Ég heimsótti Hafnarskrifstofuna / Hafnarvog og fékk þar kaffisopa, eins og svo oft áður, þetta er Sigurður Sigurðssson yfirhafnarvörður
Og þetta er Jónas Sumarliðason hafnarvörður
Einn af þeim sem starfs síns vegna, hjá Þormóði Ramma, heimsækir Hafnarvogina oft, var þar staddur yfir kaffibolla, það er Gunnlaugur St. Vigfússon verkstjóri.
Hjá Olís var mikið að gera að venju, þar hitti ég og náði að "smella á" þá Guðmund Magnússon skipstjóra sem átti þar erindi, og Jón Sigurðsson afgreiðslumann hjá Olís.
Hjá SR-Vélaverkstæði lenti ég í veislu, en þar er áratuga hefð fyrir því að þegar menn eiga afmæli, og eða hætta þar störfum, komi viðkomandi með tertur í tilefni af viðburðinum. En í þetta sinn var Guðjón Ólafsson vélsmiður, að flytja sig til í starfi. Vinnufélagar hans eru frekar ganmansamir, og nefndu marga starfstitla honum til höfuðs, sem hann ætlaði til, svo ég treysti mér ekki til að nafna neinn af þeim, en sjálfur var hann alltaf í símanum (honum er síminn mjög kær) svo ég leitaði ekki frekar um hið nýja starf hans, en ég veit að honum mun vegna vel.
Í höfninni var þessi "ljóti" kumbaldi (að mér finnst) Sveinn Rafn SU 50. En hann mun hafa landað hér rækju, sl. Þriðjudag, farið síðan út, en komið inn aftur, sennilega vegna brælu(?)