Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Jólahátíð um borð Leitað í stóru felustöð..

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

  Þriðjudagur 7. janúar 1969

Jólahátíð um borð í Haferninum, 1968

Haferninum Jólin 1968

JÓLIN voru að ganga í garð, unnið hafði verið að því fyrr um daginn að þrífa íbúðir skipverja og skreyta sali, herbergi og ganga með jólaskrauti, koma fyrir jólatrjám og greinum,  ásamt viðeigandi jólaljósum.
 Kl. 6 að kvöldi, eftir skipstíma, (1 klst. á undan G.M.T.) var kvöldverður. Skipverjar  höfðu klæðst spari-fötum í tilefni jólanna. Gómsætur kalkúni var á borðum ásamt tilheyrandi  fylgi-réttum og 1júiffengur „desert" í eftirmat. Skipverjar tóku vel til matar síns, eins og við var  að búast, en eftir matinn fóru flestir til herbergja sinna, sumir til að opna jólapakka að  heiman, og lesa bréf og jólakort frá vinum og ættingjum.
Haförninn var á siglingu á Eystrasalti, á leið til Ventspils í Rússlandi. Komutími var  áætlaður kl. 22,00 um kvöldið. Fréttir höfðu borist um að við mundum ekki fá hafnarpláss  strax, og yrðum því að kasta ankerum. Fimm liðir voru látnir falla og skipið lá nær  hreyf-ingarlaust í ágætisveðri, SA 2 en þokuloft. Kl. 22,30 söfnuðust skipverjar saman í  hásetaborðsal og drukku saman kakó og kaffi með ljúffengum kökum og tertum.

Kl. 23,00  var safnast saman upp í „Salon" og þar mættu allir skipverjar, nema einn, sem var á vakt. Þar  sungu skipverjar jólasálma og skipstjórinn, Sigurður Þorsteinsson, las jólaguðspjallið. Að  lokinni þessari hátíðarstund, tilkynnti skipstjórinn að skipverjum hefði borist jólapakkar, einn  handa hverjum skipverja, en pakkarnir væru frá kvenfélagi í  Reykjavik, sem héti: Kvenfélagið Hrönn.

Væri það venja þessara kvenna að senda skipshöfnum fraktskipa, sem væru fjarverandi heimilum sínum á jólunum  jólaglaðning. Og svo sannarlega var þessi sending til okkar jólaglaðningur. Hún gladdi okkur  alla, sem við værum börn. Dregið var um hvern pakka og varð viðkomandi skipverji, hverju sinni að opna pakka sinn í augsýn félaga sinna og var oft mikil spenna  og eftirvænting að sjá hvað innihaldið væri, ekki aðeins þeim sem hrepptu pakkana og  opnuðu þá, heldur og allri skipshöfninni. Aðeins einn pakki var afhentur í einu og sá næsti ekki afentur fyrr en  viðkomandi var búinn að sýna hvað hann hafði fengið. Hver skipverji hafði sitt númer, en sonur skipstjórans,  sem komið hafði um borð í síðustu höfn til að vera hjá pabba sínum um jólin, dró út  númerin úr skál hjá 1. stýrimanni Guðmundi Arasyni.

Hér dregur sonur skipstjórans úr skál, hjá 1. stýrimanni Guðmundi Arasyni, númer skipverjans sem hreppir næstu jólagjöf frá Kvenfélaginu Hrönn.

Fyrsta númerið, sem dregið var númer 16, en það númer átti timburmaðurinn eða undir ritaður og var jólagjöf mín frá Kvenfélaginu

Hrönn, falleg lítil keramikskál, íslenskur  iðnaður og þakka ég hjartanlega fyrir mig.

En þessi stund þegar þessir 23 jólapakkar voru  afhentir, er mér ógleymanleg, og veit ég að svo er með fleiri skipverja hér um borð, ef ekki alla. Það er ekki beint innihald pakkanna, eða  verðgildi, sem gleður okkur, heldur hugurinn, sem fylgir sendingunum. Við vitum að það eru  fleiri en ástvinir okkar, sem hugsa hlýtt til okkar. Og við virðum og dáumst af þessum konum.

Ég vil til gamans lýsa lítils háttar, einu skemmtilegu atviki af mörgum,  varðandi afhendingu þessara pakka, en svo er mál, að einn  skipsfélaga okkar hefur þann leiða ávana (eins og raunar margir) að  naga á sér neglurnar, þegar hann hugsar, er spenntur o.s. f.r.v.  Jólagjöfin hans frá kvenfélaginu var  honum ekki aðeins mjög  nytsöm, heldur vakti almenna kátínu og hlátur (hans líka), en  jólagjöfin var vandað nagla-sköfusett, svo hann átti ekki þess vegna  að þurfa að naga á sér neglurnar. „En hvernig vissu þær þetta?"  sagði hann í gríni á eftir.

Þessi jól eru mín þriðju hér um borð, og jafnmörg sem ég hef verið að heiman frá  fjölskyldu minni þau 15 ár, sem ég hef verið giftur. Maður gleymir að vísu ekki jólum að  heiman, en þessi jól eru mér eftirminnilegust, og þakka ég það að mestu Kvenfélaginu  Hrönn.

Steingrímur Kristinsson, mt. Haförninn, Siglufirði.