21. september Þessi mynd er EKKI tekin í haustrigningu dagsins í dag, heldur var hún tekin 29. ágúst 1992. Myndin er ekki vel skörp, þar sem hún er tekin "frá" videovél. En í framhaldi af hugleiðingum um stífluna í Hvanneyraránni, sem getið er um hér neðar á síðunni, þá er þetta vísbending um það sem komið getur, ef rignir hressilega eins og í ágúst 1992, en þá gerði norðan garra, ekki ósvipað og er í dag.
21. september Lítilháttar flóð kom einnig upp á planið við Bensínstöðina, ásamt malarkurli og þara.
21. september Veikar varnir ? Norðanáttin skall á okkur eins og aðra landsmenn, samkvæmt "spánni" (aldrei þessu vant) Á flóðinu í morgun gekk sjór og meðfylgjandi á land við enda Túngötunnar, lítið magn og engar skemmdir, en það sást þó. Sveinn Þorsteinsson, fréttaritari minn vaknaði fyrr en ég í morgun og tók þessa mynd.
21. september Aðsend ljósmynd, frá Þorsteini Kristinssyni. Sérkennilegt skýjafar. Smelltu á Aðsendar myndir
21. september Díselolíugjald í stað þungaskatts. Athygliverð grein á siglo.is sem Guðjón M. Ólafsson sendi þangað inn, 19. september 2003 - Þessa grein ættu allir að lesa sem huga að mismun á verðlagi almennra neysluvara á landsbyggðinni annarsvegar og "Bónus-svæðanna" á Reykjavíkursvæðinu ofl. hinsvegar. Smellið á tengilinn hér fyrir neðan oglesið greinina. http://www.siglo.is/new/?mode=umraedan&yid=71
21. september "Þeir settu svip á bæinn" Læknarnir, Þórarinn Guðmundsson (?) og Halldór Kristinnson fæddur 20.ágúst 1889
20. september Nýir rekstraraðilar að Bíóinu. (Frétt út Hellunni)
Undanfarið eitt og hálf ár hefur Guðrún Helga Jónsdóttir rekið Nýja-Bíó en nýlega varð að samkomulagi milli hennar og eigandans, Sparisjóðs Siglufjarðar, að hún mundi hverfa frá rekstrinum. Nýir aðilar taka við rekstrinum upp úr næstu mánaðamótum, samkvæmt upplýsingum frá Ólafi Jónssyni sparisjóðsstjóra.
20 september. Nýt á "Lífið á Sigló" Veðrið í DAGSmelltu á "Veðrið í dag" og þú sérð á mynd hvernig veðrið er á Sigló um hádegisbilið, daglega. Hitastigið á hitamælir minn í Bakka (Hvanneyrarbraut 80) og áætlaður vindstyrkur og annað veðurútlit þeirrar stundar.
20. september Það er mikið talað um að eldrafólkið, sem vill flytja úr alltof stórri íbúð sinni, þar sem ellilaunin nægja ekki fyrir þeim kostnaði sem því fylgir, og fleira sem til greina kemur, heilsubrestur og þ.h. - í þægilegra húsnæði, eins og Elliheimili, td. SKÁLAHLÍÐ, þar sem öll þjónusta er á næstu grösum. Nokkrir eldri borgarar hafa átt kost á að flytja í "Gamla bakaríið" við Hvanneyrarbraut, sem er í næsta nágrenni við Skálahlíð, en langur biðlisti mun vera um svona húsnæði fyrir eldra fólkið, hvort heldur er í Skálahlíð eða "bakaríinu". Mér var bent á hér á dögunum, góða lausn, það er, húsnæði í næsta nágrenni við SKÁLAHLÍÐ sem sennilega væri falt, en það er Hlíðarvegur 44. Þar voru einusinni 4 íbúðir -og kunnugir telja að þar mætti gera a.m.k.5 litlar íbúðir án mikils tilkostnaðar. Og stóri kosturinn er: Þetta hús er nær fast við Skálahlíð. Hvernig væri að viðkomandi nefndarmenn, athuguðu þennan möguleika?
20. september "Hann setti svip á bæinn" Bjarni Bjarnason verkamaður, (kallaður Boddi Gunnars) fæddur 17. júlí 1921
19. september 13:15 Síðustu pjásurnar, bæjarstarfsmenn hlupu lafmóðir á eftir nokkrum rolloupjásum á túninu fyrir norðan hús mitt, eftir hádegið. En þetta munu vera síðustu rollurnar sem finnast í bænum að þessu sinni, en nú um síðustu helgi fór fram allsherjarsmölun á þessum óboðnu gestum sem verið hafa ýmsum bæjarbúum til ama í sumar innan Siglufjarðar. Margir létu mig heyra að, þeir efuðust um að ég hefði talið rétt er ég skýrði frá því í sumar að ég hefði talið 61 rollu eftir yfirferð á vegum innan fjarðarins. En smalamönnunum tókst þó að smala á milli 200-300 rollu tu.... að þessu sinni innan fjarðarins. En ýmis félagasamtök tóku að sér smölunina.
19. september Hvanneyraráin. Það var skrítin tilfinning að sjá Hvanneyrarána, eins og sést á myndinni. Mér var bent á þetta áðan (11:15) en búið er að "stífla" ána, þannig að stórgrýti var komið fyrir fyrst, sem áin rennur á milli, og síðan gerður vegur yfir, til að vinnuvélar og fleira kæmist yfir á Hvanneyrarskálarveginn, vegna framkvæmdanna þar og við væntanlega snjóvarnargarða. Þetta er gert til að hlífa Hólaveginum fyrir þungaakstri, sem nauðsynlegur er vegna framkvæmdanna. En mér dettur í hug: Hvernig mun þessari "stíflu" vegna í vor þegar áin er í vexti, kemst allur flaumurinn um stórgrýtið, eða flæðir yfir? Ég hefi grun um að, garðurinn standist ekki vorleysingarnar, og dæmi er um að haustrigningarnar hafi valdið, ekki minna flæði í ánni en oft á vorin. Sver rör ca. 2 m í þvermál, hefði verið æskilegra, en nóg er af slíkum "aflaga rörum" í firðinum, sem hefði mátt nota.
19. september Stolt okkar Siglfirðinga, Hólshyrnan, bar þess greinilega merki að komið var haust, þó svo að oft á árum árum hafi maður séð hana skarta hvítari hatti á miðju sumri. En eins og þeir vita sem farið hafa á síðu mína að undanförnu, þá hefi ég ekki verið í bænum, og gat ekki fylgst með fyrstu einkennunum, en snjó hefur að sögn ekki fest að gagni í byggð, í þessu fyrsta hreti, en það litla sem kom á stökku stað ofarlega í byggðinni, var farið aftur um hádegið sama dag. Og á leið minni norður sá ég víða meiri snjó. á láglendi og fjöllum, annarsstaðar en okkar fjöllum, það gerir að líkindum nálægð við sjóinn sem enn er hlýr miðað við árstíma. Smellið á myndina, þá eru nokkrar myndir þar á "bak við" frá morgun rúnti mínum.
19. september "Tjörnin" Þarna mun koma skemmtileg lítil tjörn, norðan og neðan væntanlegs snjóflóðavarnargarð í norðurbænum. Rétt við skilti bæjarins við innkeyrsluna, í bæinn.
19. september Byrjað er á að nýjum akveg, sem gerir fólki kleift að aka á góðum vegi, öllum bílum fært, upp í Hvanneyrarskál, en vegurinn á að liggja frá enda "Stóra bola" syðst í bænum, skáhalt í stefnu efri hlutar núverandi vegar. Suðurverk ehf. er með verkið, sem innifalið var í verki snjóflóðavarnargarða.
19. september Síðustu haustverkin ? Laust fyrir 8 í morgun var þessi mynd tekin, er Eggert Ólafsson, starfsmaður Siglufjarðarkaupstaðar, var að hirða "síðustu sláttu haustsins"
19. september TÓNLISTARVEISLA !
Stórsöngvararnir Kristinn Sigmundsson, Gunnar Guðbjörnsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir "Diddú" ásamt hinum frábæra undirleikara Jónasi Ingimundarsyni halda tónleika í Siglufjarðarkirkju laugardaginn 27. september n.k. kl.20:30
Hér er um stórkostlega tónlistarveislu að ræða og eru Siglfirskir tónlistaunnendur, hvattir til að mæta og eiga ógleymanlega stund með listamönnunum.
19. september "Hann setti svip á bæinn" Björn Dúason, rithöfundur (mfl.) fæddur 20. júlí 1916