Sigló-síld | Vísir 40 ára | Siglfirðingur SI 150 | Halla Haralds | Kaupfélagið

>>>>>>>>>>> Siglfirðingur SI 150

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

í júlí 1964

SIGLFIRÐINGUR SI 150

Þann 6. júlí sl. kom til Siglufjarðar nýr skuttogari, „Siglfirðingur" SI 150.

Siglfirðingur SI 150 siglir inn í heimahöfn, aðfaranótt mánudags 6. júlí 1964, eftir siglingu frá Noregi þar sem skipið var smíðað.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta skip er nýjung í skipaeign Íslendinga, og ánægjulegt, að Siglfirðingar skyldu verða  fyrstir til að koma með þessa nýsmíði í fiskiskipastólinn.

Skipið er 270 tonn, búið öllum  fullkomnustu leitar og veiði-tækjum. Eigendur Siglfirðings er samnefnt hlutafélag, en að  því standa yfirmenn skipsins : Páll Gestsson, skipstjóri, Axel Schiöth, stýrimaður; Agnar Þór Haraldsson vélstjóri; Jóhann Friðleifsson, II. vélstjóri; Eyþór Hallsson, framkvæmdastjóri, og  Kaupfélag Siglfirðinga.

Siglfirðingur fór á síldveiðar stuttu eftir heimkomuna, og veiðir nú með venjulegri  síldarnót fyrst til að byrja með. Áhöfn skipsins er 13 manns. Skipið reyndist vel í  heimsiglingu og var mestur ganghraði um 12 mílur.

Þessu nýjasta skipi Siglfirðinga fylgja árnaðaróskir, og bæn um blessun á hafinu.