4. júlí 2003
Það fer ekki á milli mála að, alstaðar þar sem maður kemur, er aðal umræðuefnið, nýjustu kosningaloforðin sem svikin hafa verið.
Ég rölti á milli nokkurra vinnustaða í morgun, aðallega til að hlusta á fólkið, sem var óvenjulaus tungan og heiftugt út í síðust aðgerðirnar, það er að hætt skyldi við Héðinsfjarðargöngin.
Hér á eftir kemur það helsta sem um var talað, á "götubylgjunni"
Fullyrt var að, fyrrverandi bæjarfulltrúar beggja flokkanna, og aðrir "óbreyttir" félagar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, væru að safna undirskriftum, þar sem viðkomandi ætli að segja sig úr viðkomandi flokkum.
Enn aðrir segja að til tals afi komið meðal þeirra hæst settu, a.m.k annars flokksins, að leggja ætti viðkomandi félög niður á Siglufirði.
Svo hafa komið upp hugmyndir að safna gömlum húslyklum í kassa, til að send Valgerði og Sturlu, til að leggja áherslu á að á næstunni yrðu tugir húsa til sölu fyrir lítið, verð sem stjórnvöld hafa keyrt enn meir niður en ella, vegna síðustu aðgerða.
Ekki má gleyma sorgarböndunum svörtu sem fólk hér er byrjað að nota, hvað skoðanir sem fólk annars hefur á því fyrirbæri. Víst eru menn sorgmæddir, sérstaklega þeir, sem létu Siglfirsku "þingmannsefnin", hafa sig að fífli.
Þeir ættu að segja sig úr viðkomandi flokkum, takist þeim ekki að breyta þessari stöðvunaráætlun. Mannorð þeirra er í veði.
Ef til vill geta þeir setið í stólum sínum á þingi og í nefndum þetta kjörtímabil, en fá verða atkvæðin sem þeim tekst að nálgast við næstu kosningar.
Það á örugglega ekki aðeins við, gagnvart Siglfirðingum, heldur allri Eyjafjarðasýslu að Akureyri að sjálfsögðu meðtalinni. Því hver ætli að trúi þeim aftur? Fjögur ár og ný kosningaloforð nægja ekki, jafnvel þó svo reyndist að þetta væri "aðeins" frestun og byrjun á nýrri kosningaherferð.
Það líða mörg ár áður enn þetta gleymist, og þetta smitast, foreldrar segja börnunum og svo koll af kolli. Þetta er nefnilega ekkert í líkingu við hin hefðbundnu loforð sem svikin hafa verið, þessi sem auðvelt hefur verið að breiða yfir, þetta er allt Eyjafjarðarsvæðið, svæði sem er of stórt til að breiða yfir.
Margt fleira gæti ég tiltekið af því sem ég heyrði á stuttri yfirferð, en ég læt þetta duga að sinni.
Steingrímur.
E.S. Ég er tilbúinn að hýsa hér á síðum mínu greinar ef fólk hefur áhuga á því að láta í sér heyra. (undir nafni) |