|

3.
júní 2005 Frá afhendingu Ólafs Marteinssonar framkvæmdastjóra
Þormóðs Ramma Sæberg, á fjórum tölvum til Síldarminjasafnsins frá ÞRS, tvær til
nota á skrifstofu safnsins og aðrar tvær sem hýsa Myndasafn
Síldarminjasafnsins, á þriðja þúsund gamalla ljósmynda frá síldarárunum
úr Ljósmyndasafni Steingríms.
En jafnhliða afhendingu tölvubúnaðarins var Myndasafn
Síldarminjasafnsins opnað formlega af Ólafi Marteinssyni og Ólafi
Jónssyni sparisjóðstjóra, en Menningarsjóður Sparisjóðs Siglufjarðar
styrkti það verkefni.
Myndum þeim sem þarna eru til sýnis á eftir
að fjölga verulega, bæði frá Ljósmyndasafni Steingríms, Hannesi
Baldvinssyni ofl. að auki myndum sem eftir er að færa í stafrænt
form, úr öðru myndasafni Síldarminjasafnsins.
Þá verða þarna einnig myndir af málverkum og teikningum.
Enn er eftir mikil vinna við textagerð, lýsingu á myndefninu.
Myndasafnið verður aðgengilegt gestum safnsins , á opnunartíma.
|
Afhending tölvubúnaðar
og opnun á Myndasafni Síldarminjasafnsins
|