Að gefnu tilefni, vegna margra spurninga sem mér
hefur borist - auk allskonar sögusagna, slúðurs og fleira varðandi
ákvörðun mína um að kaupa og setja upp vefmyndavél. Þá birti ég hér
nokkur afrit bréfa og pósta sem málið varðar.
En fyrst vil ég segja einfalda sögu, sem þó margir þekkja af stofni til.
Ég hefi í áratugi verið með myndavélina "á maganum"
tekið ljósmyndir í tugþúsunda tali, komið hluta þeirra á framfæri til
almenning, fyrst í blöðum sem gefin voru út hér heima, síðar til
dagblaðanna í Reykjavík, ma. til Morgunblaðsins á 13 ára tímabili. Síðar
ein og ein mynd til Sjónvarpsins Þannig hefi ég miðlað þekkingu og sögu
um lífið á Sigló - verk sem ég hefi haft ánægju af.
Eftir að ég
komst á ellilaunaaldurinn, hélt ég þessu starfi áfram, bæði varðandi
blað hér heima og til fjölmiðla á landsvísu. Þá hóf ég í byrjun þessa árs
að miðla gömlum ljósmyndum úr safni mínu í samvinnu við
Síldarminjasafnið.
En nú þegar "gamli maðurinn" vill miðla
myndefni enn frekar, með því að fylgjast með tækninni og framkvæma sömu
hluti og gert er með milljónum vefmyndavéla um allan heim, þar með
nokkur hundruð vefmyndavéla í byggðarlögum um allt land, þá fara
hlutirnir að verða skrítnir.
Tilefnið var
mjög áhugaverður möguleiki, sem margir höfðu velt fyrir sér en enginn
framkvæmt. Þar á meðal kom upp umræða á meðal embættismanna bæjarins með
tilliti til að geta fylgst með höfninni, en eftir að kostnaður við slíka
uppsetningu hafði verið kannaður, þá féll sú umræða niður á þeim
vettvangi.
Ég tók svo loks ákvörðun um að láta verða af þessu og koma
upp vefmyndavél sem sýndi lifandi myndskeið yfir ákveðinn blett
fjarðar okkar, raunar svipað sjónarhorn og dagleg ljósmynd í hádeginu
sýnir á vef mínum Lífið á Sigló -
Þetta var ég ákveðinn í
að gera, nokkuð sem kostaði lítið, enginn aukakostnaður vegna síma og
svo framvegis, þar sem ég ætlaði að setja vélina upp á mastrið sem
sjónvarpsloftnetið mitt er á.
Ég fór nú lað leita eftir "réttri" vél á "réttu" verði og málið spurðist
út.
Fjölmargar uppástungur komu upp um staðsetningu vélarinnar á
kirkjuturninum, þar sem þá mundi sjást yfir Torgið.
Mér var sagt frá umæðu hjá starfsmönnum bæjarins um
svipaða vefmyndavél, umræðu sem hefði hætt vegna kostnaðar sem nefnt er
hér ofar.
Í framhaldi af því vildi ég vita hvort bærinn hefði áhuga á samvinnu
um uppsetninguna vefmyndavélar til dæmis á kirkjuturninum, sérstaklega
með tilliti til Síldarævintýrisins sem ekki var langt undan og svo að
ásýnd bæjarins væri netverjum sýnileg frá degi til dags.
Í framhaldi af því skrifaði ég Bæjarstjóra/Bæjarráði bréfið
sem er hér fyrir
neðan, þar sem ég spurði um hvort áhugi væri á samvinnu um vefmyndavél
sem væri á kirkjuturni. Engin beiðni, aðeins tilboð um samvinnu.
Steingrímur Kristinsson Lífið á Sigló
Siglufirði
13.júní 2005
Bæjarstjóri / Bæjarráð
Siglufjarðar.
Undirritaður hefi nú þegar
ákveðið að fjárfesta í fullkomni vefmyndavél.
Eftirfarandi möguleikar eru fyrir
hendi:
1)Að kaupa vandaða vefmyndavél með mjög öflugum aðdrætti (zoom) sem
ég í tölvu minni og uppsetningu stjórna, þannig að brennidepill verður
fyrirfram ákveðinn til dæmis Óskarsbryggja, suður Túngötu eða suður
Hvanneyrarbraut, heiman frá þaki á húsi mínu séð.
(Hvanneyrarbraut 80) Það er einfaldasta uppsetning án aukasímakostnaðar,
tenging með línu frá þaki í tölvuna mína og þaðan út á netið á síðunna
Lífið á Sigló, þar gætu gestir á vefnum breytt aðdrætti (zoom),
ekki stefnu. Þetta er sá áfangi sem ég ræð við í dag fjárhagslega.
2)Að koma ofannefndri vefmyndavél fyrir í kirkjuturninum, að fengnu
leyfi sóknarnefndar. Fá símalínu og ADSL búnað tengdan í kirkjuturninn
og þaðan með símalínu í tölvu mína og út á netið á Lífið á Sigló.
Nefnd ADSL tenging kostar um kr. 4,800 á mánuði + 3-4000 króna
stofnkostnaður. Þennan þátt ræð ég ekki við. Ef bæjarstjórn hefur áhuga
á nefndri staðsetningu í kirkjuturni, þá er ég til í slíka samvinnu; það
er að ég kaupi og á myndavélina, en bærinn kostar símalínuna og
áskriftina á ASDL tengingu símans í kirkjunni.
3)Það er til er fullkomnari búnaður, sem gæfi þeim sem er á netinu,
vefnum Lífið á Sigló kost á að hreyfa vefmyndavélina að eigin
geðþótta, velja sjónarhorn og stefnu allt að 180° + upp og niður, miðað
við að vélin standi aðeins út fyrir turninn. Þessi tegund myndavélar
kostar (+/-) um 300 þúsund krónur. Miðað við vandaða vél (nýjasta
tegund) sem flutt yrði beint inn erlendis frá. (nákvæm krónutala hefur
ekki verið reiknuð)
Ofanritaðar upplýsingar sendi ég til Bæjarstjóra / Bæjarráðs, ef áhugi
skyldi vera þar fyrir ofannefndri samvinnu. - Miðað við ofantalda liði,
þá mun ég sjá um viðhald myndavélar og þess hugbúnaðar sem þarf í
tengslum við svona verkefni – sem jafnframt verður samtengt veðurstöð
minn, sem bráðlega verður beintengd inn á Lífið á Sigló. (Live)
Ef svar við þessu erindi mínu, munnlega eða bréflega
berst ekki fljótlega, mun ég staðfesta kaup og framkvæma, samkvæmt 1)
lið, næstkomandi fimmtudag, og telja þar með áhuga bæjaráðs fyrir
ofannefndri samvinnu ekki vera fyrir hendi.
Með
vinsemd;
____________________
Steingrímur Kristinsson
210234-4549
s, 892-1569
Á meðan beðið var eftir svari sem þó kom fljótt,
gerðust hlutirnir hratt. Til mín bárust hvatningarorð frá ólíklegustu
aðilum, ásamt peningum til að kaupa vandaða myndavél sem væri svo
staðsett með betri yfirsýn yfir bæinn okkar heldur en kirkjuturninn
gæfi. ---
Svar við tilboði mínu til Siglufjarðarkaupstaðar um samstarf er hér fyrir neðan:
Eftir að hafa fengið þetta bréf hafði ég samband við
sýslumanninn Guðgeir Eyjólfsson og spurði hann út í það sem í bréfi
skrifstofustjóra bæjarins stóð um það "að verkefnið sé eflaust
leyfisskylt"
- sem mér fannst furðuleg "fullyrðing"
Sýslumaðurinn svaraði mér góðfúslega og
sagði það rangt að sínu mati, en benti mér á að það mundi ekki skaða
minn málstað ef ég tilkynnti persónuvermd um áform mín Sem og ég gerði
með tölvupósti.
Og fékk
ég mjög greinagóð svör frá Persónunefnd, svör sem voru
að öllu leiti samhljóða þeim upplýsingum sem Guðgeir sýslumaður hafði
gefið mér.
Síðar, þann 22. ágúst sendi settur bæjarstjóri Þórir Hákonsson
Persónunefnd fyrirspurn í tölvupósti, þar sem "tilefnið" er sagt
vera frétt á Lífið á Sigló -- Afrit er tölvupóstinum er hér
fyrir neðan:
Svar til setts bæjastjóra kom svo
þann 1 september - Svar sem er raunar var mjög áþekkt því svari sem ég hafði
áður fengið hjá þeim, þegar ég tilkynnti þeim fyrirhugaða uppsetningu
vefmyndavélar minnar.
Ég fékk ofannefnd afrit frá Persónunefnd í dag 8.
september 2005.
Og eins og vel skipulögð stjórnsýsla mælir fyrir um að sé gert þar sem
málið varðar fleiri en einn aðila, í þessu tilfelli Siglufjarðarkaupstað
annars vegar og einstakling hinsvegar. þá fékk ég afrit.
Þetta erindi Siglufjarðarkaupstaðar til Persónuverndar vekur upp hjá
mér spurningar.
Eru einhverjir innan bæjarstjórnar (eða einhver
þrýstihópur eða einstaklingur) virkilega með þá fáráðlegu hugmynd, að ég
sé að fara að stunda einhverjar persónunjósnir og ætli að reyna að
nálgast myndefni af einstaklingum innan næsta nágrennis við staðsetningu
fyrirhugaðrar myndavélar?
Ég er búinn að vera með myndavélar með mjög öflugum
aðdrætti í marga áratugi, og aldrei fengið á mig þann stimpil að ég væri
gluggagægir eða perri.
Ef einhver aðili, í þessu tilfelli bæjarstjóri
(settur) hefði haft grun um að ég ætlaði fara út fyrir siðferðisleg
mörk, þá hefði verið mjög einfalt að kalla mig á sinn fund, hringja eða
senda mér tölvupóst.
Svar við spurningunni um hvort uppsetning
vefmyndavélar væri ekki tvímælalaust leyfisskyld, hefði
sýslumaðurinn örugglega svarað jafn skilmerkilega og mér, hefðu
bæjaryfirvöld haft á því áhuga. - og í þokkabót ekki þurft að bíða eftir
svari jafnlengi og frá Persónuvernd.
Hvað liggur svo að baki þessarar skyndilegu og
óvenjulegu forræðishyggju af hálfu bæjaryfirvalda? --
Það er spurning.
Ef strangt væri tekið á þessum svokölluðu
persónuverndarlögum, þá ætti að loka öllum fréttamiðlum, þar með Lífinu
á Sigló, sem sennilega hefur í gegn um tíðina birt fleiri myndir af
fólki sem auðvelt er að þekkja, bæði í hópum og frá þrengra sjónarmiði,
en nokkur annar fjölmiðill á sama tíma.
HVAR ENDAR ÞETTA SVO? Verða
allar myndavélar bannaðar? af því að hægt er að taka myndir af fólki?
Síðustu fréttir (8. september) af uppsetningu
vefmyndavélarinnar margumræddu, er að ég er núna búinn að fá eftir nærri
þriggja vikna bið ADSL tengingu á uppsetningarstað og tel ég nokkuð
öruggt að vélin verði komin upp fyrripart næstu viku, jafnvel um helgina
-
Og til að upplýsa þá sem ´huga hafa á þessu verkefni mínu, sem og
stuðningsmenn.
Þá get ég ekki í dag upplýst í smáatriðum hvernig vali á
myndskeiðum verður háttað þar sem ég vil bíða með það að tengingin
komist í gagnið, en ég EINN mun hafa aðgang að stýringu og vali
myndramma, og það verður ekki fjarri því sem Bæjarfélagið
Stykkishólmur gerir, undir tenglasafni sínu Mannlíf og menning.
það getið þið skoðað
HÉR
Ef einhver hefur áhuga á að tjá
sig vegna þessara mála, þá vil ég benda á tengilinn
Ég vil jafnframt ítreka það að viðkomandi vandi málfar sitt og verði ekki
með neinar órökstuddar fullyrðingar eða slanguryrði, hvort heldur þið
eruð á mínu máli eða á móti því sem ég er að vinna við
Að ósk Hákonar Þórissonar þá
bæti ég neðanskrifuðu frá honum hér, þó svo þetta erindi sé einnig
á skrifað á
Heill og sæll Steingrímur.
Með bréfaskriftum mínum við Persónuvernd er á engan hátt verið að "saka"
þig eða aðra um eitt né neitt. Það er alveg á hreinu að uppsetning
slíkrar vefmyndavélar er tilkynningaskyld til Persónuverndar og ég held
að vinsamleg ábending þess efnis frá bæjarráði hafi þann 15. júní s.l.
hafi orðið til þess að þú fórst að leita þér upplýsinga um málið sem er
auðvitað gott mál. Í þessum efnum er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig
og líklega hefði verið betra að kanna þessi mál, þ..e.
persónuverndarmál, áður en lagt var af stað. Ég óska eftir upplýsingum
frá Persónuvernd einungis til þess að kanna hvort rétt hafi verið staðið
að málum og ef það er ekki hlutverk mitt sem bæjarstjóra í þessu
tilfelli þá er mér brugðið, það hlýtur að vera hagsmunamál okkar allra
að staðið sé rétt að málum en eins og menn vita hefur umræða um
persónuvernd verið mjög hávær undanfarin misseri. Eins og Halldór Þormar
bendir réttilega á þá hafði það komið fram að hægt væri að hreyfa vélina
og "zooma" inn, m.a. átti að vera hægt að "zooma" inn á sviðið á Torginu
skv. þínum hugmyndum. Það er gott og vel ef einn aðili sér um þann hluta
en ef hins vegar vélin væri opin almenningi til þess að "zooma"inn þá
stenst það einfaldlega ekki lög, svo einfalt er nú það. Í bréfið þínu
til bæjarráðs kemur fram að ætlunin væri með þessari myndavél að gestir
gætu breytt aðdrættinum og þú nefnir þann möguleika að til sé vél þar
sem gestir geti valið sjónarhorn eftir eigin geðþótta. Það er augljóst
mál að það er vissulega málefni bæjaryfirvalda á Siglufirði ef slík vél
er sett upp, þ.e. þar sem hver sem er, hvort sem hann býr á Siglufirði
eður ei, getur fært sjónarhornið til að "eigin geðþótta" eins og þú
segir og "zoomað" að. Er ekki alveg á hreinu að það orkar tvímælis eins
og ég benti á? Af þessum ástæðum var óskað upplýsinga frá Persónuvernd
og er ekki um neina forræðishyggju að ræða, aðeins verið að fylgjast með
því að farið sé eftir lögum og reglum í þessum efnum. Að lokum verð ég
að minnast lítillega á þá furðulega setningu sem fram kemur í umræðunni
hjá Jóni Sæmundi Sigurjónssyni: "Það er ekkert nýtt að steinar séu
lagðir í götu slíkra manna sem skara fram úr, en ég vona svo sannarlega
að hér sé aðeins um ofurvarkárni óöruggra embættismanna að ræða" ????
Telur Jón Sæmundur, ríkisstarfsmaður og fyrrverandi alþingismaður,
semsagt að verið sé að leggja steina í götur manna þegar með því er
fylgst hvort farið sé eftir lögum og reglum varðandi persónuvernd og
friðhelgi einkalífsins? Ég óska þér góðs gengis með uppsetningu
vefmyndavélarinnar og í engu hefur undirritaður neitt á móti slíkri vél
sé hún sett upp í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og brjóti
ekki gegn friðhelgi einkalífsins. Siglufjarðarkaupstaður hefur tekið
virkan þátt í þróun síðunnar "Lífið á Sigló" og mun að mínu viti gera
svo áfram enda um mikilvægan þátt í þjóðlífinu að ræða hér á Siglufirði
eins og margoft hefur verið bent á.