Aðgreinum sorp til endurvinnslu

FERNUR Hafin er söfnun á fernum þ.e. mjólkurfernum og fernum utan af ávaxtadrykkjum. K.S. mun ganga í hús og safna fernunum fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði. Eins er hægt að skila fernunum í gám á bensínstöðvarplaninu. Mikilvægt er að skola fernurnar vel. Hægt er að koma 11 fernum samanbrotnum ofaní eina opna fernu.
DAGBLÖÐ Mikið fellur til af dagblaðapappír. Hægt er að skila honum í merktan gám á bensínstöðvarplaninu. Þaðan er hann sendur til Endurvinnslunnar á Akureyri, þar sem hann er pressaður og sendur til Svíþjóðar til endurvinnslu. Mikilvægt er að enginn límborinn, litaður eða vaxhúðaður pappír fari með. Setjið ekki plastpoka í gáminn, einungis blöðin.
HJÓLBARÐAR Á gámasvæðinu á Siglufirði er hægt að skila inn notuðum hjólbörðum. Þaðan eru þeir fluttir til endurvinnslu.

Siglufjarðarbær
Hreinni bær- betri bær
Nánari upplýsingar gefur Arnar Heimir í síma 695 3113 eða
netfangi: arnar@siglo.is
Öllum spilliefnum skal halda vel aðgreindum og skila í áhaldahús. Þau eru síðan send til Endurvinnslunnar á Akureyri |