|
Föstudagur
15.
mars
1974
FRAMBOÐSLISTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Á SIGLUFIRÐI
Fyrir nokkrum vikum fór fram skoðanakönnun í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Siglufirði, hvort viðhaft skyldi bindandi prófkjör, leiðbeinandi skoðanakönnun eða tillögugerð frá nefnd varðandi röðun á framboðslista flokksins við í hönd farandi bæjarstjórnarkosningar.
Niðurstaðan var, að viðhöfð skyldi leiðbeinandi skoðanakönnun.
Skoðanakönnun þessi var síðan rækilega auglýst og framkvæmd með leynilegu vali. Á milli 80-90 kjósendur tóku þátt í skoðanakönnuninni.
Skoðanakönnunin var ótvíræð varðandi skipan efstu sæta listans. Og þó hún væri ekki bindandi, var farið eftir niðurstöðum hennar í röðun í fimm efstu sæti hans, er fjölmennur, sameiginlegur fundur sjálfstæðisfélaganna samþykkti hann endanlega sunnudaginn 3. mars s.l .
Stefán Friðbjarnarson bæjarstjóri, sem skipað hefur efsta sæti listans við undanfarnar bæjarstjórnarkosningar, gaf ekki kost á sér til endurkjörs nú.
Framboðslisti flokksins
til bæjarstjórnar, fer hér á eftir: [Smellið á mynd til að sjá hana stærri.] |
1. Knútur Jónsson, framkvæmdastjóri.
2 Þormóður Runólfsson, skrifstofumaður.
3. Björn Jónasson, bankamaður.
4. Sigurður Fanndal, kaupmaður.
5. Kjartan Bjarnason, sparisjóðsstjóri.
6. Steinrímur Kristinsson, verkamaður.
7. Margrét Árnadóttir, húsmóðir.
8. Óli J. Blöndal, kaupmaður.
9. Jóninna Hjartardóttir, húsmóðir. |
10. Páll G. Jónsson, byggingameistari.
11. Markús Kristinsson, verksmiðjustjóri.
12. Ólafur Þ. Þorsteinsson, yfirlæknir.
13. Ásgrímur Helgason, sjómaður.
14. Hreinn Júlíusson, byggingarmeistari.
15. Guðmundur Ó. Þorláksson, sjúkrahúsráðsmaður.
16. 16. Kristinn Georgsson, vélvirki.
17. Þórhalla Hjálmarsdóttir, húsmóðir.
18. Stefán Friðbjarnarson, bæjarstjóri |