>>>>>>>>>>> Bíóbann; 14 dagar

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aðsent 7. apríl 2004

Sæll Steingrímur. En, ég var að lesa dyravarðaraunirnar og margt rifjaðist upp varðandi endana á bíómiðunum.

Enn ein aðferðin við að svindla sér inn, var að fara inn í sal gegnum miðasöluherbergið (sem var oftast opið inn í gegn þegar sýning stóð ekki yfir) klukkutíma fyrir sýningu.

Þetta gerðum við Nilli Friðfinns, bróðir Finna og Svenna kokk og földum okkur í myrkrinu undir fremstu bekkjunum og gæjuðumst svo upp þegar sýning hófst.

Og enn og aftur var sérstök aðferð til að svindla sér inn; nefnilega sú, að ég prentaði ávallt bíómiðana fyrir Odd þegar hann vantaði meira.

Og þá voru hæg heimatökin að prenta nokkra aukamiða "í leiðinni fyrir mig og mína útvöldu" En aldrei komst það upp.

 

Í leiðinni má geta þess að bíóbönn hjá Gunnu Thor voru tíð eins og þú kannast við. Ég hlaut eitt bíóbann í hálfan mánuð.

Af hverju? Ég sat eitt sinn í miðjum sal og Gunna Thor fyrir aftan mig án þess að ég vissi það og stóð upp og henti gosflösku alla leið upp á senu með þessum líkum háfaða og djöfulgangi í hljóðum sal.

Þá klappaði Gunna á öxlina á mér og bað mig að koma með sér fram og rak mig síðan út úr salnum og sagði um leið við "Skara" dyravörð: "Þessi strákur á að fá bíóbann í hálfan mánuð. Svo mörg voru þau orð. 

Þú mátt hafa þetta allt eftir mér ef því er að skipta.

 Með bestu kveðju, 
Karl Jóhann Lilliendahl.