Lífið í Júní 1-11 2005 | Lífið júní í 12-18 2005 | Lífið í júní 19-25 2005 | Lífið í júní 26-30 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í Júní 1-11 2005

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurÁ döfinniTenglarAð gefnu...
Umræðan
Að senda myndirVeðurstöðin !BINGO
Laugardagur 11 júní 2005 Keilir - olíuskipið, losaði hér olíu í morgun

Laugardagur 11 júní 2005 Kvennahlaup ÍSÍ fór fram hér í morgun -   hlaupið var frá Torginu og hófst hlaupið kl. 11.00.  --- Ungmannafélagið sá um hlaupið annað árið í röð. Hanna Hrefna sjá um upphitun og veitingar biðu þátttakenda í lok hlaupsins. ---  Myndamöppur Kvennahlaup

Laugardagur 11 júní 2005

Veðurstöðin í Bakka.
Veðrið í hádeginu 
11:15
Hólavegur 27

Hitastig í hádeginu °C

13,7

Mesti hiti frá miðnætti til hádegis °C

14,0

Minnsti hiti frá miðnætti til hádegis °C

9,0

Vindátt í hádeginu

SA

Vindstyrkur í hádeginu m/s

4,0

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

3,6

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

2,4

Mesti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

17,4

Rakastig í hádeginu %

60

Úrkoma í hádeginu mm

0.0

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

0.0

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1023,4ð
   

Vinhraðatafla

 

Laugardagur 11 júní 2005 "Ljóti svipurinn" á fjallinu okkar í Norðurbænum er óðum að breyta ásýnd til hins betra. Suðurverksmenn eru langt komnir með sjálft verkið. - Eftir er að sá grasfræi dreifa áburð á hlíðina og ef það tekst til (betur en við Stóra bola vona ég) þá verður þarna græn hlíð sem ókunnir gera sér ekki grein fyrir, að ekki sé um sköpun náttúrunnar að ræða.

Laugardagur 11 júní 2005 Kvöldsólin síðastliðinn sunnudag rétt fyrir miðnætti. Með þessari mynd frá Hrönn Einars fylgir kveðja til Siglfirðinga, en hún er að "fara æi útlegð" Það er til vinnu á hóteli fyrir vestan, en kemur aftur í haust

Laugardagur 11 júní 2005 Kaupmannasamtökin og Stúlli hjálpuðust að við að lífga upp á mannlífið á Torginu í gær Sturlaugur Kristjánsson (Stúlli) lék létt lög á sviðinu við Torgið á vegum Kaupmannafélags Siglufjarðar. Sumir nutu þess í ró og næði við gosbrunnin, aðrir fyrir framan Kaffi Torg og enn aðrir á þönum á milli verslana - og eða meðan gengið var framhjá.

Laugardagur 11 júní 2005 Ein gömul: 
Haraldur Hjálmarsson - ? - ? - Gottskálk Rögnvaldsson
og Jóhann Guðmundsson

Starfsmenn Kjötbúðar Siglufjarðar
Ljósmyndari ókunnur.

Ég er dóttir Helga Inga og Agnesar Þór, starfsmaður Íslandsbanka á Akureyri. Vinkonu mína  og vinnufélaga bráðvantar hús til leigu á Sigló um verslunarmannahelgina fyrir sig og fjölskyldu sína og vinafólk sitt, því þeim dauðlangar að komast í sjóstöng.  Þetta eru tvær fjölskyldur, í Sjóak, 5 fullorðnir og 6 börn. Þetta er náttúrulega allt sómafólk og þau lofa að ganga vel um og allt það. vinsamlega látið mig vita í netpósti: Vilborg 

Laugardagur 11 júní 2005
Sævarður Einarsson
er 19 ára í dag: hann er að vinna hjá Bás.
Kveðja frá mömmu og öllum á Grundarfirði. 
 
Laugardagur 11 júní 2005
Þórir Hákonarson
er 36 ára í dag
Laugardagur 11 júní 2005
Einar Hermannsson
er 71 árs í dag
Laugardagur 11 júní 2005
Rósa Jónsdóttir
er 40 ára í dag
Laugardagur 11 júní 2005
Helgi Sigurðsson
er 80 ára í dag
Föstudagur 10 júní 2005

Veðurstöðin í Bakka.
Veðrið í hádeginu 
10:30
Seljaland

Hitastig í hádeginu °C

12,6

Mesti hiti frá miðnætti til hádegis °C

13,0

Minnsti hiti frá miðnætti til hádegis °C

11,0

Vindátt í hádeginu

SV

Vindstyrkur í hádeginu m/s

4,0

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

3,6

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

8,5

Mesti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

17,4

Rakastig í hádeginu %

58

Úrkoma í hádeginu mm

0.0

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

0.0

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1025,3ð
  Sól

Vinhraðatafla

 

Föstudagur 10 júní 2005 Börn frá Leikskálum sem voru í göngutúr í morgun ásamt gæslumönnum sínum, horfa hér hugfangin á gosbrunninn á Torginu, en dælan sem dælir vatninu í hann var einmitt gangsett í morgun.

Föstudagur 10 júní 2005  Stokkönd (?)
Föstudagur 10 júní 2005  Ein gömul: 

Fimmtudagur 9. júní 2005 Opið hús og veitingar hjá Katrínu Sif Andersen.
Einstakt tækifæri til að kynnast Aloe Vera vörunum frá Forever Living Products.  -- Fimmtudags og Föstudagskvöld verður opið hús hjá mér kl. 20:30. Harpa Hauksdóttir sjálfstæður dreifingaraðili kemur og verður með mér til halds og trausts. Fleiri og fleiri bætast í hópinn og eru margir sem geta ekki hætt eins og ég. --- ALLIR VELKOMNIR, LÉTTAR VEITINGAR Á BORÐUM : -- Aloe Vera Gel drykkurinn hefur haft jákvæð áhrif á heilsufar margra og hefur m.a. reynst fólki með meltingartruflanir, exem, psoriasis, liðagigt og astma sérlega vel.--- Frá örófi alda hefur Aloe Vera jurtin verið þekkt fyrir lækningamátt sinn og næringareiginleika.  Talið er að hin fagra Kleópatra hafi notað plöntuna í fegrunarkrem á meðan hinn gríski læknir Dislorides notfærði sér hina læknandi eiginleika jurtarinnar.  Katrín Sif

Fimmtudagur 9. júní 2005

Veðurstöðin í Bakka
Veðrið í hádeginu
Fimmtudagur 9. júní 2005
Hvanneyrarbraut 23
klukkan 10:30

Hitastig í hádeginu °C

11,8

Mesti hiti frá miðnætti til hádegis °C

12,0

Minnsti hiti frá miðnætti til hádegis °C

6,0

Vindátt í hádeginu

S

Vindstyrkur í hádeginu m/s

4,54

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

7,2

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

8,5

Mesti meðal vindur síðustu 24 t. m/s

18,3

Rakastig í hádeginu %

55

Úrkoma í hádeginu mm

0.0

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

0.0

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1025,36ð
   

Vinhraðatafla

 

Fimmtudagur 9. júní 2005 Ný og fögur ásýnd er að myndast við innkeyrsluna í bæinn okkar. Stórt og fallegt svæði, sem verður malbikað undir bílastæðum, hellulögðum gangstígum, grænum flötum, bekkjum og borðum og fallegri tjörn með táknrænum "grjótsúlum"  sem tákna eiga fjölda snjóflóðavarnargarðanna. -- Í dag er tjörnin mórauð á meðan unnið er á svæðinu, en verður tær og vatnsmeiri þegar frá líður. Stefnt er að því að þetta svæði verði tilbúið fyrir Verslunarmannahelgina. Allar líkur eru á að það takist, en verkinu í heild stjórnar Guðmundur Sigurbjörnsson verkstjóri Suðurverks með áhuga og elju, en hann stjórnar einnig framkvæmdum við snjóflóðavarnargarðana.

Fimmtudagur 9. júní 2005  Að gefnu tilefni, til að koma í veg fyrir misskilning:
Varðandi birtingu afmælisfregna og myndir af afmælisbörnum á öllum aldri, svo og nýburum. Þá er það í 99 % tilfella aðsendar upplýsingar sem eru birtar. Ég leita ekki sjálfur uppi afmælisdaga fólks, en mér er sönn ánægja að birta slíkar fréttir hér af öllum Siglfirðingum nær og fjær og eða þeim tengdum. Ég veit að þetta er vinsæll vettvangur og því ærin ástæða til að viðhalda honum.

Fimmtudagur 9. júní 2005  Ein gömul: 
Hljómsveit Þórðar Kristinssonar eða Gautar ?  Ekki er ég viss, en þetta eru: Guðmundur Þorláksson - Þórður Kristinsson - Þórhallur Þorláksson og Guðmundur Frímannsson. líklega um 1955 (?)

Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Fimmtudagur 9. júní 2005
Stefán Jóhannsson
er 46 ára í dag
Fimmtudagur 9. júní 2005

Miðvikudagur 8. júní 2005 Glóa-fólk. Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 11. júní nk. Hér á Siglufirði verður hlaupið frá Torginu og hefst hlaupið kl. 11.00.  --- Ungmannafélagið Glói mun sjá um hlaupið annað árið í röð. Hanna Hrefna mun sjá um upphitun og veitingar munu bíða þátttakenda í lok hlaupsins. ---
Forsala á bolum mun fara fram í dag á Torginu frá kl. 15.00 – 18.00.

Miðvikudagur 8. júní 2005 Óhapp í bátahöfninni. Lítill plastbátur sökk einhvern tíma í nótt. Eigandinn hafði farið á vettvang um miðnættið, ætlaði þá að snúa bátnum upp í vindinn sem þá var allsnarpur, en treysti sér ekki til þess og bætti í þess stað á bátinn böndum. En í morgun tóku menn eftir því að hann var sokkinn. Myndin sýnir er verið var að undirbúa að hífa bátinn á land.

Veðrið í hádeginu
Miðvikudagur 8. júní 2005

Veðurstöðin í Bakka
Miðvikudagur 8. júní 2005
Lækjargata 8

Hitastig í hádeginu °C

10,1

Mesti hiti frá miðnætti til hádegis °C

10,1

Minnsti hiti frá miðnætti til hádegis °C

7,2

Vindátt í hádeginu

SV

Vindstyrkur í hádeginu m/s

9,4

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

7,6

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

2,8

Mesti meðal vindur síðustu 24 t. m/s

24,6

Rakastig í hádeginu %

63

Úrkoma í hádeginu mm

0.0

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

0.7

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1000,6ö
   

Vinhraðatafla

 

Miðvikudagur 8. júní 2005 Í tilefni af 50 ára afmæli Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar 22. nóvember 2003 lét félagið framreikna gjafir til Sjúkrahúss Siglufjarðar, nú Heilbrigðisstofnunin Siglufirði, frá 1955 til verðlags í desember 2004.  -  Heildarupphæð framreiknuð er um 85 m.kr sem skiptist þannig:
Frá árinu 1955 til 1973 nam gjafafé, á verðlagi í desember 2004, til nýbyggingar sjúkrahúss um 40 m.kr
Frá árinu 1973 til 2004 nam gjafafé, á verðlagi í desember 2004, til tækjakaupa um 45 m.kr.
    Af þessu tilefni hélt framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar kaffisamsæti fyrir kvenfélagskonur og afhenda þeim bréf frá Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra þar sem hann þakkar þeim fyrir frábært starf og framlag til stofnunarinnar. -- Á myndinni til vinstri er Magðalena Hallsdóttir  formaður og Konráð Baldvinsson framkvæmdastjóri eftir afhendinguna, baka til er Valþór læknir.
Hin myndin skýrir sig sjálf þegar smellt er á hana

Miðvikudagur 8. júní 2005
Jón Gunnar Sigurgeirsson
er 26 ára í dag
Miðvikudagur 8. júní 2005

Miðvikudagur 8. júní 2005 Ein gömul: 
Þetta er EKKI fótbolti, heldur handboltakappleikur á milli KS kvenna og Hofsóskvenna árið 196? á Hofsósvelli

Þriðjudagur 7. júní 2005 Unglingavinnan er komin á fullt skrið hjá bænum, þessi mynd var tekin norðan við Stórabola í morgun.

Þriðjudagur 7. júní 2005 Veðurmynd klukkan 11:50

Veðurstöðin í Bakka
Þriðjudagur 7. júní 2005 klukkan 10:00
Hávegur 60 - Hlíðarhús

Hitastig í hádeginu °C

12,7

Mesti hiti frá miðnætti til hádegis °C

12,7

Minnsti hiti frá miðnætti til hádegis °C

8,5

Vindátt í hádeginu

NNA

Vindstyrkur í hádeginu m/s

2,2

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

2,7

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

0,0

Mesti meðal vindur síðustu 24 t. m/s

4.0

Rakastig í hádeginu %

74

Úrkoma í hádeginu mm

0.0

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

0.2

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1011,0
   

Vinhraðatafla

 

Þriðjudagur 7. júní 2005 Veðurstöðin í Bakka er komin á sinn stað og komin í gagnið. Fyrstu skráningar frá henni koma í hádeginu, þær verða settar inn handvirkt þar til 2. áfangi verður keyptur og tengdur. Ég naut dyggrar aðstoðar Óskars Berg Elefsen við uppsetninguna sem lauk með því að mastrið sem hann smíðaði,  - ásamt mælibúnaðinum var reyst í gær og búnaðurinn tekin í gagnið.  Við kaupin og uppsetninguna naut ég margra góðra handa, en af öðrum ólöstuðum verð ég að nefna Baldvin Einarsson og Óskar Berg Elefsen sem voru aðal driffjaðrirnar frá upphafi til enda. -  
2. áfangi
, sem tengir stöðina "Live" við "Lifið á Sigló" verður keyptur væntanlega í sumar -- 3. áfangi verður alvöru vef myndavél "Live" (seinni tíma verkefni)  Myndamöppur Veðurguðirnir   --
Staðsetningin er: 66°09 N 586 - 018°54 V 199

Þriðjudagur 7. júní 2005
Þormóður Rammi Sæberg hf.
fékk 200 tonn af frosinni rækju með flutningaskipinu Florinda í gær.

Þriðjudagur 7. júní 2005 Aðsent: - Seinni partinn í dag, á 44 ára skírnarafmæli mínu, fór ég út í Langeyrarhólmann með trjáplöntur, mold, grasfræ og áburð. Birki var sett niður (1 planta), sem og orravíðir (1 planta), skriðvíðir (1 planta), strandavíðir (2 plöntur) og urðarvíðir (1 planta). Planið er að kanna hvaða tegundir eru harðgerðastar, og því góðar til að mynda skjól þarna úti. -  Læt fylgja hér 5 myndir, m.a. af eina landnemanum þetta sumarið.
Fyrir nokkrum dögum hafði ég farið út með gullvíði og loðvíði. Sumt af því sem sett var niður í fyrra hefur lifað af veturinn, en annað dáið. Það kemur á óvart að alaskavíðirinn virðist ekki pluma sig þarna úti, blöðin eru skemmd, jöðrunum, annaðhvort vegna seltu eða einfaldlega af þurrki. Gullvíðirinn er hinsvegar nægur, sem og loðvíðirinn. -- SÆ
  Myndamöppur Landnemar 

Þriðjudagur 7. júní 2005 Aðsent:  Þrjár myndir úr Sjómannastund 2005. Þar heiðraði Sjómannadagsráð Siglufjarðar Gylfa Ægisson.

Þriðjudagur 7. júní 2005 Aðsent 
Myndir úr starfsfræðslu 10. bekkjar 2005-06-03
Myndamöppur 10. bekkur

Þriðjudagur 7. júní 2005 Sif Friðleifsdóttir, heimsækir Siglufjörð reglulega og dvelur hér oft um helgar, það gerði hún um síðustu helgi og tók að venju helling af myndum Hér á tenglunum fyrir neðan má sjá nokkrar þeirra á vef hennar. 

Þriðjudagur 7. júní 2005 Ein gömul:  Róaldsbrakki og nágrenni.
Núverandi umráðasvæði Síldarminjasafnsins

Mánudagur 6. júní 2005 Ekki veit ég hvert ég á að beina orðum mínum. En taki það til síns sem eiga að gera það (?)  Margir hafa amast yfir því að hundaeigendur hirði ekki upp "stykkið" sem hundar þeirra skilja eftir sig og alls ekki af ástæðulausu. Í bænum sjálfum er ekki erfitt fyrir hundaeigendur að losa sig við´"stykkin" í næsta rusladall, en þeir sem fara með hunda sína í göngutúr til dæmis eftir Leiruvegi og fram á fjörð eiga ekki gott með að losna við margnefnd "stykki" því hvergi er að finna rusladalla á þessum leiðum.
Henda þessu bara í sjóinn eða vatnið segja sumir, en átta sig ekki á því að þessu fylgir plastpoki sem seint eða aldrei eyðist í náttúrunni. Þeir sem eiga, komið fyrir nokkrum rusladöllum á þessum leiðum, og ekki hvað síst við afdrepin sem gerð hafa verið sumstaðar á þessari leið. Og annað sem mætti gera, nú hefur sést til kolluunga á Leiruvegi; það vantar viðvörun til akandi að gæta sín á þeim.

Mánudagur 6. júní 2005 Byrjað er á því að fylla upp að nýju Hólsbrúnni yfir Fjarðará og við að tengja hitaveiturör og fleira sem komið er fyrir í brúargólfinu. - Mörgum finnst væntanleg brú vera full lág (hæðarpunktar) miðað við veginn að vestan verðu, sem þarf að lækka til að tengjast brúnni.
En verkfræðingarnir ráðu þessu víst og svona verður þetta.

Mánudagur 6. júní 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 15 °C
Norðan andvari
Sólarglæta

11:00
Þormóðsgata 26

Mánudagur 6. júní 2005 Valgeir Sigurðsson flaggaði íslenska fánanum í gær í tilefni af Sjómannadeginum, fáninn sést fyrir miðri myndinni fyrir handan fjörð, þar sem horft er niður eftir Aðalgötunni   seinni partinn í gær, hin er af móðir (?) og börn slappa af í sólinni og borða ís. -- Í dag ætlar Valgeir að flagga sænska fánanum í tilefni af þjóðhátíð Svía, en á laugardag flaggaði hann einnig sænska fánanum í tilefni afmælis einstaklings innan konungsfjölskyldunnar.

Mánudagur 6. júní 2005 Aðalheiður Eysteinsdóttir. Skúlptúr um mannlíf Siglufjarðar -- Opið frá 13-17 alla daga - til 7. júní, ókeypis aðgangur.
Hér eru nollrar myndir af skúlptúrum hennar, þekktar persónur úr sögu Siglufjarðar.
Myndamöppur Skúlptúr

Mánudagur 6. júní 2005 Sjómannadagurinn -  Klifur, grillaðar pylsur og kaffiveitingar

Myndamöppur Kaffi
Mánudagur 6. júní 2005 Sjómannadagurinn - Sjóferð með Múlaberg

Myndamöppur Sjóferð

Mánudagur 6. júní 2005 Sjómannadagurinn - Blómsveigur lagður á minnismerki drukknaðra

Myndamöppur Blómsveigur

Mánudagur 6. júní 2005 Sjómannadagurinn, laugardagur, Myndamöppur Kappróður
Mánudagur 6. júní 2005
Elín Þór Björnsdóttir
er 45 ára í dag
 
Mánudagur 6. júní 2005
Guðný Ósk Friðriksdóttir
er 73ja ára í dag
Mánudagur 6. júní 2005
Ólafur Haukur Kárason
er 47 ára í dag

Sunnudagur 5. júní 2005 Sjómannadagurinn - Blómsveigur lagður á minnismerki drukknaðra sjómanna, við athöfn klukkan 11:00 í morgun.

Myndasyrpa síðar

Sunnudagur 5. júní 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 14 °C
Norðan gola
Sólskin

11:30
Ljósastöðin - sem  reisti var árið 1936

Sunnudagur 5. júní 2005 Kappróður og fleira til skemmtunar fór fram í gær við höfnina vegna Sjómannadagsins. Því miður varð ég að yfirgefa vettvang áður en dagskránni lauk, og tók því færri myndir en ég ætlaði. En myndirnar og væntanlegar myndir sem teknar verða í dag, munu birtast sem sería, ef til vill seinni partinn - eða á mánudag. (mikið að gera hjá mér við annað) Þeir sem eiga góðar myndir af koddaslag og brettahlaupi sem fram fór á laugardaginn; slíkar myndir eru vel þegnar til birtingar hér á síðu minni með mínum, í væntanlegri myndasyrpu vegna Sjómannadagsins.

Sunnudagur 5. júní 2005 Árgangur 1938 kom saman nú um helgina. Meðal annars sem þau tóku sér fyrir hendur, var að bjóða vistmönnum á Skálarhlíð upp á kaffi og meðlæti í salnum að Skálarhlíð. Þar mættust margir sem þekktu hvor aðra frá sínum yngri árum. Ég mætti þar og tók nokkrar myndir sem sjást á Myndamöppur 1938

Sunnudagur 5. júní 2005 Það vita það sennilega allir fótboltakappar og áhangendur, en ég fékk sendar upplýsingar í tölvupósti  í gær um það, að Siglfirðingurinn Grétar Rafn Steinsson væri að spila með Landsliðinu í gær. Hann er sonur Steins Elmars Árnasonar og Guðlaugar Guðmundsdóttur, en móðir hans átti afmæli í gær.

Sunnudagur 5. júní 2005 Ein gömul:  Verslunar og íbúðarhúsið Einco brennt til grunna af slökkviliði Siglufjarðar. En húsið átti að rífa vegna annarra bygginga (Olíuverslun) - en slökkviliðsmenn notuð húsið til æfinga og kveiktu síðan í því. Æfingarnar gengu að óskum og húsið var síðan látið brenna. Blanka logn var svo engin var hættan, þrátt fyrir nálægð bensínstöðvarinnar

Sunnudagur 5. júní 2005
Hallgrímur Smári Skarphéðinsson
er 26 ára í dag --  Með honum er ?
 
Sunnudagur 5. júní 2005
Júlía Birna Birgisdóttir
er 44 ára í dag
Sunnudagur 5. júní 2005
Sunna Ægisdóttir
er 15 ára í dag
dóttir Ægis Sverrissonar og Fróðnýjar Pálmadóttir

Laugardagur 4. júní 2005 Óvenjuleg sýning í Bátahúsinu. Í morgun var verið að losa flutningabíl fyrir framan Bátahúsið af allskonar furðuverum innpökkuðum í plast. Þetta eru ýmis skúlptúr í mannslíki, sem verða þarna til skoðunar --  Aðalheiður Eysteinsdóttir Skúlptúr um mannlíf Siglufjarðar -- Opið frá 13-17 alla daga - til 7. júní, ókeypis aðgangur

Laugardagur 4. júní 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 13 °C
Norðan gola
Sólskin

Laugardagur 4. júní 2005 Aðsent: Félagar úr kirkjukór Siglufjarðar tóku sig til og mættu heima hjá Birni Jónassyni og Ásdísi Kjartansdóttur kl. 7.15 í morgun og vöktu heimilisfólkið með söng og trompet leik. Fyrst var spilað lagið Siglufjörður á trompet og síðan söng kórinn afmælissönginn. Uppátækið vakti óskipta athygli og ánægju hjá heimilisfólkinu að Suðurgötu 56 og var kórnum boðið upp á dýrindis afmælisköku, kaffi og gos í sólskálanum SH  Myndamöppur Björn

Laugardagur 4. júní 2005 Frá áhöfn og útgerð Ásdísar Ólafar SI.23. --  Þó að seint sé, viljum við koma á framfæri kærum þökkum til Björgunarsveitarinnar STRÁKA, og áhafnarinnar á björgunarskipinu SIGURVIN. Viðbrögð þeirra og vinnubrögð sýndu enn og einu sinni, þörfina fyrir góðan og öflugan björgunarbát og vel æfða áhöfn. --- Við kunnum öllum þeim er að þessu máli komu, og öllum Siglfirðingum hjartans þakkir fyrir aðstoð, hlýhug og góðar óskir í okkar garð.
Sigurður Ólafsson -- Ragnar Hauksson -- Árni Stefánsson -- og fjölskyldur þeirra allra.
ES: Óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með Sjómannadaginn

Laugardagur 4. júní 2005 Frá Örlygi Í gær tók Síldarminjasafnið formlega við sínum fyrsta tölvubúnaði að gjöf frá Þormóði ramma – Sæbergi hf. Þetta eru tvær skrifstofutölvur og prentari ásamt tveimur sýningartölvum í fræðslusal Bátahússins. Samtímis var ný myndasýning Steingríms Kristinssonar opnuð í sýningartölvunum. Menningarsjóður Sparisjóðs Siglufjarðar - hafði fyrr á þessu ári styrkt Steingrím til þess að miðla myndum sínum til safnsins og koma þeim þannig fyrir almenningssjónir. Í þessari fyrstu syrpu úr myndasafni Steingríms hafa gestir Síldarminjasafnsins aðgang að 2-3000 myndum í ýmsum flokkum sagnfræðilegra mynda frá síldarárunum á Siglufirði og víðar. Síldarminjasafnið hefur óskað eftir því að koma á framfæri bestu þökkum til stjórnenda Þormóðs ramma – Sæbergs hf, Sparisjóðsins og Steingríms fyrir þann vinarhug sem felst í þessum góðu gjöfum og styrkjum.   
Myndamöppur Tölvubúnaður

Laugardagur 4. júní 2005 Ein gömul:
Sæfinnur NK 76 við Pólstjörnu bryggju einhvern tíma eftir 1940 (stríðsárin)

Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Laugardagur 4. júní 2005
Hafþór Rósmundsson
er 62ja ára í dag
Laugardagur 4. júní 2005
Guðlaug Ingibjörg Guðmundsdóttir
er 51 árs í dag
Laugardagur 4. júní 2005
Guðmundur Þorgeirsson
er 58 ára í dag
Laugardagur 4. júní 2005
Rögnvaldur Jónsson
er 53ja ára í dag
Laugardagur 4. júní 2005
Björn Jónasson
er 60 ára í dag
Laugardagur 4. júní 2005
Skúli Jóhannsson
er 48 ára í dag
Föstudagur 3. júní 2005  Fyrstu BINGO tölurnar frá  heimabingói Lions --
21-47-19-23-44-43-18-12-9-20-64-46-17-38-59
Fylgist með og smellið á hnappinn hér fyrir ofan BINGO efst á síðunni.

Föstudagur 3. júní 2005 Þessi fallega skúta Vagabond ELLE, lá í morgun við enda Ingvarsbryggju. Skútan er verulega falleg og vönduð, smíðuð úr mahogny. Um borð eru hjón sem greinilega kunna til verka vegna siglinga sagði hafnarvörðurinn. Héðan halda þau til Ísafjarðar og síðan til Grænlands.

Föstudagur 3. júní 2005  Veraldarvinir komu hingað í gærkvöldi til að dvelja hér í tvær vikur og vinna að umhverfisverkefnum. Þetta er þriðji hópurinn sem kemur hingað á tveimur árum. Alls hafa komið hingað 46 manns til að vinna að því að fegra bæjarlandið og nánasta umhverfi. Verkefni þessa hóps verður að mestu í skógræktinni í Skarðsdal. Hægt er að skoða vefsvæði samtakanna á slóðinni http://www.wf.is/veraldarvinir/default.asp?l=en

Föstudagur 3. júní 2005 Í kaffitímanum hjá Bás ehf.  í morgun.
Á myndinni eru: Finnur Sigurbjörnsson - Ægir Bergsson - Hreinn Júlíusson - Sveinn Zophoníasson og Sigurður Björnsson

Föstudagur 3. júní 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 7 °C
Norðan gola
Sólskinsglæta

11:45
Fossvegur 29

Föstudagur 3. júní 2005   Svalur og þurr norðan vindur flesta daga. Svona hefur vorið verið. Og ekki er hægt að hugsa sér betri tíð til að verka fisk í hjalli. Fiskur sem var hengdur upp fyrir 16 dögum er að orðinn fullverkaður. Minnstu þorskflökin orðin gómsætur harðfiskur og ekki eru verri sigin grásleppan og þorskurinn!
 

Föstudagur 3. júní 2005 Mikið er um að vera frammi á firði um þessar mundir, Vegagerðin er að vinna að umfangsmikilli lagfæringu á vegakerfinu, fram að Hóli, og upp að hesthúsum, vestan á Ásnum norður að Árós.

Föstudagur 3. júní 2005 Refur var skotinn í æðarvarpi austan við flugvöllinn í nótt. Hann hafði komið nóttina áður og skilið eftir sig slóð rændra og egglausra hreiðra svo kallaðir voru til löggiltir tófubanar, Rögnvaldur Gottskálksson og Halldór Bogi Sigurðsson, sem hafa staðið í sérstökum aðgerðum í varplandinu á Hraunum í vor. Halldór kom sér fyrir þar sem helst var tófunnar von í gærkveldi með splunkunýjan riffil sem hann hafði fengið í gær. Og rebbi mætti á svæðið undir tvö og ekki geigaði fyrsta skotið úr gripnum nýja í uþb 150 m færi. Og í morgun lá svo þessi ræfill skottlaus og bærði ekki á sér við myndatökuna – enda steindauður. Svona fer stundum fyrir þeim sem ræna frá fuglunum!

Föstudagur 3. júní 2005 Frá Golfklúbb Siglufjarðar: Fjögur vinnukvöld hafa verið hjá félagsmönnum Golfklúbbs Siglufjarðar undanfarið og góð mæting. (24,26,30 maí og 2 júní) -- Unnið hefur verið við lagfæringar og breytingar á golfvellinum ásamt tiltekt á svæðinu.--  Þökur voru lagðar á nýja flöt á holu 2, og yfir álagssvæði þar sem búið er að fylla upp í skurði á braut 1, 4 og 6.  -- Sandur settur í glompur, möl í stíga og brýr bættar. Nýir bekkir settir upp við hverja holu. -- Eftir síðasta vinnukvöldið 2. júní var síðan slegið upp grillveislu Eftir síðasta vinnukvöldið 2. júní var síðan slegið upp grillveislu.
ÓÞÓ  Myndamöppur Golf-Vinna

Föstudagur 3. júní 2005  BREMER URANUS heitir þetta flutningaskip sem í dag er að lesta 1160 tonn loðnumjöli frá  Síldarvinnslunni á Siglufirði

Föstudagur 3. júní 2005  Þær eru bestu vinkonur, Hildur og æðarkollan, og búa fyrir handan fjörð. Í mörg ár hefur þessi kolla verpt rétt við húsið Hildar sem fer daglega og stundum tvisvar á dag til að klappa henni og gá hvort eitthvað bóli á ungunum. Stundum leyfir kollan henni að skoða eitt egg. Eftir 28 daga í dúnhlýunni undir mömmunni er unginn fullvaxta og fer að brjóta sér leið út og þá má heyra svolítið tíst inni í egginu ef það er lagt við eyrað.

Föstudagur 3. júní 2005 Mokfiskirí það sem staðið hefur yfir síðustu vikur stendur enn, og enn fjölgar aðkomu bátunum sem gera út héðan frá Siglufirði. Algengt er að bátarnir rói með 10-25 bala eftir stærð bátana og fái allt að 500 kg á bala og þeir sem komnir eru að mörkum leyfilegs kóda, velta fyrir sér hve marga bala þeir eigi að fara með í síðasta róðurinn svo þeir  lendi ekki í vandræðum. 
Meðfylgjandi mynd er af bátnum Hópsnes GK 77 2580 koma inn klukkan 03:00 í gær.

Föstudagur 3. júní 2005 "Fuglasúpa" Varp og útungun fugla hér í firðinum virðist ganga vel. Skógarþrestirnir eru komnir með unga og kollan hefur sést á ferli með unga, þó sumar liggi ennþá á.
Hérna á  Mynda-albúm  - Fuglasúpa er að finna nokkrar fuglamyndir.

Föstudagur 3. júní 2005 Ein gömul:  Siglufjörður árið 1931

Ljósmyndari ókunnur
Föstudagur 3. júní 2005
Björn Jónsson
er 50 ára í dag
Föstudagur 3. júní 2005
Valgerður Halldórsdóttir
er 58 ára í dag
Föstudagur 3. júní 2005
Arnar Þór Sverrisson
er 9 ára í dag
Föstudagur 3. júní 2005
Guðný Huld Árnadóttir

er 31 árs í dag

Fimmtudagur 2. júní 2005  Frá Leikskálum: Útskrift elstu barna Föstudaginn 27. maí var útskriftarathöfn í leikskólanum. Þá komu foreldrar, ömmur og afar og fögnuðum þessum áfanga með börnum sínum. Fulltrúar frá Rauða Krossinum komu og gáfu öllum börnunum hjálma. Addi lögga kom og var með gagnlegar upplýsingar til barnanna varðandi umferðareglur og hjálmanotkun. Steini hjúkka kom einnig og var með eggjagjörning sem tengdist hjálmanotkun. Í lokin buðu Rauðakrossmenn börnunum upp á prins póló og safa.Kveðja Leikskálar Myndamöppur Útskrift

Fimmtudagur 2. júní 2005  Núna á næstu dögum munu Lionsmenn ganga í hús og selja hið feyki vinsæla Heimabingó Lions. Mikið hefur verið spurt um Heimabingóið og vonum við að viðtökurnar verði eftir því. Þetta er leikur sem allir geta spilað, ungir sem aldnir. Hægt er að nálgast tölurnar í síma 467-1910 og í glugganum hjá Frey í Rafbæ og byrjar leikurinn í dag, 2. júní. ---  Bingó bókin kostar aðeins 500 kr. Að vanda eru vinningarnir glæsilegir s.s. matarúttekt í Samkaup/Úrval, miðar í jarðböðin við Mývatn og fleira.---  Bækurnar verða einnig til sölu í Rafbæ, Versló og Sigló-Myndir. --- Þeir sem hafa áhuga á að vera með í leiknum og vilja styrkja gott málefni, en eru búsettir fyrir utan Siglufjörð geta haft samband við undirritaðan í síma 868-9333. Guðmundur Gauti Sveinsson Ritari Lionsklúbb Siglufjarðar.

Fimmtudagur 2. júní 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 12 °C
Norðan gola
Sólskin

09:00
Hvanneyrarbraut 19

Fimmtudagur 2. júní 2005  Jón Óðinn Reynisson hefur opnað nýja KS síðu þar sem fjallað er um leikmenn og leiki liðsins sumarið 2005. Einnig eru myndir úr leikjum á síðunni. Slóðin er www.folk.is/ks2005  

Fimmtudagur 2. júní 2005 Olíuskipið OPHELIA (erlent) fór héðan klukkan 7:45 í morgun,  eftir að hafa losað slatta af olíu til OLÍS hf

Fimmtudagur 2. júní 2005 Flutningaskipið HEIN (erlent) kom til Siglufjarðar í gærkveldi klukkan 21:30 og lestaði hér 183,4 tonn af loðnumjöli hjá Síldarvinnslunni.
Héðan fór það strax eftir lestun áleiðis til Neskaupstaðar til að lesta þar meira mjöl.

Fimmtudagur 2. júní 2005 Þessar myndir voru teknar í gær þegar Mark Duffield var í "körfu" frá bílnum hans "Ninna", Sigurjóni Steinssyni vörubílstjóra. En Mark var að mála Vökuhúsið að utan.

Fimmtudagur 2. júní 2005 Ein gömul: Á lóð Síldarverksmiðja Ríkisins einhvern tíma fyrir 1940. Stafli af lýsistunnum tilbúnar til útflutnings, á lóðinni nánast þar sem nokkrum árum síðar, SR-46 var reist.
SR-30 sést lengst til vinstri á myndinni.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson

Miðvikudagur 1. júní 2005 Þemadagur Grunnskólans hélt áfram í morgun við efra skólahúsið, þar var eðlisfræðin látin ráða ríkjum, en aðalhlutverkið á þeim vettvangi var loft og vatn. Gerður hafði verið skotpallur, en í stað eldsneytis eins og notað er á Floridaskaga og viðar í heiminum til að knýja hin ýmsu loftför á ferð sinni upp í himinhvolfið, þá notuðu nemendur loft og vatn til að koma sínum flaugum á loft. Loftförin sjálf voru tveggja lítra gosflöskur (margar), í  flöskurnar var sett smáleki af vatn, þær tengdar með loftslöngu (í tappann) og síðan komið fyrir í hólk (skotpallinum) Þegar loftinu var hleypt á losnaði tappinn með látum og flaugin þaut á loft upp og sveif síðan niður í fallhlíf (ef vel tókst til)  -- Þá var gerð tilraun með heimagerðan gosbrunn. Skoðaðu myndir á 
Myndamöppur Þemadagur

Miðvikudagur 1. júní 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 13 °C
Norðan kul
Sólskin

09:20
Hvanneyrarbraut 15

Miðvikudagur 1. júní 2005 Aðsendar myndir - sem mér hafa borist eru mjög vel þegnar hingað á síðu mína, enda flestar birtar. En ég á oft við vandamál  í sambandi við slíkar myndir. Vandamál sem ég á auðvelt með að leysa, - en það tefur mig mikið fram yfir það sem þyrfti. Sendandi myndanna þarf að hafa eftirfarandi í huga áður en hann sendir myndir, sérstaklega ef um margar myndir er að ræða. EKKI nota séríslenska stafi í nafni mynda, netið tekur ekki við þæðöáí osfv. og löng nafnaruna í nafninu eins og til dæmis Hvaða stærð vantar þig af buxum.jpg er hvimleið, fyrir utan íslensku stafina sem netið hafnar í skjalanöfnum. Notið annað hvort upprunanúmer myndavélar, eða númerið myndirnar í þeirri röð sem þið viljið að þær komi fram, tölvan raðar sjálfvirkt eftir stafrófsröð og númerum- og skrifið skýringartexta, sem oftast er æskilegt fyrir þá sem ekki þekkja til og það gefur myndunum gildi og vitnið í viðkomandi númer. Og hafið einhvern formála með, vegna tilefnis myndatöku. Bestu þakkir SK

Miðvikudagur 1. júní 2005
Nú er sumarið komið sögðu blómadrottningarnar í gær seinni partinn, þegar blómabíllinn kom í bæinn og allar blóma drottningarnar þyrptust að til að versla blómin sín sem þær koma fyrir hér og þar og allstaðar. Einstaka karl (þrælar) meðal annars ég komu til að bera út í bílana og keyra heilu "gróðurhúsunum" heim eftir innkaup eiginkvennanna. 

Miðvikudagur 1. júní 2005  Aðsent;
Fyrri þemadagur Grunnskólans var í gær. Seinni dagurinn, í dag hefst með uppákomu úti við efra skólahús kl. 10:40. Síðar munu krakkarnir í neðra húsi setja bátana sem þeir hafa smíðað á flot. Tími ekki ákveðinn ! G.R.

Miðvikudagur 1. júní 2005 Aðsent. Nemendur úr 10. bekk grunnskólans fóru á dögunum í starfskynningu. Starfskynningin stóð yfir í tvo daga og heimsótti hver einstaklingur tvo vinnustaði. Krakkarnir voru mjög ánægðir með þessa daga og fengu að kynnast því sem daglega fellur til hjá hverjum vinnustað fyrir sig. Mikil fjölbreytni var í vali nemenda og fengu allir að heimsækja þá staði sem þeir óskuðu eftir. Grunnskólinn þakkar þeim fyrirtækjum, sem um ræðir, kærlega fyrir jákvæðar móttökur og velvilja í garð nemenda. Myndamöppur 10. bekkur

Miðvikudagur 1. júní 2005 VEÐURÁHUGAMENN og aðrir lesendur HJÁLP -- 
Ég verð að játa að ég er ekki einn í þeim hópi sem spái mikið í veðrið eða hlusta og horfi á veðurfregnir og spár. En eins og allir sem heimsækja þessar síður mína vita, þá eru þar daglegar fréttir og ljósmyndir sem tengjast veðrinu eins og það er í hádeginu á Siglufirði hverju sinni. Þessi þáttur var í upphafi settur á síðuna eftir ósk brottfluttra Siglfirðinga, sem flestir hafa svo sterkar taugar til Siglufjarðar, að þeir fylgjast með ástandinu heima og þar með veðrinu. Síðan bættist við mynd af einhverju húsi, sem venjulega var tekin fyrir hádegið og sett við hlið “veðurmyndarinnar”    -- VINSAMLEGA Smelltu HÉR til að lesa meira.     

Miðvikudagur 1. júní 2005 Golfkennsla 4. júní.  --
Gunnlaugur Erlendsson, golfkennari verður með kennslu á Hóli, Siglufirði laugardaginn 4. júní næstkomandi. 
   Lestu meira HÉR

Miðvikudagur 1. júní 2005  Ein gömul  Sunnusvæðið um 1948(?)

Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Miðvikudagur 1. júní 2005
Sædís Eiríksdóttir
er 61 árs í dag
Miðvikudagur 1. júní 2005
Guðmundur Björnsson
er 61 árs í dag