Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg, 12½ félagi, eftir að hafa komið fyrir hefðbundnum ljósum fyrir 28. desember 2003 (3893)
Þarna eru drengirnir að koma niður Hvanneyraraskálarhlíð, kófsveittir, þrátt fyrir -6 °C frost. En glaðir í bragði. Það glittir í ártalið 2003 uppi í hlíðinni, - en á miðnætti 2003-2004 breytist það í 2004 - "Ljósastöðin" til hægri.
Þeir voru fúsir að stilla sér upp fyrir mig vegna myndatöku, þarna eru bæði feður og synir í hópnum. Talið frá vinstri, standandi röð: Sigurjón Erlendsson, Egill Rögnvaldsson, Guðmundur Þorgeirsson, Jón Andrjes Hinriksson, Einar Ingvarsson, Snævar Jón Andrésson, Andrés Stefánsson, Mark Duffield. - fremri röð: Stefán Geir Andrésson, Helgi Steinar Andrésson, Skúli Jónasson og Óðinn Feyr Rögnvaldsson.
Og svo var það rúsínan í pylsuendanum, föst venja: -- Ein viskíflaska og 1 kg. af konvekti, sem þurfti að tæma, sem og hefð er fyrir. Þeir fara örugglega létt með það þessir 12 drengir, - hundurinn fær þó ekkert, én ég fékk einn snafs, þegar ég kvaddi. Og þeir fóru inn á "Ljósastöð" til að slappa af og rabba og ....
.