Lífið 1.-5. október | Lífið 6.-.12. október | Lífið 13.-18.október | Lífið 19.-25. október | Lífið, 26.-31 október

>>>>>>>>>>> Lífið 19.-25. október

 

Til forsíðu
Til baka
VAKA
Þórarinn Vilbergs
Fjörulabb
Símastúlkur
Endurvinnsla
Golfvöllurinn




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

25. október  Golfvöllur Siglfirðinga. Það hefur ekki skeð áður, eftir að Golfvöllurinn var tekinn í notkun, að hægt væri að leika golf seinnipartinn í októbermánuði. En nokkrir áhugamenn í golfi brugðu á leik í dag eftir hádegið. Völlurinn nær yfir allmikið flæmi, allt í kring um Íþróttamiðstöðina að Hóli, í botni fjarðarins, Mér er sagt að þetta sé 9 holu völlur. Í dag er hann eins og á góðum vordegi.
Smelltu á myndina til að sjá "tilburðina."

Það er staðreynd, að síða mín, Lífið á Sigló fær yfir 330 heimsóknir að meðaltali á dag það sem er af þessum mánuði, og fer fjölgandi með degi hverjum. Hver "tölva" er þó aðeins talin einu sinni á sólahring. Því er þetta orðinn hinn ágætasti auglýsingamiðill, fyrir utan að í leiðinni styrkir viðkomandi,  Ljósmyndasafnið og einnig: Lífið á Sigló. Samsvarandi auglýsing, eins og hér fyrir neðan frá bænum, "kostar" þig minna, til styrktar safni mínu en þú heldur, og þú getur komið fyrir myndum og texta að eigin vali. Og rúsínan í pylsuendanum; hún verður áfram á vefnum, þó svo að hún "færist til", henni verður ekki hent í ruslið, eins og blöðunum. Hafðu samband.

25. október  Aðgreining á "sorpi"
                             til endurvinnslu
                
Auglýsing frá bænum,   smelltu á myndina.

25. október "Hann setti svip á bæinn"  Jóhann Helgi Stefánsson bólstrari, fæddur 22. jánúar 1909

24. október Allir Siglfirðingar muna eftir þessu skipsflaki, sem verið hefur á sama stað í marga áratugi, hve lengi veit ég ekki nákvæmlega, ég var að fletta bókum, sem kynnu að segja sögu þessa skips,Ég fann ekkert í fljótu bragði. Þeir sem vita af heimildum um þetta skip sem mun hafa heitið Skogen,(?) vinsamlega sendið mér. Skipið er sagt, að hafi brunnið og síðan rekið á þann stað sem það er nú. Það hefur nokkuð rýrnað með tímanum, og nú í briminu sem kom þann 21. september sl. rýrnaði það nokkuð til viðbótar. -  Myndin er tekin í gær á fjöru 23/10

24. október  "Hann setti svip á bæinn"  Stefán Friðbjarnarson, fv, bæjarstjóri, fæddur 16. júlí 1928

23. október  Varðskipið Ægir kom hingað í nótt, og fór héðan í morgun.

23. október  Símastúlkur á Siglufirði og í Fljótum. - Og hver var það sem hélt því fram að hinar landsfrægu Símastúlkur Landssímans, á Siglufirði og í Fljótum, væri útdaður þjóðflokkur. Það er sko fjarri lagi. Þessi fríði hópur er að vísu hættar að tengja númerin með handafli, eins og gert var hér áður fyrr, og að auki hættar störfum hjá Landssímanum, og sumar þeirra, (ekki allar) jafnvel farnar af vinnumarkaðinum. En þær eru eldhressar og kátar að venju, og líta mjög vel út eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmynd, sem ég tók í gærkveldi. En þær komu saman í Kiwanishúsinu, til að minnast gömlu góðu daganna og fagna því að vera til.

23. október  Vantar þig veisluborð, talaðu þá við Kobba bakara. Þær voru í skýjunum símastúlkurnar á myndinni hér fyrir ofan, og vildu að ég tæki einnig mynd af veisluborðinu þeirra, sem Jakob Kárason í Aðalbakarí, útbjó handa þeim.

23. október  "Hann setti svip á bæinn"  Sigurður Kristjánsson sparisjóðsstjóri, fæddur 24. október 1888

22. október  Eftirfarandi er hluti af frétt frá www.local.is "Jafnframt hefur FH-Rækja hf. samið við útgerðarfélagið Ljósavík í Þorlákshöfn um kaup á tveimur rækjuskipum félagsins, Aski ÁR og Gissuri ÁR, ásamt aflaheimildum sem nema um 6% af heildarúthafsrækjukvótanum. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki veðhafa." 

--  Spurningin er: Má draga þá ályktun af þessu að eigendur Ljósavíkur sé með þessum aðgerðum að búa sig undir að loka Rækjuverksmiðjunni Pólar á Siglufirði, eða jafnvel að gera hana gjaldþrota, þar sem með þessum aðgerðum sýnist mér þeir ekki hafa áhyggjur af hráefnisöflun Pólar, með því að flytja 6% heildarúthafsrækjukvótanum, og skipin með, til Húsavíkur. Þetta eru slæmar fréttir fyrir þessa 20-30 starfsmenn sem vinna hjá Pólar í dag, og raunar Siglufjörð í heild.

22. október  "Hann setti svip á bæinn" Sæmundur Dúason kennari, fæddur 10. nóvember 1889

21. október  Síðasti farmurinn ! Askur ÁR 4 er hér að landa í dag,  - að líkindum í síðasta sinn á Siglufirði, rækjufarmi til Rækjuverksmiðjunnar Pólar á Siglufirði En búið er að selja skipið til Húsavíkur. Kvíði ríkir hjá þeim 20-30 starfsmönnum, sem hjá Pólar  vinna, þar sem Askur hefur aflað um helmings þess rækju, sem unnin hefur verið hjá Pólar. Um þessar mundi standa yfir viðræður við bæjaryfirvöld um það ástand sem skapast hefur, vegna þessa gjörnings.

21. október Sund eða fjörulabb?  Fjaran var valin, þegar Þórarinn Hannesson, spurði krakkana sem áttu að fara í sundtíma voru spurðir. Þau fóru niður í fjöru, og voru á þeim stað er ég sjálfur hafði leikið mér á barns og unglingsaldri. Myndin hér sýnir svæðið sem krakkarnir voru á, ásamt kennara sinum. Svæðið hefur tekið miklum stakkaskiptum á frá því fyrir aldamót (þetta er skrítin setning) nánar til tekið árin 1945-1970 En aftasta myndin í röðinni af þeim 12 sem sjást, er þú smellir á myndina er tekin um 1970 og sést hvernig svæðið sem krakkarnir voru á í dag, leit þá út.

21. október  Þingmaður NA-kjördæmis Íslandsmeistari í brids Hinn ungi þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, Birkir Jón Jónsson, varð um s.l. helgi Íslandsmeistari í einmenningskeppni í Brids en spilamennska er aðal áhugamál þingmannsins. Með Birki Jóni á myndinni er faðir hans, Jón Sigurbjörnsson, en hann er fráfarandi forseti Bridssambands Íslands og veitti hann verðlaunin í mótslok.  Frétt og mynd frá www.local.is   Og auðvitað, þá eru þetta Siglfirðingar.

21. október  "Hann setti svip á bæinn"  Jóhann Þorvaldsson skólastjóri, fæddur 16. maí 1909

20. október  Þórarinn Vilbergsson byggingarmeistari. Allir Siglfirðingar þekkja Þórarinn, sem haslað hefur sér völl síðustu áratugina við allskonar byggingarvinnu. Nú er hann sestur í "helgan stein", eins og sagt er um þá sem komnir eru á efri ár, en Þórarinn er orðinn 84 ára gamall.
Hann hefur þrátt fyrir háan aldur og farinn af vinnumarkaðnum, ekki sest í leti og aðgerðarleysi, heldur þvert á móti, stundað sín áhugamál af meira kappi en áður, því nú hefur hann tíma.
Það sem Þórarinn hefur meðal annars fengist við er að renna úr allskonar trjávið, hina ýmsu gripi, bæði þarfagripi, og skrautmuni. Hann á sér mjög góða aðstöðu uppi á háaloftinu, í húsi sínu við Laugarveg. Gripina smíðar hann á lager, og hefur selt til ýmsa einstaklinga smíðagripina, sem eru mjög fagmannlega gerðir, úr vandlega völdu efni. Smelltu á myndina til að skoða hvað hann hefur haft fyrir stafni.

20. október  Verkalýðsfélagið Vaka á Siglufirði. Þangað fór ég í morgun og tól myndir af starfsfólkinu. Smelltu á myndina

20. október  Bátahúsið. Byrjað er að þekja Bátahúsið, það er gert með einingum sem hafa verið smíðaðar af Berg hf, sem sér um verkið.

20. október "Hann setti svip á bæinn"  Guðmundur Guðmundsson málari, fæddur 31. mars 1920

19. október Íbúum á Siglufirði fjölgaði á tímabilinu júní - september.  - Íbúum á Siglufirði fjölgaði um 3 á tímabilinu júní til september, þ.e. ef aðfluttir voru þremur fleiri heldur en brottfluttir. Er þetta í fyrsta skipti síðan tekið var á móti flóttamönnum að fjölgun verður á þriggja mánaða tímabili sem Hagstofa miðar við. Á tímabilinu janúar til september voru brottfluttir hins vegar 6 fleiri heldur en aðfluttir þannig að fækkunin er 6 það sem af er árinu. Þessi frétt, (ekki myndin) er sótt á vefinn siglo.is -- en ef þú leitar eftir sömu upplýsingum á vef Hagstofunnar.! Hvar þarftu að leita? Jú þú þarft að leita í gögnum sem tilheyra Norðurlandi VESTRA -  Ekki í Gögnum Eyjafjarðarsýslu eða Norðurlandi EYSTRA. --- AF HVERJU?   Vita menn ekki að, frá því að "elstu menn muna," að Siglufjörður hefur alla tíð, verið í Eyjafjarðarsýslu?

19. október  Hinir dæmigerðu haustlitir, hafa nú tekið við af hinum græna blæ sumarsins. Fjöllin, húsin, og lognið gerir þessa mynd táknræna fyrir Siglufjörð. Það er mikill raki í loftinu, eins og svo oft á haustin, þoka og snjólitur til fjalla, en hangir samt "þurr". Álftirnar sem á þessari tjörn hafa verið frá í haustbyrjun, eru þarna enn, en tjörnin, sem ég verð að játa, að vita ekki hvað heitir, speglar sínu fegursta í rökkurbyrjun ! kl. 16:00 í dag, nokkur nöfn hafa verið nefnd í mín eyru, en ekkert séð "skjalfest".  Hún hefur verið kölluð ýmsum nöfnum. En hvað heitir hún? (skjalfest)

19. október  Málmey SK 1  Frystitogarinn frá Sauðáskrók, kom hingað í morgun. Hann var búinn að vera úti á veiðum er uppgötvaðist að umbúðir höfðu ekki verið rétt afgreiddar um borð, en í morgun kom bíll frá Sauðárkrók með umbúðir, Togarinn notaði og biðina til að taka hér olíu.

19. október "Hann setti svip á bæinn" Sveinn Ásmundsson byggingameistari, fæddur 16. júní 1909