| 
  
  
  FRÁ 
  SIGLUFIRÐI: 
  
  
  HÉR 
  VANTAR 
  ÞANN 
  HERSLUMUN, 
  
  
  
  sem 
  tryggja 
  verður 
  með 
  Framkvæmdaáætlun 
  Norðurlands. 
  
  Tvennir 
  tímar. 
   
    | 
	 |  
    | 
    
    
    Sundhöll 
    Siglufjarðar, 
    sem 
    jafnframt 
    verður 
    rekin 
    sem 
    íþróttahús 
    hluta 
    árs. 
    Keypt 
    hefur 
    verið 
    sligert 
    gólf 
    yfir 
    sundlaugarþróna 
    í 
    þessum 
    tilgangi. 
    Er 
    það 
    nú 
    komið 
    til 
    Siglufjarðar 
    og 
    er 
    verð 
    þess 
    um 
    1,4 
    miljónir 
    króna. |  
  
  
  Sú 
  var 
  tíðin 
  - á 
  þeim 
  árum 
  sem 
  kennd 
  voru 
  við 
  kreppu, 
  að 
  fjárhagsleg 
  afkoma  
  þjóðarbúsins 
  valt 
  á 
  síldveiðum 
  út 
  af 
  Norðurlandi 
  og 
  vinnslu 
  síldar 
  á 
  Siglufirði. 
  Þá  
  beindust 
  augu 
  ráðamanna 
  þjóðfélagsins 
  að 
  Siglufirði 
  og 
  þar 
  var 
  þá 
  malað 
  það  
  gull, 
  sem 
  m.a. 
  gerði 
  þá 
  þjóðfélagsþróun 
  mögulega 
  á 
  fyrri 
  hluta 
  þessarar 
  aldar, 
  er  
  breytti 
  þjóðarhögum 
  úr 
  fátækt 
  og 
  frumbýlingshætti 
  til 
  velferðar 
  og  
  tækniþróunar. 
  
  Með 
  breyttum 
  göngum 
  síldarinnar 
  hófst 
  svo 
  erfiðleikatímabil 
  þessa 
  bæjarfélags. 
  En 
  sé 
  saga 
  Siglufjarðar 
  á  
  árum 
  erfiðleikanna 
  skoðuð 
  sanngjörnum 
  augum, 
  og 
  metin 
  út 
  frá 
  aðstæðum, 
  er  
  hún 
  e.t.v. 
  ekki 
  síður 
  glæsileg 
  en 
  gullaldartíminn. 
  Það 
  hefðu 
  ekki 
  öll 
  bæjarfélög,  
  sem 
  byggðu 
  á 
  einhæfu 
  atvinnulífi, 
  hvers 
  grundvelli 
  var 
  gjörsamlega 
  kippt 
  á  
  burt, 
  ekki. 
  eitt 
  ár, 
  heldur 
  áratugi, 
  staðið 
  af 
  sér 
  erfiðleikana 
  á 
  sama 
  hátt 
  og  
  Siglufjörður. 
   
    |  |  
    | Hið 
    nýja 
    og 
    glæsilega 
    sjúkrahús 
    Siglufjarðar, 
    sem 
    kostaði 
    yfir 
    20 
    miljónir 
    króna. 
    Til 
    hægri 
    á 
    myndinni 
    sjást 
    rústir 
    gamla 
    sjúkrahússins 
    sem 
    verið 
    er 
    að 
    rífa 
    niður 
    og 
    fjarlægja |  
   Það 
  voru 
  margir 
  varnarsigrar 
  unnir 
  á 
  þessum 
  erfiðleikaárum, 
  sem  
  að 
  vísu 
  kostuðu 
  okkur 
  mikið 
  mannfall 
  (í 
  burt 
  fluttum 
  Siglfirðingum), 
  sem 
  eftirsjá 
  er 
  að, 
  en 
  við 
  vonum, 
  að 
  nú 
  þegar  
  bjartara 
  virðist 
  framundan, 
  komi 
  eitthvað 
  af 
  þeim 
  heim 
  í 
  fjörðinn 
  sinn 
  á 
  ný. 
  
  Það 
  sem 
  er 
  og 
  það 
  sem 
  vantar. 
  
  Siglufjörður 
  stendur 
  um 
  margt 
  á 
  gömlum, 
  traustum 
  grunni. 
  Hér 
  þarf 
  svo  
  sannarlega 
  ekki 
  að 
  byggja 
  allt 
  frá 
  grunni. 
  Hér 
  eru 
  til 
  staðar 
  mörg, 
  stórvirk  
  atvinnutækja: 
  síldarverksmiðjur, 
  söltunarstöðvar, 
  niðurlagningarverksmiðjur,  
  frystihús, 
  tunnuverksmiðja 
  og 
  margs 
  konar 
  smærri 
  iðnrekstur. 
  Það 
  sem 
  á 
   
    | 
	 |  
    | 
    
    Hluti af vinnslusal Siglósíldar. Bandaríkjamenn og Sovétrússar eru ósammála 
	um margt, en sammála um EITT: Gæði Siglósíldar, enda kaupa báðir sælgætið. 
	Siglósíld er helsti atvinnugjafi á Siglufirði og hafa þar unnið allt að 100 
	manns í vetur, þegar flest var þar. -- |  
  
  vantar  
  er 
  að 
  tryggja 
  síldariðnaðinum 
  hráefni. 
  "Haförninn" 
  er 
  stórt 
  spor 
  í 
  rétta 
  átt, 
  en  
  flutningur 
  á 
  síld 
  til  
  söltunar 
  verður 
  og 
  að 
  koma 
  til. 
  
  Hér 
  er 
  nýbyggt 
  glæsilegt 
  sjúkrahús, 
  yfirbyggð 
  sundlaug, 
  sem 
  jafnframt 
  verður  
  rekin 
  sem 
  íþróttahús, 
  nýtt 
  veglegt 
  bókasafn, 
  nýlegir 
  og 
  veglegir 
  skólar,  
  æskulýðsheimili, 
  góð 
  höfn, 
  gott 
  raforkuver, 
  bættar 
  samgöngur 
  á 
  landi 
  og 
  í 
  lofti 
  á  
  næstu 
  grösum 
  - 
  og 
  þannig 
  mætti 
  áfram 
  telja. 
  
  [Greinin 
  var 
  lengri 
  en 
  ég 
  á 
  ekki 
  niðurlag 
  hennar] 
   
  
  Æska 
  Siglufjarðar 
  unir 
  sér 
  vel 
  í 
  vistlegum 
  salarkynnum 
  bókhlöðunnar 
   
  
  Hér 
  er 
  önnur 
  mynd 
  af 
  börnum 
  í 
  salarkynnum 
  hinnar 
  nýbyggðu 
  bókhlöðu
  
		 
  
  [Ath. 
  Bókhlöðumyndirnar 
  eru 
  skannaðar 
  frá 
  úrklippusafni 
  mínu 
  frá 
  blaðinu, 
  ég 
  fann 
  ekki 
  filmuna, 
  held 
  þó 
  að 
  ég 
  hafi 
  tekið 
  þessar 
  myndir. 
  (amk. 
  þangað 
  til, 
  ef 
  annað 
  kemur 
  í 
  ljós) 
  ] |