Lítill reykur sást koma frá verksmiðju Síldarvinnslunnar, en samt var þar allt á fullu.
Séð inni í kyndirúmið, þar var enginn maður.
Inni Mjölhúsi var allt á fullu og mikill erill.
Það fór að íla í loftpressunni, sagði Reynir Gunnarsson (til hægri), en hann hafði hringt í verkstjórann Friðrik Hannesson til að kanna málið
Kristinn Konráðsson og Sveinn Þorsteinsson
Inni í Þráavarnar-efna geymslu.
Stjórnstöð þurkyndarans, Rögnvaldur Jónsson
Aðal stjórnstöð verksmiðjunnar, þar sem Kristinn Bogi Antonsson ræður ríkjum á dagvaktinni (amk)
Meltu og hráefnistankar, Hersteinn Karlsson, þróarkarl er þarna að huga að meltutanka.
Og þarna er Hersteinn kominn upp í þróarrúmið.
Þarna fann ég ekki Viggó Jónsson sem ríkjum ræður í skilvinduplássinu
Ég fann kappann hvergi, en hér er gömul mynd af honum; Viggó Jónsson