Lífið 1.-7. des.2003 | Lífið 8.-14. des. 2003 | Lífið 15.-21 des 2003 | Lífið 22.-31 des. 2003

>>>>>>>>>>> Lífið 22.-31 des. 2003

 

Til forsíðu
Til baka
Dansklúbburinn
Jólahús
Þorláksmessukvöld
Myndlistasýning
Blysfarar
Jólabarnaball Kiwanis
Kveðja frá USA
Flugeldasala




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

31. desember 2003   Hin hefðbundna flugeldasýning, sem Skíðafélagið sér um hefst klukkan 9 í kvöld,  - ef skyggni verður betra en nú í hádeginu, annars verður skotunum frestað til betri tíma.  Það eru margir aðilar sem koma að þessari flugeldasýningu, Björgunarsveitin, bæjaryfirvöld og hin ýmsu félagasamtök.  Munið, að það verður ekki skotið upp, kl. 9 - nema skyggni verði betra en í hádeginu.

31. desember 2003   Farið varlega með eldinn nú um áramótin.
Þessi eldur var fyrirskipaður af Kristni Georgssyni, vegna æfinga, en rífa átti húsið, en nú lætur Kristinn af störfum sem slökkviliðsstjóri 70 ára að aldri, eftir farsælt og árangursríkt margra áratuga starf sem slökkviliðsstjóri. Hafðu þökk fyrir Kiddi. - Nú um áramótin tekur við annar garpur sem slökkviliðsstjóri, sem vafalaust mun sinna starfi sínu af sömu samviskusemi og sá fráfarandi, en það er Ámundi Gunnarsson, vélsmiður.
Vonandi þarf hann ekki að glíma við svona elda, í framtíðinni, - en það er undir okkur komið. Förum varlega með eldinn. --- Til hamingju með starfið Ámi.

31. desember 2003   þau eiga afmæli í dag


Smelltu á mynd

31. desember 2003   "Hann setti svip á bæinn, og gerir það enn" 
Sigurjón Sæmundsson
prentari og f.v. bæjarstjóri, fæddur 5. maí 1912

30. desember 2003   Flugeldasala Kiwanisklúbbsins Skjaldar annarsvegar og sala Björgunarsveitarinnar Strákar hinsvegar er á fullu nú fyrir áramótin, og ber söluaðilum saman um að salan verði sennilega meiri nú en fyrir ári. Kiwanis félagarnir á myndinni hér til hliðar, Sigurður Ólafsson, Ágúst Stefánsson að lýsa sölunni eins og laxveiði (hann var að draga fangið saman þegar ég smellti, hann var nærri búinn að gefa Salla utanundir með armtreyjunni) - og Salmann Kristjánsson. Smelltu á myndina til að skoða fleiri myndir frá flugeldasölu.

30. desember 2003  Svona til uppfyllingar, þessi tröppuhandrið ættu að vera sumum kunnugleg.

30. desember 2003  Kveðja frá Siglfirðingum í U.S.A.
 

Smelltu á myndina.

30. desember 2003   Hann á afmæli í dag

30. desember 2003    "Hann setti svip á bæinn" Jóhannes Sigurðsson, Skarðdal, fæddur 4. júlí 1910

29. desember 2003   "Hann setti svip á bæinn" Hannes Ásdal, fæddur 20. janúar 1926

28. desember 2003   Aðsent: -  Jóla-barnaball Kiwanis í Alþýðuhúsinu. Fékk nokkrar myndir sendar frá Massý og Salla !  --Og í viðbót, frá Bigga Björns

Smelltu á myndina.

28. desember 2003  Hann á afmæli í dag

28. desember 2003  Þeir voru að ljúka við, þessir garpar, að koma fyrir rafljósum á Hvanneyrarskálarbrún og ártalinu í hlíðinni, eins og sumir þeirra hafa unnið við allt frá barnæsku. En þeir eru allir tengdir Skíðafélaginu Skíðaborg, þessir piltar. ------

     Einherji 25. janúar 1947  Á þrettándadagskvöld s.l. gafst á að líta á brún Hvanneyrarskálar - ánægjulega og eftirminnilega sjón. –

Blysum í tugatali hafði verið komið fyrir á skálarbrúninni og niður með vegkantinum, sem liggur frá skálinni. Kyndlar þessir loguðu glatt langa hríð - fólk hópaðist saman á götum úti og dásömuðu dugnað þeirra manna sem hér voru að verki og létu í ljós ánægju sína yfir þeirri tign og fegurð, sem þessi blys settu yfir bæinn á þessu kyrrláta vetrarkvöldi. ...... niðurlag þessa fréttar úr Einherja, er á tenglinum:  http://frontpage.simnet.is/biosaga/1947.htm  Smelltu líka á myndina.

28. desember 2003  Aðsent:   Sæll félagi Steingrímur og gleðilega hátíð. Þú mátt setja þetta inn sem bréf frá áhugasömum Siglfirðingi. 

 -- Ábending til bæjaryfirvalda og íþróttaforustu.Mér finnst allt of lítið gert úr því að auglýsa okkar frábæra skíðasvæði og að það sé opið.

Útvarpið tekur allar svona tilkynningar fegins hendi, það eina sem þar að gera er að koma sér í samband við fréttastofu útvarps tímanlega fyrir fréttir.

Þetta á að vera eitt fyrsta verk starfsmanns skíðasvæðis eða forsvarsmanns þess, og við eigum að láta þess alltaf getið að skíðasvæðið sé opið, og lýsa veðri og snjóalögum.
Látum heyrast frá okkur.

e.s. Einnig vantar upplýsingar inn á Sigló.is um viðburði, þar er ekkert að finna. Eigum við ekki bara að fela Steingrími umsjón með þessu líka, síðan hans er alveg frábær, og mikið lesin.

 

Hvað varðar þann hluta þessa erindis, sem snertir mig, þá held ég aldeilis, að ég hafi  sagt frá og birt myndir frá hinum ýmsu atburðum, þó svo oft hafi brunnið við, að ég frétti fyrst af sumum þeirra, þegar þeim er lokið,  - þar sem viðkomandi hafa ekki haft áhuga á, (???) að ég sé þar nálægur, eða láta mig vita..  Og hvað varðar afskipti af www.siglo.is  þá eru þessir 6-8 tímar á dag, sem "Lífið á Sigló" tekur af tíma mínum, auk vinnu við Ljósmyndasafnið ofl. alveg nóg fyrir mig, ég er ekkert unglamb lengur. S.K.

28. desember 2003  Þeir hvíla lúin "bein" bílar og menn hjá Norðurfrakt  eftir törnina fyrir jólin. Þessi mynd var tekin af bílaflotanum hans (mummmmmma) í gærkveldi, fyrir utan afgreiðslu Norðurfrakt ehf.

28. desember 2003  "Hann setti svip á bæinn"  Sigurgeir Jósepsson, fæddur 21. janúar 1909
27. desember 2003  Hún á afmæli í dag
Einnig, Andrés Magnússon læknir

27. desember 2003  "Hann setti svip á bæinn"  Haraldur Hálmarsson, fæddur 20. desember 1909

  26. desember 2003   
  Þau eiga afmæli í dag.

26. desember 2003  "Hann setti svip á bæinn"  Vigfús Guðbrandsson, fæddur 27. maí 1927

25. desember 2003   Viðbót við kveðju frá Noregi.
25. desember 2003   Hann á afmæli í dag

25. desember 2003  "Hann setti svip á bæinn"  Hjörtur Karlsson loftskeytamaður, fæddur 14. apríl 1926

24. desember 2003  Kveðja frá Noregi.: Mig langaði að segja frá því að ég var að halda mína fyrstu myndlistasýningu hérna í Noregi eða í Flekkefirði þar sem við höfum búið síðustu 7½ ár. Ég var með sýninguna í versluninni sem ég og Særún rekum ásamt nuddstofu , það er allt gott af okkur að frétta ef það er í lagi sendi ég jóla mynd af okkur með mömmu og pabba þar sem þau eru í heimsókn hjá okkur, með jóla kveðju Sigrún Halldóra Jóhannsdóttir. h-agnars@online.no   (Sigrún, myndin með pabba og mömmu kom ekki, en ég birti þessar sem komu, með kveðjunni.)

24. desember 2003  Í gærkveldi á Þorlákskvöldi, rölti ég á milli verslunarstaða og skaut nokkrum "föstum skotum" með myndavél minni.  Ég heimsótti alla þá staði sem opið var á, á milli klukkan 19:30 og 21:00 Ef þú smellir á myndina, sem tekin var í Apótekinu, þá sérðu afrakstur minn.

24. desember 2003  Tækni og umhverfisnefnd, verðlaunaði að venju fyrir bestu og athygliverðustu "jólaskeytingu" íbúðarhúsa, lóða og fyrirtækja. Fyrir valinu urðu að þessu sinni. Kaffi torg (fyrirtækið)  - og hús þeirra hjóna Helgu Óladóttur og Óskars Berg Elefsen.  Smelltu á myndina, og skoðaðu verðlaunahúsin og fleiri hús, valin (til myndatöku) af mér af handhófi.

24. desember 2003   Þau eiga afmæli í dag.

24. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn"  Sigurður Gunnlaugsson. bæjarritari, fæddur 5. október 1906

23. desember 2003 Sparisjóður Siglufjarðar: Vegna aukinna umsvifa í fjarvinnslu hefur Sparisjóðurinn ákveðið að leigja neðstu hæðina á Hvanneyri (gömlu Rammaskrifstofuna) starfsemi hefst þar í byrjun janúar 2004.

Þarna verður Lífsval sparisjóðanna skráð, sem er séreignalífeyrissparnaður sparisjóðanna,en Sparisjóðurinn mun taka að sé skráningu fyrir alla sparisjóðina í landinu þrír starfsmenn hafa verið ráðnir vegna þessa.

 23. desember 2003 Tilkynning frá Siglfirðingafélaginu, í Reykjavík:  ,,,,Jólabarnaball Siglfirðingafélagsins verður laugardaginn 27.des. í húsi KFUM við Holtaveg kl. 14,00 ,,,jafnt fyrir börn sem og fullorðna,,gott tækifæri fyrir Siglfirðinga á Reykjavíkursvæðinu að hittast og spjalla yfir kaffibolla, rifja upp gamlar sögur að heiman.

Desember 1976

 

23. desember 2003  "Hann setti svip á bæinn"  Jón Kjartansson f.v. bæjarstjóri, fæddur 5. júní 1917

22. desember 2003  Hann á afmæli í dag.

22. desember 2003  Kaffi Torg (Nýja Bíó) hefur sett upp jólasvip, sem aldrei fyrr, í höndum nýrra rekstraraðila, það er Ragnheiður Ragnarsdóttir (Didda Ragnars) og Hulda Alfreðsdóttir.

22. desember 2003  Vísir að Danskúbbi Siglufjarðar varð til fyrir 2 árum þegar Anna og Valþór læknishjón fóru af stað með dansæfingar fyrir starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar svo það gæti tjúttað almennilega á þorrablóti. Síðan kom inn starfsfólk Kaupþings ásamt fleirum. Í dag er í klúbbnum rúmlega 20 manns og alltaf bætist við einn og einn.  Dansað er á Kaffi Torgi á sunnudagskvöldum frá klukkan 19.30 til 21. Allir eru velkomnir.  Mér var boðið formlega að mæta, - með myndavélina (ekki til að dansa, það er ekki mín deild) og smellti ég nokkrum myndum eins og venjulega.  Smelltu á myndina og skoðaðu.

22. desember 2003   "Hann setti svip á bæinn"  Axel Schiöth, skipstjóri, fæddur 22. ágúst 1929