Lífið í mars 1-7 2004 | Lífið í mars 8-14 2004 | Lífið í mars 15-21 2004 | Lífið í mars 22-31 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í mars 1-7 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Góugleði (S)
Góugleði (G)
Guðrún María
Reisugilli
Hestamennska
Gestur Frím. 80 ára
Síldarvinnslan




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

7. mars 2004  Bjarni Ólafsson AK kom nú í hádeginu með um 1.300 tonn af loðnu.

7. mars 2004  Verksmiðjan er byrjuð að bræða, þótt vart verði veitt athygli, þar sem varla sést reykur nema við sérstök skilyrði.
Eins og ég sagði frá í gær, þá kom Börkur NK 122, með um 1800 tonn af loðnu. Undirbúningur á bræðsla í verksmiðju Síldarvinnslunnar á Siglufirði,hófst strax,- og er nú allt á fullu á þeim bænum.
Þá hefur verið melduð 3 skip til viðbótar með loðnu. En það eru Björg Jónsdóttir með 1.200 tonn, Bjarni Ólafsson með 1.300 og Guðmundur Ólafur með 1.200 tonn. Fyrsta skipið er væntanlegt nú um hádegið.
Ég heimsótti bræðsluna í morgun og tók þar nokkrar myndir. Erfitt var að finna suma starfsmennina, því þeir þurfa sumir að sinna fjölbreyttum störfum, en ekki eru nema 8 menn á dagvakt - og 6 á næturvakt. Annað það áður var þegar 40-50 menn voru á vakt hjá SR, meðan síldin og gamli tíminn réði, en nú stjórna tölvurnar flestu í staðinn. Ég tók þarna nokkrar myndir í morgun.

7. mars 2004  Ein gömul: Oddur Vagn Hjálmarsson, Jón Pálsson og Geir Guðbrandsson, um borð í Drang, á leið til Akureyrar-Seyðisfjarðar árið 1964

  -- Örlítil brjóstbirta. -- 

6. mars 2004  Klukkan 08:00 í morgun, lagðist Börkur NK 122, hér við bryggju Síldarvinnslunnar, með um  1.800 tonn af loðnu til löndunar. Þetta var fyrsta loðnan sem til okkar berst á þessari vertíð, og að venju í tilefni af fyrsta loðnufarminum, var skipstjóranum sem bar nafnið Sturla Þórðarson, afhent terta frá Bæjarstjórn, tertuna afhenti Guðný Pálsdóttir forseti bæjarstjórnar.

6. mars 2004  Seinnipartinn í gær, var haldið "reisugilli" í því tilefni, að lokið var við að þekja að fullu Bátahúsið við Síldarminjasafnið.
Mættir voru að sjálfsögðu, smiðirnir hans Birgis (Berg hf) sem sýnt hafa mikinn dugnað við verkið. Þessi áfangi er mjög stórt skref til þeirrar vinnu sem eftir er, áður en húsið verður formlega opnað til sýningar á gömlum síldarbát, nótabátum og fleiru tilheyrandi "síldarhöfninni", sem gefa mun yngri kynslóðinni og ókunnum kost á að átta sig á hvernig þessi hluti síldarævintýrsins leit út.
Á reisugillið mættu auk fyrrnefndra, Örlygur Kristfinnsson safnvörður og aðal driffjöðrin að uppbyggingu Síldarminjasafnsins, stjórn safnsins, starfsmenn, bæjarstjórinn Runólfur Birgisson og fleiri. Myndir þær sem fylgja þessu, tala væntanlega sínu máli.  teikningin hér sýnir inn í Bátahúsið, smelltu á myndina

6. mars 2004   Ein gömul: Ekki man ég nafn þess til vinstri, til að fara örugglega rétt með það, en sá til hægri er Jónas Stefánsson

Hann á afmæli í dag 6. mars 2004

5. mars 2004 Loðna - loðna - loðna. Loksins, loksins er “Bjargvættur” okkar Siglfirðinga á leiðinni með loðnu til Siglufjarðar.  Það er Börkur NK 122 með ca.1800 tonn. 
Ekki er kominn staðfestur komutími ennþá, en hann mun verða með morgninum.  

5. mars 2004   Aðsent  Sunnudaginn 29.febrúar varð Siglfirðingurinn Gestur Frímannsson áttræður, (eða tvítugur ef aðeins eru talin hlaupárin!) Gestur fæddist að Steinhóli í Fljótum og ólst m.a. upp á Austari-Hóli í 15 systkina hóp og hafa nokkur systkinanna verið búsett á Siglufirði. Gestur kvæntist Friðfinnu Símonardóttur frá Hrísey og bjuggu þau m.a. á Hóli og Steinaflötum, en Friðfinna (Lilla) lést árið 1995. Börn Gests eru Þórhallur Jón (Rvík), Elín Anna (Siglufirði) og Símon Ingi (Barði). Í tilefni af afmælinu var haldin veisla á Skálarhlíð og um 120 manns heilsuðu upp á Gest og fjölskyldu hans af þessu tilefni. Símon stjórnaði veislunni sem var fjörug og mikil tónlist. Ninni lék á harmónikku, Tóti á gítar og Gummi Skarp á saxófón. Heiðrún María Ólafsdóttir (langafabarn Gests) söng Vetrarsól og gamanvísur sem Gestur fékk sendar frá herbergisfélaga sínum frá því hann var á Reykjalundi. Jónas Bjarnason ávarpaði veisluna og Kristín Sigurrós Einarsdóttir (tengdadóttir Símonar) flutti pistil um kynni sín af Gesti. Þess má geta að í síðustu viku tók Þórhallur Ásmundsson viðtal við Gest og birtist það í Feyki í tilefni af afmælinu.

Þeir eiga afmæli í dag
 5. mars 2004

5. mars 2004  Ein gömul:
Regína Mikaelsdóttir, Jónína Jónsdóttir, Rakel Pálsdóttir,  Oddný Hólmsteinsdóttir, Margrét M Steingrímsdóttir, Þórdís Mikaelsdóttir og  Díana Hólmsteinsdóttir

4. mars 2004  Runólfur Birgisson, nýr bæjarstjóri Siglufjarðar, tók við starfi sínu í dag, sem Bæjarstjóri Siglufjarðar. Það þarf ekki að kynna "Óla Birgis" eins og margir kalla hann, fyrir Siglfirðingum, en þeir sem ekki eru vissir um upprunna hans, muna eftir Birgir Runólfssyni og Margréti Pálsdóttur, foreldrum hans.

Runólfur sagði aðspurður, að hann hlakkaði til að takast á þetta verkefni, sem bæjarstjóri Siglufjarðar, sem undir niðri olli örlitlum kvíða, en hann tryði því að það yrði fljótt að bakki, þegar vinna hæfist fyrir alvöru, þar sem næg verkefni væru framundan.  Til hamingju Óli Birgis, með nýja starfi og afmælið. Ólafur er 56 ára í dag.

Hestamennska: Það er alltaf gleðiefni þegar Siglfirðingar gera það gott hér heima, og enn meira gleðiefni er, þegar þeir gera það gott í öðrum byggðarlögum, og það í Skagafirði þar sem hestamennskan er þeirra stolt.  Hestamenn héðan hafa sýnt frábæran árangur í hestamennsku, til dæmis Haraldar Marteinsson í keppni á Sauðárkróki á dögunum.  Þarna var hann að keppa, bæði í opnum flokki í tölti og fjórgangi. -  Þess má einnig geta að Katrín Haraldsdóttir keppti á sama móti og var árangur hennar frábær þó hún næði ekki verðlaunasæti, því að þarna keppti hún í opnum flokki fullorðinna.   Nánari upplýsingar hérna

Fjórgangur:
1. Bergur Gunnarsson og Erla frá Hofsstaðaseli - 6,88
2. Baldvin Ari Guðlaugsson og Örn frá Hellulandi - 6,56
3. Skapti Steinbjörnsson og Spönn frá Hafsteinsstöðum - 6,46
4. Haraldur Marteinsson og Ofsi frá Engimýri - 6,24
5. Stefán Friðgeirsson og Megas frá Garðsá - 6,12
Tölt:
1. Magnús Bragi Magnússon og Léttir frá Álftagerði - 7,1
2. Ragnar Pálsson og Fjalar frá Sauðárkróki - 6,7
3. Haraldur Marteinsson og Ofsi frá Engimýri - 6,68
4. Skapti Steinbjörnsson og Dimmblá frá Hafsteinsstöðum - 6,65
5. Baldvin Ari Guðlaugsson og Örn frá Hellulandi - 6,58

4. mars 2004  Ein gömul: Kristján L Möller, Sigurður Hilmarsson og Birgir Steindórsson.

Þau eiga afmæli í dag  4. mars 2004 

3. mars 2004 Kæru netverjar, þessir 500-600 sem nú orðið, heimsækja daglega síðu mína Lífið á Sigló, auk þeirra sem fara á hinar síður mínar. Ég hefi undanfarið staðið í því stórræði að safna öllum vefum mínum á eitt pláss. Tengja hefur þurft á annað hundrað "linka" innbyrðis til hins fjölbreytta efnis, sem á vefnum er, þar með yfir 28 þúsund síður (htm), sem hver um sig hefur marga tengla og atriði,- og tæplega 25 þúsund ljósmyndir.  Allt þetta efni verður nú á næstunni flutt yfir á vefinn   http://www.xsiglo.net  (ekki virkt ennþá)   Notendur verða látnir vita þegar vefurinn verður tilbúinn.

3. mars 2004   Ein gömul:  Eggert Theódórsson og Hinrik Andrésson. Þarna eru þeir í vörudyrum í ríki Eggerts á Lagernum, árið 1964(?)

Þau eiga afmæli í dag    3. mars 2004

2. mars 2004   Lágheiðin,  byrjað var á því að moka Lágheiðina í gær, og áætlað að því verði lokið eftir hádegi í dag, - og þá væntanlega verður vegurinn um hana opnaður samhliða (?)

2. mars 2004  Guðrún María - Fiskverkun ehf.  Þar fer fram umfangsmikið fiskverkun. Feðgarnir Haukur Jónsson og Ragnar Haukur Hauksson stýra fyrirtækinu. Sá eldri sækir aflann í greipar Ægis, ásamt tveim skipverjum á bátnum Guðrún Jónsdóttir SI, en sá yngri sér um vinnsluna í landi. Þá sækja þeir einnig afla frá markaði, sem og þeir selja einnig afurðir til, eins og td. þorskhrogn. En aðallega verka þeir fiskinn í salt.  --
Smelltu á myndina.

2. mars 2004 Einn  út og annar inn í staðinn. Nú síðast í febrúar fór út úr þessu húsi báturinn Jonni SI 86, glæsilegur nýsmíðaður plastbátur, en í dag var var verið að flytja annan bát inn, í sama hús til breytinga. En gerðar höfðu verið á skrokknum tilraunahönnun sem ekki reyndist sem ætlast var til og á nú að bæta úr því. Þetta er báturinn Guðmundur Jónsson ST 17 - 2571
JE-Vélaverkstæði séum verkið.

2. mars 2004  Bátahúsið, við Síldarminjasafnið. Nú er unnið að því að klæða þakið á húsinu með bárujárni. Þarna eru starfsmenn Berg hf að verki.
Í forgrunni eru þeir Birgir Guðlaugsson byggingameistari og Gísli Antonsson smiður.

2. mars 2004  
Ein gömul:  Á Seyðisfirði 1964  Sigurður Þór Haraldsson, Jónas Guðmundsson og Haukur Kristjánsson

1. mars 2004   Lýsisskipið Havtank kom hingað í dag til að lesta 1.100 tonn af loðnulýsi, hjá Síldarvinnslunni á Siglufirði.

1. mars 2004  Það á afmæli í dag, og það er eins árs,  SR-Vélaverkstæði.  Mér var boðið í afmælisveislu hjá þeim í dag, sem ég auðvitað þáði.
Vel hefur gengið hjá þeim á þessu fyrsta ári, og verkefnastaðan þokkaleg eins og er, en mætti þó vera betri, sagði Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri.
Þá hefur verslun þeirra SR-Byggingavörur, sem opnuð var í desember síðastliðinn, gengið vonum framar, og umfang hennar og vöruúrval hefur aukist umtalsvert. Á annarri myndinni sést Óskar Berg Elefsen, skera fyrstu sneiðina af afmælistertunni.

1. mars 2004  Aðalfundur og Góugleði Félags aldraðra á Siglufirði, var halið í gærkveldi, með tilheyrandi og gleðskap. Ég mætti þar ekki, kona mín var þar raunar og tók þar myndir (G), en ekki á stafræna myndavél, svo þær verða að bíða betri tíma. (þær eru einnig komnar) - En Sveinn Þorsteinsson (S) var þar með vélina sína og lét mér myndir í té sem þú sérð þær ef þú smellir á myndina.  Góugleði (S) og Góugleði (G)

1. mars 2004  Það vissu margir af því en fannst það vart í frásögu færandi, að snjóflóð féll eftir gömlum farveg úr gilinu ofan við snjóflóðavarnargarðana nú á dögunum þegar snjóaði sem mest. Snjóflóðavarnargarðurinn beindi flóðinu réttan farveg, frá byggðinni. Raunar virtist manni þetta aðeins smáspræna, séð neðan frá Langeyrarveg. En nú þegar nær allur snjór er farinn, kemur í ljós að snjóflóðið hefur náð alveg niður og yfir gamla Fjarðarveginn, og skemmt þar handrið við tjörnina, girðingu og gróður, neðan við veginn. Myndirnar voru teknar í gærkveldi um kl. 18:00

1. mars 2004  Hann á afmæli í dag -   
1. mars 2004   Ein gömul:   Sigurður Konráðsson, Haukur Freysteinsson og Jón Björgvinsson 1965