Lífið í mars 1-7 2004 | Lífið í mars 8-14 2004 | Lífið í mars 15-21 2004 | Lífið í mars 22-31 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í mars 15-21 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Bikarmót SKÍ
Badminton
Lions-menn




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

21. mars 2004  Ein gömul:   Siglfirskar handboltastúlkur, staddar á Hofsós, Erna Erlendsdóttir, Guðrún Erlendsdóttir, Sigríður Júlíusdóttir?, Þórunn Þórðardóttir, Jóhanna Helgadóttir, Guðný Friðriksdóttir, Árdís Þórðardóttir, Kristbjörg Eðvaldsdóttir,  Jóhanna Sigursteinsdóttir og Soffía Daníelsdóttir.

21. mars 2004  Nýfæddir Siglfirðingur
Hann á afmæli í dag: 21. mars 2004
20. mars 2004  Aðsend frétt: Lionsklúbbur Siglufjarðar hefur tekið að sér að hugsa um og hýsa líkbílinn fyrir Sóknarnefnd Siglufjarðarsóknar. Bíllinn hefur sem kunnugt er verið á hálfgerðum hrakhólum með húsnæði og umhirðu. Meðfylgjandi eru myndir sem Júlíus Hraunberg tók af Lionsmönnum við að þrífa, bóna og dytta að bílnum úti í áhaldahúsi bæjarins

20. mars 2004  Ein Gömul: Slökkviliðið, "Hvíta húsið" Ásgeir Björnsson og Þórarinn Hjálmarsson, taka til hendinni. Þá mættu menn eins klæddir  og "þeir stóðu" þá stundina, þegar kallað var út, samber Jósafat Sigurðsson, sem snýr baki í myndavélina,- og er í vinnusloppnum sínum frá fiskbúðinni.

19. mars 2004 Aðsend frétt og myndir: Íslandsmóti unglinga í badminton, sem haldið var í Keflavík helgina 12.-14.mars: Tveir Íslandsmeistaratitlar og tveir silfurhafar í B.fl. og einn Íslandsmeistari í C.fl. og bikar fyrir prúðasta liðið til Tennis og badmintonfélags Siglufjarðar.  270 keppendur frá 10 félögum voru á þessu móti, spilaðir voru 670 leikir. T.B.S. sendi 22 keppendur á þetta mót. Samtals æfa 29 krakkar 2 x 1,1/2 tíma í viku, svo erum við með 14 byrjendur 1 x í viku. Glæsilegur árangur hjá okkar krökkum. Þess má geta að við eigum eftir að halda Siglufjarðarmót, afmælismót og firmakeppni á komandi vikum. -- Evrópuþjálfari er væntanlegur til okkar í heimsókn með æfingabúðir helgina 02. - 04. apríl. n.k.  -- Einnig ætlum við að vera með maraþon í badminton í 20 klst. dagana 07. - 08.apríl n.k.. og hefst það kl: 13.00 þ. 07.apríl. Þá munu krakkarnir ganga í hús
í bænum og safna áheitum. Allur ágóði rennur í unglingastarf félagsins. Vonum við að bæjarbúar taki vel á móti krökkunum.  Opið hús, allir velkomnir að kíkja á okkur í maraþoninu, lánum spaða ef einhverjir vilja kynna sér þessa skemmtilegu íþrótt.
Árangur okkar var þessi:
1. sæti Aron Ingi Kristinsson og Karen Birgisdóttir Tvenndarleik U-15
2. sæti. Sævar Kárason og Stefanía Jakobsdóttir Tvenndarleik U-15
1. sæti. Ólafur G. Guðbrandsson og Sævar Kárason Tvíliðaleik U-15
2. sæti. Karen Birgisdóttir Einliðaleik U-15
1. sæti. Stefanía Jakobsdóttir Einliðaleik C.fl. U-15
Einnig komust 9 krakkar í 8 liða úrslit í einliðaliðaleik, tvíliðaliðaleik og tvenndarleik.

Afmælisár: T.B.S, félagið verður 40 ára 5.des. n.k.

19. mars 2004  Ein gömul:  Birgir Vilhelmsson, Páll Hlöðversson, Jón Sigurðsson, Sigurður Jónsson og Ómar Möller

Þau eiga afmæli í dag

18. mars 2004   Hólmurinn í Landeyrartjörninni, Stefán hefur tekið sér hlé við gerð hólmans sem koma á í tjörnina. Allmikið meira efni hefur farið í bráðbirgðaveginn að fyrirhuguðum hólma, þar sem botn tjarnarinnar mun hafa verið leðjumeiri en reiknað var með,- og efnið því sokkið dýpra en menn vonuðu. En það er ekki eðli Stefáns að gefast upp á hálfkláruðu verki, enda hefur hann nægan tíma til að slappa af. Hólmurinn mun verða tilbúinn á réttum tíma. Hvað ætli hólmurinn verði svo kallaður? -Neshólmur?

18. mars 2004  Ein gömul: ókunnur, Hafliði Sigurðsson, Skarphéðinn Björnsson og Ingimar Baldvinsson

Þær eiga afmæli í dag. 18. mars 2004

17. mars 2004  Fyrir allnokkru síðan fóru minnir mig, fram umræður á milli forráðamanna Siglufjaðrakaupstaðar og Ólafsfjarðar, um hugsanlega sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga. Ekki minnist ég þess að hafa heyrt neitt um niðurstöður þessara viðræðna, og eða að þær hafi verið sérstaklega kynntar.  Það ætti að vera hagsmunamál beggja að sameinast, og síðar að stefna að því að sameinast fleiri sveitafélögum á Eyjafjarðarsvæðinu, þar með talin AKUREYRI.
Það er engin ástæða finnst mér,- og raunar öllum sem ég hefi heyrt í og rætt við um þessi mál á “götunni”, að bíða eftir Héðinsfjarðargöngunum. Mörgum finnst að þessu hefði fyrir löngu átt að vera lokið, en ég beini þeirri ósk til forráðamanna bæjarins, að þeir drífi í því, í fyrsta lagi að kanna hug Siglfirðinga, og ef könnunin verður jákvæð, sem ég er raunar samfærður um, að hefja viðræður við Ólafsfirðinga strax að því loknu.

17. mars 2004  Tómstundamál, þau geta verið margvísleg, allt frá því að vera einföld,- og upp í það að vera flókin og umfangsmikil. Sum áhugamálin þurfa nánast eingin fjárútlát, en önnur kosta miljónir á ári. Guðni Sveinsson, lögregluþjónn með fleiru á eitt slíkt áhugamál, sem eru hans ær og kýr, það eru bílar. En sumir vina hans segja í gríni, að hann skipti oftar um bíl en sokka. Nýjasta uppátæki Guðna er sennilega það áhugaverðasta til þessa, það er fyrir þá sem eru á svipaðri "bylgjulengd" og Guðni, það er að nú er hann að gjörbreyta gömlum bíl og gera hann sem einstakan, alvöru fjallabíl. Hann vinnur við þetta öllum frístundum, og nýtur til þess aðstoðar tæknimanna, og ekki síst frá vini sínum Gunnari Júlíussyni, sem er með svipuð áhugamál og getur miðlað af mikilli þekkingu og reynslu.
Myndin er af bílnum eins og hann lítur út í dag, en ég mun fylgjast með framvindu mála - og þegar allt er klárt, falast eftir bíltúr.

17. mars 2004  Þegar Siglfirðingar vöknuð í morgun var kominn 6-8 sm jafnfallinn blautsnjór yfir allt, það snjóaði í lognmollunni, og hiti var rétt yfir frostmarki. Þetta er gott fyrir skíðafólkið, - og væntanleg skíðamót, - aðrir fagna þessu ekki. En þetta hverfur fljótt vona ég, í byggð amk.

17. mars 2004   Ein gömul:  Kristín Þorgeirsdóttir, Ásdís Júlíusdóttir og  Árdís Þórðardóttir. 196?

16. mars 2004  Nú hefur verið ákveðið að Skíðalandsmótið 2004, sem halda átti á Ísafirði, verði hér í Skarðsdal og nágrenni, helgina 1-3 apríl næstkomandi.
Þá verður einnig á sama tíma haldið Unglingameistaramót Íslands, svo þeir munu hafa nóg að gera, Siglfirsku sjalboðaliðarnir. Gert er ráð fyrir að keppendur, þjálfarar, farastjórar, og aðrir starfsmenn munu fylla töluna 230 manns. Svo til viðbótar má gera ráð fyrir áhorfendum, bæði héðan og annarsstaðar frá.
Siglufjarðarmót krakka 12 ár og yngri verður nú um næstu helgi 19-21 mars. Og þá má geta þess að komið hefur inn í umræðuna hefur komið, (ekki staðfest) að Reykjavíkurmótið á skíðum 2004 verði um sömu helgi, á Siglufirði.
Jóhann Vilbergsson skíðakappi, er á meðfylgjandi mynd. (gömul)
16. mars 2004  Ein gömul. Tekið á sjómannadag 196?  Þarna sjást Helgi Antonsson, Guðjón Jóhannsson, Erling Jónsson, Hjördís Aðalsteinsdóttir ofl
Þau eiga afmæli í dag 16. mars 2004

15. mars 2004  Nú um helgina var haldið Bikarmót S.K.Í .í Skarðsdal í Siglufirði. Auk mótsgesta, keppanda og fylgiliðs, voru um 40-50 aðkomumenn á eigin vegum. Þannig að fyrir utan keppnisliðið, mun hafa verið í Skarsdal og fjöllunum þar í kring um hundrað manns í dag, að heimamönnum meðtöldum. Enda veður hið ákjósanlegasta.
Ég skrapp inn í Skarðsdal, um það leiti sem verðlaunaafhendingin átti sér stað og tók myndir af skíðaköppunum. Ég hefi ekki farið á vettvang skíðamóts, frá því að ég var fréttaritari Morgunblaðsins, fyrir nokkrum áratugum. Fyrir forvitni fór ég að spyrja um gang mála, og komst að því að mikið hefur breyst frá þeim tíma sem ég þekkti. Nú tröllríða strangar og jafnvel heimskulegar reglur ef miðað er við unglinga amk. Og svo er sendur sérstakur eftirlitsmaður frá reglugerðameisturunum hjá S.K.Í., til að sjá um að reglum sé framfylkt. Svo eitt fáráðlegt dæmi sé tekið, - ekki má muna nokkrum millimetrum út frá "reglunum", á lengd skíða sem keppendur eru með og eiga, án þess að eiga á hættu að verða dæmd úr leik, ja-svei skít fyrir reglugerðarflónunum. Þetta er ekki lengur keppni til gamans, heldur peningaaustur og reglugerðir. - að mínu mati.  Smelltu á myndina til að sjá fleiri.          Úrslitin hér

15. mars 2004  Ein gömul:   Skipverjar á Haferninum, í landi á Seyðisfirði 1966 -   Hafþór Rósmundsson, Valdimar Kristjánsson, Snorri Jónsson, Sigurður Jónsson, Guðmundur Björnsson, man ekki nafnið.

  Hann á afmæli í dag: 15. mars 2004