Lífið í júní 1-5 2004 | Lífið í júní 6-12 2004 | Lífið í júní 13-19 2004 | Lífið í  júní 20-30 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í júní 6-12 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Minnisvarði
Skemmtisigling
Í Siglufjarðarkirkju




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Siglfirski fréttavefurinn Lífið á Sigló:

12 .júní 2004 Fyrir framan Fiskbúðina var "Síldarminjasafnið" að selja skemmtilega merkta boli í úrvali lita. (tekið seinnipartinn í gær)

  Dagskrá 17. júní hátíðarhaldanna HÉR

12 .júní 2004 Þessi litla snót heitir Brák Jónsdóttir, hún er þarna framan við Fiskbúðina og er að bjóða til sölu varning sinn sem hún hefur sjálf unnið, snemma beygist krókurinn því bæði móðir og amma eru listakonur.
Við hlið hennar situr viðskiptavinur; Geirrún Jóhanna Viktorsdóttir.
(tekið seinnipartinn í gær)

12 .júní 2004  Þekktir kappar:  Eysteinn Aðalsteinsson fisksali og Bjarnason pípari.  (tekið seinnipartinn í gær)

Það skal tekið fram, vegna þess sem fyrir aftan þá stendur, að þeir félagar eru ekki á útsölu- og kosta meira en 500 krónur stykkið, - þetta á við um torgsöluvarning, hálsklúta.

12 .júní 2004 Nýfæddur Siglfirðingur
12 .júní 2004  Kirkjutröppurnar. Verið var að hella steypu í mót  neðstu trappanna, seinnipartinn í gær.

12 .júní 2004  Ein gömul: Þorleifur Halldórsson, Ámundi Gunnarsson, Halldór Bjarnason og Þórður G Andersen.

11 .júní 2004 Gallerí Sigló, Suðurgötu 6 Siglufirði. "Stelpurnar" í gallerí Sigló eru í óða og önn að vinna að hinum fjölbreytilegustu minjagripum, tengdum síldarævintýrinu og Siglufirði. Hjá þeim kennir margra "grasa" handmálað postulín, - og margt fleira. - þá taka þær við sérpöntunum, bæði munstur og texta að ósk kaupanda, tilvalið til tækifærisgjafa og minninga svo dæmi sé nefnt. Þær senda hvert á land sem er,- og hafa opið alla daga frá klukkan 13-18.
Sími þeirra er: 846-9212 og 846-7065

11 .júní 2004  Síldarminjasafnið: Unglingar í vinnu hjá Síldarminjasafninu, voru á leið í hjarta bæjarins, til að selja fyrir safnið skyrtuboli merkta safninu. Þau notuðu gamla síldarkerru undir varninginn.

11 .júní 2004 Fyrsta vinna vegna snjóflóðagirðinga norðan Hvanneyrarár eru hafnar, en þarna uppi er nú grafa að störfum.

11 .júní 2004 Unnið er á fullu við að þekja og ganga frá Torginu, fyrir 17. júní næstkomandi

11 .júní 2004 BOMB - Enn eru þeir að sprengja í fjallinu vegna snjóflóðavarnargarðanna- og nú síðast seinnipartinn í gær. Grjótið, stórt sem smátt hentist á annan tug metra upp í loftið.
Engin hætta hefur þó verið á ferðum, fyllsta öryggis hefur ætið verið gætt, mannaferðir og umferð  um nágrennið stöðvuð á meðan. En þarna eru greinilega fagmenn að verki, þar sem grjótið fer nánast beint upp í loftið, en ekki niður hlíðina að byggðinni- og akvegum.

11 .júní 2004  Ein gömul: Jakob Björnsson, Ólafur Gíslason, Njáll Jónasson og Jón Sigurðsson

Afmæli í dag:
11 .júní 2004 

10. júní 2004  Hann er aldeilis ekki  af baki dottinn hann Kiddi G,  - unglingurinn síkáti. Nú er hann búinn að kaupa sér bát, að vísu með syni sínum sem heitir Georg Páll Kristinsson og býr á Ólafsfirði. Báturinn heitir Rán. - En spurningin er hvort sett verður í staðinn fyrir Reykjavík (þaðan sem báturinn var keyptur) komi Siglufirði eða Ólafsfirði, eða bara "Ólafsfirði-Siglufirði" að minnsta kosti þangað til bæjaryfirvöld beggja staða ákveða kosningardaginn um sameiningu bæjanna. Kiddi ætlar ekki að sækja um byggðarkvóta, sagði hann og glotti, en maður fiskar í soðið. Myndin var tekin í morgun af Kristni Georgssyni, er hann var að dytta að bátnum sínum.

10. júní 2004  Unglingavinnan í bænum er fyrir löngu komin á fullt. - Þarna eru nokkrir að hreinsa til og hlúa að gróðrinum norðast við Hvanneyrarbraut

10. júní 2004  Nýfæddur Siglfirðingur

10. júní 2004  Þessir krakkar voru að selja ýmsan mjög fjölbreyttan varning í gær, til styrktar fötluðum og langveikum börnum. þau voru á tveim stöðum við  Aðalgötuna og gekk vel salan sögðu þau- og voru ánægð.  (þeir sem þekkja nöfn þeirra, vinsamlega sendið mér)

10. júní 2004  Þessir krakkar voru á hjólaskautum að leika sér í gær- og báðu um myndatöku, sem þeir fengu,- en tveir þeirra fengu í leiðinni, hjá mér átölur fyrir það að vera ekki með hjálm á höfðinu, eins og lögreglan hefur verið að brýna fyrir þeim, en aðeins einn þeirra var með hjálm, sem hann tók að vísu ofan vegna myndatökunnar, "svo hann félli í hópinn"
(þeir sem þekkja nöfn þeirra, vinsamlega sendið mér)

10. júní 2004  það var blómlegt lífið í sólinni í gær, þarna Arnfinna Björnsdóttir, með ýmsan handiðnað til sölu fyrir utan Fiskbúðina, hjá henni eru gestir.

10. júní 2004 Ein gömul: Jóhann G Möller og Pétur Pálsson
Afmæli í dag: 10. júní 2004

9. júní 2004 Bara biðja um það,- og þá kemur það, - Hersteinn Karlsson bað,- og SR-Vélaverkstæði brást fljótt við, smíðaði tröppur handa honum og færði honum heim að dyrum.

9. júní 2004  Kanínur, eru ekki algeng fyrirbæri hér í bæ, en þessi litla snót (7 ára) Katrín Valdís Arnarsdóttir á nokkrar kanínur sem hún hýsir í litlu snotru húsi í garði foreldra sinna. Þarna stendur hún við hlið kanínukofans, með nýlega fæddan kanínuunga í fanginu.

9. júní 2004  Þessa tvo hitti ég niður við höfn í morgun í góða veðrinu, en þetta eru Ólafur Guðmundsson og Einar Þórarinsson

9. júní 2004  Ein gömul:  Gísli Hallgrímsson og Mikael Þórarinsson

Afmæli í dag: 9. júní 2004 

8. júní 2004 Á sjómannadaginn, buðu björgunarsveitin Strákar og fleiri aðilar uppá grillaðar pylsur ofl. góðgæti við Þormóðsbúð í tilefni af deginum. Á sama tíma var "opið hús" hjá sveitinni. Einhverjum af gestunum hefur ekki þótt nægjanlega vel veitt, eða vanta upp á gestrisnina,- því viðkomandi laumaði sér á bak við þar sem hann hefur séð að sótt var skiptimynt frá merkjasölu dagsins og stal þar um 20 þúsund krónum, sem þar voru í poka. Menn eru ekki vanir því að þjófar gangi hér lausir og höfðu því ekki læst þessa peninga niður. - Þeir sem tekið hafa eftir óeðlilegri eign eða eyðslu einhverra, e.t.v. unglinga. Vinsamlega látið lögreglu vita af því, (þar með taldir foreldrar) - eða þá þú sem tókst þessa peninga skilir þeim,- Því athugaðu: Þú gætir þurft á aðstoð sveitarinnar að halda- og þér liði ekki vel með það á samviskunni eftir á, að hafa stolið frá þeim sem stundum leggja líf sitt í hættu til að hjálpa fólki.

8. júní 2004 100 ára fjármálasaga. Þann 7. júní 2004 voru liðin 100 ár frá því að Íslandsbanki gamli opnaði. Af því tilefni er minnst fjármálasögu Íslandsbanka, með opnun sögusýningu í útibúum bankanna um land allt. Það á að sjálfsögðu einnig við á Siglufirði, þar sem Siglfirðingum sem öðrum er einnig boðið upp á kaffi og meðlæti í gær og í dag, sýning stendur yfir til 9. júlí. En það er þó alla aðra daga  heitt á könnunni í afgreiðslunni, og allir velkomnir. Meðfylgjandi mynd er tekin í morgun. og er af starfsfólki útibúsins á Siglufirði: Sigurlína Káradóttir, Kristín G Baldursdóttir, Erla Ingimarsdóttir, Kolbrún Marvia Passaro, - Sigurður Hafliðason útibússtjóri, Hörður Júlíusson og Rögnvaldur Gottskálksson

8. júní 2004 Vegageð. Nú er unnið að því að leggja nýjan og breiðan veg upp í Hvanneyrarskál, áður var farið Z lagað (Hólavegur / Skálarvegur) upp í Hvanneyrarskál, en nú verður vegurinn nánast beinn, ef frá er talinn sveigurinn inn á veginn sem hefst við enda Suðurgötu norðan snjóflóðavarnargarðsins "Stórabola" og síðan skáhallt upp, norður að Hvanneyrará og- brún. Suðurverk vinnur verkið.

8. júní 2004 Ein gömul: Jón Sigurðsson og Eðvald Eiríksson
Afmæli í dag 8. júní 2004

7. júní 2004 Sjómannadagurinn:  Hátíðarhöldunum var haldið áfram í Siglufjarðarkirkju, með fjölbreyttri dagskrá í gærkveldi klukkan 20:00 : - Forspjalli (af geisladisk),  Kirkjukórinn, Ávarp séra Sigurður Ægisson, sem jafnframt stjórnaði samkomunni. almennur söngur, þá kom Gylfi Ægisson fram og söng, Annar lestur: gömul Sjóferðabæn, - Karlakórinn söng, Heiðruð voru sjómannshjón, - Sönghópurinn Dyfrurnar,  - Sveinn Björnsson flutti stutta sjóferðasögu, - Kvennakórinn söng, Gústi guðsmaður söng (af geisladisk), - þá komu kórarnir aftur fram og að lokum söng Gylfi Ægisson gamalt og þekkt lag, sem allir þekktu.  (smelltu á myndina)

7. júní 2004 Ein gömul: Gamlir sjóhundar af Haferninum 1967, Bjarni Þorsteinsson, Salmann Kristjánsson, Sigurjón Kjartansson, Gunnar Tómasson og Steingrímur Kristinsson.

6. júní 2004 Sjómannadagurinn:  Lagður var blómsveigur við minnismerki um drukknaða sjómenn klukkan 14:30 í dag, við hátíðlega athöfn.

6. júní 2004 Sjómannadagurinn: Öllum sem vildu var boðið í siglingu með Múlaberg SI 22, auk þess sem nokkrir minni bátar slógust í för. Farið var út undir Siglunes og aftur til baka. Myndirnar sem koma í ljós er þú smellir á myndina tala sínu máli

6. júní 2004   Sjómenn: Til hamingju með daginn
Nú er Stálvíkin SI 1 komin fánum prýdd,- og Sigurvin komin í hóp þeirra sem flagga í tilefni af deginum. Erlenda skipið Mánafoss lengst til hægri, veit ekki af deginum frekar en Sunna SI 67

6. júní 2004  Ein gömul  Tveir heiðursmenn; Páll Ásrímsson og Andrés Hafliðason. Tekið á sjómannadaginn 1966 (m.800 m.m. linsu, langt að)

Afmæli í dag 6. júní 2004

6. júní 2004  Fyrir 50 árum og 10 dögum, heyrði ég eftirfarandi samtal þriggja kvenna, ein þeirra var mjög háróma svo ég lagði við hlustir, en ég var á leið til að heimsækja móður mína, sem átti heima í næsta húsi sunnan við garðinn þaðan sem raddirnar heyrðust.  ............."þetta gengur aldrei hjá þeim, hann er alltaf á kvennafari og potar í hvert gat sem hann getur, auk þess sem hann er farinn að drekka líka." Önnur rödd: "Og þú veist að hann hefur alltaf verið mesti villingurinn hérna á eyrinni og lætur engan í friði". Þriðja röddin: "Látið ekki svona hann er ekki eins slæmur og þið haldið, ég ætti að þekkja hann, því oft hefur hann fengið hjá mér kleinu og góðgæti þegar hann var krakki, og hann er ekki eins slæmur og þið lýsið". Tvær raddir nærri samhljóða: "Við ættum að þekkja hann, ekki verr en þú, auk þess er þetta altalað, ég er viss um að þau verða skilin innan árs." -- "Sjáum til, en ég er ekki sammála" sagði "þriðja" röddin, sem var rödd Ingibjargar Sveinsdóttur. Hinar raddirnar ætla ég ekki að nefna. En eitthvað á þessa leið hljómuðu raddirnar.  En Ingibjörg var gleggri en vinkonur hennar sem báðar eru látnar. - En það var ég Steingrímur.- og kona mín Guðný Ósk Friðriksdóttir sem þarna var talað um, nýkomin úr stuttri brúðkaupsferð, en í dag eigum við 50 ára hjúskaparafmæli, og rifja ég þetta því upp. Myndin er tekin fyrir um 40 árum,  af villingnum ógurlega- og temjaranum. (ljósmynd: Kristinn sonur okkar þá 4 ára)