|

Í gær 4. júlí, komu góðir gestir til Siglufjarðar þegar Norski
menningarmálaráðherrann, Valgerd Svarstad Haugland, og
menntamálaráðherra Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
heimsóttu Síldarminjasafnið ásamt fríðu föruneyti.
Gestirnir neyttu hádegisverðar í Bátahúsinu, skoðuðu safnið undir
leiðsögn Örlygs Kristfinnssonar og heimsókninni lauk síðan með
síldarsöltun og tilheyrandi leikþætti "af fingrum fram," eins og
venjulega við góðar unditektir gestanna.
Starfsmenn safnsins buðu einnig bæjarbúum og öðrum gestum velkomna á
þessa söltun.
|
Myndir teknar í tilefni af heimsókn
tveggja menningar ráðherra í Síldarminjasafnið 4. júlí 2005
|