19. apríl 1963, texti: fréttaritari Tímans, ljósmyndir
Steingrímur.
Myndir frá
Íslandsmóti á skíðum á Siglufiðri 12. - 15. apríl 1963.
STÓRSIGUR
SIGLFIRÐINGA
Hlutu
Íslandsmeistara í
öllum greinum á skíðamótinu, nema flokkasvigi. - Reykvíkingar veðurtepptir
-
Þrátt
fyrir afar óhagstæð veðurskilyrði fór Skíðalands- mótið fram um páskana
á Siglufirði.
Eins og svo oft áður voru Siglfirsku skíðamennirnir.sigursælir,en
óhætt er að fullyrða að yfirburðirnir
hafi aldrei verið meiri en nú - þeir sigruðu í
öllum greinum mótsins að flokkasviginu undanskildu, en þar báru
Ísfirðingar hærri hlut.

Frá
boðgöngunni á landsmótinu: Guðmundur Sveinsson, Siglufirði tekur við
af
Sveini Sveinssyni, sem hafði áður unnið um 3 mínútur á.
Ráðgert
var að mótið hæfist á þriðjudaginn, en þá var veður mjög slæmt og
hófst það ekkí fyrr en á föstudaginn langa.
Þrátt fyrir að veðurguðirnir
hafi ekki verið
Siglfirðingum hliðhollir varðandi framkvæmd mótsins, er ekki frá
því að þeir hafi
hjálpað þeim um eitthvað af meistara- titlunum, en fjöldi skíðamanna
víðs vegar af
landinu treysti sér ekki til Siglufjarðar vegna veðursins og .setti
það talsverðan svip
á mótið, að aðeins tveir þátttakendur voru frá
Reykjavík - hinir urðu að snúa við á Blönduósi.
Af Siglfirsku
skíðamönnunum bar mest á hinum gamalreynda kappa-, Jóhanni
Vilbergssyni hann sigraði í þremur greinum mótsins, svigi, stórsvigi
og Alpatvíkeppni.
Þá vakti einnig mikla athygli frammistaða Birgis Guðlaugssonar, en
hann sigraði
bæði í 15 og 30 km. göngu.
15 km. ganga:
Helstu úrslit urðu eins og hér segir:
1. Birgir Guðlaugsson, Siglufirði 64,46
2. Sveinn Sveinsson, Siglufirði 65,26
3. Guðmundur
Sveinson, Siglufirði 65.34
|
30
km ganga
1. Birgir
Guðlaugsson Siglufirði l,59,27
2. Sveinn Sveinsson, Siglufirði 2,05,27
3. Guðmundur
Sveinsson, Siglufirði 2,06,45 |
Hin
góða frammistaða Siglfirðinga á Skíðalandsmótinu, sem fram fór um
páskana, hefur vakið mikla athygli - þó sér í lagi frammistaða
þeirra Jóhanns
Vilbergssonar, sem varð þrefaldur Íslandsmeistari, og Birgis Guðlaugssonar,
en.
hann sigraði bæði í 15 og 30 km. göngu.

<<<<<<
Birgir
Guðlaugsson að koma i mark eftir 15 km. gönguna og virðist hann
ekki vera sérlega eftir sig....
4x10 km boðganga:
Aðeins
tvær sveitir tóku þátt í þessari grein:
Sveit
Siglufjarðar 3,14,29 Sveit Ísafjarðar 3.21.30
Flokkasvig ,
Sveit
Ísfirðinga varð í fyrsta sæti, annað sæti hrepptu Akureyringar og
lestina ráku Siglfirðingar.
Í
Alpatvíkeppni urðu meistarar .Jóhann Vilbergsson og Kristín Þorgeirsdóttir
-
Í 10 km. göngu unglinga
15-16 ára sigraði Björn Ólsen frá Siglufirði
Í
10 km.
göngu 17--19 ára sigraði Þórhallur Sveinson, einnig frá Siglufirði.

Jóhann
Vilbergsson - þrefaldur Íslandsmeistari,
- Á myndinni sést hann nýkominn
í
mark eftir harða keppni.
>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>
Svigkeppni
karla:
-
Jóhann
Vilbergsson, Siglufirði 89,8
-
Kristinn
Benediktsson Ísafirði 90.8
-
Svanberg
Þórðarson, Ólafsfirði 95,8
Stórsvig
karla:
-
Jóhann
Vilbergsson, Siglufirði 73,2
-
Kristinn
Benediktsson, Ísafirði 73,5
-
Hafsteinn
Sigurðsson, Ísafirði 77,7 i
Svig
kvenna:
-
Kristín
Þorgeirsdóttir, Siglufirði 79,4
-
Jakobína
Jakobsdóttir. Reykjavík 97,2
Stórsvig
kvenna:
-
Kristín
Þorgeirsdóttir, Siglufirði 40,5
-
Jakobína Jakobsdóttir, Reykjavík 45.7
-
Jóna
Jónsdóttir, Ísafirði 49,3
Um
framkvæmd mótsins er það að segja, að hún fórst Siglfirðingum vel úr
hendi eins og endranær. Þeir höfðu afar stuttan tíma til undirbúnings,
en eins og kunnugt er var
upphaflega gert ráð fyrir að mótið færi fram á Norðfirði. - Aðeins
í: einni grein varð að fresta
keppni - í stökki - eingöngu vegna óhagstæðra
veðurskilyrða. Mótstjóri var Helgi Sveinsson
|