19. júní 2004
Það var lítið um að vera, á slóð minni í morgun, Níels
Friðbjarnar (86 ára)mætti ég þó eins og venjulega á hverjum morgni á göngutúr
sínum, frá Grundargötu 16 þar sem hann býr- og fram á fjörð þar sem ég mætti
honum, og til baka. Níels var létt klæddur, enda logn og 15 °C
hiti klukkan rúmleg 9. --------- Þá frétti ég jú að
Björgunarbáturinn Sigurvon hafa farið í útkall vegna báts í vanda, en
leki mun hafa komið upp í honum. Nári fréttir síðar !
19.
júní 2004 Ein gömul: Slökkviliðið, - Guðmundur
Björnsson - Magnús Traustason - ? - Óskar Berg Elefsen - Elvar
Elefsen og Birgir Vilhelmsson
18.
júní 2004 Hagkvæmt, ódýrt, sparar vinnu og umfang. Nú er
búið að nota vinnupallinn á norðurhliðinni á Íslandsbankahúsinu, og næst
er það suðurhliðin. En þessi vinnupallur var í upphafi byggður
lágréttur, skoðaðu hér: frá 28 maí 2004
(á leiðinni að suðurhlíðina)
18.
júní 2004 Ýmislegt var til skemmtunar "um víðan
völl", í tilefni af deginum í gær, grín og gaman, andlitsmálun,
fótbolti, blak og fleira. Mikið af myndum koma í ljós ef smellt er á
viðkomandi myndir.
Dagskráin hélt áfram eftir kvöldmat, - en ég var búinn að fá nóg af
deginum - auk þess sem ég þurftir tíma til að vinna þessar rúmlega 200
myndir sem hægt er að skoða í dag þann 18. júní. frá Þjóðhátíðardeginum
, án þess að eyða nóttinni í þá vinnu. -- Hafið gaman af, krakkar
og fullorðnir.
18.
júní 2004 Dagskráin á "Torginu" 17. júní, hófst með því að
lúðraþytur frá Kirkjuturni barst eyrum viðstaddra, en leikið var lagið
Siglufjörður. Kynnir hátíðarinnar var formaður Þjóðhátíðarnefnda Baldur
Daníelsson.- þá tók Karlakór Siglufjarðar lagið. - Hátíðarræðuna
flutti Gunnar Rafn Sigurbjörnsson fyrrverandi skólastjóri. - Ávarp
fjallkonu. - Anna Snorradóttir heiðruð fyrir margvísleg störf. -
Dyfrurnar sungu. - Atrið úr leikritinu Silfur hafsins. - Karíus og
Baktus. - Götuleikhús. - Tóti og félagar. - Hljómsveitin Tvöföld
áhrif. og margt fleira var til skemmtunar á sviðinu og nágrenni.
18.
júní 2004 Skrúðgangan 17. júní fór fram rúmlega 13:30 í
gær, enn var kalsaveður og rigning, en þó má telja að gangan hafi verið
fjölmenn miðað við aðstæður. Gengið var stór hringur um bæinn, frá
kirkjutröppunum niður að Torgi, þar sem megnið af hátíðarhöldunum fór
fram.
17.
júní 2004 Víðavangshlaup U.M.F. Glóa hófst klukkan 11:00.
Þrátt fyrir rigningu og kalsa, gekk allt vel og krakkarnir voru ánægðir
17.
júní 2004 Dagskrá 17. júní hátíðarhaldanna hófst að
Hvanneyri, með ávarpi Hannesar Baldvinssonar f.h. Þjóðhátíðarnefndar,
þar sem hann rakti sögu frumkvöðla séra Bjarna- og fleiri. Kirkjukórinn
söng, Forseti bæjarstjórnar flutti ávarp og lagður var blómsveigur að
minnisvarða um hjónin Séra Bjarna og frú. ----- Kalsaveður var, rigning
og aðeins 4 °C hiti. - Snjóað hafði í fjallatoppa um nóttina.
17.
júní 2004 Ný brú yfir Hólsá Tilboð voru opnuð 15.
júní 2004. Bygging brúar á Fjarðará í Siglufirði. Brúin er 12 m steypt
bitabrú í einu hafi. Helstu magntölur eru: -- Gröftur 300 m3 --
Vegrið 96 m -- Mótafletir 559 m2 -- Steypustyrktarjárn 16,9 tonn --
Steypa 186 m3. Verki skal að fullu lokið 15. september 2004.
Myndin er af núverandi brú yfir Hólsá, tekin 24. maí sl.
Bjóðandi
Tilboð kr
Hlutfall
Frávik þúsund kr.
Brú verktakar ehf., Reykjavík
Áætlaður verktakakostnaður
Byggingafélagið Berg ehf., Siglufirði.
Elinn ehf., Sauðárkróki
Mikael ehf., Hornafirði
17.
júní 2004 Ein gömul: Steingrímur Garðarsson og Páll
G Jónsson, starfsmenn SR, - í þungum þönkum !
17.
júní 2004 Andlát. Halldór Sigurðsson, fæddur og
uppalinn Siglfirðingur lést á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum seini partinn í
gær, eftir erfið veikindi og uppskurð. Halldór hefur búið í
Bandaríkjunum í yfir 40 ár. Hann lætur eftir sig Bandaríska konu Grace-,
og uppkomin börn, Halldór var fæddur 15. mars 1930. Hann var sonur
hjónanna Sigurðar Sveinssonar og Ólínu Bergsveinsdóttur, sem bjuggu á
Hafnarhæðinni. (Suðurgata 51) Halldór var einn af fjölmörgum gestum
erlendis, er heimsóttu "Lífið á Sigló"
reglulega og var í góðu sambandi við síðuna. (undirritaðan)
Blessuð sé minning hans. Steingrímur
16.
júní 2004
Askur 11 (2174) Verið er að hífa bátinn upp á bryggju til
að þrífa hann og gera kláran til sölu- og þá sennilega úr bænum. "Þessi
bátur" skaffaði 4-5 mönnum vinnu á síðastliðnu sumri, - en nú er hann
kóda laus vegna enn einnar breytingar á þessu svokölluðu
fiskstjórnarkerfi- og eigendur bátsins geta því ekki átt hann lengur og
reyna því að selja hann. Það vekur hug að því, til hvers þetta
kótakerfið sé og hvaða hagsmunum það þjóni. Ég ætla hér að láta mína
skoðun og vangaveltur flakka: Það er ljóst af fréttum og öðrum
staðreyndum að margir hafa hagnast um miljónir á þessu
"fiskstjórnunarkerfi" og margir af þeim hafa hagnast á því án þess að
þurfa að veiða fiskinn sem þeim var úthlutað til að veiða, þar á meðal
eru vinir og vandamenn sumra þingmanna, sem áhrif hafa haft á laga og
reglugerðarsamþykktir. Þetta allt saman er að mínu mati eintómt bull.
Það ætti að gefa öllum sem útgerð vilja stunda- og hafa til þess þrek og
þor, að fiska á meðan þeir geta. Ef stofnarnir minnka, þá hellast menn
og bátar úr lestinni. Og eitt er víst, að þá yrði helming aflans með
tilliti til fjölda fiska ekki hent eins og nú er gert,
aflinn kæmi allur að landi. Þessar svokölluðu verndarákvæði hafa engu
skilað með tilliti til aukningar á stofnunum samkvæmt töflum
fiskifræðinga,
sem byggja allt sitt kerfi á líkindareikningum- og þeim forsendum sem
þeir sjálfir gefa. Um raunverulegt magn hafa þeir ekki hugmynd. Hvar er
til dæmis loðnan? Enginn gerir út á loðnu sem ekki finnst, en hún kemur
aftur eins og síldin. Hvorki stjórnvöld eða fiskifræðingar vita nóg um
þessa stofna, til að geta sagt með vissu hvar þeir halda sig, þegar
ekkert sést til þeirra. Ég man vel orð eins fiskifræðings árið 1967, er
hann sagði aðspurður í fréttaviðtali Útvarpsins hvort þessi gífurlegi
floti og veiði sem átti sér stað á síldarmiðunum við Jan Mayen, mundi
ekki tortíma stofninum: Svarið var einfalt: það er engin, hætta á
því, þessi stofn er svo gífurlega stór. Hvað varð af þessum
gífurlega stofni, sem ekki sást branda af á næsta ári, og síldin hvarf?
SK
16. júní 2004
Aðsent: Myndir frá Í.B.S. þinginu í gærkvöldi sem getið var um
hér í gær, þar sem K.S. yrði fengin viðurkenning. Myndirnar sýna forseta
Í.S.Í. Ellert B. Schram veita K.S. gæðaviðurkenningu fyrir barna – og
unglingastarf, fyrst knattspyrnufélaga á Norðurlandi, og hefur félagið
þar með rétt til þess að kalla sig Fyrirmyndarfélag næstu fjögur ár.
---- Forseti ÍSÍ veitti sæmdi jafnframt Guðrúnu Árnadóttur,
fráfarandi formann Í.B.S, gullmerki ÍSÍ fyrir vel unnin störf og
Jóhannes Egilsson var einnig sæmdur gullmerki Í.S.Í. fyrir 40 ára
formennsku í Tennis – og badmintonfélagi Siglufjarðar. Jóhannes hefur
verið formaður frá stofnun félagsins og er þetta líklega Íslandsmet,
þ.e. að sami einstaklingurinn hafi verið formaður sama félags samfleytt
í 40 ár.
Kveðja Þórir H.
16. júní 2004 Mikill
léttir ? Nei varla... Mikill vírusfaraldur hefur geisað á
netpóstsvæði Símans og fleiri um allan heim, í gær og gerir enn.
Enginn póstur mun hafa borist til eða frá viðskiptavinum Símans
seinnipartinn í gær- og einhverjar tafir eru væntanlegar næstu daga. En
Síminn þurfti að loka aðgenginu til og frá kerfinu, á meðan hálf miljón
sýktra skeyta voru hreinsuð úr kerfinu, auk hinna hefðbundnu rusl (rugl)
póstsendinga. Lífið á Sigló er engin undantekning, en enginn póstur
hefur borist til síðunnar frá klukkan 15:30 í gær og ekki hefur heldur
tekist að svara pósti sem kom fyrir þann tíma. venjulega koma 10-20
gagnlegar sendingar á dag netfangið mitt, auk annars póst sem ekki er
áhugaverður, en "SwamKiller-inn" minn lætur sjálfkrafa ruslpóstinn
og aðrar fjöldasendingar hverfa- svo ég veit lítið af honum nema ég
skoði skrána.
16.
júní 2004 Ein gömul: Kristjana Halldórsdóttir og
Jóna V Pétursdóttir.
15.
júní 2004 2 ljósmyndir, önnur af bíl Vegagerðarinnar niðri í
fjöru neðan svokallaðra Skriðu á Siglufjarðarvegi, vestan Sauðarnes. og
hin tekin fjær, þar sem + merkið er fór
bíllinn út af, en gjörla sést, vinstra megin við hitt
+ merkið er gúmbátur
Björgunarsveitarinnar Strákar eru að nálgast fjöruna, en strákarnir voru
sendir til að taka saman lauslegt úr bílnum, talstöð ofl.
Atvik voru þau að vegagerðarmaður hafði brugðið sér út úr bílnum til að
fjarlægja grjót sem hrunið hafði á veginn, bíllinn sennilega hrokkið úr
handbremsu og lagt af stað mannlaus í þessa feigðarför, en fallið er
þarna um 150-200 metrar og neðsti hlutinn þverhníptur. Og bíllinn talinn
ónýtur.
15.
júní 2004 Fréttatilkynning: - Á ársþingi Í.B.S. á
Siglufirði í kvöld mun Knattspyrnufélag Siglufjarðar hljóta
viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag Í.S.Í., þriðja félagið á Norðurlandi.
Áður hafa Skíðafélag Akureyrar og Taekwondo deild Þórs Ak. hlotið þessa
viðurkenningu. Viðurkenningin er veitt fyrir fyrirmyndarstarf í barna-
og unglingaíþróttum og þurfa félög og/eða deildir að uppfylla viss
skilyrði er lúta að starfseminni til að hljóta viðurkenninguna. Forseti
ÍSÍ, Ellert B. Schram og framkvæmdastjóri, Stefán S. Konráðsson munu
afhenda K.S. viðurkenninguna í þinghléi um kl. 19.00. -- Með
íþróttakveðju, Viðar Sigurjónsson
15.
júní 2004 Morgunblaðið í dag:Siglfirðingar vilja
loðnuleiðangur Bæjarráð Siglufjarðar hefur samþykkt ályktun þar sem stjórnvöld eru
eindregið hvött til þess að gera út loðnuleiðangur nú á sumardögum, í
ljósi þeirra upplýsinga sem fram komi í nýrri skýrslu
Hafrannsóknastofnunar. Í ályktuninni segir, að mikilvægt sé að ekki
verði til sparað við leit að loðnu og rannsóknir á loðnustofninum og
mikilvægi þess viðurkennt með auknu fjármagni og aukinni áherslu til
leitar. (ljósmynd: SK)
15.
júní 2004
Vefmyndavél. Svona gæti mynd frá vefmyndavél sem komið væri
fyrir á kirkjuturninum litið út. Þessa mynd tók Óli Kára í rigningunni
seinnipartinn í gær, þegar hann var hífaður upp að krossinum á turninum
til eftirlits. Þetta ef af yrði með vefmyndavélina, gæti orðið gott tákn
fyrir Siglufjörð, til viðbótar öllu öðru jákvæðu. Lögreglan gæti verið
þátttakandi í kostnaði, jafnvel Íslandsbanki og Samkaupsverslunin Úrval,
sem sjást í forgrunni, félagasamtök og ? Hugsið málið, þið
sem gætuð haft forustuna.
15. júní 2004
Aðsendar myndir:: Óli Kára fór upp að turnkrossinum, eins
og sagt er frá hér fyrir neðan, og hann tók ma. þessa mynd af steininum
sem enn er eftir undir krossinum. fingur bendir á litla sprungu á honum.
Óli tók fleiri myndir, - yfir byggðina sem þú sérð með því að smella á
myndina.
15.
júní 2004
Seinnipartinn í gær, voru tveir starfsmenn Ólafs Kárasonar, - Óli
sjálfur og Birgir Ingimarsson, hífaðir upp að krossi kirkjuturnsins, en
eins og frá sagt hér neðar, brotnaði 15-20 kg. steinklumpur, annar af
tveim sem krossinn "prýddu". Ef hinn væri einnig kominn á tæpasta vað,
var krossinn, öryggis vegna skoðaður og myndaður. Það var að vísu komin
sprunga í steininn, en sæti hans var talið það öruggt, að ekki stafaði
hætta á því að hann losnaði.
15.
júní 2004
Ein gömul: Skipverjar á Haferninum (ofl) eru hér að
taka á móti einum skipsfélaga sínum (Pálma Pálssyni) sem er að koma með
Drang til Siglufjarðar, með miklum látum og lúðrablæstri. Á myndinni
eru: Tryggvi Björnsson, Ásgrímur Björnsson, Þórður Jónasson, Valdimar
Kristjánsson, Snorri Jónsson, Oddur Guðmundur Jónsson (á bak við)
Steingrímur kristinsson, Bergsteinn Gíslason,- og Ragnar Guðmundsson.
Myndin er tekin á Hafnarbryggjunni 1967
14. júní 2004
Unnið hefur verið af miklu kappi við að endurlífga Torgið, breytt
útlit, gangstéttir, nýr gosbrunnur ofl. - Þá hefur hinn leiðinlegi
stallur símaklefans sem var þarna á norðausturhorninu verið fjarlægður
svo hann ætti ekki að angra neinn, - en eitt finnst mér vanta, ef til
vill vonandi á það eftir að koma og er á áætlum (?)- en það er hringlaga
lágt handrið, hringinn í kring um gosbrunninn, vegna litlu krakkanna,
það hefur komið fyrir að þarna hafa börn dottið út í, auk þess sem nett
ryðfrítt handrið mundi prýða svæðið. Annaðhvort vélaverkstæðið, væri 1-2
daga að smíða slíkt. Svo er eitt sem ætti ekki að skaða, það er vönduð
eftirlitsmyndavél, komið fyrir á kirkjuturni og beint niður eftir
aðalgötunni og svæðinu til hliðar, og auðvitað tengt netinu, þannig að
sjá mætti allan sólarhringinn yfir svæðið, líkt og gerist hjá vaxandi
fjölda sveitarfélaga. Nýjasta dæmið er endurnýjuð vefmyndavél
Akureyrarkaupstaðar.
14. júní 2004
Aðsent: Að kvöldi, 12. júní, rétt fyrir
kl. 22.0,0 losnaði steinhnullungur efst í 30 metra háum turni
Siglufjarðarkirkju og hrundi til jarðar með tilheyrandi þungum dynki, á
bílastæði sunnan kirkjunnar, en það var sem betur fer autt, enda ekkert
um að vera í kirkjunni eins og jafnan á laugardagskvöldum. Umræddur
steinn, sem er annaðhvort tilhöggvið blá- eða grágrýti, hafði verið
settur utan um járnkross efst á turninum, til að skorða hann og annar
svipaður undir og er búinn að sinna hlutverki sínu í 72 ár, en kirkjan
var fullbyggð árið 1932. -- Hvort það er tilviljun eða ekki
settist hrafn upp á þennan sama kross 17. desember 2003 og náðist þá
meðfylgjandi mynd af honum. Vegna atburðarins ákváðu foreldrar lítils
drengs sem fæddist um það leyti að láta hann heita í höfuð krumma að
millinafni, og var hann skírður fyrir viku, 6. júní síðastliðinn, í
fermingu systur sinnar, sem hélt honum undir skírn. Og bílastæðið
yfirfullt. -- Og nú spyrja menn nyrðra, hvort fuglinn hafi ekki verið að
vara bæjarbúa við hættunni sem gat fylgt sprungnum steini. Það væri þá
ekki í fyrsta sinn, eins og lesa má víða í þjóðsögum okkar. -- Mikil
mildi að enginn skyldi slasast, þegar 15-20 kg steinn féll efst úr 30
metra háum turni Siglufjarðarkirkju þetta laugardagskvöld. Er
ljóst að veður og vindar eru hér sökudólgurinn Á myndunum er: Séra
Sigurður Ægisson, krossinn eftir að steinninn losnaði og krummi á
krossinum í desember sl. S.Æ. (fjórðu
myndina, af tveim hröfnum tók SK 14. nóvember 2003)
14.
júní 2004 Ein gömul: Litli drengurinn er Óskar
Berg Elefsen, Jóhann
Ísaksson og Páll Hlöðversson. Páll er þarna með handknúna loftdælu í gangi,
en á hinum endanum niðri í sjónum er Aage Johansen kafari, sem sést
auðvitað ekki á þessari mynd.
13.
júní 2004 Þar sem lítið hefur sést á prenti um
væntanlega heimsókn Norska krónpissins, á vettvangi Siglfirðinga. - Svo
og ég hefi fengið nokkra spurningar um þessa "götubylgju" sem sumir hafa
kallað umtalið á götunni, - þá vil ég aðeins reyna að bæta úr, en þessa
klausu sótti ég á "Norska kóngavefinn"
http://www.kongehuset.no/default.asp Þessa frétt,
sem ég ætla ekki að reyna að þýða, - því flestir munu geta stafað
sig fram úr henni:
8.6.2004 - Offisielt besøk til
Island
Etter invitasjon fra Hans Eksellense, Islands President, Ólafur Ragnar
Grímsson, vil Deres Kongelige Høyheter Kronprinsen og Kronprinsessen
avlegge et offisielt besøk til Island i tiden 27. – 30. juni. 2004.
Foruten Reykjavík skal Kronprinsparet besøke Snorre Sturlasons Reykholt
og Alltingets historiske møteplass på Thingvellir. Programmet omfatter
besøk til Elkems ferrosilisiumsanlegg og åpning av en norsk
keramikkutstilling i Gardabær. Kronprinsparet vil også overvære en
konsert med Ola Kvernberg Trio i Reykjavík. I anledning av 100-årsmarkeringen av det moderne sildefisket på
Island vil Hans Kongelige Høyhet Kronprinsen og den islandske President
besøke Siglufjördur. -- (leturbr. mín)
13. júní 2004 Dagskrá 17. júní
hátíðarhaldanna
HÉR
13.
júní 2004 Ein Gömul: Pétur Pálsson, Theódór
Eggertsson og Jón Sigurðsson