjólandi ásamt
kennara fram í Hólsdal en hinn hópurinn upp á Ás. -- Og
myndin hér til hliðar er af Leikskóla krökkum ásamt kennurum á gangi við
Túngötu
 |
|
Fimmtudagur
8. september 2005 Aðsent: Í vikunni léku
Fylkir og Valur úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu í
flokki 40-ára og eldri. - Þetta væri vart hér til
birtingar nema vegna þess að þar kemur Siglfirðingur til sögu. -
Skemmst er frá því að segja að Fylkir vann leikinn 3-2 eftir framlengdan
leik og varð því Íslandsmeistari í þeim flokki. Einn af helstu
máttarstólpum Fylkisliðsins er Siglfirðingurinn knái, Gunnar Stefán
Jónasson, sonur Jónasar Jónssonar á Bifreiðaverkstæði Jónasar í
Kópavogi.
Gunnar Stefán sýndi stjörnuleik, eins og oft áður, í úrslitaleiknum og
lagði grunninn að fyrsta Íslandsmeistaratitli Fylkis í þessum flokki.
Félagar hans hafa nefnt að loksins (og ekki seinna vænna) hafi æfingar í
Fótboltaskóla KS á Siglufirði um miðja síðustu öld skilað sínu, en
Gunnar Stefán er 43 ára. Hann lék fjölmarga leiki með liði KS á sínum
tíma. - Meðfylgjandi er mynd af Gunnari og nokkrum félögum hans að leik
loknum.
Myndatexti: Íslandsmeistarar Fylkis í Eldri flokki. Gunnar Stefán
Jónasson er þriðji frá vinstri í efri röð. MI |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Sólskin
* Hiti 8,5 °C *
2,2 m/s |
_small.JPG) |
Fimmtudagur 8.september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Tjarnargata - Olís |
|
Fimmtudagur
8. september 2005 Þessi gamli bátur,
Daníel SI 152 hefur verið þarna í Dráttarbrautinni í nokkuð mörg ár.
Engum held ég, sem ferð eiga um hafnarsvæðiðið þykir neitt við þessa
sjón sem við þeim blasir að athuga. Í mínum huga þá er þetta góður
minnisvarði um þá gömlu tíma sem þessi bátur þjónaði. Báturinn er
raunar einskismanns eign, en búið var að "úrelda" hann, en fyrirtækið
sem átti bátinn á þeim tíma fór á hausinn og slippurinn sat uppi með
bátinn. Talað hefur verið um það manna á milli að koma bátnum í
upphaflegt form, það er taka af honum hvalbakinn og mála hann síðan.
Þetta er sterkbyggður eikarbátur, sem tímans tönn mun verða mjög lengi
að naga. Þarna er hann ekki fyrir neinum, heldur hið ganstæða og er
báturinn mikið ljósmyndaður og skoðaður af ferðamönnum, sérstaklega
erlendum. MEIRA
um bátinn |
Fimmtudagur
8. september 2005 Sávarútvegssýningin í
Kópavogi.
Myndir sendar af Óla Kára - þessar eru ag Geir Zoega og Jóhanni
Sigurjónssyni og fleir koma í ljós er þú smellir >
 |
|
Fimmtudagur
8. september 2005 Sávarútvegssýningin í
Kópavogi.
Siglufjörður / höfnin er með bás nr. 50A á sýningunni, þar sem
vísbendingar eru til þess helsta sem Siglufjörður og Siglufjarðarhöfn
hefur upp á að bjóða.
Á myndinni sést yfir bás 50A við opnun sýningarinnar í gær, en þessa
mynd og fjórar til viðbótar sendi KLM til mín. Á myndinni eru
Sigurður Sigurðsson hafnarvörður - Ólafur Kárason formaður bæjarráðs og
Steinunn Sveinsdóttir safnvörður hjá Síldarminjasafninu
 |
Fimmtudagur
8. september 2005 Aðalgata 15 Eins og fram hefur
komið áður hér á síðunni, er mikið að gera við lagfæringar á húsakynnum
Siglfirðinga, þarna er verið að gera við, raunar að endurnýja þak á
þessu húsi, Aðalgata 15 |
|
Fimmtudagur
8. september 2005 ---- 07.09.2005 09 -
Flokkurinn
hans Jóns.
Tilvitnanir Leós, um minnsta pólitíska
stjórnmálaflokk landsins, þ.e. formanninn. |
|
Fimmtudagur
8. september 2005 Lágt er lagst - Mér datt helst í hug
eiturlyfjasjúklingur á neðsta plani, þegar ég las í Tunnunni í gær um
það að söfnunarílát sem Knattspyrnufélag Siglufjarðar hefur komið fyrir
frammi á Íþróttsvæðinu að Hóli á Siglufirði hefði verið tæmd af
einhverjum óviðkomandi, og að auki talsvert magn sem geymt hafði verið í
skemmu þar framfrá. Það er öllum dósunum var stolið. Þjófarnir hafa
greinilega haft bíl undir höndum, og þá væntanlega farið með dósirnar í
annað byggðarlag, þar sem KS sér um að taka við dósum frá
almenningi á Siglufirði. Dósamóttakendur í næstu byggðarlögum. Hafið
þið tekið eftir einhverju verulegu magni frá "óvæntum" dósasala? Ef
svo er væri æskilegt að þið létuð KS vita, svo launa megi kauða
"greiðann" |
|
Fimmtudagur
8. september 2005 Ein gömul: Í tilefni af því að
einhverjar hræringar eiga sér stað í húsnæðinu sem einu sinni hét Hótel
Siglunes, einu sinni Hótel Höfn og einu sinni Hótel Lækur.
Bráðum mun húsið fá nýtt nafn. Ég mun kanna það mál frekar á næstunni.
Í húsinu Knattborðsstofa, Gjafakot er nú verslað með húsgögn, gjafavörur
ofl. |
Fimmtudagur
8. september 2005
Viðar Aðalsteinsson
er 22ja ára í dag (sonur Alla rafvirkja og Vilborgar) |
Fimmtudagur
8. september 2005
Sigurjón Jóhannsson skipstjóri
er 77 ára í dag |
_small.JPG) |

Fyrir hádegið
11:>>:
Sólskin * Hiti 7,1 °C *
0,4 m/s |
_small.JPG) |
Miðvikudagur 7. september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Tjarnargata |
|
Miðvikudagur
7. september 2005 það vakti athygli mína að bifreið
SR-Vélaverkstæðis keyrði fram Langeyrarveg í gær. Á hvaða ferðalegi eru
drengirnir ? Ég ákvað að elta þá til að komast að því. Þeir enduðu för
sína inni í Skógrækt, en erindi þeirra var að festa skjöld á stórann
stein sem þar hafði verið komið fyrir. Ég tók mynd af þeim félögum
Þorleif Halldórssyni og Óskar Berg Elefsen við verkið, en eðli málsins
þá verður að bíða með frekari upplýsingar um skjöldinn, sem verður
afhjúpaður ásamt fleiru við hátíðlega athöfn núna allra næstu daga - og
þar verð ég auðvitað mættur. |
|
Miðvikudagur
7. september 2005 "Það munu stormar leika um þetta hús" er
textinn sem ljósmyndarinn Sveinn Þorsteinsson, lét fylgja þessari
skemmtilegu mynd sem hann sendi mér |
|
_small.JPG) Miðvikudagur
7. september 2005 Á þessum myndum sést óvenju vel móta
fyrir troðningum á leiðinni yfir Hestskarð.
Það er ekki oft sem þetta sést svona greinilega
Ljósmyndir; Sveinn Þ. |
|
Miðvikudagur
7. september 2005 Þeir hafa mikið að gera trésmiðirnir
núna. Þarna við "Nýja Bíó" er verið að setja upp vinnupall vegna þess að
skipta á um bárujárn á þakinu, og hinum megin við Torgið eru aðrir
trésmiðir að setja nýtt bárujárn á Vökuhúsið, eins og sagt var frá í
gær. |
|
Miðvikudagur
7. september 2005 Svarta þoka var,
von var á Stálvík SI 1 nýsmíðaðri frá skipasmíðastöðinni Stálvík - Þeir
sem biðu skipsins á enda öldubrjótsins, heyrðu vélagný skipsins á
siglingu inn fjörðinn, en þeir sáu ekkert nema dimma þokuna, - fyrr en
allt í einu eins og smellt væri fingri, þokan hvarf og tignarlegt skipið
birtist í björtu sólskini beint framan við Öldubrjótinn. Það sést meðal
annars á myndum sem teknar voru á þessum eftirminnilega degi 16.
september 1973 -- Smelltu.
En myndin hér fyrir ofan er af skipverjunum þeim sem komu með skipið.
 |
|
Miðvikudagur
7. september 2005 Ein gömul:
Fyrstu mótin fyrir undirstöðu frystihúss Þormóðs Ramma hf, fyllt af
steinsteypu 31. ágúst 1973 |
Miðvikudagur
7. september 2005
Níels Friðbjarnarson
er 87 ára í dag |
Miðvikudagur
7. september 2005
Anna Rós Ívarsdóttir
er 28 ára í dag |
Miðvikudagur
7. september 2005
Ragnar Már Hansson
er 20 ára í dag |
Miðvikudagur
7. september 2005
Marteinn Haraldsson
er 66 ára í dag |
|
Þriðjudagur 6. september 2005
Iðnaðarmenn voru á fullu í morgun við að skipta um þakplötur á
húsi Verkalýðsfélagsins Vöku. |
|
Þriðjudagur 6. september 2005
Fyrsta steypan vegna nýbyggingar búðarhúss á Siglufirði í mörg
ár, var sett í mótin í gær við Suðurgötu 88. |
|
Þriðjudagur 6. september 2005
Verið var í morgum að brjóta upp gangstétt við Hvanneyrarbraut,
og saga rás yfir götuna suður við Sundhöllina, en leggja á rafstreng frá
spennistöð RARIK norðar í götunni að Sundhöllinni, en fjarlægja þarf
spennir sem verið hefur inni í húsakynnum sundlaugarinnar. Gangstéttin
verður svo endurnýjuð þar á eftir. |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Sólarglæta * Hiti 4,6 °C *
5,8 m/s |
_small.JPG) |
Þriðjudagur 6. september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Aðalgata 2 |
|
_small.JPG) Þriðjudagur
6. september 2005 Smábátarnir hafa undanfarið og raunar í
allt sumar verið að afla mjög vel. Í gær þegar þessi mynd var tekin,
biðu bátar eftir að komast að löndunarkranana til að losa góðann afla.
Á myndunum eru Arnar KE 260 2515 að enda við að losa góðann afla og
hinumegin á bryggjunni, Vilborg GK 320 2391 að bíða eftir að komast að -
en Júlía SI 62 2319 er rétt að enda við losun. |
|
Þriðjudagur
6. september 2005 Flugferð
þar sem flogið var meðal annars í gegnum dyrnar í Dyrfjöllum, í leit að
hreindýrum.
Nokkrar myndir frá þeirri ferð sem Óskar Berg ofl. tóku þátt í
síðastliðna helgi
 |
|
Þriðjudagur
6. september 2005 Bruninn í Mjóstræti.
Rannsókn Tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík hefur leitt í ljós að
upptök brunans í Mjóstræti 1 á Siglufirði voru í frystikistu á neðri hæð
hússins. Frétt af
Lögregluvefnum. |
|
Þriðjudagur
6. september 2005 "Fyrr má nú rota en
dauðrota" segir máltækið, haft í munni þess sem komið er á óvart.
Allir eiga jú rétt á að hafa sína skoðun. En tilefnið er grein sem mér
var bent á í Morgunblaðinu sem út kom síðastliðinn laugardag, á blaðsíðu
40. Höfundurinn er sagður læknir og rithöfundur. Ansi finnst mér
hann nálgast forræðishyggju og nánast vera að segja okkur Siglfirðingum
hvað okkur sé fyrir bestu og hvert við viljum stefna og vitnar að
auki í óprentuð umæli, væntanlega til að sýna fram á hvað við höfum
verið fyrirhyggjulausir fyrir aldmótin 1800 og séum það enn. Ég vil
benda lækninum á að jarðgöng "undir skarðið" kom upp á meðal
Siglfirðinga fyrst árið 1929 (frá Siglfirðingi), svo hann er með gamla
tillögu sem á þó eftir að verða að veruleika þó síðar verði. Ég ætla
ekki að fjalla frekar um greinina, en til að sem flestir verði upplýstir
um skoðanir læknisins, þá bæti ég upp á þann möguleika og skelli
greininni
HÉR - Ég
vona að mér verði ekki stefnt vegna þessa "fyrirhyggjuleysis" - enda á
ég rætur mínar að rekja til Siglfirðinga sem uppi voru löngu fyrir
aldamótin 1800 og á því "væntanlega einhverja sök" á yfirsjónum forfeðra
minna og mæðra ? |
|
Þriðjudagur
6. september 2005 Ein gömul: Það var önnur
aðferð við að landa og meðhöndla fiskinn á bryggjunni árið 1973 heldur
en í dag - og hver sem orsökin kann að vera, virðist fiskurinn að
meðaltali, einnig hafa verið smærri sem að landi kom.
Þarna eru Páll Gunnlaugsson og Daníel Baldursson að týna fisk upp í
hjólbörur. |
Þriðjudagur
6. september 2005
Jónbjörg K Þórhallsdóttir
er 45 ára í dag |
|
Þriðjudagur
6. september 2005
Regína Guðlaugsdóttir
er 77 ára í dag |
Þriðjudagur 6. september 2005
Dagný Finnsdóttir
er 27ára í dag |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Súld * Hiti 5,9 °C *
4 m/s |
_small.JPG) |
Mánudagur 5. september 2005õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Aðalgata 3 |
|
Mánudagur 5. september 2005
Þessir strákar voru að leik við Hvanneyrarhól í gær.
Ég ég smellti á þá um leið og ég átti leið framhjá.
Þeir eru frá vinstri Eduard sonur Constantin, Unnar Friðrik sonur
Steinars og Völu svo eru þeir Gísli Marteinn og Páll Helgi synir Gróu og
Balda.. |
|
Mánudagur
5. september 2005 Starfsmannafélag
Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar skrapp í eins dags ferð austur
í Mývatnssveit síðastliðinn laugardag. Sveinn vinur minn var með í för, en
kona hans Berta er fyrrverandi starfsmaður og var því boðið með.
Myndasyrpan frá ferðinni er hérna á tenglinum:
 |
|
Mánudagur 5. september 2005
Ein gömul:
Vörubifreiðastjórar í aprílmánuði 1973: Hans Sigurðsson - Stefán
Guðmundsson - Kristinn Sigurðsson - Guðlaugur Gottskálksson og Sigurjón
Steinsson.
Aðeins Sigurjón er eftir á lífi af þeim félögum, og heldur enn úti
sínum bíl. |
Mánudagur
5. september 2005
Gísli Antonsson
er 68 ára í dag |
Mánudagur
5. september 2005
Steinar Svavarsson
Hvanneyrarbraut 65 er 40.ára í dag -Með honum á myndinni er sonur hans
Unnar Friðrik. |
Mánudagur
5. september 2005
Kristinn Steingrímsson
er 45 ára í dag |
Mánudagur 5. september 2005
Kári Jónsson
er 67 ára í dag |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Sólarglæta * Hiti 10,9 °C *
3,6 m/s |
_small.JPG) |
Sunnudagur 4. september 2005õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Aðalgata 4 |
|
Sunnudagur
4. september 2005 Talsvert vatnstjón varð í húsi númer 34
við Suðurgötu í gærkveldi. - En vatnsleiðsla brast innanhúss og
húsráðendur leituðu á náðir slökkviliðsins sem brást fljótt við að
venju. En verið var að dæla/sjúga vatn af gólfum þegar ég keyrði þar
framhjá laust eftir miðnættið. |
|
Sunnudagur
4. september 2005 Stúlli og Dúi sáu um fjörið á
Allanum í gærkveldi og síðastliðna nótt: Ég leit þar inn laust eftir
miðnættið og smellti af þessari mynd af þeim félögum. |
|
_small.JPG) Sunnudagur
4. september 2005 Ráðagóðir Suðurverksmenn:
Ég var lengi að velta fyrir mér, hvað Suðurverksmenn væru að gera
með heybagga, á vörubílspalli - og enn meira undrandi varð ég þegar ég
sá þá frá eldhúsglugganum heima, (22. ágúst) losa þessa bagga við
kindaskúrinn hans Hafsteins. Hvað er eiginlega á seyði, eru þeir að færa
Hafsteini hey? -- Það var ekki fyrr en síðastliðinn föstudag þegar ég
skrapp á vinnusvæði þeirra, sem ég áttaði mig á hvað um hafði verið að
ræða. Þeir notuðu heybaggana einfaldlega sem öryggisgirðingu ofan við
kofann, ef óvart rúllaði grjót niður þar sem þeir voru að vinna við enda
snjóflóðavarnargarðsins. |
|
Sunnudagur
4. september 2005 Gömul syrpa
mynda.
Myndir sem enginn (tel ég) hefur séð áður, fyrr en þær birtast
hér.
Myndir teknar 17. júní 1973 Allar teknar með "falinni myndavél"
 |
|
Sunnudagur
4. september 2005 Ein gömul: Starfsmenn SR árið 1973
Guðni Sveinsson(?) - Birgir Ingimarsson - Jóhann G Möller - Guðmundur Ragnarsson
- Arnþór Þórsson - Filippus Birgisson og Jónas Björnsson |
Sunnudagur
4. september 2005
Björn Þór Haraldsson
er 70 ára í dag |
|
Sunnudagur
4. september 2005
Vilhelm Friðriksson
er 84 ára í dag |
Sunnudagur 4. september 2005
Mikael Þórarinsson (Mikki Gústa)
er 85 ára í dag.
|
|
_small.JPG) Laugardagur 3. september 2005
Mest áberandi eru þeir þessir drengir, þegar eitthvað þarf að
dytta að Lions húsinu. En þarna eru Jón Hólm og Hörður Hjálmarsson uppi
í vinnukörfu við að undirbúa klæðningu á suðurstafni hússins, en Jón
Ásgeirsson sér um að þeir séu á réttum stað við verkið, með því að
stjórna körfunni. - Myndirnar eru teknar í morgun. |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Sólarglæta * Hiti 10,2 °C *
1,3 m/s |
_small.JPG) |
Laugardagur 3. september 2005õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Aðalgata 6 |
|
Laugardagur
3. september 2005 40 ára starfsamæli sem
slökkviliðsmenn eiga þessir unglingar, sem undanfarin ár hafa haft það
frekar náðugt vegna eldsvoða, en hafa þó ávalt verið við stranga þjálfun
og æfingar. -- Þeir þurftu þó að taka á honum "stóra sínum"
síðastliðna nótt þegar Mjóstræti 1 brann, sem er eini stóri bruninn í
nokkur ár (sem betur fer). Ég kom við hjá þeim seinni partinn í gær
þegar þeir voru að hreinsa og koma fyrir tækjabúnaði slökkviliðsins
eftir nóttina, og komst þá að því að þeir voru allir búnir að starfa hjá
Slökkviliði Siglufjarðar í yfir 40 ár. Þetta eru Steingrímur Garðarsson
vélamaður - Guðmundur Skarphéðinsson vélamaður og Helgi Magnússon
vara-slökkviliðsstjóri. |
|
Laugardagur
3. september 2005
Suðurverksmenn -- Þeim hefur miðað vel þrátt fyrir rigninguna
undanfarið, við vinnu við að hlaða efri hluta snjóflóðavarnargarðsin
ofan við norðurbæinn. Þeir eru langt komnir með norðasta hluta hans, sem
verður einskonar afdrep fyrir útivistarfólk. Ég skrapp þangað í sólinni
seinni partinn í gær og fékk drengina og stúlkuna í hópnum til að fá sér
smá pásu á meðan ég smellti af þeim mynd. |
|
Laugardagur
3. september 2005 Aðsent: Lífið er stutt og vinirnir
fáir!
Dag nokkurn tók mjög efnaður maður son sinn með sér í ferð út á land í
þeim tilgangi að sýna honum hvernig fátækt fólk býr. Þeir dvöldu tvo
daga og nætur á sveitabýli sem myndi teljast fátæklegt.
Á leiðinni til baka spurði faðirinn son sinn hvernig honum hafi þótt
ferðin.
"Hún var frábær Pabbi."
"Sástu hvernig fátækt fólk býr?" spurði faðirinn.
"Ó já," sagði sonurinn.
"Jæja, segðu mér, hvað lærðir þú af þessari ferð?" spurði faðirinn.
Sonurinn svaraði: "Ég sá að við eigum bara einn hund en þau eiga fjóra.
-- Við eigum sundlaug sem nær úti miðjan garð en þau eiga læk sem engan
enda tekur.-- Við erum með innflutt ljósker í garðinum en þau hafa
milljón stjörnur á næturnar. - Veröndin okkar nær alveg að
framgarðinum en þau hafa allan sjóndeildarhringinn. - Við eigum smá
blett til að búa á en þau eiga akra sem ná eins langt og augað eygir. -
Við höfum þjónustufólk sem þjónar okkur en þau þjóna öðrum. - Við þurfum
að kaupa okkar mat en þau rækta sinn. Við erum með háa girðingu til að
verja okkur en þau eru umkringd vinum sem verja þau. " Faðir drengsins
var orðlaus.
Þá bætti sonurinn við: "Takk Pabbi, fyrir að sýna mér hve fátæk
VIÐ erum |
|
Laugardagur
3. september 2005
Ein gömul:
Njáll Jónasson - Gísli Sigurðsson og Hallur Garibaldarson, hlusta á
17. júníræðu 1973 |
Laugardagur
3. september 2005
Björk Jónsdóttir Hallgrímsson
er 76 ára í dag
|
Laugardagur 3. september 2005
Páll Gíslason
er 76 ára í dag
Engin mynd kom með |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Rigning * Hiti um 4,6 °C *
0,9 m/s |
_small.JPG) |
Föstudagur 2. september 2005õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Aðalgata 8 |
|
_small.JPG) Föstudagur 2. september 2005
Svona leit húsið Mjóstræti 1 út klukkan 08:30 í morgun. Timburþil, gólf
á milli hæða og veggir allt rústir einar. Það sem eftir stendur er
járnklæddur steinkubbaldi og brunnar spýtur Húsið var byggt af föður
mínum á árunum 1932-1933. Þar var ég "settur í framleiðslu" 1933 og
fæddist 1934. Enginn mun hafa verið í húsinu er eldurinn kom upp, en
sagt var að nýbúið hefði verið að leigja það. |
|
Föstudagur 2. september 2005
Ég fékk sendar myndir nú klukkan rúmlega 08:00 í morgun af eldsvoða sem
átti sér stað um klukkan 02:30 í nótt. Því miður þá lét mig enginn
vita af þessu. Þetta hús er við Mjóstræti 1 -
(þar sem ég fæddist fyrir rúmum 71 ári)
Engin undirskrift var með myndunum, bara "Hæ" póstfang: Viðar Aðalsteinson |
|
Föstudagur 2. september 2005
Jæja Siglfirðingar, nú er ég að kveðja ykkur eftir góða
viðkynningu í sumar, ég hef hitt marga að máli hérna í Bátahúsinu. Margt
hefur verið skrafað og ýmislegt verið til skemmtunar og fróðleiks. - Ég
á eftir að sakna kunningja míns " Bissnesmannsins " en við stóðum lengi
saman inná bryggjunni og áttum tal saman. -- Nú liggur leið mín til
Akureyrar, að sinna þar erindum. Verst að göngin skulu ekki vera komin !
-- En best að koma sér, kærar þakkir fyrir góða viðkynningu.
" Heimspekingurinn ". ----- Þessa mynd tók Sveinn Þorsteinsson í
gær í tilefni af því að hvítklæddi maðurinn; skúlptúrinn; "Heimspekingurinn"
fór áleiðis til Akureyrar í gær. Höfundur skúlptúrsins er Aðalheiður
Eysteinsdóttir, en það hefur verið í Báthúsinu í sumar ásamt fleiri
verkum hennar. |
|
Föstudagur
2. september 2005 EINN GÓÐUR UM LÍFSGÆÐAKAPPHLAUPIÐ
Hvað gerir þú við tímann? --
Ég lifi góðu lífi, sagði fiskimaðurinn. Ég sef fram eftir á
morgnana, fiska dálítið, leik mér við börnin mín, tek "siesta" með
konunni, rölti niður í þorpið á kvöldin og fæ mér vínglas og leik á
gítar með vinum mínum. --- Ég get gefið þér góð
ráð sagði Reykvíkingurinn. Ég er ráðgjafi með MBA frá
Háskólanum í Reykjavík. Þú átt að veiða meira. Þá færð þú meiri afla og
getur keypt þér stærri bát og þá veiðir þú enn meira. Síðan getur þú
keypt heilan flota af bátum og þá ertu ekki lengur háður því að selja í
gegnum milliliði en getur verslað beint við verksmiðjurnar, sett upp
verksmiðjur og jafnvel ráðið markaðnum. Þá þarftu ekki lengur að búa hér
heldur getur flutt suður. --- Hvað tekur þetta langan tíma?
spurði fiskimaðurinn. -- Svona 20-25 ár.
En hvað svo? spurði fiskimaðurinn. --- Þá kemur stóra stundin,
sjáðu til. Þú breytir fyrirtækinu í hlutafélag og ferð á verðbréfamarkað
og selur og stendur uppi með marga milljarða.--
Já, sagði fiskimaðurinn en hvað svo? Reykvíkingurinn varð dálítið
hugsi en sagði síðan: Þá flytur þú í lítið fiskiþorp, sefur fram eftir á
morgnana, fiskar dálítið, leikur við börnin, tekur "siesta" með konunni,
röltir á kvöldin niður í þorpið og færð þér vínglas og leikur á gítar
með vinum þínum.!!! ==== Þetta er fengið að
láni hjá:
http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=902
|
|
Föstudagur
2. september 2005 Ein gömul: Bjór er góður
getum við kallað þessa mynd, en á henni eru Ágrímur Björnsson, Hákon
Antonsson og Steingrímur Kristinsson.
Tekið 20 apríl 1973 |
Föstudagur
2. september 2005
Jóhann Örn Matthíasson
er 60 ára í dag |
Föstudagur 2. september 2005
Sigrún Jóhannsdóttir
er 44 ára í dag
Á myndinni sem ég læt fylgja með er hún með Ömmu stelpunni sinni, sem
heitir Ilva hún er dóttir Jóhanns Freys. |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Sólarglæta * Hiti um 8,2 °C *
0,9 m/s |
_small.JPG) |
Fimmtudagur 1. september 2005õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Aðalgata 10 |
|
Fimmtudagur 1. september 2005
Siglfirðingar hafa mikið gert af því að heimsækja Lónkot í
Sléttuhlíð, sérstaklega til að fara þar á markað og njóta í leiðinni
þeirra kræsinga sem kaffihlaðborð þeirra sveitunga hafa upp á að bjóða.
Síðasti markaður ársins var nú seinnipart ágústsmánaðar. Þessa mynd af
útsýni frá Lónkoti út á Skagafjörðinn tók Sveinn Þorsteins þá á
vettvangi, -og sendi mér. |
|
Fimmtudagur
1. september 2005 Nýir aðilar hafa hafa í dag 1.
september, tekið við rekstri hússins sem fyrst var reist sem
kvikmyndahúsið Nýja Bíó og nú síðast rekið sem veitingastaðurinn Kaffi
Torg. - Hinn nýji rekstraraðili er fyrirtækið EBÍ ehf
- En "potturinn og pannan" þar innandyra er Friðfinnur Hauksson, sem
allir Siglfirðingar þekkja sem einn af "Fílapenslunum" (sonur Gunnu
Finna og Hauks á Kambi) - Friðfinnur og co ætla að halda uppi minningu
um hina upphaflegu daga hússins, þar sem nöfn og fleira tengt fyrri
starfsemi verður áberandi. En húsið verður opnað formlega að nýju með
látum þann 16. september næstkomandi, eftir smá áherslubreytingar og
ekki er að efa að sá dagur mun verða þeim sem þar mæta í fersku minni.
Til Hamingju með daginn Finni og co. |
|
Fimmtudagur 1. september 2005 Aðsent: Sæll
Steingrímur. Viltu setja þetta inn á síðuna þína til að minna
nemendur og foreldra að sækja um þetta, Umsókn eftir 15 október verður
ógild og nemendur fá þá engan jöfnunarstyrk fyrir önnina sem er að
byrja. Nánar á
www.lin.is Kveðja
Kristján L Möller.
Jöfnunarstyrkur fyrir
framhaldsskólanemendur:
Nemendur
á framhaldsskólastigi sem þurfa að stunda nám fjarri heimahögum og
fjölskyldu geta átt rétt á jöfnunarstyrk.
-
Umsókn og innskráning hjá Íslandsbanka
-
Umsókn og innskráning hjá Landsbanka
-
Umsókn og innskráning hjá KB banka
-
Umsókn og innskráning hjá sparisjóðunum
-
Umsókn og innskráning hjá Form.is
Námsstyrkjanefnd úthlutar styrkjum til styrkhæfra nemenda. Umsóknir
skulu berast til LÍN. Umsóknarfrestur á haustönn er til 15. október.
Vegna vorannar/sumarannar eingöngu, er umsóknarfrestur þó til 15.
febrúar. Boðið er upp á skráningu umsókna hér á LÍN-vefnum.
Sjóðurinn hvetur umsækjendur til að kynna sér vel helstu
upplýsingar um styrkinn og leiðbeiningar um skráningu. Þeir sem
óska aðstoðar eru jafnframt hvattir til að leita til sjóðsins með
tölvupósti (lin@lin.is)
eða í síma 5604000. Eigi einhver ekki kost á að skrá umsókn sína á
vefnum er hann vinsamlega beðinn um að hafa samband við sjóðinn.
Póstfang sjóðsins er: LÍN, Höfðaborg, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
--- Nánari upplýsingar er að finna í reglugerð um námsstyrki.
|
|
Fimmtudagur
1. september 2005
Ólafía Björk
Ívarsdóttir
er 24 ára í dag. ---Hún var alltaf kölluð Olla
og er dóttir Sigrúnar Ástu (Önnu Vignis) og Ívars
Á myndinni er hún með syni sínum Aroni Elí í fyrra sumar. |
Fimmtudagur 1. september 2005 |
|
Fimmtudagur
1. september 2005 Dæmigerð ásýnd framan við Fiskbúð
Siglufjarðar á miðjum sumardegi. Fisksalinn Eysteinn Aðalsteinsson
slappar aðeins af frá önnum dagsins, gestir fá sér sæti og rabba um
daginn og veginn. Auk Eysteins eru á myndinni Guðný Ósk og Arnfinna
Björnsdóttir eiginkona Eysteins.
Myndin er tekin 1. júlí í sumar. |
Fimmtudagur
1. september 2005 Ein gömul:
Starfsmenn SR, í aprílmánuði 1973
Guðmundur Lárusson rafvélavirki og Markús Kristinsson verksmiðjustjóri.
|