27. Júlí Leyfið komið (munlegt) Leyfið sem sagt er frá hér fyrir neðan í fréttinni Trillukarlarnir En Sigtryggur Kristjánsson hefur beðið eftir kerfiskörlunum vegna þess. En það er komið, það er að segja að það hefur verið póstlagt, en honum sagt að hann geti hafið vinnu við flotkvíar sínar samkvæmt því þó hann hafi ekki fengið leyfið í hendurnar. Önnur flotkví, fullbúin til notkunar liggur nú í innri höfninni, fullbúin til flutnings, en beðið er eftir minnkandi straumi og logni, þar sem svona kví er þung í drætti. Myndir sýnir nýju kvína og er gamla Dúfan í forgrunni, sem hefur verið úrelt.
27. Júlí Loksins, í morgun rættist gamall draumur hafnarstjórnar og Siglfirðinga, um fyrstu uppskipun á gámum, á nýju Óskarsbryggjuna. En í morgun losaði Mánafoss nokkra frystigáma, er tengdir voru síðan rafleiðslum bryggjunnar. Óskarsbryggja og lóðin henni tilheyrandi, er fyrirhugað pláss fyrir fyrstaflokks aðstöðu með viðkomandi tækjabúnaði, fyrir allt að 100 gáma. Þegar þetta verður tekið í gagnið að fullu, mun um 8 klukkutíma sigling sparast fyrir flutningaskipin, miðað við að losna við að fara með gáma til Akureyrar, sem síðan hefur verið dreift á aðrar Eyjafjarðarhafnir of. staði. Pláss það sem er á gömlu Hafnarbryggjunni er bæði of lítið og óhentugt, og því tími til kominn að gera breytingar. En full not þessarar aðstöðu kemur því miður, ekki í gagnið að fullu, eins fljótt og vonast var til þar sem svikin loforð ríkisstjórnarinnar vegna Héðinsfjarðarganga, frestast um þrjú á miðað við það sem hefði orðið, ef lægsta tilboði í göngin hefði verið tekið. "Minni" myndin sýnir gámana, og einnig límtrésbita til hægri, sem koma eiga í Bátahúsið hjá Síldarminjasafninu.
27. júlí Eldri borgarar, 78 talsins, í boði Kiwanisklúbbsins Skjaldar, kom úr ferð sinni um 10 leitið í gærkveldi, eftir mjög vel heppnaða og ánægjulega ferð. Hópurinn var mjög heppinn með veður, sól og hiti við brottför, þoka og suddi í Skagafirði og Múlanum, sól á Ólafsfirði, Akureyri og síða alla leið til Húsavíkur, þar sem hita var yfir 20 °C. -- 100 myndir frá ferðinni á tenglunum Eldra fólkið
25. Júlí Loðnuveiði virðist lokið, ef marka má hljóðið í verksmiðjukörlunum, en alls hafa borist hingað 32.146.001 kg og mun Siglufjörður hafa tekið á móti mestu magninu af loðnu á þessari vertíð. Að auki komu hingað tæp 1000 tonn af kolmunna.
25. Júlí Eins og sést vegna dagsetningarinnar í dag, þá hefur ekkert markvert borið fyrir augu mín í dag, þrátt fyrir þrjár ferðir í bæinn.
Og minna verður væntanlega á þessum síðum á morgun laugardag, því þá verð ég í boði Kiwanis á ferðalagi austur á land, til Húsavíkur, og kem ekki til baka fyrr en að kvöldi sama dag.
Þá mun ég ma. fara að vinna að ljósmyndum sem teknar verða í þeirri ferð og birti eitthvað á þessari síðu, en það er af eldri borgurum bæjarins, sem Kiwanisfélagar á Siglufirði bjóða árlega, af sinni rausn, til dagsferðar um landið.
25. júlí 11:00 Bíð eftir einhverju efni, Þoka og súld er í dag og 11-12 °C hiti
24. júlí 14:30 Gallerí Sigló Suðurgötu 6 á Sigló er opið alla daga, þar fer fram allskonar skrautmunagerð, bæði samkvæmt eigin hugmyndum og samkvæmt beiðni fólks. Þær eru margar konurnar sem að þessu standa og vinna að þessu, en þessar þrjár voru á fullu, er ég leit til þeirra. Þetta eru Sigríður Björnsdóttir, Ásdís Gunnlaugsdóttir og Kristín Baldvinsdóttir
24. júlí Málverkasýning stendur yfir í Sýningarsal Ráðhússins á Sigló. Þar sýnir verk sín Reykvíkingurinn Stefán Jóhann Boulter
24. júlí 13:15 Trillukarlarnir Pétur Guðmundsson, Sigtryggur Kristjánsson og Ólafur Guðmundsson. Þessa garpa þekkja allir Siglfirðingar, enda eru þeir farmleiddir á heimaslóðum. Þarna voru þeir félagar að ræða um einn brekkusnigilsháttinn hjá þeim sem ráða í þjóðfélaginu. Sigtryggur sem hóf í vor, þriðja ár sitt við fiskeldi, hér á firðinum, með öll tilskilin leyfi í vasanum, en nú er búið að setja á stofn enn eitt embættið, það er nú þarf eitt leyfið til viðbótar, fylla út eyðublað (sennilega að borga rausnarlega fyrir það), senda suður og bíða síðan eftir, að þeim þarna fyrir sunnan þóknist að afgreiða og senda viðkomandi viðbótarleyfi. Á meðan er Sigtryggur aðgerðarlaus, hann getur ekki viðhaldið fiskeldi sínu, sem snýst um það að afla fiskjar, hirða smáfiskinn lifandi og koma honum í kvíarnar, sem staðsettar eru úti á firði.
24. júlí Fyrstu skrefin, að langri þrautagöngu: Þingsáliktunartillaga: Sverrir Sveinsson og fleiri.
24. júlí Málverkasýning: -- Siglfirðingurinn Arnar Herbertsson, er með málverkasýningu í Gránu. Þar sýnir hann brons, olíulakk og olíulakk á tré. Arnar ("Eini" eins og hann er kallaður af fullorðnum Siglfirðingum) hefur haldið fjölda sam og einkasýningar á ferli sínum.
23: júlí 21:15 Brasilíski söngvarinn og sömbugítarleikarinn IFE TOLENTINO, ogÓskar Guðjónsson, saxafónn, Ómar Guðjónsson gítar, Helgi Svavar Helgason, Þorvaldur og Þór Þorvaldsson trommur, léku ektaBrasilísk Samba og Bossanova, músík í Nýja Bíó í kvöld. Ágætis aðsókn var og virtust áheyrendur nóta vel. Þeir leika og syngja á Akureyri annað kvöld.
23:júlí Gunnar Friðriksson. Ég heimsótti Réttingarverkstæði Gunnars og Stefáns, í morgun. Gunnar vinnur nú aðeins einn á verkstæðinu, og hefur nóg að gera. Aðallega er þó um minniháttar aðgerðir að ræða, því Siglfirðingar eru góðir ökumenn, svona yfir höfuð. Þarna er Gunnar að ganga frá viðgerð eftir rispur sem óviti hafði framkvæmt, en nokkuð mun hafa borið á slíku að undanförnu.
23:júlí 08:45 Suðurverk, verktaki við snjóflóðavarnir. Þarna er unnið að jarðvegsskiptum, rétt norðan við Ljósastöðina við Hvanneyrará.
23:júlí 08:30 Vinna við Tjarnargötu Gránugötu er samkvæmt áætlun. Þarna er verið að slá upp fyrir gangstétt á horni gatnanna
23 júlí Mjög fjölmennur borgarfundur fór fram í gærkveldi í bíósalnum á Sigló. Hvert sæti var skipað og staðið með veggjum, og út að dyrum.
Margir tóku til máls og höggið á báða bóga. Þarna voru mættir alþingismenn, einn ráðherra, bæjarstjóri Ólafsfjarðar ofl. þaðan, svo og auðvitað bæjarfulltrúar Siglufjarðarkaupstaðar, svo og hinir almennu borgarar. Ég mun ekki fara mörgum orðum um fundinn, en þó margt tilefnið hafi verið á dagskránni, var um fátt annað talað en frestun, svik eða hvað menn kusu að kalla það, málefni Héðinsfjarðarganga. Ég mun lauslega tjá mig um efni fundarins, með texta undir einstökum myndum sem eru á síðunni Borgarfundurinn
22.júlí Aðsent (tölvupóstur): Sæll Steingrímur !!! Þú bentir á að Siglufjörður væri ekki á vefnum www.camping.is en hefurðu tekið eftir því að Siglufjörður er ekki heldur á Íslandsvefnum www.islandsvefurinn.is Er kannski verið að stroka þennan fallega bæ alveg út eða hvað ???? Kveðja S......
22.júlí Antares VE 18 Kom í gærkveldi með 974.812 kg. af loðnu til bræðslu hjá S.V.
Sennilega er þetta í fyrsta sinn sem þetta skip kemur hingað með loðnu.