|
Laugardagur 18. desember 2004
Loksins loksins er kominn nægur snjór, sögðu
skíðaálfarnir, þegar skíðasvæðið í Sakarðsdal var opnað. En svæðið var
opnað í dag. Ég ætlaði að fara á vettvang til að taka ljósmynd, en um
það leiti kom yfir smá él, svo ég hætti við. Það verður að bíða betri
tíma |
Laugardagur 18. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 0 °C
SA gola 3-4 m/s
Úrkomulaust
Efst á síðu |
|
Laugardagur
18. desember 2004 Ein gömul:
Ekki þekki ég stelpurnar, en drengurinn er Jón Baldvin Hannesson
sem nú skólastjóri í Giljaskóla á Akureyri
Myndin er tekin í Bókasafni Siglufjarðar 16. nóvember 1964
Efst á síðu |
Laugardagur
18. desember 2004
Vigfús Ingi Hauksson
er 49 ára í dag |
Laugardagur 18. desember 2004
Katrín Dröfn Haraldsdóttir
er 16 ára í dag
Efst á síðu |
|
Föstudagur 17. desember 2004
Uppákoma í Íslandsbanka. Í dag mætti hópur eldri borgar í
kaffi og mikils og girnilegs meðlætis í boði Íslandsbanka, en nutu áður
ljúfra tóna frá Ó.B. kvartettnum sem söng fyrir hópinn nokkur
lög. Og síðan kom Vorboðakórinn (aldraðir borgarar) og söng
nokkur valin lög. Ég mætti að sjálfsögðu og smellti á þessum myndum, sem
þú sérð ef þú smellir á myndina |
Föstudagur 17. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -4 °C
Norðan andveri 1-2 m/s
Úrkomulaust nú - en snjóaði talsvert í nótt, jafnföllnum.
Efst á síðu |
|
Föstudagur
17. desember 2004 Ein gömul: Kristján Hauksson -
Kristján Möller - Guðmundur Albertsson og Már Jóhannsson
Myndin er tekin á 1600 ASA filmu, á Æskulýðsheimilinu við Vetrarbraut
þann 1. nóvember 1964
Efst á síðu |
Föstudagur
17. desember 2004
Lóa Birna Tryggvadóttir
er 30 ára í dag.
(dóttir Tryggva Björns) |
Föstudagur 17. desember 2004
Guðrún Brynjólfsdóttir
er 90 ára í dag
Efst á síðu |
Fimmtudagur 16. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -1 °C
Austan 8-10 m/s
Úrkomulaust nú - en hefur komið með nokkra hríðarbyli í morgun.
Efst á síðu |
|
Fimmtudagur
16. desember 2004 Ein gömul: Þessi mynd er ekki
tæknilega fullkomin, en þó einstök ljósmynd sem segir langa og merka
sögu af þessum tveim heiðursborgurum Siglufjarðar, Gústa guðsmanni og
Bigga Run, nöfn sem allir þekkja, það er Ágúst Gíslason og Birgir
Runólfsson.
Ljósmynd: Einar Hermannsson.
Efst á síðu |
Fimmtudagur
16. desember 2004
Brynjar Harðarson
er 22ja ára í dag |
Efst á síðu |
Fimmtudagur
16. desember 2004
Óli Júlíus Björnsson
er 78 ára í dag |
Fimmtudagur
16. desember 2004
Tryggvi Björnsson
er 55 ára í dag. hann er þarna með dóttursyni sínum Kristjáni Helga,
úti á eyjunni Krít |
|
_small.jpg) _small.jpg) Miðvikudagur
15. desember 2004 Fréttatilkynning:
Sjóður72 hefur til sölu jólakorta.
Sjóður72 var stofnaður á síðasta árið að frumkvæði Jóns Finns
Jóhannessonar en honum auðnaðist ekki að ljúka því verki áður en hann
lést. Samstúdentar hans úr Menntaskólanum á Akureyri vorið 1972 vildu
minnast hans með því að ljúka því sem hann hafði byrjað á og gengu frá
stofnun sjóðsins.
Jón Finnur vissi af fylgdist vel með meðbræðrum sínum og
vissi um skólasystkini þá sem áttu um sárt að binda og fannst að
útskriftarhópurinn ætti að rétta þeim hjálparhönd.
Á síðasta ári stóð sjóðsstjórnin fyrir jólakortasölu og gat
með afrakstrinum veitt styrki úr sjóðnum.Fyrir þessi jól hafa einnig
verið gefin út jólakort og viljum við bjóða Siglfirðingum þau til kaups.
Á Siglufirði eru kortin til sölu hjá Magnúsi Eiríkssyni á
umboðsskrifstofu VÍS.
Í Reykjavík má nálgast kortin hjá Guðmundi J. Albertssyni
Grettisgötu 34 s.551-5186 og 660-5141
Myndir á kortunum eru af sólsetri séð frá Lambanesi í Fljótum, Sólfarinu
eftir Jón Gunnar Árnason og Þingvallabænum. Kortin kosta kr 150-
G.J.E.
Efst á síðu |
|
Miðvikudagur
15. desember 2004 Það er gott ef þeir
opna augun: Í morgunblaðinu þann 15. síðastliðinn og einnig í
útvarpi er talað um ógnarástand af völdum hættulegrar sýru til Primex á
Siglufirði, sem flutt er til Siglufjarðar í miklu magni vikulega,
landleiðina eftir að “óskabarn þjóðarinnar” gaf upp öndina., og hætti að
flytja vörur sjóleiðina út á landsbyggðina.
Vissulega er þarna um mjög hættulegt efni að ræða sem þarfnast
sérstakrar varúðar við flutning og aðra meðhöndlun, hvort heldur er á
sjó eða landi.
En þetta er ekkert nýtt fyrirbæri, sýruflutningar, saltsýra,
brennisteinssýra, maurasýra og fleiri hættuleg og ætandi efni hafa verið
flutt landleiðina, allt frá árinu 1960 sem ég get staðfest, þar
sem ég umgekkst þessi efni, það er unnið hjá fyrirtækinu sem meðal
annars hafa notað þau í áratugi, það er Síldarverksmiðjur Ríkisins,
síðar SR Mjöl og Síldarvinnslan. Og aðrar bræðsluverksmiðjur víða um
land nota þessi sömu efni og hafa gert, án þess að Öryggiseftirlit og
eða blaðamenn hafi áttað sig á því (?) fyrr en allt í einu núna, að gera
þurfi ráðstafanir sem tekið væri eftir.
Ég er ekki efnafræðingur, en ég get að minnsta kosti fullyrt,
að ef einhver áætlum um slys af völdum bílveltu og eða annars óhapps,
þar sem þessi efni væru innanborðs væru, þá þyrftu engin veruleg
umkverfisslys að eiga sér stað af slíkum óhöppum, því öll þessi efni
eiga það sameiginlegt að hægt er að eyða áhrifum þeirra.
Það á sér til dæmis stað við notkun þeirra hjá Primex
og bræðslunum, þau renna að lokum til sjávar sem meinlaust vatn eða
sápulögur. Bílstjórarnir hafa
alla þá þekkingu sem þeir þurfa, sem og þeir sem taka á móti, svo og
auðvitað þeir sem meðhöndla viðkomandi eiturefni.
Það þarf að auðkenna bílana blikkandi ljósum og ef til vill
takmarka hámarkshraða þeirra sem flytja efnin, svo vegfarendur viti af
nálægð þeirra, en margir hverjir keyra um vegi landsins sem einir
væru í heiminum.
Og ekki sakar að hvetja viðkomandi stjórnsýslu að opna augun og
gera eitthvað í forvarnarstörfunum og veita meira fé til slökkviliðanna
til þjálfunar vegna slíkrar hættu, en þeim er ætlað að taka á þessum
málum, jafnvel án þess að fá einhverjar leiðbeiningar að ráði, til að
fara eftir.
Spurningin er; ætla stjórnvöld að gera eitthvað í málinu, eða
ætla þeir að loka fyrir þessa flutninga og þar með atvinnurekstrinum,
eða ætla þeir sækja peningana sem þessi fyrirtæki afla í þjóðarbúið í
Smáralind eða Kringluna? S.K.
Efst á síðu |
Miðvikudagur
15. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -3 °C
Austan 2-4 m/s
Úrkomulaust
Efst á síðu |
Miðvikudagur
15. desember 2004 Hellan er komin út - full af jólaefni
Efst á síðu |
Miðvikudagur
15. desember 2004 Ein gömul:
Þórður Georg Andersen og Jón Júlíusson.
Myndin er tekin 26. júlí 1963
Efst á síðu |
Miðvikudagur
15. desember 2004
Óskar Jóhannsson, sölumaður
er 48 ára í dag |
Miðvikudagur
15. desember 2004
Kristbjörn Leó Sævaldsson
er 6 ára í dag
Efst á síðu |
Miðvikudagur
15. desember 2004
Oddur Guðmundur Jóhannsson
er 50 ár í dag.
Hann er hér að skera sneið úr afmælistertunni í veislunni sem hann hélt
sl laugardag í tilefni afmæli sínu.
Efst á síðu |
Þriðjudagur 14. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -5 °C
Norðan 6-8 m/s
Éljagangur
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur
14. desember 2004 Ein gömul:
Ólafur Þór Haraldsson og Hafsteinn Hólm
í kaffistofu SR-Niro 4. september 1964
Efst á síðu |
Þriðjudagur
14. desember 2004
Hans Ragnar Ragnarsson
er 47 ára í dag |
Þriðjudagur
14. desember 2004
Sigurður Ríkharð Stefánsson er 48 ára í dag
Efst á síðu |
Þriðjudagur
14. desember 2004
Anton Sigurbjörnsson
er 71 ára í dag |
Þriðjudagur
14. desember 2004
Erla Hallgrímsdóttir
er 73ja ára í dag
Efst á síðu |
|
_small.JPG) Mánudagur
13. desember 2004
Það hvessti all hressilega um klukkan 15:00 í dag og um
klukkan 15:30 í einni hviðunni brotnaði jólatréð á Torginu, en
sjálfvirkur
vindmælir við flugvöllinn sýndi 28
m/s vindhraða um svipað leiti.
Efst á síðu |
Mánudagur
13. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 4 °C
Sunnan 10-12 m/s
Úrkomulaust
Efst á síðu |
|
Mánudagur
13. desember 2004 Félag eldri borgar á Siglufirði og
í Fljótum hélt hinn árlega jólafund sinn að Skálarhlíð, seinnipartinn í
gær. Þar fór fram hin hefðbundna athöfn, með almennum fundarstörfum
hugvekju prestsins, söng Vorboðakórsins og Skálahlíðakórsins (?), og
Himnabandið lék undir (?) Ég mætti EKKI á þennan fund, en kona mín Guðný
Ósk Friðriksdóttir gerði það og tók nokkrar myndir sem þú sér með því að
smella á myndina.
Efst á síðu |
|
Mánudagur 13. desember 2004
Hvernig útlendingur sér Siglufjörð: Ég rakst á þessa erlendu
myndasíðu, þar sem er að finna 11 ljósmyndir teknar á Siglufirði:(fyrstu
5 myndirnar er teknar vestar)
http://www.mirang.nildram.co.uk/OurSite/siglufjordur.html |
Mánudagur
13. desember 2004 Ein gömul:
Jósef Flóventsson og Hafliði Guðmundsson
Ljósmynd: Einar Hermannsson
Efst á síðu |
Mánudagur
13. desember 2004
Valbjörn Steingrímsson
er 51 árs í dag |
Mánudagur 13.
desember 2004
Efst á síðu |
Sunnudagur
12. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 1 °C
Logn
Úrkomulaust |
Jólakveðja frá Vancouver í
Canada til Siglfirðinga.
Efst á síðu |
|
Sunnudagur 12. desember 2004
Allin Sportbar var með jólahlaðborð á boðstólnum í gærkveldi, en
Starfsmannafélag SR bauð mér þangað í mat, sem ég naut þar með
fyrrverandi vinnufélögum og vinum. Auðvitað tók ég myndavélina með mér
og tók nokkrar myndir af SR-ingunum sem þarna voru í meirihluta ásamt
mökum, sem og fleiri gestum. Maturinn var alveg sérstaklega góður- og er
greinilegt að þeir kunna til verka í eldhúsinu, hefði ég ekki vitað
betur hefði ég haldið að kona mín hefði hjálpað til svo góður var
maturinn, en hún ætlaði einnig að fara út að borða en hætti við á
síðustu stundu. Ég þakka innilega fyrir mig. -- Smelltu á myndina
og skoðaðu nokkrar myndir sem ég tók af handahófi. |
Sunnudagur
12. desember 2004 Ein gömul:
Kristján Ásgrímsson og Steingrímur Matthíasson
Ljósmynd: Einar Hermannsson
Efst á síðu |