|
31. mars 2004 þetta eru félagarnir Sigurjón Pálsson og
Viggó Jónsson, starfsmenn Síldarvinnslunnar á Siglufirði- en þangað inn
leit ég í morgun |
|
31.
mars 2004 þetta eru félagarnir Sigurjón Pálsson og Viggó
Jónsson, starfsmenn Síldarvinnslunnar á Siglufirði- en þangað inn leit
ég í morgun |
31.
mars 2004 Ein gömul: Jörgen Hólm og Björn Einarsson |
|
30.
mars 2004 Aðsend frétt:
www.bb.is | 30.03.04 | 10:07 Ísfirskir mótshaldarar komnir á
Siglufjörð.
Þessi mynd var tekin af skíðasvæði Siglfirðinga þann 23.mars. Eins og
sjá má er mun meiri snjór til fjalla í Siglufirði en á skíðasvæðum
Ísfirðinga í Skutulsfirði. (ljósmynd: SK)
Hluti ísfirsku starfsmannanna sem sjá um alpagreinar Skíðalandsmóts
Íslands á Siglufirði hélt norður í gær. Meðal þeirra var Jónas
Gunnlaugsson formaður Skíðafélags Ísfirðinga. Þegar bb.is hafði samband
við Jónas í morgun var hann kominn til fjalla ásamt sínum mönnum. Hann
sagði útlitið gott í brekkunum á Siglufirði, nægur snjór væri til
mótshalds og veðurspá þokkaleg. Keppni hefst í alpagreinum á fimmtudag
og líkur á laugardag. Rúmlega 100 keppendur eru skráðir til leiks, þar
af 20-25 erlendir keppendur en mótið er einnig alþjóðlegt FIS mót.
Annar flokkur starfsmanna heldur norður til Siglufjarðar í kvöld og
verða því um tuttugu starfsmenn við mótið frá Skíðafélagi Ísfirðinga. |
|
30. mars 2004
Bátahúsið: Vinna við bryggjusmíði og fleira inni í Bátahúsi
Síldarminjasafnsins gengur samkvæmt áætlun, ég leit þar inn í morgun og
þar voru þeir Sveinn Þorsteins og Hafþór Rósmundsson á fullu við verkið. |
|
30.
mars 2004 Ein gömul: Tekið í mjölhúsi SR 1964 (?)
Jón Sigurðsson, Guðmundur Bjarnason og Sigurður Bjarnason |
Hann á afmæli í dag 30. mars 2004 |
|
29.
mars 2004 Aðsent (JS): Goðamót Þór, á Akureyri fór fram nú
um helgina. 6.flokkur KS tók þátt í þessu móti, og hafnaði í 4. sæti í B
riðli. Nokkrar myndir koma í ljós með því að smella á myndina, og sjá má
aðrar myndir frá mótinu með því að smella á:
http://www.thorsport.is/Thor/album.asp?l=skodaalbum&parentalbum=Goðamót
2004&album=Stelpurnar |
|
29.
mars 2004 Sólberg og Múlaberg, komu í morgun með til
löndunar um 60 tonn samanlagt af rækju, til vinnslu hjá Þormóði Ramma
Sæberg. |
|
29.
mars 2004. Ég heimsótti "bryggjuliðið," þá sem sjá um alla
upp og útskipun í Siglufjarðarhöfn, í morgun og drakk með þeim kaffi.
Þetta eru kátir karlar með margar hugmyndir bæði ferskar og róttækar- og
þeir kalla ekki allt ömmu sína, enda samanstendur hópurinn af hörkutólum
til orða og vinnu. Þessa mynd tók ég af hópnum fyrir utan hús þeirra við
höfnina, að kaffiklénu loknu. Meðal þeirra eru "kaffigestir" Jóhann Sv
Jónsson og Gunnlaugur Vigfússon. Arnar Ómarsson, Sigurður Friðfinnur
Hauksson, Ómar Geirsson, Benedikt Benediktsson, Jóhann Sv. Jónsson, Ægir
Bergsson, Sigurður Jóhannsson, Gunnlaugur Vigfússon, Sverrir Gíslason og
Sturlaugur Kristjánsson |
|
29. mars 2004
Jóhann Sv Jónsson og ég Steingrímur vorum í kaffi hjá bryggjuliðinu,
og vildu drengirnir endilega fá að taka mynd af okkur "öldungunum" og
hafa Sturlaug Kristjánsson á milli okkar. Þessu átti, að ósk
bryggjuliðsins að fylgja allnokkuð stór spurningalist, um hvað hver
væri.... hver hefði... og hver mundi o.s.f.v. En þar sem þessi listi fór
út í "vafasama" og vart birtingarhæfar spurningar - þá er þeim sleppt
hér, en myndin er ágæt, en Ómar Geirsson hélt á myndavélinni minni. |
|
29.
mars 2004 Ein gömul:
Grímuböll voru hér áður fyrr, all tíður skemmtanamáti. Þá kepptust
menn og konur við að mæta á dansleiki í sem frumlegustum búningi- og
yfirleitt voru veitt verðlaun fyrir þá frumlegustu og skemmtilegustu.
Fyrir meir en 50-55 árum, bar það við að allt ætlaði vitlaust að verða á
Siglufirði, þegar tveir ungir gárungar mættu á einn slíkan dansleik.
Þetta atvik var á hversmanns vörum og margar skoðanir á þessum atburði.
Sú frásögn er ég heyrði oftast (og man) frá þessum atburði, þarf ekki endilega að
vera sú eina rétta, en hún var á þessa leið, í stuttu máli. Eins og áður
segir voru þarna að verki tveir ungir menn um 16 ára gamlir (?) sem
fengu vinkonur sínar sem kunnu á saumavélar, sér til aðstoðar. Á þessum
tímum voru nasistarnir að hefja valdabrölt sitt í Evrópu, við hreinsanir
og kynþáttahatur, meðal annars töldu þeir blökkumenn, til óæðri
kynstofns. Í þessum anda bjuggu félagarnir til persónurnar; nasista og
blökkumanna, til að sína þversögnina í heimsku nasistanna. En þetta
uppátæki var greinilega misskilið því allt fór úr böndunum, ma. í
foreldra og fjölskylduhúsum. Það átti að reka þá úr skólanum, úr
bænum, setja þá í fangelsi, flengja þá, ofl.ofl. - Í dag og raunar á
þeim tíma einnig, var og er hlegið af þessu írafári almennings, sem lét
stjórnast á fyrirfram ákveðnum fordómum á drengjunum og án þessa að
reyna að nálgast hinn raunverulega sannleika og tilgang, það er
andhverfunni. Þetta voru vinirnir Sveinbjörn Blöndal listmálari og
Hörður Óskarsson. |
Hún
á afmæli í dag, 29. mars 2004 |
|
 28. mars 2004
Aðsendar myndir, Allir þekkja Hólm
Dýrfjörð, þessar skemmtilegu myndir voru teknar á Elliheimilinu Grund á
öskudagsballi nú á dögunum, þar sem allir klæddu sig upp skrautlega í
tilefni af deginum. Þar var Holli hrókur alls fagnaðar, að venju og lék
á alls oddi, þótt níræður væri, en hann varð 90 ára 21. febrúar sl.
Konan með honum á myndinni heitir Guðfinna. |
|
28.
mars 2004 Slysavarnarfélagið Vörn Siglufirði,
afhenti í gær áhöfninni á björgunarbátnum Sigurvin Siglufirði,
fullkominn fjarskiptabúnað, búnað sem þá félaga hefur lengi vantað.
Búnaðurinn samanstendur af 4 handtalstöðvum, sem tengja má við
öryggishjálma, þannig að skipverjar sem búnaðinn nota geta óhindrað haft
samband við stjórnstöð, í landi, milli báta og þyrlu osfv. Þetta
var kærkomin gjöf, og lýsti talsmaður bátadeildarinnar Strákar, þakklæti
sínu, og félaga með mörgum orðum, og kórónaði þakkirnar með
rembingskossi. Ég var viðstaddur og tók myndir í tilefni af
afhendingunni. |
|
28.
mars 2004 Kynning á vörum sem tilheyra hinni
hefðbundnu fermingu sem framundan er, fór fram í Aðalbúðinni í fyrradag.
Fyrirtækin sem þátt tóku í þessari kynningu voru. Aðalbakarí, Aðalbúðin
og Siglósport.
Svava Friðrika tók myndirnar sem hér fylgja. -
Smelltu á myndina. |
|
28.
mars 2004 Ein gömul: Það var að vísu ekki á hverju
ári, en þó nokkrum, sem "guttarnir" gátu siglt stoltum fleyjum sínum á
milli stórra ísjaka, og jafnvel falið sig á milli þeirra þegar lögreglan
var til kölluð, af dauðhræddum "kerlingunum" á Eyrinni, til að koma í
veg fyrir að ungdómurinn færi sér að voða í jökulköldum sjónum. Oft
blotnuðu "guttarnir," sem voru margir, en þeir sluppu alltaf með
skrekkinn, þrátt fyrir að engin bjargvesti voru til staðar á þeim tíma.
Þessi fley þeirra voru kallaðir kajakar og voru búnir til úr gömlum
bárujárnsplötum. Myndin er tekin á Siglufirði í byrjun mars 1965 |
Hann
á afmæli í dag 28. mars 2004
Og hann átti afmæli 25. mars sl. |
|
27.
mars 2004 Samkvæmt spádómum veðurstofunnar (var mér sagt)
átti hvorki að vera sól né hiti á Siglufirði í dag. En þessir menn Björn
Stefánsson og Adólf Árnason, voru sko ekki í úti í kalsaveðri þar sem
þeir sátu á þröskuldi við dyr Kaffi Torg klukkan 16:30 í dag, í logni,
10 stiga hita og glampandi sólskyni. |
|
27. mars 2004
SR-Byggingavörur. - Þangað leit ég inn í morgun, þar var "allt á
öðrum endanum" það er að þessir 2 starfsmenn sem voru að vinna í dag
voru í óða og önn að vinna við að stækka verslunarplássið um 100 %. En
nægt pláss er fyrir hendi við hlið og inn af versluninni, þar sem áður
var Lager SR-Mjöl hf (SVN) Umfang verslunarinnar hefur vaxið Ótrúlega
fljótt og mikið, vöruúrvalið alltaf að aukast, og er nú að komast yfir
magn og úrval það sem KEA / Húsasmiðjan var áður með, en þeir eru flúnir
af vettvangi, eftir að hafa komið þeim aðilum sem fyrir voru hér á
markaðinum áður, á hausinn. Þeir græddu ekki nógu mikið ! Þetta eru
Hermann Einarsson og Guðmundur Einarsson, "lafmóðir " |
|
27.
mars 2004 Fjölbreytt möguleikar á Sigló um páskana.
Smelltu á táknið- og þú ferð inn á Siglufjarðarvefinn og getur lesið um
möguleikana.
Afrit hér |
|
27.
mars 2004 Ein gömul: Vinnufélagarnir Garðar Hallgrímsson
og Ólafur Þ.Þorsteinsson læknir |
|
26.
mars 2004 Aðsent:
Vormót á Siglufirði.
Opið mót verður haldið í logni og sól á
Siglufirði laugardaginn 17. apríl kl 14.00. Keppt verður í fjórgangi og
tölti. Skráningu þarf að vera lokið fyrir fimmtudaginn 15 apríl. kl
18.00. Hrafnhildur tekur við skráningum í Aðalbúðinni – hestahorninu í
síma 467 2225. Skráningargjald kr. 1.000,- Nánari upplýsingar gefur
Haraldur í síma 893 5051.
Heyrst hefur að meðal keppnishrossa verði
handbremsu-Jarpur, staði-Rauður og skurðgröfu-Jörp, jafnvel að rykið
verði dustað af grafara-Bleik (e. gravediggers-Pink).
Á Siglufirði hefur hestamennskunni vaxið mjög fiskur um
hrygg undanfarin ár. Byggð hefur verið reiðskemma, tvö gerði,
hringvöllur og nú er verið að leggja hlaupabraut við hringvöllinn.
Hrossum hefur fjölgað talsvert undanfarin ár og hestum og knöpum farið
mikið fram. Glæsismenn skora sérstaklega á Fljótamenn, Ólafsfirðinga og
Skagfirðinga til að taka þátt. Á sama tíma verður Meistaramót unglinga
í skíðaíþróttum á Siglufirði og því mikið um að vera í bænum. |
|
26.
mars 2004 Arnar Ólafsson, eftirlitsmaður Rarik á
Siglufirði, var að huga að spennistöðinni og öryggis-ljósavélinni sem
tilheyrir Heilsugæslustöðinni, er mig bar þar að. Þar var allt í fínu
lagi, eins og alltaf. En það þarf þó að skoða þetta reglulega sagði
"Addi" og brosti. |
26. mars 2004
Nýfæddur Siglfirðingur |
26.
mars 2004 Ein gömul: Þrír bílstjórar, Guðbrandur Jónsson,
Steindór Kristjánsson og Gestur Halldórsson. |
|
25. mars 2004
Jón Salmannson, auglýsti nú í vikunni í "Tunnunni" að hann tæki
að sér að gera við tölvur. Það kom mér á óvart að hann væri orðinn
tölvuviðgerðartæknir, ekki það að ég héldi hann ekki færan um slíkt nám,
heldur vegna þess að ég hefi mætt honum og séð, nær daglega. En ég tók
ekki tillit til tækninnar, sem heitir Fjarnám, - þar öðlaðist hann
þekkinguna og lauk svo verklegu og bóklegu prófi hjá löggiltum
prófdómurum í iðn sinni nú í mánuðinum. Jón starfar hjá Símanum. Ég
hitti Jón að máli í dag og smellti af honum mynd, - sonur hans Hermann
Ingi fékk að vera með á myndinni.. |
|
25.
mars 2004
Þessir krakkar voru fúsir til að raða sér upp fyrir
ljósmyndarann, er hann keyrði framhjá Barnaskólanum, en þau voru að
leika sér í frímínútunum, eins og það hét í gamla daga og heitir
væntanlega enn það sama. Mér láðist að spyrja krakkana um nafn,
kannski einhver sendi mér nöfnin. |
|
25.
mars 2004
Flutningaskipið Green Atlantic hefur verið hér síðustu tvo
sólarhringa við að losa um 400 tonn af frosinni rækju til Þormóðs Ramma
Sæbergs. Myndin er tekin í morgun. |
|
25. mars 2004 Ein gömul: Skíðakappar, fyrirtækjakeppni í
göngu: Sveitin sigursæla t.f.v. Benedikt Sigurjónsson, Hreinn Júlíusson,
Skúli Jónasson (meistarinn), Sigurður Helgason og Jón Sigurðsson |
  Þeir eiga afmæli í dag,
25. mars 2004 |
|
24. mars 2004 Síðastliðinn sunnudag fengu Siglfirskir
krakkar, heimsókn nokkurra krakkahópa úr öðrum byggðarlögum og kepptu
við þá í Blaki. Ég fékk sendar í morgun nokkrar myndir frá
star@simnet
ég er ekki viss um hver star er þar sem undirskrift vantaði, en
myndirnar eru hér með komnar á síðuna, og frekari skýring kemur síðar. |
|
24. mars 2004 Bjartsýni eða? Úr
fundargerð Tækni – og umhverfisnefndar 17. mars 2004: Græna húsið
ehf sækir um leyfi til að flytja húseignina Aðalgötu 18. Ætlun
eigenda er að taka húsið af steyptri kjallarahæð og flytja það til
Reykjavíkur. Gengið yrði frá lóðinni að flutningi loknum þannig að ekki
verði sár þar sem húsið stóð. Nefndin bendir á að húsið er byggt árið
1905 og ber því að leita umsagnar Húsafriðunarnefndar. Afgreiðslu
frestað og byggingarfulltrúa falið að leita frekari upplýsinga um
málið. --
Húsið merkt x á myndinni |
|
24.
mars 2004 Ein gömul: Hvað ætli þeir séu að gera? Þetta eru
Albert Sigurðsson, Jóhann Örn Matthíasson og Óli Björnsson, þeir eru að
snúa sveif á handknúnu spili (þriggja hraustra manna átak) um borð í
pramma frá dýpkunarskipinu Grettir, árið 1966 |
|
23. mars 2004
Þetta er Stóriboli, snjóflóðagarðurinn ofan syðstu byggðar á
Siglufirði. |
|
23. mars 2004 Þessum
mætti ég í morgun á Langeyrarvegi, en þetta eru starfsmenn
Hitaveitunnar, að koma úr eftirlitsferð í Skútudalinn, þar sem
uppspretta heitavatnsins er. Þetta eru Árni Skarphéðinsson og Óli
Agnarsson, á vélsleða, sem er þægilegasta farartækið sem kemst inn í
Skútudal um þessar mundir. |
|
23. mars 2004 Skarðsdalurinn
og nágrenni. Skíðasvæði Siglfirðinga í morgunsólinni, "best
varðveitta" leyndarmál skíðamanna, perla skíðamanna. Þarna er að öllum
líkindum besta og notadrýgsta skíðasvæði landsmanna, svæði með
fyrstaflokks þjónustu, starfsmenn aldrei í vondu skapi, alltaf brosandi,
og gera sér grein fyrir að þarna eru þeir til að þjóna gestum svæðisins,
gera allt sem hægt er til að þeir fái sem mest út úr heimsókn sinni á
svæðið. |
|
23. mars 2004 Það
var fátt um báta í smábátahöfninni í morgun, en meira um bíla
eiganda þeirra á svæðinu. En flestir eru nú í blíðunni að vitja og
leggja grásleppunetin sín en vertíðin er nýlega byrjuð. |
|
23. mars 2004
Þetta eru þeir Gunnlaugur Vigfússon og Hreiðar Jóhannsson, inni í
frystigámi að koma rækjupokum á bretti, en rækjan er unnin í verksmiðju
Þormóðs ramma Sæbergs. |
|
23.
mars 2004 Ein gömul, tekin á Hótel Höfn 19?? tilefni ?? Til þess að
myndin njóti sýn þá er þessi mynd stærri en venjulega hér á
vefnum, en mjög athyglivert er fyrir fullorðna Siglfirðinga, að skoða
hin mörgu þekktu andlit sem þarna sjást. Ekki eru öll andlitin í "fókus"
en mjög mörg andlitin má þó þekkja. |
Hann á afmæli í dag, 23. mars 2004 |
|
22.
mars 2004
Aðsent: Þessi flutningabíll fór útaf í fljótunum í
gær, rétt hjá Hrauni. Ófærð og snjóblinda mun hafa valdið óhappinu. Ekki
er vitað um meiðsl. Ljósmynd: Marteinn. |
|
22.
mars 2004 Og þessi garpur, landsfrægur skíðakappi fyrri tíma;
Guðmundur Árnason, hann er vanur snjónum og klæðir sig bara í samræmi
við hann hverju sinni. Þarna hitti ég Guðmund hressan að vanda inni hjá
Rafbæ í morgun. |
|
22.
mars 2004 Þessa tvo sómamenn, hitti ég í Olís búðinni;
Stefán Einarsson verktaka, sem var í sólskynsskapi yfir snjónum, því
snjórinn er eitt af hans lifibrauði, vegna snjóruðningstækja sinna -og
Stefán Friðriksson afgreiðslumaður Olís, sem alltaf er í sólskynsskapi
hvort sem snjóar eða ekki. |
|
22. mars 2004
Allmiklum snjó hefur kyngt niður síðasta sólahring. Götur víða
þæfingsfærar (ennþá um kl. 10:00) Og í fyrsta sinn á síðastliðnum tveim
árum þurfti ég að moka bílinn minn út af stæðinu, nú í morgun.
Snjóruðningstækin voru a fullu, og víða sást til manna með skóflur, við
að moka snjó Myndin hér sýnir tvo "trillukarla" vera gera "hreint fyrir
sínum dyrum" |
|
22.
mars 2004 Ein gömul. Hafliði Helgason
bankastjóri, Hinrik Aðalsteinsson kennari og Steingrímur Magnússon
verkstjóri. |
|
22.
mars 2004 Nýr Siglfirðingur |
   Þau
eiga afmæli á dag 22. mars 2004 |