Lífið 1 - 7 sept. 2003 | Lífið 8. til 10. sept. 2003 | Lífið 19.-21. sept. 2003 | Lífið 22.-30. sept. 2003

>>>>>>>>>>> Lífið 22.-30. sept. 2003

 

Til forsíðu
Til baka
Leikskólinn
Þormóður Rammi Sæberg
Skólakrakkar
Bókasafnið
Vinnustaðir (1)
Vinnustaðir (2)
Bland mynda
Gjafakot
Skólplögn
Bergarar
Rigning á Sigló
Nýja Bíó- Kaffi torg
Starfsmannafélag SR




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

30. september  Rigningin er hætt í bili, að minnsta kosti- og Suðurverksmenn gátu snúið aftur til vinnu, án þess að eiga á hættu að fara á kaf í vatns og aurflóði, sem í fjallinu var í gær. Þarna eru þeir uppi í gilinu norðast á svæðinu. Þeir eru þarna að undirbúa efnisflutning, færa jarðveg neðar í hlíðina, þaðan sem það verður flutt í burt, eftir því hvort um mold, grjót eða stórgrýti er að ræða.

30. september Starfsmannafélag SR. Nokkrir starfsmenn Síldarvinnslunnar, félagar í Starfsmannafélagi Síldarverksmiðja Ríkisins, eins og það heitir enn, þrátt fyrir nafnabreytingar fyrirtækisins, sem þeir vina hjá, fara ásamt mökum, - 22ja manna hópur til Búdapest nk. fimmtudag.  Ég leit inn á skrifstofu Síldarvinnslunnar á Sigló og smellti myndum af nokkrum ferðalöngunum.  Smelltu á myndina

30. september Þessar stúlkur; Ragnheiður Ragnarsdóttir og Ingibjörg Ólafsdóttir, eru að skella sér inn í veitingabransann. En þær hafa tekið á leigu húsakynnin Nýja Bíós. Þær hafa verið önnum kafnar í smálagfæringum og breytingum, en þarna eru þær í kaffipásu. Iðnaðarmenn er einnig að störfum, málarar og smiður + afbragðsgóður handlangari.  Smellið á myndina og skoðið fleiri.

30. september "Hann setti svip á bæinn" Gísli Sigurðsson bókavörður, fæddur 20. maí 1905

29. september Þessar álftir, sennilega hjón með 3 unga (?) spókuðu sig í ætisleit, á tjörninni í suðurbænum í kvöld klukkan 18:30 - Eftir tilburðum þeirra að dæma, virtust þær hafa nóg að éta. Þær munu hafa komið á þetta svæði í gærkveldi. Þetta er frekar óvenjuleg sjón, en þó ekki einsdæmi.

"29. september"   Og svo var ég að kvarta !  Ég gat ekki stillt mig um, að lofa ykkur að lesa eftirfarandi pistil úr Siglfirðing í 17. júlí 1947

Búpeningur á götum bæjarins

Nú er svo komið, að kýrnar "spásséra" um götur bæjarins, rétt eins og ekkert sé eðlilegra. Langt er frá því, að það sé viðeigandi eða sýni neinn menninga vott, að láta skepnur, ganga á götum bæjarins innan um íbúa og aðkomumenn.

Í lögreglusamþykkt bæjarins, er svo fyrir mælt. að bærinn eigi að sjá kúm þeim, sem einstaklingar eiga, fyrir bithaga, enda ekkert eðlilegra. Það hlýtur að vera verk bæjarstjóra eða bæjarstjórnar, að sjá um, framkvæmd á þessari fyrirskipun lögreglusamþykktarinnar. En ekkert er aðhafst í þessu frekar en öðru, sem bæjarins er að sjá um.

Girða þarf ákveðið svæði, þar sem bæjarbúum gefst tækifæri til að hafa kýr sínar á beit,, eða jafnvel taka upp aðferðina, sem notuð var í gamla daga, að til þess ráðnum "kúarektor," sem fór með kýrnar í haga á morgni hverjum, og skilaði þeim heim að kveldi.

Vill nú ekki bæjarstjórnin taka til vinsamlegrar athugunar, hvort ekki sé hægt að hefjast handa í þeim málum, sem mest aðkallandi eru, þó kosningar standi ekki fyrir dyrum. Núverandi bæjarstjórnarmeirihluti má vita, að þó hann hafi hingað til sofið á málunum, þá er betra seint en aldrei að hefja framkvæmdir, og vissulega munu bæjarbúar muna gang málanna, næst, þegar þeir velja menn i bæjarstjórn.

29. september  Hvanneyraráin  stækkaði nokkuð rösklega í nótt, í fyrstu alvörurigningu ársins sem mældist um 23 mm.á Sauðarnesi, og sögð mesta rigning á landinu. Ekki dugði það þó til að yfir veginn / stífluna flæddi, er Suðurverksmenn gerðu, en þeir gátu þó ekki hafið vinnu í dag vegna vatnselgs á svæðinu, en fjallið varð að einum víðáttumiklum lækjarfarvegi vegna rigningarinnar.  Smelltu á myndina til að skoða fleiri myndir.

29. september  Berg hf. sem tók að sér að reisa Bátahúsið við Síldarminjasafnið, vinnur nú að því hörðum höndum að smíða þakeiningarnar sem koma á húsið. Þeir eru með góða aðstöðu inni í "Aravíti" (gamla tunnuverksmiðjan / húseiningar) Þetta eru þeir Hallgrímur Sveinn Vilhelmsson og Sverrir Sigurjón Jónsson. Smelltu á myndina, þá serðu einnig mynd af Birgir Guðlaugssyni byggingarmeistara

29. september  Þessi fallega skúta ÓSK, er í eigu þeirra hjóna Sveins Filippussonar vélsmiðs og Steinunnar Erlu Marinósdóttir. Sveinn smíðaði skútan sjálfur að mestu úr stáli - og naut aðstoðar konu sinnar við það ofl. Hann var að sigla inn fjörðinn. um kl.16:30 í gær, í rigningu og logni.

29. september  Skólplögn "Gránugötu"  Það gátu ekki verið betri ytri aðstæður,en þær sem Bás ehf fékk, er þeir gengu frá skólplögn sem liggur í sjó fram, en einmitt seinnipartinn í gær. Algjörlega ládauður sjór, logn og stórstreymt. Það var rigning klukkustundinni áður, en rörið var hífað í sjó fram, en það stytti upp um leið og byrjað var á sjálfri hífingunni. En í morgun var komið talsvert kvika, sem heði gert verkið óvinnandi. Nokkrar fleiri myndir koma í ljós ef þú smellir á myndina

29. september "Hann setti svip á bæinn"  Kristján Sigurðsson smiður, fæddur 4. nóvember 1902

28. september  Mánafoss á leið út Siglufjörð um 11:30 í morgun.

28. september Malbikun, er enn á fullu, og öll Gránugatan malbikuð, en nú eru það bílastæðin , gangstéttir og ýmsar smá viðgerðir, sem eiga hug Akureyringanna sem vinna að malbikun.

28. september  Þessa tvo hitti ég á Bensínstöðinni í morgun; Bjarni Þorgeirsson málarameistari og Þór Jóhannsson, hreinsitæknir.

28. september  "Hann setti svip á bæinn"   Skarphéðinn Björnsson sjómaður, fæddur; 11. nóvember 1924

27. september  GJAFAKOT, ný verslun var opnuð í dag með "promp og prakt"  Þetta er verslun sem er með, ma. Húsgögn, lampa, allskonar gjafavörur, leikföng, búsáhöld ofl. Verslunarstjórinn og eigandi er Siglfirðingurinn Jónína Jónsdóttir, dóttir Jóns Kjartanssonar fyrrverandi bæjarstjóra Siglufjarðar. Hún hefur verið búsett á Suðurlandinu, eftir að foreldrar hennar fluttu brott, en nú er hún komin heim,  -- a.m.k. með annan fótinn.  Smelltu á myndina til að skoða myndir teknar inni í búðinni.

27. september  Stórtónleikar. Í kvöld munu halda tónleika í kirkjunni, þau Gunnar Guðbjörnsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Kristinn Sigmundsson, undirleik annast Jónas Ingimundarson.- Dagskráin: Íslensk lög og óperettur. Meðfylgjandi ljósmynd, tekin er "fyrir sunnan," er frá mbl.is/Þorkell  og er af  Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Kristni Sigmundssyni og Jónas Ingimundarsyni.

27. september  Síðasti malbikunardagurinn? Nú í morgun var byrjað á lokaáfanga malbikunar, vegna framkvæmda við Gránugötu, veður til þessara hluta er ákjósanlegt, sólskyn og 10 °C hiti. Þá er ætlunin að malbika ýmsa smærri fleti víðsvegar um bæinn, lagfæringar á eldri malbikun, bílastæðum ofl.

27. september  Bás ehf er nú þessa dagana að ljúka verki sínu vegna Gránugötu, þarna er framkvæmdastjórinn sjálfur að "sjóða" saman holræsislögn, sem sett verður út í sjó fram nokkra tugi metra. Smelltu á myndina, þá sérðu fleiri myndir sem ég smellti af í morgun í sólinn.

27. september  "Hann setti svip á bæinn" Jón Guðjónsson skipstjóri, fæddur 19.september 1912

26. september  Litlu mátti muna að slys yrði, þegar vegakantur lét undan einum af stóru bílum Suðurverks rétt fyrir hádegið, er hann var á Skálarvegi við vinnu vegna vegalagnar í tengslum við Snjóvarnargarðana. Myndin sýnir þegar grafa er að aðstoða bílinn að komast aftur upp á vegin. Engin meiðsl eða skemmdir, aðeins smátöf á verki.

26. september  Þessa heiðursmenn hitti ég í morgun hjá Olís, en þetta eru Baldvin Jóhannsson trésmiður, 82 ára unglingur og Jón Sigurðsson afgreiðslumaður Olís.  Ég heimsótti einnig bæjarstarfsmenn Siglufjarðarkaupstaðar ("útimennina") í kaffitímanum í morgun.

Smellið á myndina til að sjá þær myndir.

26. september  "Hann setti svip á bæinn"  Leó Jónsson síldarmatsmaður, fæddur17. nóvember 1904

25. september  Síldarminjasafnið, er stöðugt í þróun og uppbyggingu, þessir tveir kappar vinna við að lagfæra húsnæði "GRÁNU" þar sem verið er að undirbúa innréttingu á "rannsóknarstofu" og "rafmagnsverkstæði" eins og viðkomandi leit út hér á árum áður er síldin var í algleymingi. Ég hitti þá í kaffitímanum í morgun og smellti á þá smiðina mynd.  Róbert Pálsson og Sveinn Þorsteinsson

25. september  Hársnyrtistofa Möggu Dóru Ég lét klipp af mér "lubbann" í gær og tók í leiðinni, þessari mynd, en þetta er Margrét Dóra Árnadóttir hárgreiðslukona, að sinna einum af viðskiptavinum sínum.

25. september  "Hann setti svip á bæinn" Óskar Guðlaugsson skósmiður, fæddur 5. ágúst 1909

24. september Slökkvistöð Siglufjarðar er mjög vel búin tækju, tækjum sem eru í 1. flokks ásigkomulagi, enda er slökkviliðsstjórinn ötull við að sinna sínum tækjum, og bæjarstjórn skilningsrík á því að þessir hlutir þurfi að ver í lagi og veitir miklum fjármunum til tækjakaupa. Ég heimsótti nokkra vinnustaði í morgun að vanda, Slökkvistöðina, þar sem Kiddi var að þvo einn af bílakostinum, því þó þeir séu lítið notaðir sem betur fer, nema við æfingar, þá þurfa tækin andlitssnyrtingu annað slagið sagði Kiddi. - Þá heimsótti ég Mumma hjá Norðurfrakt (nældi þar í "auglýsingu") og kom svo við hjá Jóni Andrjes hjá Vörumiðlun /Olís  Smellið á myndina til að sjá hinar.

24. september  Kiddi G  Allir þekkja Kristinn Georgsson, slökkviliðsstjórann okkar (með fleiru) hann hefur nýlega fengið sér nýjan reiðskjótta, - þessa glæsilegu Hondu. F-55 - Þetta er afmælisgjöfin til mín frá mér sjálfum, sagði hann. Kiddi verður 70 ára um næstu áramót.

24. september  Bókasafnið. Þangað á ég leið annað slagið vegna gagnaöflunar, og þar var ég í gær. Þetta eru; Bókasafnsstjórinn Ingibjörg Ásgeirsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir bókavörður. Ég smellti einnig myndum af þeim gestum sem inni voru að þessu sinni. Smelltu á myndina til að skoða þær.

24. september  "Hann setti svip á bæinn" Matthías Jóhannsson sjómaður/kaupmaður fæddur 23. júlí 1923

23. september   Góðar fréttir:  Alls hafa, það sem af er árinu, flutt til Siglufjarðar 6 fjölskyldur og einstaklingar, samtals á milli 25-30 aðilar börn og fullorðnir. Sumt af þessu fólki er að koma aftur heim, eftir að hafa prófað veruna hinumegin við lækinn.

23. september  Skólabíll.  Krökkunum í barnaskólanum, er keyrt á milli skólahússins og Sundhallarinnar í tengslum við sundkennsluna. Ég kom á vettvang í morgun, - strax er krakkarnir sáu mig, komu þau hlaupandi á móti mer, eins og sjálfur jólasveinninn væri mættur og báðu um myndatöku, sem að sjálfsögðu var framkvæmd  Smelltu á myndina til að sjá fleiri.

23. september Skrifstofa Þormóðs Ramma Sæberg hf. er nýlega flutt í glæsilegt húsnæði, þar sem fiskverkun "Rammans" var áður til húsa. Ég skrapp þangað í morgun og smellti nokkrum myndum af starfsfólkinu við vinnu sína.  Smelltu á myndina til að skoða árangurinn.

23. september  Í síðasta tölublaði Hellunnar var lofgrein um fyrirtækið Rafbær, og þar tíunduð réttilega, hina frábæru þjónustu sem verslunin, starfsfólkið og viðgerðarþjónustan sinnir. Mig langar til að bæta aðeins við, þeirri frábæru þjónustu sem Rafbær veitir,en það varðar tölvuþjónustuna, en þar er Júlíus Hraunberg aðal maðurinn. Myndin er af Júlíusi í morgun, þar sem hann er að uppfæra flókinn hugbúnað fyrir tæknifræðing Rafbæjar, Inga Hauksson.

23. september  "Hann setti svip á bæinn" Eiríkur Guðmundsson bæjarverkstjóri, fæddur 28. júní 1908

22. september  Leikskólinn á Siglufirði  Ég heimsótti Leikskólann eftir hádegið í dag, en ég fékk beiðni / tillögu, alla leið frá Siglfirðingum búsettum í Danmörku, um að gaman væri að sjá andlit ungu kynslóðarinnar einnig. Þetta þótti mér frábær tillaga og lét verða af því strax. Í leikskólanum eru yfir 70 börn, sum börnin eru að vísu fyrir hádegi og önnur eftir ádegi og enn önnur allan daginn eins og gengur. Starfsliðið er um 22.  Af útliti krakkanna og glaðværð þeirra, leyndi sér ekki að þau voru í góðum höndum. Krakkarnir töluðu mikið um það að snjórinn sem var á lóðinni þeirra í morgun, hefði allur farið upp í fjöllin, en þau létu það ekki á sig fá, þau höfðu um nóg að hugsa, og nóg að gera.  Smelltu á myndina, þá sérðu fleiri.

22. september  SR-Vélaverkstæði, ég leit inn til þeirra félaga í morgun, átti við þá einkaerindi,- og smellti þessari mynd af þeim félögum í leiðinni, Sverrir Elefsen, Óskar Berg Elefsen og Sveinn Filippusson

22. september  Fyrsti "snjórinn" !  Smá föl féll í nótt, rétt nóg til að lita göturnar, en tæplega til að lita gróður og bíla, í byggð, en lítilsháttar í fjöllum. En þessi úrkoma skapaði hálku á vegum, sem bílstjórar gerðu sér grein fyrir og engum datt í hug að setja á snjódekkinn, því þeir bjartsýnustu ætla ekki að láta snjóa fyrr en í janúar-febrúar á næsta ári. Ekkert óveður náði til að hrella Siglfirðinga eins og suma nágranna okkar. Nú sem oft áður voru það fjöllin okkar sem veittu okkur skjól.

22. september  "Þau settu svip á bæinn" Hjónin Katrín Pálsdóttir hjúkrunarkona, fædd 10. nóvember 1907 og Hlöðver Sigurðsson skólastjóri, fæddur 29. apríl 1906