Dyravarðaraunir.
(Heimild: Steingrímur)
Hér áður fyrr var
eitt af vandamálum dyravarða í Nýja Bíó, það hve margir reyndu
að svindla sig inn.
Voru notuð við það allskyns brögð til að villa um fyrir
dyraverðinum. Ein aðferðin var að nota endann sem bíógestir
héldu eftir þegar búið var að “rífa af” , fara með þá heim,
jafnvel safna miðum sem hent hafði verið á gólfið og setja þá
undir saumavélina hennar “mömmu”, án tvinna og gata eins og
upphaflegi miðinn var. Bíða svo þar til myndin var byrjuð og
freista þess að dyravörður sæi ekki fölsunina í myrkrinu.
Stundum tókst þetta, til dæmis ef margir komu á síðustu stundu
og svindlarinn slóst í hópinn.
Þá var þetta
stundum reynt þegar ös hafði safnast, framan við bíódyrnar,
þegar spennandi myndir og eða frumsýning mynda var.
Enn ein aðferðin var reynd, en það var að leita á gólfinu við
dyrnar svo lítið bar á af endum, (afrifum) sem verið gæti að
dyravörðurinn missti í traffík. Þá var endinn vandlega límdur
við “hinn” endann sem viðkomandi hafði keypt á fyrri sýningu eða
fundið á gólfinu. Einnig kom fyrir að svindlararnir leituðu í
ruslatunnu bíósins eftir endum, og varð stundum vel ágengt.
En dyraverðir hverju sinni voru fljótir að þekkja úr þá sem
stunduðu svindl, og skoðuðu miða viðkomandi vandlega áður en
þeim var hleypt inn.
En alltaf komu nýir árgangar svindlara, svo dyraverðir þurftu
sífellt að vera á verði.
Enn einn vandi dyravarða var að fylgjast með unglingum sem lugu
til um aldur til að komast inn á myndir sem bannaðar voru börnum
12, 14 eða 16 ára.
Oft sköpuðust brosleg atvik í sambandi við það þegar einhverjum
hafði tekist að “plata” dyravörðinn. Sem dæmi þá kom það fyrir
að einstaka eigingjarn og sjálfselskur, sem dyravörðurinn hafði
séð við og séð að viðkomandi var ekki á þeim aldri sem hann
þóttist vera, að viðkomandi óheppni átti það til að nefna þá sem
inn höfðu komist án þess að hafa til þess aldur, með nafni og
upphófst stundum ströng og erfið leit af slíkum krökkum, stundum
tókst að hafa upp á þeim, en oft reyndist það ómögulegt, þegar
margt var í bíó.
Þá voru passarnir
sem krakkar fengu, frekar ómerkileg plögg (tæknilega séð) og
dæmi var um að krakkar fölsuðu þessi skilríki svo vel að ekki
sást munur nema að, mjög vandlega væri að gáð, einnig var
fæðingardögum breytt, viðkomandi sagðist heita allt annað (var
þá með passa bróður síns eða vinar) osfv.
Ekki var barnaverndin alltaf á varðbergi, nema þá helst þegar
einhver umtöluð mynd var í sýningu, því þá mættu bæði
nefndarmenn og lögregluþjónar í fleirtölu (þeir fengu frítt í
bíó út á embættið). Þá var betra fyrir unglingana, að vera ekki
að reyna að svindla á aldri ef myndin var bönnuð. |