Hér eru nú, aðeins 3 myndir, en ég bæti fleirum síðar, eftir fleiri heimsóknir.
2003-07-06-01 Þarna sátu í kaffipásu, "efnafræðingurinn" Baldur Benonísson, þróarmeistarinn Sigurjón Pálsson og vinnslustjórinn Steingrímur Garðarsson.
2003-07-06-03 Þarna er skilvindumeistarinn Viggó Jónsson að störfum, í ríki sínu.
2003-07-06-05 Og hér eru "stjórnendurnir" þeir sem fylgjast með allri vinnslunni frá tölvuskjám. Sævar Björnsson snýr baki við myndavélinni en við hlið hans er bræðslumaður nr. 1 Georg Ragnarsson. Í dag eru á vakt í bræðslunni 9-10 manns og flestum einingum fjarstýrt með aðstoð tölvutækninnar, en í "gamla daga" vegna talsvert minni afkastagetu voru allt að 80 - 100 mans sem sinntu "í raun" sömu störfum.
2003-07-07-15 Mjöhúskarlarnir. Sveinn Þorsteinsson, Kristinn Konnráðsson og formaðurinn Reynir Gunnarsson.
Þrír menn eru á vakt (aðeins "dagvakt") sem stendur yfir 12 tíma, frá kl. 7:30 til 19:30 dag hvern sem bræðsla stendur yfir. (mjölinu er safnað í tanka yfir nóttina) Þrátt fyrir mikið annríki, gáfu þeir sér tíma til að gefa mér kaffi, rabba og lofa mér að taka þessa ljósmynd.
.
2003-07-06-01 Þarna sátu í kaffipásu, "efnafræðingurinn" Baldur Benonísson, þróarmeistarinn Sigurjón Pálsson og vinnslustjórinn Steingrímur Garðarsson.