Þarna er sonur Sidda, Kristján við annan mann að gera að fiskinum
Þetta er hann Sigtryggur Kristjánsson, ætíð kallaður "Siddi" hann lítur ekki út fyrir að vera orðinn 71 árs gamall. Þarna er hann að líta yfir vinnusvæðið sitt þarna á Óskarsbryggju.
Þarna hefur kvíin verið þrengd, svo auðveldara sé að háfa fiskinn
Háfinum er slakað niður í kvína og kranamaðurinn reynir að fá sem mest í hafinn hverju sinni.
Þorskinum er síðan losað í fiskikör
Þarna er Siddi yfir einu karinu að gera að fiskinum.
Þarna gaf Siddi sír tíma til að rabba við kunningja sem komu til að fylgjast með.
Smá él var þegar ég var á staðnum, doppurnar eru snjókornin sem koma í ljós við flashglampann. (ekki nota flash ef hægt er að komast hjá því, þegar snjóar eða rignir, þegar myndir eru teknar úti.)